Morgunblaðið - 12.02.2009, Page 37

Morgunblaðið - 12.02.2009, Page 37
Minningar 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009 ✝ Haukur Gunn-arsson var fædd- ur 18. júlí 1921 á Reynimel við Bræðraborgarstíg í Reykjavík. Hann lést á heimili sínu, Sóltúni 13, þriðjudaginn 3. febrúar sl., 87 ára að aldri. Haukur var sonur Gunnars Guðnasonar, sérleyfishafa, frá Ásakoti í Flóa, f. 30.10. 1894, d. 12.1.1965, og Ingi- bjargar Hjartardóttur frá Reynimel við Bræðraborgarstíg, f. 10.10. 1890, d. 5.2. 1970. Hálfsystkini Hauks voru Valgerður Tóm- asdóttir, f. 1913, d. 1936 og Tómas Tómasson, f. 1917, d. 1930. Árið 1945 kvæntist Haukur eiginkonu sinni, Aðalbjörgu Sigurðardóttur f. 9.5. 1924, d. 28.5. 2005. Foreldrar hennar voru hjónin Gróa Þórð- ardóttir Péturssonar útvegsbónda í Oddgeirsbæ, f. 18.12. 1885, d. 13.3. Sveini Ingólfssyni. Synir þeirra eru: a) Haukur Ingi, sambýliskona hans er Berglind Steinþórsdóttir, börn þeirra eru Tómas Nói og Arney, og b) Kári. Haukur útskrifaðist frá Versl- unarskóla Íslands árið 1939. Sam- hliða námi vann hann við versl- unarstörf hjá frænda sínum, Hirti Hjartasyni, og rak útibú versl- unarinnar í Austurholti. Árið 1942 fór hann í tveggja ára versl- unarnám til Bandaríkjanna og starfaði þar um tíma. Er heim kom hóf hann störf hjá Ferðaskrifstofu ríkisins og síðar í Orlofsbúðinni. Einnig aðstoðaði hann föður sinn við rekstur sérleyfisáætlunarbíla á BSÍ. Mestallan starfsaldur sinn starfaði Haukur við verslunar- og ferðaþjónustu, lengst af sem versl- unarstjóri í Rammagerðinni í Hafnarstræti. Hann sat í ýmsum nefndum tengdum ferðamálum, m.a. SKÁL-klúbbnum sem er félag forystumanna í ferðamálum. Óhætt er að segja að Haukur hafi verið brautryðjandi í ferðaþjón- ustu á Íslandi. Haukur verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. 1953, og Sigurður Þorsteinsson, skip- stjóri og útgerð- armaður á Steinum á Bráðræðisholti, f. 24.2. 1882, d. 13.11. 1940. Aðalbjörg og Haukur eignuðust fjögur börn: 1) Ingi- björg, f. 18.9. 1945, d. 15.7. 1951. 2) Gunnar, f. 1.2. 1951, kvæntur Jóhönnu Geirsdóttur. Börn þeirra eru: a) Aðalbjörg, b) Hauk- ur, kvæntur Rakel Svansdóttur, þau eiga tvær dætur: Helenu Bryn- dísi og Hildi Telmu, c) Valur, sam- býliskona hans er Ragnhildur Sig- urðardóttir, þau eiga einn son f. 1.1. 2009. 3) Sigurður, f. 20.1. 1952, kvæntur Hrefnu Steinsdóttur. Syn- ir þeirra eru a) Steinn, sambýlis- kona hans er Guðrún Benedikts- dóttir, og b) Hannes, unnusta hans er Hugrún Tanja Haraldsdóttir. 4) Ingibjörg, f. 4.9. 1957, gift Einari Haukur tengdafaðir minn fæddist á Reynimel við Bræðraborgarstíg, sannur Vesturbæingur og KR-ing- ur. Æskuárin í Vesturbænum voru uppspretta ótal lifandi frásagna. Ein sagan var þegar hann er fimm ára gamall og hann hleypur frá móð- ur sinni upp á brettið á bíl pabba síns, sem þá var að keyra Dana- drottningu. Margar sögur sagði hann af Völu systur sinni og Tomma bróður sem dóu ung og hann saknaði alla tíð, einnig sögur af stöðugum flutningi þeirra mæðgina og hversu erfitt það reyndist honum að fá ekki að alast upp á sama stað. Haukur útskrifaðist frá Verzlun- arskóla íslands 1939 og fer þremur árum síðar til