Morgunblaðið - 12.02.2009, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 12.02.2009, Qupperneq 36
36 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009 Vilborg Sigurðardóttir ✝ Vilborg Sigurð-ardóttir, ljós- móðir í Grímsey, fæddist í Hátúni í Grímsey 1. maí 1929. Hún andaðist á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri aðfaranótt mánudagsins 2. febrúar síðastliðins. Útför Vilborgar fór fram frá Mið- garðakirkju í Grímsey 9. febrúar sl. Meira: mbl.is/minningar Gunnar Björgvinsson ✝ Gunnar Björg-vinsson fæddist í Reykjavík 24. sept- ember 1961. Hann lést 16. janúar síðast- liðinn. Útför Gunnars fór fram frá Bústaða- kirkju 26. janúar sl. Meira: mbl.is/minningar Minningar á mbl.is Bekkjarsystir okk- ar úr Kennaraskólan- um og góð vinkona Auður var glæsileg kona, opin og glaðleg. Hún var sérlega skapgóð og við- ræðugóð. Fylgdist vel með og sagði stundum um sjálfa sig að hún væri „fréttafíkill“. Enda skoðanir á öllu og hafði einstaka unun af að ræða þjóðmál, stjórnmál og um það sem efst var á baugi hverju sinni. Hún sagði svo skemmtilega frá að viðstaddir skelltu yfirleitt upp úr. Hún sparaði hvorki myndrænar lýsingar né sterk lýsingarorð þegar hún var að lýsa mönnum og mál- efnum og gæddi umræðuna ávallt lífi og húmor. Auði fylgdi alltaf mik- ið fjör. Sá mikli kraftur sem ein- kenndi hana smitaði allt í kringum sig. Hún var einstaklega góður og traustur vinur, ráðagóð og hjálpsöm og ekki síst raungóð. Við vinkonur hennar vorum fullar aðdáunar þegar hún ákvað, eftir að hafa kennt í mörg ár, að söðla um og setja á stofn rútufyrirtæki, sem hún rak með eiginmanni sínum Magnúsi uns hann lést 1995. Eftir að hún hóf sambúð með Jóni reynd- ist hann henni einstakur vinur og félagi í fyrirtækinu og voru þau samstillt að byggja það upp. Auður vílaði ekki fyrir sér að taka meirapróf og enn jókst aðdáun okkar. Hún lét sér fátt fyrir brjósti brenna, ók eins og herforingi með útlendingahópa hring eftir hring um okkar fagra land sem hún unni svo mjög, og var jafnframt leið- sögumaður. Ef skipta þurfti um dekk á rútunni uppi á miðri Holta- vörðuheiði þá gekk hún í það. Við stundum bara við tilhugsunina um að lenda í slíkri stöðu. Það var ótrúlegt hverju hún kom í verk, hún var ekki bara dugnaðar- forkur, hún var líka „töffari“. Það sýndi hún ekki síst í veikindum sín- um en þar kom hún okkur enn á óvart. Ræddi fyrirhugaða ferð sína úr þessum heimi eins og hverja aðra rútuferð með útlendinga norð- ur á Strandir sem þyrfti að und- irbúa vel. Hún kveið ekki dauð- Auður Kristmundsdóttir ✝ Auður Krist-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 26. maí 1951. Hún andaðist á líknardeild Landspítala 12. jan- úar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkjunni 21. jan- úar. anum og vissi að örlög sín fær enginn flúið. Eins átti hún ýmislegt vantalað við almættið. Það sýndi ekki alltaf sanngirni og réttlæti í vali sínu. Dauðinn krefst oftar of snemma þess sem lífið lánaði. Á því þurfti að taka. Þrátt fyrir miklar annir var hún börnum sínum einstök móðir, studdi þau með ráð- um og dáð og setti velferð þeirra ofar öllu. Einnig reyndist hún öldruðum föður sínum stoð og stytta, en hann á nú um sárt