Morgunblaðið - 12.02.2009, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 12.02.2009, Qupperneq 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009 BERGÞÓR Ólason, fyrrverandi aðstoð- armaður sam- gönguráðherra, býður sig fram til 2. sætis í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Norðvest- urkjördæmi. Bergþór er fæddur á Akranesi og búsettur þar, en ólst upp í Borgarnesi. Hann hef- ur m.a. starfað sem lögregluþjónn í sumarafleysingum, hjá Heklu, Lýs- ingu og Kaupþingi. Bergþór Ólason Bergþór Ólason í 2. sæti Samfylking og Vinstri hreyf- ingin grænt framboð hafa komið sér saman um að Alþingiskosn- ingar fari fram laugardaginn 25. apríl næstkomandi. Morgun- blaðið mun daglega birta fréttir sem tengjast framboðum, próf- kjörum, kosningafundum o.fl. Kosningar 2009 ÞURÍÐUR Back- man alþing- ismaður hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2. sæti í forvali Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs í Norðaust- urkjördæmi vegna alþingiskosning- anna í vor. Í síðustu alþingiskosn- ingum var Þuríður í 2. sæti. Þur- íður hefur setið á þingi fyrir VG frá árinu 1999, hún er núverandi formaður heilbrigðisnefndar Al- þingis sem og á hún sæti í félags- og tryggingamálanefnd og menntamálanefnd. Þuríður í 2. sæti forvals VG Þuríður Backman ÓLAFUR Sveinn Jóhannesson býður sig fram í 1.-2. sæti á lista Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvest- urkjördæmi fyrir komandi kosn- ingar. Hann er fæddur 1979 og uppalinn á Tálknafirði. Hann hef- ur m.a. starfað í fiskvinnslu og ferðaþjónustu og setur málefni fjölskyldunnar á oddinn. Ólafur Sveinn í 1.-2. sæti Vinstri-grænna Ólafur Sveinn Jóhannesson BJARKEY Gunn- arsdóttir gefur kost á sér í 2. sætið í forvali Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs í Norðaust- urkjördæmi fyrir komandi alþing- iskosningar 2009. Bjarkey hefur ver- ið virk í störfum VG lengi og á nú sæti í stjórn flokksins. Hún situr einnig í bæjarstjórn Fjallabyggðar. Bjarkey í 2. sæti forvals VG Bjarkey Gunnarsdóttir Á FUNDI í kjördæmisráði Sjálf- stæðisflokksins í Suðvesturkjör- dæmi sem haldinn var sl. þriðjudag, var samþykkt að viðhaft skuli próf- kjör í Suðvesturkjördæmi vegna uppröðunar á lista Sjálfstæð- isflokksins fyrir alþingiskosning- arnar 2009 og skuli prófkjörið fara fram hinn 14. mars nk. Prófkjör í Suð- vesturkjördæmi FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is MÖGULEIKAR Bjarna Bene- diktssonar alþingismanns á því að verða kjörinn formaður Sjálf- stæðisflokksins á aðalfundi flokksins í lok mars jukust svo um munar í fyrradag þegar Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir lýsti því yfir að hún hygðist bjóða sig fram til áframhaldandi setu sem varaformaður flokksins en ekki til formanns. Bjarni er sá eini sem hefur lýst yfir framboði til formanns. Það er þó ekki þar með sagt að Bjarni verði kjörinn formaður og á sama hátt er ekki heldur hægt að slá því föstu að Þorgerður Katrín verði kjörin varaformaður. Enn er nægur tími fyrir aðra til að tilkynna framboð til þessara embætta og í raun er engin þörf á að gera það fyrr en á lands- fundi þar sem allir eru í kjöri. Þorgerður Katrín var kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokks- ins árið 2005 og það var ekki nema eðlilegt að gera ráð fyrir því að hún hefði hug á for- mennsku. Það kom því mörgum á óvart þegar hún lýsti því yfir að í stað þess að taka þátt í kosninga- baráttu um formannssætið vildi hún frekar beina kröftum sínum að innra starfi flokksins. Mikill þrýstingur Einn af stuðningsmönnum Þor- gerðar Katrínar sem rætt var við í gær sagði að töluvert hefði ver- ið þrýst á hana að bjóða sig fram, ekki síst af hálfu kvenna innan flokksins en einnig af hálfu flokksmanna sem tengja Bjarna, með réttu eða röngu, við arm innan flokksins sem ýmist er kenndur við Davíð Oddsson og Björn Bjarnason. Einn þessara tilteknu stuðningsmanna bætti jafnframt við að tenging Bjarna við þennan arm væri ekki síst vegna ætternis Bjarna, fremur en vegna afstöðu hans til tiltekinna málefna. Bjarni er sem kunnugt er af Engeyjarættinni en ein- staklingar af þeirri ætt hafa lengi gegnt áhrifastöðum í stjórn- málum og í efnahagslífinu. Annar sjálfstæðismaður sem þekkir vel til sagði að það ynni með Bjarna að hafa ekki verið í ríkisstjórn því rík krafa væri um endurnýjun í forystusveitinni. Ljóst má vera að Þorgerður Katrín hefði getað orðið Bjarna erf- iður andstæðingur. Hefði komið til kosninga á