Bandaríkjanna í fram- haldsnám og starfaði þar um tíma. Starfsvettvangur Hauks var fyrst í Vesturbænum þar sem hann vann við verslun frænda síns Hjartar Hjartarsonar og síðar í miðbænum. Hann vann um tíma hjá Ferðaskrif- stofu ríkisins, blómabúðinni Flóru, í Orlofsbúðinni, en lengst af starfaði hann í Rammagerðinni. Það voru langir dagar sem Hauk- ur vann, sérstaklega yfir sumartím- ann, oft ekki komið heim fyrr en undir kvöldmat og allar helgar unn- ar. Haukur var frumkvöðull í ferða- mannaverslun og hafði næmt auga fyrir viðskiptum. Hann var óhræddur við að inn- leiða nýjungar, stillti jólasveini út í búðarglugga í byrjun nóvember þrátt fyrir gagnrýni ýmissa. Árið 1945 kvæntist hann Öllu sinni, en þau kynntust um það leyti sem hann er að ljúka Verzlunarskól- anum. Haukur sagði það hafa verið sína gæfu að Alla beið eftir honum þegar hann kom heim frá Bandaríkj- unum, og voru það orð að sönnu. Þau byggðu myndarheimili á Sel- vogsgrunni 6 með séríbúð í kjallara þar sem Ingibjörg móðir hans bjó þar til hún lést. Þarna áttu þau sín bestu ár við uppeldi barnanna og í góðra vina hópi. Á Selvogsgrunni bjuggu þau í rúm fjörutíu ár. Haukur var alla tíð útivistarmað- ur. Þau Alla voru dugleg að fara á skíði og ógleymanlegar voru ferðir með Gullfossi á Ísafjörð og Akureyri um páska. Seinni árin stunduðu þau gönguskíði af kappi. Það var gaman að sjá Hauk taka gamla takta á skautum á Tjörninni í Reykjavík, áttuna afturábak tók hann með lokuð augun. Hann spilaði badminton fram yfir áttrætt, með góðum félögum. Haukur var fagurkeri og hafði gaman af því að kaupa fallega hluti á ferðalögum sem skreyttu heimili þeirra. Hann naut þess að skapa rétta stemningu, kveikti á kertum og var höfðingi heim að sækja. Þau Alla fóru árlega til Spánar og slökuðu á eftir erilsamt sumar. Þar nutu þau lífsins í sól og góðum fé- lagsskap. Þau voru vel kynnt „þarna niðurfrá“ eins og Haukur orðaði það svo skemmtilega, Spánverjar fögn- uðu þeim, hvar sem þau komu. Haukur saknaði Öllu sinnar mikið eftir að hún lést. Þau voru gift í sex- tíu ár. Alla var hans stoð og stytta í gegnum lífið og þau hjónin voru ákaflega samrýnd. Hann var heilsuhraustur fram á síðasta dag, gekk nær daglega niður í miðbæ og kenndi sér ekki meins. Haukur dvaldi 2-3 daga í viku í Múlabæ og var ákaflega þakklátur fyrir það og hrósaði starfsfólki óspart. Að leiðarlokum þakka ég Hauki samfylgdina og allar góðu stundirn- ar sem hann gaf okkur. Einar Sveinn. Í dag kveð ég elskulegan tengda- föður minn, viðmótsgóðan, heil- steyptan og ljúfan heiðursmann, Hauk Gunnarsson. Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að vera hluti af tilveru hans síðustu 35 árin og er sá tími mér mjög eftirminni- legur. Haukur var heiðarlegur og einlægur maður. Hann hafði mikla útgeislun og persónutöfra og laðaði fólk að sér. Hann talaði oft um æsku sína og lífið sjálft og sagði sögur frá lífsferli sínum og uppvaxtarárum með móður sinni. 