Morgunblaðið - 12.02.2009, Side 25

Morgunblaðið - 12.02.2009, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009 SÍÐAR í þessum mánuði eru sex ár liðin frá því pólitík og bis- ness gengu í vanheilagt bandalag í því sem hefur orðið grimmasta og ljótasta einelti Íslandssögunnar. Allar götur síðan hefur eineltið og svívirðingin stigmagnast. Rík- isstjórn alþýðunnar tekur þátt í lokaaðförinni. Forsætisráðherra setti á dögunum upp gúmmí- hanska og gaf út skotleyfi á þrjá embættismenn; tveir þeirra hafa það eitt til saka unnið að vinna við hlið Davíðs Oddssonar. Skríllinn stillir sér upp fyrir framan Seðla- bankann þar sem trúbadorinn, sem forðum var eineltur, eineltir öskrandi landráð. Stöð 2 og DV eltu seðlabankastjóra um götur Reykjavíkur að Landspítalanum. Stöð 2 upplýsti um heimili aldr- aðrar móður Davíðs. Þetta er ljót- ur leikur. Baugsblaðamenn hafa enn og aftur orðið sér til skammar. Framgangan nú jafnast á við fjölmiðlastríðið 2004 þegar þeir lögðu banana að Alþingishúsinu til þess krefjast eignarhalds hús- bónda síns yfir Baugsmiðlum – öll- um tuttugu og sex. Það eru sex ár síðan Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flutti sína Borg- arnesræðu og til varð bandalag Samfylkingar og Baugs. Nokkrum dögum síðar birti Fréttablaðið slúður vestfirsks seiðkarls um að Davíð Oddsson kynni að vera mað- urinn á bak við innrás lögreglu í Baug. Aldrei fullyrt, bara slúður. Seiðkarlinn vann sér síðar til frægðar að hóta að „taka mann niður“. Dag eftir dag eftir dag hef- ur DV birt svívirðingar í garð Dav- íðs Oddssonar. Nú hefur aðförin staðið yfir í sex ár. Hnífurinn hefur ekki gengið milli Baugs og Sam- fylkingar. Jón Ásgeir Jóhannesson tók að sér verkstjórn í nýrri ríkisstjórn þegar hann gaf það út að annað verk vinstristjórnar Jóhönnu yrði að afturkalla hvalveiðar þó að 70% þjóðarinnar væru þeim fylgjandi. Við vitum viðbrögð sjávarútvegs- ráðherra. Allir vissu hvert Jón Ás- geir vildi að yrði fyrsta verk hinnar nýju stjórnar; bola Davíð í burtu. Jóhanna Sigurðardóttir lét það verða sitt fyrsta verk undir kast- ljósi fjölmiðla. Þessa dagana verðum við vitni að lokadögum þessa skelfilega leiks – ljótasta eineltis Íslandssög- unnar. Hallur Hallsson Af ljótasta einelti Íslandssögunnar Höfundur er blaðamaður. Á SAMA tíma og þjóðfélagið á í gríð- arlegri sálarangist og sér fátt annað en vandamál og vesöld efndu hagsmunafélög málm- og vél- tæknigreina til ráð- stefnu þar sem farið var yfir stöðu mála og horfur til framtíðar. Jafnframt var greint frá þeim möguleikum sem blasa við í starfandi fyrirtækjum starfsgreinarinnar. Sjö þeirra fóru í máli og myndum yfir hvað þau eru að framleiða og selja á innanlands- og alþjóðamarkaði. Þar kenndi svo margra grasa að ráðstefnugestir urðu opinmynntir og undrandi. Hönnun og framleiðsla véla fyrir matvælavinnslu, smíði flókinna og mikilvirkra tækja fyrir áliðnað um veröld víða, málmsteypur sem hanna og framleiða eftirsótta íhluti, áralangir viðgerðar- og viðhalds- samningar við stóriðju, uppbygg- ing, smíði og viðhald kælitækja hér- lendis og erlendis, þjónusta við skip og önnur atvinnutæki landsmanna, uppbygging virkjana og stóriðju og almenn málm- og fínsmíði sem nálgast listgrein – allt eru þetta við- fangsefni sem sagt var frá og eru á miklu skriði í fyrirtækjunum í dag og hugur í mönnum að sækja enn frekar á alþjóðamarkað. Hornsteinn Löngum hefur verið rætt um að fjölga þurfi fyrirtækjum til þess að auka framleiðslu eftirsóttrar vöru til útflutnings. Sést þá fólki gjarnan yfir að starfandi fyrirtæki eru stút- full af frábærum hugmyndum og hafa náð miklum árangri á al- þjóðamörkuðum og hyggja á enn frekari landvinninga. Þau eru ekki á byrjunarreit, þau eru þegar á fullri ferð og er ekkert að vanbún- aði. Auðvitað þarf margt að laga í starfsumhverfinu til þess að starf- andi