Morgunblaðið - 12.02.2009, Side 31

Morgunblaðið - 12.02.2009, Side 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009 ✝ Jóhanna MargrétBjörgólfsdóttir fæddist á Breiðumýri í Vopnafirði 8. júlí 1923. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Grund miðvikudaginn 4. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru María Haralds- dóttir, f. 8.9. 1896, d. 18.2. 1989, og Björg- ólfur Kristjánsson, f. 27.5. 1890. Systkini Jóhönnu voru: 1) Ólöf, f. 1919, 2) Elín Björg, f. 1920, 3) Hulda Þuríður, f. 1926, 4) Haraldur, f. 1930, öll látin. Eiginmaður Jó- hönnu var Filippus Filippusson, fæddur í Hvammi í Mjóafirði 22.12. 1897, d. 9.9. 1966. Börn þeirra: Hulda, f. 8.2. 1942, Ingirós, f. 22.9. 1943, Sveinn, f. 28.5. 1947, María Björg, f. 15.11. 1954, Nanna Björk, f. 4.3. 1959, d. 28.6. 2002, Jóhann Filippus, f. 12.3. 1961. Útför Jóhönnu fer fram í kapell- unni í Fossvogi í dag kl. 13. Elsku mamma. Nú ertu flutt frá þessu veikinda- stríði og komin á annað tilverustig. Og líður örugglega vel, búin að hitta allt skyldfólk og kunningja, stór er sá hópur og ég veit að vel er tekið á móti þér, það eru svo margir farnir á und- an þér og sumir löngu farnir og allt er nú betra hjá þér, ég er viss um það. Hjartans þakkir fyrir allt. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Þú vekur hann með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þín dóttir, Hulda Filippusdóttir. Elsku mamma, þá er þinni lífs- göngu lokið á þessari jörð, lífsgöngu sem allt of oft hefur verið þyrnum stráð. Þitt aðalsmerki var ofurdugn- aður, harka og þrautseigja sem var aðdáunarverð, aldrei að gefast upp. Ég samgleðst þér að vera laus úr þeim veikindafjötrum sem lagðir voru á þig síðasta árið sem þú lifðir. Það átti sannarlega ekki við þig að verða ósjálfbjarga og öðrum háð, samræmdist afar illa dugnaði þínum og sjálfsbjargarviðleitni í lífinu. Elsku mamma, þakka þér fyrir að hafa gefið mér lífið, hafa fætt mig og alið upp, stutt mig þar til ég gat stað- ið á eigin fótum, og hafa valið mér nafnið mitt sem ég er svo stolt af. Þakka þér fyrir allt sem þú hefur kennt mér og ég nýti mér á minn hátt. Síðasta árið þitt bundumst við órjúfanlegum böndum, þakka þér fyrir það. Tómarúm fyllir sál mína sem ég mun læra að takast á við. Elsku mamma, ég samgleðst þér að vera laus úr viðjum veikinda og óska þér góðrar ferðar til nýrra heimkynna, hvíl í friði hetjan mín. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín dóttir, María Björg. Elsku amma. Þegar við hugsum til þín þá sjáum við þig fyrir okkur í glugganum í Sörlaskjólinu. Gardínunni er lyft og andlitið birtist. Þú átt von á heimsókn. Kveðjur og faðmlög í litla þrönga anddyrinu. Mynd af hús- inu í Neskaupstað, dyr að herberg- inu hans Guðjóns frænda sem við krakkarnir bárum óttablandna virð- ingu fyrir. Alltaf beiðst þú með ýmislegt gómsætt á borðinu, jólaköku, klein- ur, lummur og alltaf mjólk. Ekki hafði maður alltaf mikla þolinmæði í langt spjall, ruggustóllinn, púslin og allar myndirnar þínar voru mun meira spennandi fyrir litlar sálir. Þú komst líka ófáar ferðirnar til Hafnarfjarðar, alltaf með strætó. Komst þá færandi hendi með lumm- ur og annað góðgæti. Alltaf á ferð- inni, Skerjafjörðurinn genginn fram og til baka. Núna ertu búin að fá frið og hvíld. Lífið var