milli þeirra hefði próf- kjörsbaráttan í þeirra kjördæmi, Suðvesturkjördæmi, getað orðið eins konar forspil að formannskosn- ingunni. Alls ekki er víst að Bjarni hefði átt vísan sigur í prófkjörinu en ósigur í því hefði dregið úr möguleikum hans á sigri á lands- fundi. Stefna hátt í prófkjörum Aðrir sem helst hafa verið nefnd- ir sem hugsanlegir frambjóðendur til formanns eru Guðlaugur Þór Þórðarson og Kristján Þór Júl- íusson. Guðlaugur Þór hefur lýst því yfir að hann sækist eftir 1. sæti í próf- kjörinu í Reykjavík en tilkynnir um hvort hann sækist eftir formanns- embættinu eða ekki síðar. Kristján Þór hefur heldur ekki sagt hvort hann sækist eftir forystu í flokknum. „Ég á eftir að fara í prófkjör í mínu kjördæmi og þá reynir fyrst á styrk manns,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið í gær. Þegar úrslitin í prófkjörinu lægju fyrir myndi hann taka ákvörðun um framboð til forystu- starfa á landsfundi. Fengi hann góðan stuðning yrði framboð miklu líklegra. Morgunblaðið/Kristinn Formannsefni Möguleikar Bjarna Benediktssonar á formennsku í Sjálfstæðisflokknum virðast afar góðir. Enn er þó nægur tími til mótframboða. Enn einn í formannsslag  Bjarni Benediktsson sá eini sem hefur lýst yfir framboði til formanns Sjálf- stæðisflokksins  Minni líkur á hörðum prófkjörsslag í Suðvesturkjördæmi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mun sækjast eftir 1.-2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvest- urkjördæmi þann 14. mars nk. Hún var í 1. sæti á lista flokksins í kjördæminu í síðustu kosningum en Bjarni Benediktsson var í 2. sæti. „Það verður að líta til þess að þetta kjördæmi er sérstakt því bæði frambjóðandi til formanns og varaformanns eru þar,“ sagði hún. 2. sæti listans væri einnig forystusæti. Aðspurð hvers vegna hún hefði ákveðið að sækjast ekki eftir formennsku, líkt og margir bjuggust við, sagði Þorgerður Katrín að hún hefði ávallt sagt að það skipti máli hvað hjartað segði þegar ákvarðanir væru teknar í pólítik. „Og hjartað var ekki með mér í þessari ákvörðun.“ Hún hefði heldur aldrei litið svo á að embætti varaformanns væri e.k. biðstofa fyrir embætti formanns. „Það er ekkert sjálfgefið í pólitík,“ bætti hún við. Mun sækjast eftir 1.-2. sæti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is NIÐURSVEIFLA efnahagslífsins verður dýpri og lengri en fyrstu spár á liðnu hausti gerðu ráð fyrir, sam- kvæmt skýrslu hagdeildar ASÍ sem Ólafur Darri Andrason deildarstjóri kynnti í gær. Erfiðlega hefur gengið að koma bankakerfinu í viðunandi horf á ný og skapa tiltrú á efnahags- lífið. Þá eru efnahagshorfur í útlönd- um að versna. Hagdeildin spáir því að næstu tvö ár dragi mjög úr umsvifum í hagkerf- inu og samdráttur í landsframleiðslu verður verulegur. Landsframleiðslan taki aftur að aukast á árinu 2011 og líklega dragi ekki úr atvinnuleysi fyrr en á síðari hluta ársins 2011. Horfur eru á að atvinnuleysi nái há- marki á öðrum ársfjórðungi 2009. Þá gætu um 18 þúsund manns verið að fullu án vinnu. Hagdeild ASÍ spáir því að atvinnuleysi verði um 9% á þessu ári og næsta ári en um 8% á árinu 2011. Miðað við bjartsýnar forsendur gæti atvinnuástandið batnað heldur fyrr. Verðbólga mun ná hámarki á yf- irstandandi ársfjórðungi. Síðan hjaðnar hún hratt og verður komin niður undir 3% í lok ársins. Hagdeild- in spáir því að Seðlabankinn hefji lækkun stýrivaxta á öðrum ársfjórð- ungi þessa árs. Ráðstöfunartekjur heimilanna hafa minnkað mikið og er ekki séð fyrir endann á þeirri þróun. Einkaneysla mun dragast saman um tæpan þriðj- ung á þessu ári og um tæp 10% á næsta ári. Heildarfjárfesting í hagkerfinu dróst saman um tæp 27% í fyrra. Gert er ráð fyrir svipuðum samdrætti á þessu ári. Hagdeild ASÍ gerir ráð fyr- ir að fjárfestingar taki heldur við sér á næsta ári og aukist þá um 17% og svo um tæp 3% á árinu 2011. Í spánni er gert ráð fyrir að framkvæmdir við fyrsta áfanga álvers í Helguvík fari á fullt upp úr miðju þessu ári og ljúki um mitt ár 2011. Lesa má skýrsluna á heimasíðu ASÍ (www.asi.is). Tvö mögur ár framundan Mesta samdráttarskeið í sögu íslensks efnahagslífs á síðari árum er hafið. Ekki tekur aftur að rofa til fyrr en 2011 að mati hagdeildar Alþýðusambands Íslands Morgunblaðið/Golli Horfur Ólafur Darri Andrason segir að verðbólga muni hjaðna hratt á árinu.        !"" 4(&5") , .$ +& ', 5$/ 5+$$" /$ D D D D D D      #   !"#$ "$ !"$   ? >    #"%$  #"!$  ? >  

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.