að binda að sjá á bak öðru barni sínu. Við vottum sambýlismanni henn- ar Jóni, börnum hennar Grétu og Didda, Höllu tengdadóttur og litlu Auði, sem var augasteinninn henn- ar, okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning okkar elskulegu vinkonu. Áslaug Ólafsdóttir, Hildur Sveinsdóttir, Kristín Jónsdóttir og Lilja Hilmarsdóttir. Kveðja frá KSGK Auður Kristmundsdóttir fyrrver- andi formaður Kvenfélagasambands Gullbringu- og Kjósarsýslu lést mánudaginn 12. janúar sl. Hún var formaður sambandsins frá 1990- 1994 eða í 4 ár, en á þessum tíma voru 11 aðildarfélög í sambandinu og starfaði Auður með einu þeirra eða Kvenfélagi Lágafellssóknar. Auður gegndi störfum sínum fyr- ir sambandið af trúmennsku og naut vinsælda enda var hún glað- vær og skemmtileg kona. Einnig er þess minnst að margsinnis óku ann- aðhvort hún eða maður hennar fulltrúum á aðalfundi sambandsins á rútum sínum sem þótti einkar góð þjónusta hjá formanni. Sambandið vottar manni hennar, börnum og öllum aðstandendum samúð og minnist hennar með virð- ingu. Sigríður Finnbjörnsdóttir. Elsku Auður, ég trúi því ekki að þú sért farin og á sennilega enn eft- ir að átta mig á því. Ég hafði ætlað að athuga með flug og koma heim í morgun til að ná aðeins meiri tíma með þér en í nótt kvaddir þú okkur. Ég veit að þú komst við hér á leið- inni og í raun varstu búin að kveðja mig síðast þegar við sáumst, ég bara áttaði mig ekki á því strax. Þú sagðir mér að þú værir þakklát fyr- ir að fá tíma til að kveðja þó að ekkert okkar hafi áttað sig á að tíminn væri ekki meiri. Það eru margar fallegar minn- ingar sem ég á síðan ég var lítil stelpa og kom til þín í Mosfellsbæ- inn að leika við Didda og Grétu. Man enn eftir því þegar þið birtust óvænt að sækja mig heim í Hlíð- arnar og mér var boðið með í næt- urgistingu. Það var alltaf svo gam- an að koma, mikið um að vera og oftar en ekki heimilið fullt af gest- um. Síðan liðu árin og eftir því sem við frændsystkinin stækkuðum, þroskuðumst og hölluðumst að okk- ar vinum úr hverfinu varð minna um heimsóknir en ekki minnkaði gleðin þegar við hittumst. Eftir því sem að ég varð eldri fór ég að átta mig betur og betur á þessari sterku konu sem þú hefur alltaf verið og hvernig þú ert alltaf tilbúin að halda áfram. Ég held að þú hafir ekki þekkt orðatiltækið að gefast upp enda sýndir þú okkur það með æðrulausri baráttu við ólæknandi sjúkdóm. Ég er svo þakklát fyrir þær stundir sem við höfum átt saman, heimsóknina hingað út fyrir rúmu ári síðan þar sem við skemmtum okkur konunglega. Kíktum í búðir, borðuðum góðan mat, keyrðum um og skoðuðum náttúruna í haustlit- unum. Við vorum að skipuleggja það að endurtaka leikinn fljótlega og vorum með hugmyndir um skemmtilega hluti til að gera og fal- lega staði að heimsækja. Stundirnar sem við áttum saman yfir hátíð- irnar voru ómetanlegar og yndis- legt að sjá hvernig augasteinninn þinn Auður María og litli strák- urinn minn bundust vináttu sem vonandi fylgir þeim út lífið. Elsku Auður mín, síðast en ekki síst langar mig að þakka þér fyrir að vera mér og öðrum sú fyrirmynd sem þú hefur verið. Það eru ekki margir sem búa yfir þeim mann- kostum sem þú hefur, skapgóð, heiðarleg, glaðlynd, jákvæð, ákveð- in, með