langt með gleði- og sorg- arstundum. En eftir sitja afrekin þín, tugir barna, ömmu- og langömmu- barna. Frelsarinn góði, ljós mitt og líf, lífsins í stormum vertu mér hlíf, láttu þitt auglit lýsa yfir mig, láttu mig aldrei skiljast við þig. Gjörðu mig fúsan, frelsari minn, fúsari að ganga krossferil þinn, fúsari að vinna verk fyrir þig. Vinurinn eini, bænheyrðu mig. (Bjarni Jónsson) Lára Halla og Guðjón Teitur. Jóhanna Margrét Björgólfsdóttir ✝ Þorsteinn Björg-vin Júlíusson fæddist á Arnareyri í Hvalvatnsfirði í Suð- ur-Þingeyjarsýslu 9. október 1926. Hann lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 3. febrúar 2009. Foreldrar hans voru Júlíus Stef- ánsson, einnig f. á Arnareyri 18.12. 1903, og kona hans Lovísa Sigurgeirs- dóttir, f. í Flatey á Skjálfanda 18.4. 1905. Systkini Þorsteins voru: Þor- steinn, f. 1925, lést á fyrsta ári, Sig- urgeir Stefán, f. 1929, býr í Hrísey, Axel Jóhann, f. 1930, d. 2005, Hall- dóra Guðbjörg, f. 1931, býr í Garða- bæ, Ester Unnur, f. 1934, býr á Dal- vík, Hafdís Gunnur, f. 1936, býr í Magnús Jón, f. 1985. Börn þeirra Aðalsteinn Óli og drengur óskírð- ur, búa á Akureyri. Þorsteinn Björgvin, f. 1985, og Jóhann Pétur, f. 1990. Sonur Þorsteins og Sigríð- ar Láru er Árni, f. 1969, kona hans er Violetta Heiðbrá Hauksdóttir, búa í Borgarfirði. Barn þeirra Heiðbrá Lilja, f. 2007. Úr fyrri sambúð á Árni þrjú börn, Skúla Guðbjörn, f. 1993, Björgvin Má, f. 1996, og Sigríði Láru, f. 1998, móð- ir þeirra er Jóhanna Arna Skúla- dóttir. Synir Violettu Heiðbrár eru Kristófer Óðinn, f. 1993, og Þórður Jaki, f. 2001. Þorsteinn Björgvin var á fjórða ári þegar hann flutti frá Arnareyri í Hvalvatnsfirði til Hríseyjar og átti þar heima til fullorðinsára. Að- alatvinna hans var sjómennska framan af ævi og hafði hann vél- stjórnarréttindi. Hann vann í Kís- iliðjunni í Mývatnssveit í ellefu ár, flutti til Húsavíkur 1978 og vann hjá Kaupfélagi Þingeyinga í tutt- ugu ár. Árið 1998 fluttu þau til Ak- ureyrar og hafa verið búsett þar síðan. Útför Þorsteins fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag kl. 13.30. Hrísey, Sigríður Júl- ía, f. 1941, d. 1942, Sigrún Kamilla, f. 1943, býr á Dalvík, og Júlíus Berg, f. 1946, d. 2001. Hinn 28. maí 1966 kvæntist Þorsteinn Sigríði Láru Árna- dóttur, f. 28.11. 1931. Foreldrar hennar voru Árni Jónasson klæðskeri, f. 1904, og kona hans Soffía Jó- hannesdóttir, f. 1904, þau bjuggu á Siglu- firði. Bræður Sigríðar Láru: Har- aldur, f. 1929, býr á Siglufirði, og Baldur, f. 1942, býr í Reykjavík. Dóttir Þorsteins er Guðlaug, f. 1956. Maður Guðlaugar er Að- alsteinn Pétursson, f. 1959, þau búa í Reykjadal. Börn þeirra: Þórey Kristín, f. 1982, hennar maður Það er eins og andlát komi manni alltaf í opna skjöldu, jafnvel þótt ljóst sé að hverju stefni. Þannig var það líka þegar við fengum að vita að Steini væri allur, en lífið heldur áfram og minningin um góðan dreng verður það sem eftir situr og við varðveitum. Það var góður ættleggur sem varð til þegar Þorsteinn og Sigríður systir mín giftu sig og hófu búskap. Þótt kynni okkar og Þorsteins hafi verið löng réð búseta í sitt hvorum landshlutanum því að ekki var um tíðan samgang að ræða en því skemmtilegra var þá að hittast og alltaf stóð heimili Siggu og Steina okkur opið með gestrisni eins og hún gerist