19. maí 1945 kvæntist hann eig- inkonu sinni, Aðalbjörgu Sigurðar- dóttur, sem lést í lok maí 2005. Árið 1942 dvaldi hann í Bandaríkjunum í tvö ár. Hann nefndi oft hve lánsam- ur hann hefði verið að þá hefði hún Alla, hans lífshamingja, beðið eftir honum! Þau eignuðust fjögur börn, en urðu fyrir þeirri miklu sorg að missa elsta barn sitt, Ingibjörgu, en hún lést tæplega sex ára gömul. Þau ferðuðust mikið til sólarlanda, eink- um til Costa del Sol. Eiga margir ánægjulegar minningar með þeim frá þeim tíma. Haukur og Aðalbjörg voru eitt, órjúfanlegur hluti hvort af öðru, hjón í 60 ár – og eru vandfundnari samrýmdari lífsförunautar. Hún varð Hauki því mikill harmdauði og varð hann aldrei samur maður eftir það; lífsneistinn dofnaði og eldmóð- urinn þvarr. Það er erfitt að missa þann sem hefur verið kjölfestan í líf- inu í 60 ár. Eftir að Aðalbjörg lést bjó Haukur einn í íbúð þeirra að Sól- túni 13 sem þau fluttu í haustið 2000. Hann var mikill fjölskyldumaður og naut þess að vera með fjölskyldunni á stórhátíðum og í matarboðum sem voru oft. Haukur starfaði sem verslunar- stjóri í Rammagerðinni í Hafnar- stræti til 70 ára aldurs. Þangað lá straumur innlendra jafnt sem er- lendra ferðamanna frá öllum heims- hornum sem hann hafði ánægju af að tala við og afgreiða. Haukur vann að uppbyggingu fyrirtækisins af miklum dugnaði. Hann skapaði festu og margar þær hefðir í starfsháttum ferðaþjónustu sem hún býr að enn þann dag í dag. Hann var afar far- sæll í störfum sínum og sérlega vel liðinn af samstarfsfólki sínu og öllum þeim sem til hans leituðu. Haukur lést á 88. aldursári og bar aldur sinn vel. Brottför hans var óvænt og skyndileg. Það er huggun harmi gegn að hann fékk að halda reisn sinni til síðasta dags. Elsku Gunnar, Siggi og Ingibjörg, þið eruð samhent og sterkir per- sónuleikar og hafið fengið gott vega- nesti úr foreldrahúsum. Ég bið guð að styrkja ykkur í sorginni. Ég þakka tengdaföður mínum sam- fylgdina og alla þá hlýju sem hann sýndi mér. Jóhanna Geirsdóttir. Elsku afi, það er gott að minnast þín. Við þurfum ekki annað en leggja aftur augun og upp koma fjölmargar minningar um samverustundir á Selvogsgrunni 6 og víðar. Amma er aldrei langt undan enda voruð þið sem eitt í okkar huga, Alla og Hauk- ur, Haukur og Alla. Það er gott að vita af ykkur saman á ný og eflaust sitjið þið í sandinum á sólríkri strönd í fjarlægum heimi og látið ykkur líða vel eins og þið voruð svo vön að gera á ferðum ykkar erlendis. Glaðværð þín, hvatning og góð- mennska við náungann var okkur öllum mikilvæg fyrirmynd. Allar þær stundir sem við áttum saman í eldhúsinu á Selvogsgrunni annað- hvort að borða bakkelsi eða góðan mat eða spila manna eru ógleyman- legar. Í stofunni komum við svo öll saman á aðfangadag til að eiga góða stund við jólatréð sem stóð við gamla plötuspilarann sem geymdi Kardemommubæinn og Pétur og úlfinn. Ekki má gleyma altaninu og garðinum sem við lékum okkur svo oft í heima hjá ykkur og alltaf var Volvo R 1540 á bílastæðinu. Þær voru nokkrar ferðirnar sem við fórum með þér og fjölskyldunni á Þingvelli til að veiða bleikjur og murtur sem amma eldaði þegar heim var komið og á Flúðir þar sem við gistum í sumarhúsum og þú sýndir ógleymanlega takta í fót- bolta. Afmælið í Araseli í Lóni er einstaklega minnisstætt þar sem öll fjölskyldan var samankomin að fagna 70 ára afmælinu þínu, við fengum frábært veður, veiddum