sterka réttlætiskennd, óbil- andi kraft og þrautseigju, hæfileik- ann til að kenna, láta gott af þér leiða og hrífa aðra með. Ef þú varst í hóp varstu miðpunktur athyglinn- ar en samt án þess að skyggja á hina í kring. Ég veit að við hittumst aftur og þá höldum við áfram að skipuleggja ferðalög á fallega staði. Elsku Gréta, Diddi, Halla, Auður María, Jón og börn, mig langar að votta ykkur mínar dýpstu samúð, minning um sterka konu lifir áfram með okkur. Þín Hildur. Við andlát systur minnar hinn 12. janúar sl. koma upp í hugann góðar minningar frá barnæsku í kringum 1960 þar sem við lékum okkur með öllum barnaskaranum í Langholts- hverfinu. Einn eftirmiðdag um vetur, vor- um við krakkarnir í götunni að leika okkur, sumir með sleðana sína og aðrir að byggja snjóhús. Við vor- um svo mörg saman komin að bæj- arstarfsmenn lokuðu götunni fyrir umferð svo við gætum rennt okkur á sleðunum. Útlendingar sem áttu leið þarna um, fannst leikur barnanna áhugaverður og fóru að taka myndir. Við vorum þá litlar stelpur og Auður stóra systir mín náði í mig til að tryggja að ég fengi að vera með á hópmyndinni. Þannig var þetta í gegnum okkar uppvöxt, þá var hún stóra systir. Auður átti auðvelt með að kynnast öðrum krökkum, alltaf til í að gera eitthvað skemmtilegt, enda var hún sérstaklega lífsglöð og hafði mikinn drifkraft sem hafði smitandi áhrif á aðra og oft var fjör í kringum hana. Þannig liðu árin. Auður lauk námi frá Kennaraháskóla Íslands. Um það leyti kynntist hún fyrri manni sínum Magnúsi. Þau byggðu sér hús í Mosfellsbæ og starfaði Auður sem kennari við Varmárs- kóla og Maggi sem lögreglumaður. Fjölskyldan stækkaði og fæddust börnin þeirra tvö Margrét og Krist- mundur (Diddi). Á þessum árum bjó ég í Danmörku. Eitt sumarið komu Auður og Maggi í heimsókn og var ákveðið að fara í ferðalag um alla Evrópu í litla Fiatinum okkar sem Maggi komst varla inn í, enda með hávaxnari mönnum. Auður hafði lofað Grétu dóttur sinni sem þá var 3 ára að kaupa dúkkuvagn í ferðinni. Í upphafi ferðar sá Auður þennan líka fallega dúkkuvagn og var hann því bara keyptur. Auði fannst mikilvægt að standa við lof- orðið við dóttur sína og setti það ekki fyrir sig þó að við ferðuðumst með dúkkuvagninn á toppgrindinni um alla Evrópu. Kennarastarfið átti vel við Auði og starfaði hún sem kennari í mörg ár. Síðan fór hún í auknum mæli að vinna við ferðaþjónustu. Þau hjónin stofnuðu eigið fyrirtæki og tóku að sér leiðsögn bæði erlendra og inn- lendra ferðamanna. Þá fór hún sjálf að aka með ferðamenn um landið. Á ferðum sínum lenti hún stundum í erfiðleikum sem fylgja gjarnan ferðum um fjallvegi landsins. Þá reyndi á að vera úrræðagóður sem hún leysti vel af hendi. Eftir að Maggi lést vann hún áfram bæði við kennslu og við ferðaþjónustu en síðustu árin rak hún ferðaþjónustufyrirtæki ásamt Jóni sambýlismanni sínum. Auður var mjög greiðvikin og bóngóð ef maður leitaði til hennar. Þá var hún góður hagyrðingur og gat sett saman vísu eftir beiðni. Hún hafði ákveðinn léttleika og góða frásagnargáfu sem gerði það að verkum að fólk naut þess að vera í samvistum við hana. Þegar hún veiktist fyrir rúmum tveimur árum var hún ákveðin að hafa