fyrirtæki í greininni nái því flugi sem þau hafa alla burði til að ná. Gott og vel menntað starfsfólk þeirra mun bæta sig enn meira í tækni- legum efnum á næstu árum. Fyrirtækin eru opin fyrir nýrri tækni, hafa vilja til að bæta rekstur sinn og að- stöðu alla fyrir starfs- menn og greiða þeim bestu laun. Nú höfum við greiðan aðgang að mörkuðum sem eru tilbúnir að borga vel fyrir góða vöru sem ekki hefur verið greidd niður af skatt- greiðendum heldur stenst sam- keppni án slíkrar ölmusu. Þegar sú stund rennur upp að íslenska þjóðin eignast fjármálastofnanir sem hafa dregið lærdóm af mistökum sínum og veita fyrirtækjum og ein- staklingum eðlilega og nauðsynlega þjónustu – þá er þess að vænta að málm- og véltækniiðnaðurinn muni verða einn af hornsteinum í at- vinnulífi landsmanna. Sameiginlegt verkefni Framtíðin hlýtur að byggjast að verulegu leyti á því að efla þau fyr- irtæki sem skapa mestu verðmætin þar sem tækni og þekking ásamt faglegri færni fæða af sér dýrmæta og eftirsóknarverða vöru og þjón- ustu. Allar þjóðir í veröldinni sem bjóða þegnum sínum bestu lífs- kjörin eiga það sameiginlegt að búa yfir öflugum málm- og véltækniiðn- aði. Á því eru engar undantekn- ingar. Þess vegna munu fyrirtæki í þessari grein og starfsmenn þeirra standa fast saman um að efla hana og nýta alla þá fjölbreyttu mögu- leika sem framundan eru. Bjart er yfir málminum Ingólfur Sverrisson segir bjartari tíma fraamundan í málmiðnaðinum Ingólfur Sverrisson » Þar kenndi svo margra grasa að ráðstefnugestir urðu op- inmynntir og undrandi. Höfundur er forstöðumaður málm- og véltæknisviðs Samtaka iðnaðarins. RÁÐSTEFNA OG VERÐLAUNAAFHENDING í Salnum, Kópavogi föstudaginn 13. febrúar 2009, kl. 13:30-16:30 ÍSLENSKI ÞEKKINGARDAGURINN NÝSKÖPUN TÆKIFÆRI Á NÝJUM TÍMUM RÁÐSTEFNAN ER ÖLLUM OPIN! DAGSKRÁ Skráning fer fram á vef FVH, www.fvh.is e›a í síma 551 1317. Ver› 7.950 fyrir félaga FVH og 14.900 fyrir a›ra. Innifali›: Rá›stefnugögn og léttar veitingar. Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga efnir til ráðstefnunnar og verðlaunaafhendingarinnar Íslenska þekkingardagsins föstudaginn 13. febrúar 2009 í Salnum, Kópavogi. Þemað að þessu sinni er „Tækifæri á nýjum tímum – Nýsköpun!“ Þrjú fyrirtæki eru tilnefnd til Íslensku Þekkingar- verðlaunanna 2009: ÖSSUR, MAREL OG CCP Ö ss ur Sk ar ph éð in ss o n K ri st ín In gó lf sd ó tt ir Ey þ ó r Ív ar Jó n ss o n G u ð jó n M ár G u ð jó n ss o n Be rg lin d Á sg ei rs d ó tt ir H ö rð ur A rn ar so n A ð al st ei nn Le if ss o n Styrktara›ilar Íslenska Þekkingardagsins: 13:00 Afhending ráðstefnugagna 13:30 Setning ráðstefnu Auður Björk Guðmundsdóttir, formaður FVH 13:40 Ávarp utanríkis- og iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson 13:50 FRÆ TIL FRAMTÍÐAR – MENNTUN, VÍSINDI, NÝSKÖPUN Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands 14:10 ÞEKKINGARÞRÓUN SPROTAFYRIRTÆKJA Eyþór Ívar Jónsson, dósent við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn og framkvæmdastjóri Klaks 14:30 THINK-INNOVATE-EXECUTE Guðjón Már Guðjónsson, framkvæmdastjóri Industria 14:50 Kaffihlé 15:20 TÆKIFÆRI TIL SAMSTARFS VIÐ AÐRAR ÞJÓÐIR Á SVIÐI HEILBRIGÐIS- OG LYFJAMÁLA Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins 15:40 RETURN ON INNOVATION Hörður Arnarson, forstjóri Marel Food Systems 16:00 Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhendir þekkingar- verðlaun FVH og kynnir val á viðskiptafræðingi/hagfræðingi ársins 2008 16:30 Ráðstefnuslit Léttar veitingar í lok ráðstefnu ásamt léttri jazzblússveiflu Friends forever. Rá›stefna FVH gefur 2 einingar hjá Endurmenntunarnefnd FLE. Rá›stefnustjóri er Aðalsteinn Leifsson, forstöðumaður MBA í Háskólanum í Reykjavík. SKRÁÐU ÞIG STRAX! Mynd: Viðskiptablaðið/Birgir Ísleifur Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.