Morgunblaðið - 12.02.2009, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 12.02.2009, Qupperneq 19
Fréttir 19ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009 Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is MORGAN Tsvangirai, fyrrverandi forsetaefni stjórnarandstöðunnar í Simbabve, tók í gær við embætti forsætisráðherra í þjóðstjórn sem mynd- uð verður með flokki Roberts Mugabe forseta. Tsvangirai ávarpaði 10.000 stuðningsmenn sína á íþróttaleikvangi í Harare eftir að hann sór emb- ættiseiðinn og sagði að binda þyrfti enda á póli- tíska ofbeldið í landinu. „Stjórnin mun sjá til þess að matvæli verði á boðstólum og á viðráðanlegu verði. Enginn Simbabvemaður mun nokkurn tíma svelta aftur.“ Mugabe hefur verið einráður í 29 ár og lagt efnahag landsins í rúst. Rúmur helmingur lands- manna er háður matvælaað- stoð alþjóðlegra hjálparstofn- ana og 94% eru án reglulegrar atvinnu. Um 80% barna í landinu ganga ekki í skóla og ríkissjúkrahúsum hefur verið lokað vegna vangoldinna launa kennara, lækna og hjúkrunarfræðinga. Á sama tíma hafa um 3.400 manns dáið úr kóleru og nær 70.000 smitast af sjúkdómnum. Margir andstæðinga Mugabe efast um að for- setinn sé í raun og veru tilbúinn til að deila völd- unum með Tsvangirai. Nýi forsætisráðherrann féllst þó á að mynda þjóðstjórnina með flokki Mu- gabe vegna þrýstings frá leiðtogum grannríkja, m.a. í von um að geta bætt ástandið í landinu með fjárstuðningi vestrænna ríkja. Sá hængur er hins vegar á að Vesturlönd vilja ekki veita Simbabve fjárhagsaðstoð fyrr en Mugabe sýni að hann vilji í raun og veru koma á nauðsynlegum umbótum, en flestir telja mjög ólíklegt að hann geri það. Tsvangirai virðist því vera í hörmulegri sjálf- heldu – og útlit er fyrir að Simbabvemenn haldi áfram að svelta. „Enginn mun svelta aftur“ Tsvangirai virðist í sjálf- heldu í embætti forsætis- ráðherra Simbabve Morgan Tsvangirai YFIRVÖLD í Ástralíu grunar að brennuvargar hafi kveikt nýja skóg- arelda í Viktoríuríki. John Brumby, forsætisráðherra Viktoríu, sagði í gær að „lítill vafi“ léki á því að eldar hefðu verið kveiktir af ásettu ráði í ríkinu í fyrrinótt. Lögreglustjóri Virginíu sagði að auknar líkur væru á því að lögreglan fyndi brennuvarg sem talið er að hafi kveikt einn af eldunum sem geisuðu á laugardag. Um 20 manns létu lífið í þeim eldi. Alls fórust a.m.k. 180 manns í skógareldunum. bogi@mbl.is Fleiri eldar kveiktir? Brennuvarga ákaft leitað í Ástralíu FRÉTTASKÝRING Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is EITT er ljóst eftir þingkosningarnar í Ísrael á þriðjudag: Hægrimenn hafa styrkt talsvert stöðu sína eins og spáð var og líklegt að Benjamin Net- anyahu, harðlínumaður sem er andvígur sjálfstæðu Palestínuríki, myndi næstu ríkisstjórn. En fátt bendir til að vel gangi að mynda stjórn sem geti tekið af festu á þeim viðfangsefnum sem blasa við. Sumir fréttaskýrendur ganga svo langt að segja að stjórnmálakerfið hafi beðið ósigur og spá því að margar vikur líði uns málin skýrist. Leiðtogar Palestínumanna harma niðurstöðuna, segja að ísraelskir kjósendur hafi gert friðarsamn- inga