best. Þau voru líka dug- leg að ferðast, bæði innan lands og utan, og þá var stundum stoppað hjá okkur í leiðinni í nokkra daga en oft var eins og eitthvað ýtti á, þau vildu gjarnan komast heim til sinna. Síðasta utanlandsferðin var farin síðastliðið haust. Þorsteinn var ljúfmenni í um- gengni, einstaklega barngóður og vildi engum illt, en hann hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og var tilbúinn að ræða það. Hann var af gamla skólanum, traustur, vanafastur og vildi hafa allt á hreinu og fór vel með sitt. Steini kunni líka vel að meta þjóð- legan íslenskan mat og var ekkert alltof hrifinn af framandi réttum sem buðust á ferðalögum. Síðastliðið vor áttum við hjónin þess kost að fara í ferðalag til Grímseyjar, þar sem Þorsteinn var með, og nutum við öll þeirrar ferðar í blíðskaparveðri og engan grunaði þá að það væri í síðasta sinn sem við værum með honum. Elsku Sigga, við sendum þér og allri fjölskyldunni okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð að veita ykkur styrk í sorginni. Baldur og Kristín. Meira: mbl.is/minningar Þorsteinn Björgvin Júlíusson Samúðarkerti/hólkar með huggunarorðum fást í blómabúðum. isdecor@isdecor.is Samúðarkerti TILBOÐSDAGAR 30-50% afsláttur af völdum legsteinum á meðan birgðir endast MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, MARGRÉT ÞORVALDSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést föstudaginn 6. febrúar. Hún verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnar- firði föstudaginn 13. febrúar kl. 13.00. Þorvaldur S. Hallgrímsson, Svanhildur Leifsdóttir, Leifur Þorvaldsson, Guðrún Ósk Gunnarsdóttir, Hallgrímur Smári Þorvaldsson, María Jóna Guðnadóttir, Grétar Már Þorvaldsson, Haddý Anna Hafsteinsdóttir og langömmubörn. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, systir og amma, ERLA HÓLMFRÍÐUR RAGNARSDÓTTIR, dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund, lést mánudaginn 9. febrúar. Útför hennar fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 24. febrúar kl. 11.00. Hrönn Hilmarsdóttir, Þorgeir Adamsson, Guðfinna Sigurbjörg Ragnarsdóttir, Ingveldur Ólöf Ragnarsdóttir, Adam Þór Þorgeirsson, Ragnhildur Erla Þorgeirsdóttir. ✝ Ástkær dóttir okkar og systir, KRISTÍN BJÖRK KRISTJÁNSDÓTTIR, varð bráðkvödd á heimili sínu í Danmörku aðfara- nótt fimmtudagsins 5. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Lilja Kristín Einarsdóttir, Axel Andres Björnsson, Tjörvi Freyr Axelsson, Kristján Friðriksson, Lára Wathne, Ásta Hrönn Kristjánsdóttir, Marianna Kristjánsdóttir og ástvinir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SIGURGEIR ÞORVALDSSON fyrrverandi lögregluþjónn, Stapavöllum 6, Njarðvík, lést á Landspítalanum við Hringbraut, mánudaginn 9. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðrún Finnsdóttir, Margrét Sigurgeirsdóttir, Erling Ólafsson, Jóhanna María Sigurgeirsdóttir, Guðni Jóhannes Georgsson, Þorfinnur Sigurgeirsson, Hélène Liette Lauzon, Þórir Sigurgeirsson, Ásdís Ósk Valsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir mín, tengdamóðir og amma, JÓRUNN A. SIGURVALDSDÓTTIR frá Eldjárnsstöðum, Flókagötu 58, Reykjavík, lést á Landspítalanum, Landakoti mánudaginn 9. febrúar. Jón M. Smith, Guðleif Sigbjörnsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.