betur. Þegar ljóst var í desem- ber sl. að hverju stefndi tók hún tíðindunum með æðruleysi og var ákveðin að nýta tímann vel og njóta samvista við sína nánustu. Ég sendi Jóni sambýlismanni hennar, Grétu, Didda, Höllu og Auði Maríu mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Kristín Kristmundsdóttir. Fyrir okkur var Auður Krist- mundsdóttir ímynd alls hins besta sem bjó í hinni íslensku konu. Hún var áræðin, æðrulaus, og ósérhlífin, en fremur en allt annað ótrúlega líf- leg og skemmtileg persóna. Auður var alltaf miðpunktur alls, hvar sem hún var stödd. Hún var þannig gerð að maður gat ekki annað en dregist að orku hennar og persónu. Aldrei var langt í húmorinn sem á tíðum nálgaðist hreinlega gálgann. Hér má væntanlega rekja það að ein- hverju leyti til langvarandi starfs- ferils í annars hefðbundnu starfs- umhverfi karlmanna. Mér þótti alltaf gott að koma í Austurbrúnina, þó svo að kaffið sem borið var fram hafi verið með því svartasta og sterkasta malbiki sem ég hef nokkurn tímann látið inn fyrir mínar varir. Ég, Eyjólfur og Diddi eyddum ótal kvöldum í kvikmyndagláp í Austurbrúninni, enda höfðum við þar frið til að apa- kattast. Ofarlega situr í huga sú minning mín af einni af mínum síð- ustu komum þangað, þegar við fé- lagarnir kíktum þar við í miðju steggjateiti Didda. Inn valt hópur ölvaðra aulabárða með Didda greyið í eftirtogi, íklæddan lyftinga- galla og hóf að raka á honum lapp- irnar í eldhúsinu. Þessu tók frú Auður barasta vel og hló dátt að að- förunum – en bað okkur nú samt, að vanda, að fara varlega með son sinn. Auður skipaði stóran sess í lífi margra og skilur af þeim sökum eftir sig mikið tómarúm. Elsku Diddi og Magga, ykkar er hvað sár- astur missirinn og þið eigið alla okkar innstu og einlægustu samúð. Hennar verður sárt saknað og megi hún hvíla í friði. Seztu hérna hjá mér, systir mín góð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát af því, að mamma ætlar að reyna að sofna rökkrinu í. Mamma ætlar að sofna. Mamma er svo þreytt. – Og sumir eiga sorgir, sem svefninn getur eytt. Sumir eiga sorgir, og sumir eiga þrá, sem aðeins í draumheimum uppfyllast má. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. Mamma ætlar að sofna, systir mín góð. (Davíð Stefánsson.) Kveðja, Haukur og Ríkey. Auður Kristmundsdóttir gegndi embætti varaforseta Kvenfélaga- sambands Íslands árin 1992-1998 og um fjögurra ára skeið áttum við mjög náið samstarf þegar ég var forseti Kvenfélagasambands Ís- lands. Auður var á þessum árum einnig formaður ritnefndar tíma- ritsins Húsfreyjunnar, fulltrúi Kvenfélagsambandsins í ýmsum nefndum og ráðum og öllum þess- um störfum sinnti hún af mikilli al- úð og metnaði. Auður var dugnað- arforkur, hláturmild, hafði geislandi framkomu og það var afar gott að starfa með henni. Margs er að minnast frá þessum tíma, við ferðuðumst mikið saman bæði innan lands og utan. Eftir- minnileg er ferð okkar austur á Eg- ilsstaði á norræna kvennaráðstefnu með fulla rútu af skemmtilegum konum og að sjálfsögðu ók Auður rútunni sinni. Á leiðinni austur neit- aði rútan að fara upp Reynisfjall og þurfti að draga hana til Víkur með hjálp lögreglunnar, þar var gert við bílinn og var