enn ólíklegri en áður. Öryggi ríkisins var greinilega ofarlega í huga margra Ísraela sem hafa misst trú á friðarumleitunum. Harðlínumenn, sem vilja að gengið verði milli bols og höfuðs á Hamas á Gaza, segja að þriggja vikna árásin blóðuga hafi verið stöðvuð of snemma. Ljúka hefði átt verkinu. Boðskapur þeirra, sem segja að þótt ísraelski her- inn hafi yfirgefið Suður-Líbanon og Gaza hafi það ekki gert Palestínumenn sáttfúsari, féll í frjóa jörð. En talsmenn friðarsamninga benda á að Gaza hafi verið haldið áfram í herkví og eftir sem áður sé verið að efla byggðir landtökumanna á Vesturbakk- anum. Þær aðgerðir túlka Palestínumenn sem ákvörðun Ísraela um að láta bakkann aldrei af hendi. Enn er óljóst hver muni fara fyrir næstu rík- isstjórn en flestir telja að það verði Benjamin Net- anyahu, leiðtogi hægriflokksins Likud. Flokkurinn tvöfaldaði fylgi sitt, fékk 27 sæti af alls 120 á þinginu, Knesset. Enginn skyldi samt vanmeta Tzipi Livni, utanríkisráðherra og leiðtoga miðju- flokksins Kadima, sem vann óvæntan sigur og fékk einu sæti fleiri en Likud. En heimildarmenn segja að þótt úrslitin hafi verið vonbrigði fyrir Net- anyahu (spáð var að Likud yrði stærsti flokkurinn) sé hann líklegri en Livni til að ná að berja saman meirihlutastjórn hægriflokka. Þá yrði hann að vísu að tryggja sér stuðning margra flokka en alls hafa hægrimenn 64 sæti af 120. Þá er að vísu ólíkindatólið Avigdor Lieberman talinn til hægri, hann á kannski hvergi heima í póli- tíska litrófinu. Verkamannaflokkur Ehuds Baraks varnarmálaráðherra galt afhroð, hlaut aðeins 13 þingsæti. Þessi fornfrægi flokkur gæti verið að hefja eyðimerkurgöngu. Vandi Obama Barack Obama Bandaríkjaforseti mun varla eiga auðvelt með að miðla málum í Miðausturlöndum ef hreinræktuð hægristjórn tekur við í Ísrael. Banda- ríkjamenn vilja m.a. að Palestínumenn fái að stofna eigið ríki á hernumdu svæðunum en Netanyahu hefur miklar efasemdir um að það sé gerlegt. Erfitt er að sjá fyrir sér að samskipti þessara ólíku manna muni verða árangursrík. En eitt eiga þeir sameig- inlegt: Þeir eru báðir jarðbundnir menn og líklegir til að hnika til sumum grundvallarskoðunum sínum ef þeir sannfærast um að það sé óhjákvæmilegt. Dvínandi friðarlíkur Herská öfl sigruðu í Ísrael og sterk samsteypustjórn virðist ekki vera í sjónmáli meðan Livni og Netanyahu biðla til Liebermans og fleiri smáflokka Reuters Sigur! Ákaft fagnað í kosningamiðstöð Kadima þegar útgönguspár birtust. Hvernig stjórn er líklegust? Ósennilegt er Likud gangi til liðs við Kadima og Verka- mannaflokkinn þótt sú stjórn yrði að vísu öflug. Deilur um stjórnarforystuna munu hindra þá lausn. Þótt Tzipi Livni takist að vinna hægri-pópúlistann Avigdor Lieberman á sitt band er nær útilokað að hún fái nógu marga flokka í viðbót til að styðja sig. Mun Netanyahu hefja nýtt stríð? Hann var afar herskár gegn Hamas í kosningabaráttunni. En vafalaust hefur hann ekki þorað annað af ótta við að ella myndu margir hægrimenn kjósa flokk Liebermans. Hvaða áhrif mun kjör Obama hafa? Svigrúm Ísraela takmarkast verulega af því hve lausan Bandaríkjamenn gefa þeim