Morgunblaðið - 12.02.2009, Side 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ hef-
ur ákveðið að umsjón með und-
irbúningsvinnu nýs háskólasjúkra-
húss flytjist til Landspítalans, en sú
undirbúningsvinna hefur síðustu
þrjú ár verið á vegum sérstakrar
byggingarnefndar heilbrigðisráðu-
neytisins.
Ingólfur Þórisson, fram-
kvæmdastjóri tækni og eigna LSH,
hefur unnið að undirbúningsvinn-
unni á vegum heilbrigðisráðuneyt-
isins og verið í fríi frá störfum á
Landspítala. Hann kemur nú aftur
til starfa á Landspítala.
Morgunblaðið/Júlíus
Nýtt sjúkrahús
SAMFYLK-
INGIN í borg-
arstjórn hvetur
til þess að verk-
efninu Sókn-
aráætlun, sam-
vinna og samráð
við uppbyggingu
atvinnulífs í
Reykjavík til
framtíðar, verði
hraðað. Kemur
þetta fram í tilkynningu frá Degi B.
Eggertssyni. Samþykkt var á fundi
borgarráðs í nóvember að skipa
starfshóp en Samfylkingin segir nú
ljóst að verkefnið hafi ekki fengið
þann forgang sem því var ætlað í
upphafi.
Sóknaráætlun
verði flýtt
Dagur B.
Eggertsson
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
áframhaldandi farbann yfir fyrr-
verandi framkvæmdastjóra Verð-
bréfaþjónustu sparisjóðanna
(VSP), Viggó Þóri Þórissyni. Sætir
hann farbanni til 27. febrúar nk.,
en hann hefur þegar verið í far-
banni í tæpa 22 mánuði, eða frá
13. apríl 2007.
Viggó er grunaður um stórfelld
efnahagsbrot í starfi sínu sem
framkvæmdastjóri VSP og nær
rannsóknin til fjölmargra landa.
Samkvæmt dómi Hæstaréttar er
stutt í að henni ljúki.
Hæstaréttardómarinn Jón Stein-
ar Gunnlaugsson skilaði séráliti. Í
því lýsir hann þeirri afstöðu sinni,
að fella eigi úrskurðinn úr gildi.
„Ég tel að framgangur rannsókn-
arinnar á hendur varnaraðila sé
með þeim hætti að ekki komi til
greina að láta hann enn á ný sæta
skerðingu á frelsi sínu vegna
hennar,“ segir í álitinu.
Farbann framlengt
en séráliti skilað
ÁSA Ólafsdóttir,
lektor við laga-
deild Háskóla Ís-
lands, hefur ver-
in ráðin að-
stoðarmaður
Rögnu Árnadótt-
ur, dóms- og
kirkjumálaráð-
herra.
Ása lauk laga-
prófi frá Háskóla Íslands árið 1996,
hlaut hdl-réttindi árið 1998, lauk
LL.M (c) gráðu frá Cambridge-
háskóla árið 2000 og varð hæsta-
réttarlögmaður árið 2005. Hún sat
m.a. í kærunefnd jafnréttismála
2003-2008, var einn lögmanna
Neyðarmóttöku vegna nauðgana
2003-2008 og hefur verið formaður
áfrýjunarnefndar neytendamála
frá 2005.
Aðstoðarmaður
dómsmálaráðherra
Ása Ólafsdóttir
STUTT
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
EVRÓPSKA háskólasamstarfið
Erasmus hefur útnefnt dr. Baldur
Þórhallsson, prófessor í stjórnmála-
fræði við Háskóla Íslands, sem Jean
Monnet-prófessor, viðurkenning
sem nefnd er eftir einum af frum-
kvöðlum Evrópusamrunans. Um leið
felur útnefningin í sér viðurkenn-
ingu fyrir stjórnmálafræðideild HÍ
fyrir framlag hennar til kennslu og
rannsókna á samrunaþróun Evrópu.
Viðurkenningunni fylgir rann-
sóknarframlag, sem svarar til um 7,5
milljóna króna, en árlega hljóta
nokkrir fræði-
menn á sviði Evr-
ópufræða þennan
styrk. Aðspurður
hvenær áhugi
hans á Evrópu-
fræðum hafi
vaknað segir
Baldur að það
hafi verið fljót-
lega eftir að hann
hóf nám í stjórn-
málafræði við HÍ árið 1988.
Nær öll ríki Evrópu hafi stefnt að
ESB-aðild að kalda stríðinu loknu og
hann hafi heillast af þeim rannsókn-
arviðfangsefnum sem sneru að
Evrópusamrunanum. Þetta hafi ver-
ið á þeim tíma sem hart var tekist á
um EES-samninginn hér á landi og
Evrópumálin í brennidepli.
Ekki talið hæft rannsóknarefni
Þegar Baldur hóf meistaranám í
stjórnmálafræði í Essex á Englandi
ætlaði hann fyrst að skrifa um mögu-
leika Íslands til áhrifa innan EES,
rannsóknarefni sem prófessorarnir
höfnuðu með þeim orðum að augljóst
væri hver áhrifin yrðu; engin.
Lendingin hefði verið sú að hann
hefði skoðað stöðu Írlands innan
ESB, rannsóknarefni sem hann
hefði síðan útvíkkað til smáríkjanna
sjö sem þá voru í ESB í doktors-
ritgerð við sama háskóla.
Inntur eftir því hvaða þýðingu
viðurkenningin hafi segir Baldur að
hún muni gera stjórnmálafræðideild
HÍ kleift að fjölga námskeiðum í
Evrópufræðum, en sérstök áhersla
verði lögð á að fjalla um þátttöku Ís-
lands í EES og Schengen og stöðu
ríkja innan Evrópusambandsins.
Þá standi til að stofna diplómanám
á meistarastigi í smáríkjafræðum,
með sérstaka áherslu á stöðu smá-
ríkja í Evrópu. Ennfremur muni
verðlaunaféð nýtast til að styrkja
sérhæfingu í Evrópufræðum innan
meistaranáms í alþjóðasamskiptum.
Baldur
Þórhallsson
Fær titil Jean Monnet-prófessors