ferðinni haldið áfram án óhappa. Af þessu spunnust margar skemmtilegar vísur. Við Auður hittumst skömmu fyrir jól og þá var ljóst að hún átti ekki margar vikur eftir ólifaðar, en hláturinn hennar og lífsgleðin var enn til staðar. Mér er efst í huga þakklæti fyrir að hafa þekkt góða og mæta konu og fyrir störf hennar fyrir Kvenfélagsamband Íslands. Fjöl- skyldu Auðar votta ég innilega samúð. Blessuð sé minning Auðar Kristmundsdóttur. Drífa Hjartardóttir. Auði og Jóni kynntist ég er ég hóf störf við ferðaþjónustu á Íslandi og komst fljótlega að því að þjón- ustan sem þau buðu var alveg ein- staklega góð. Þau höfðu að auki góða innsýn í ferðaþjónustuna sem nýttist mér með margvíslegum hætti. Þannig fórum við saman í móttöku í tilefni af opnun ferðasýn- ingarinnar VestNorden síðasta haust og þar gátu þau fyllt í eyður mínar, enda mörgum kunnug. Þrátt fyrir mörg símtöl mín við Auði á nær öllum tímum sólarhringsins, og mörg hver í lengri kantinum, hvarflaði ekki að mér hversu mikil veikindi hennar voru. Um miðjan desember sagði Auð- ur mér svo að lyfin sem hún hefði tekið færu svo illa í sig að hún sæi ekki tilganginn í að taka þau. Ótrú- lega skammur tími leið þar til bar- áttan var á enda. Samtala minna við úrræðagóða Auði á ég eftir að sakna. Jóni votta ég samúð mína, svo og fjölskyldunni allri. Bjarki Már Magnússon. „Já rólegur, svona suss, rólegur, þetta er bara ég, já, þetta er bara ég.“ Þetta voru orð sem vanalega fylgdu geltinu hans Bóbó míns og gáfu til kynna að nú var Auður komin niður í sameign til að þvo þvottinn! Svona var konan á efri hæðinni byrjuð að tala við hundinn á neðri hæðinni. En þannig hafði það ekki alltaf verið, því fyrst þegar hún hitti Bóbó útskýrði hún fyrir mér að hún væri pínulítið vör um sig í kringum þessa hunda. Áður hafði hún aldrei verið hrædd við þá. – Þar til hún kynntist einum Schä- fer og hann beit hana í rassinn! Þau voru ófá skiptin sem ég mætti Auði niðri í þvottahúsi eða úti á plani. Þá var ég oftar en ekki með skottið á milli lappanna að biðjast afsökunar því ég vissi að ég hefði líklega sung- ið aðeins of hátt og aðeins of langt yfir miðnætti síðastliðið kvöld. „Elskan mín, vert þú ekki að hafa áhyggjur af því! Það er bara gam- an. Ég veit það á undan öllum hvaða lög þú ætlar að taka í næsta þætti eða á næsta balli.“ Þessi orð voru alveg dæmigerð fyrir Auði. Hjá henni var ekkert vesen eða kjaftæði eins og hún myndi líklega orða það sjálf og hlát- urmildara fólk eins og Auði og Jón held ég að erfitt sé að finna þótt víða væri leitað. Ég á eftir að sakna viðveru þinnar Auður og okkar margra samtala sem oft fjölluðu um lífið og veikindin. Þú lést aldrei neitt á þig fá, harkaðir þetta bara af þér. Það á eftir að vera tómlegt að koma heim úr vinnunni í sumar og sjá ykkur hjónin ekki borðandi grillmatinn úti í góða veðrinu. Hvíl í friði elsku kellingin mín, Guð hefur fengið til sín þvílíkan dugnaðarfork. Við þvoum okkar þvotta saman síð- ar. Thelma Hafþórsdóttir. Sumar manneskjur eru þeirrar gerðar að á einhvern eðlislægan og áreynslulausan hátt setja þær svip á umhverfi sitt hvar sem þær koma. Andrúmsloftið verður á einhvern

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.