tauminn en þeir hafa samt sýnt að þeir fara oft sínu fram, án tillits til ráðamanna í Wash- ington. Ljóst er að Obama mun taka það óstinnt upp ef ný stjórn Netanyahus grefur mark- visst undan tilraunum Banda- ríkjamanna til að finna frið- samlega lausn á deilunum við Palestínumenn. S&S STÚLKA í bráðabirgðabúðum fyrir flóttafólk við borg- ina Goma í austurhluta lýðveldisins Austur-Kongó. Hundruð þúsunda manna hafa hrakist frá heimilum sín- um vegna átaka milli stjórnarhermanna frá A-Kongó og Rúanda annars vegar og hins vegar uppreisnarmanna úr röðum Hútúa. Hinir síðastnefndu eru nú sagðir hafa lát- ið sig hverfa inn í frumskóginn og því ekki víst að mönn- um takist að brjóta samtök þeirra endanlega á bak aftur. Lítil stúlka á flótta Reuters MARGIR velta því nú fyrir sér hvort vaxandi efnahagsstyrkur Kína sé farinn að draga úr áhuga vest- rænna ríkja á að gagnrýna ástand mannréttinda í landinu og meðferð- ina á Tíbet. Kreppan valdi því að önnur mál en efnahagsmál þoki. Sagt er á vefsíðu BBC að lítið hafi verið minnst á mannréttindamál ný- verið er Wen Jiabao, forsætisráð- herra Kína, heimsótti Evrópu. Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna er nú að gera skýrslu um Kína. Er þar sagt að menn hafi áhyggjur af ásökunum um að stjórnvöld í Kína beiti pyntingum og fjöldi andófsmanna hverfi spor- laust. Bretar hafa lengi notað hugtakið „suzerainty“ til að lýsa stöðu Kín- verja í Tíbet sem sagt er gefa í skyn að voldugt ríki kúgi annað veikara. Kínverjar segja Tíbet óaðskiljanleg- an hluta Kína og hafa þrýst á Breta um að breyta afstöðu sinni. Og í skriflegri yfirlýsingu Davids Mili- bands, utanríkisráðherra Bretlands, í desember sagði hann Breta hafa hætt að nota þetta „úrelta“ hugtak. „Eins og öll önnur aðildarrríki [Evrópusambandsins] og Bandarík- in lítum við á Tíbet sem hluta Kín- verska alþýðulýðveldisins“. kjon- @mbl.is Kínverjar blíðkaðir? Vesturveldin gagn- rýna síður mann- réttindabrot EGGJANEYSLA hefur lítil áhrif á magn kólesteróls, að sögn vísinda- manna við Surrey-háskóla í Bret- landi. Segja þeir að flestir geti borð- að eins mörg egg og þeir vilji án þess að skaða heilsuna, segir í BBC-frétt. Bruce Griffin prófessor segir egg meinholl, mettuð fita sé miklu vara- samari en egg. Meint hætta af eggj- um eigi rætur í úreltum vísindum. Aukið kólesteról í blóði ýtir undir hjartasjúkdóma en næringin stýrir þriðjungi af framleiðslu efnisins í líkamanum. Hreyfingarleysi, reyk- ingar og offita hafa áhrif á magnið. kjon@mbl.is Hollt að borða egg San Juan. AP. | Í fréttum AP um lang- sund Jennifer Figge fyrr í mánuð- inum skýrði fréttastofan ranglega frá því að konan hefði synt yfir Atl- antshafið. Í ljós hefur komið að Figge synti aðeins hluta leiðarinnar sem er 3.380 kílómetrar. Hinn hlut- ann hvíldi hún sig í báti sínum og aðstoðarmanna sinna. Talsmaður Figge segir að heildarvegalengdin, sem hún synti, hafi ekki enn verið reiknuð út en hann giskar á að hún hafi aðeins synt um 400 km vegna hættulegra aðstæðna, m.a. slæms veðurs. bogi@mbl.is Synti aðeins 400 km

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.