sil- ung (þú fékkst hausinn) og sviðsett- um leikrit fyrir samkomuna sem seint hverfur úr minni okkar. Áhugi ykkar ömmu á fótbolta smitaði veru- lega út til okkar strákanna og KR var alltaf þitt aðalfélag þrátt fyrir að þú mættir þola skammir frá félögun- um í Valshverfinu þegar þú fluttir í stuttan tíma austur fyrir læk ungur drengur. Þú varst einstaklega vel á þig kominn til síðasta dags enda átt- irðu auðvelt með hreyfingu allt þitt líf, ef það voru ekki skautarnir þá var það badmintonið. Þú varst alltaf manna skemmtilegastur í sam- kvæmum og hvert sem við fórum með þér fékkstu alltaf klapp á bakið frá gömlum kunningja eða vini. Nú er komið að kveðjustund og við vilj- um þakka þér og ömmu fyrir allar þær góðu minningar sem við höfum skapað saman á Selvogsgrunni og úti í náttúrunni þar sem flestar og bestu minningarnar blunda. Elsku afi, þín munum við alltaf minnast með bros á vör. F.h. afabarnanna, Haukur Ingi Einarsson. Genginn er mikill heiðursmaður og langar mig til að minnast hans í örfáum orðum. Haukur Gunnarsson var giftur Öllu „systur“ eins og móð- ursystir mín Aðalbjörg Sigurðar- dóttir var jafnan kölluð á mínu æskuheimili og æ síðan á mínu eigin heimili enda þekktu maðurinn minn og börn hana ekki undir öðru nafni. Haukur og Alla reyndust mér alla tíð afskaplega vel enda samgangur mikill á milli heimila okkar á upp- vaxtarárum mínum. Mér er minnisstæð dúkkan sem Haukur færði mér eitt sinn þegar hann kom úr siglingu að utan, ég var þá um fjögurra ára gömul. Ekki kom annað til greina en að dúkkan bæri nafn hans og var því nefnd Hauksína og sennileg eina dúkkan sem lögð hefur verið í einelti vegna nafngiftar og það af vinkonum mínum sem fannst þetta ekki fallegt nafn á fal- legri dúkku, en ég stóð fast á mínu. Haukur var mikill sjentilmaður, fag- urkeri og heimsmaður fram í fing- urgóma. Framkoma hans einkennd- ist ávallt af mikilli ljúfmennsku enda var hann einstaklega vel liðinn og flinkur í sínu fagi, minnast hans efa- laust margir Reykvíkingar frá árum hans í Rammagerðinni en þar var hann kóngur í sínu ríki. Heimili hans og Öllu „systur“ var einstaklega glæsilegt og bar húsráðendum fag- urt vitni, þangað var gott að koma og hlýjan sem þar umvafði mann er ógleymanleg enda margar góðar æskuminningar sem ég varðveiti innra með mér nú þegar þessi ynd- islegi maður, Haukur Gunnarsson, kveður okkur sem með honum gengu áleiðis lífsbrautina. Mestur er þó söknuður kærra frændsystkina minna, þeirra Gunnars, Sigurðar, Ingibjargar og fjölskyldna þeirra, og vottum við Sigurjón og börn okk- ar þeim innilega samúð. Ég bið Hauki mínum góðrar heimkomu um leið og ég þakka honum tryggðina og vináttuna við mig og mína alla tíð. Blessuð sé minning hans. Margrét Þ. Blöndal. Gamalli konu varð að orði þegar hún frétti af andláti Hauks Gunn- arssonar að mikið væri farið vel með suma. Hana dreymir um svona dauðdaga en slíkt er víst ekki hægt að panta. Lífið og dauðinn eru tvær hliðar á sama peningi og enginn veit hvor hliðin snýr upp fyrr en pen- ingnum er kastað. Þótt hægt sé að gleðjast fyrir hönd þeirra sem fá að fara svona í lok gifturíks lífshlaups þá er höggið alltaf jafn sársaukafullt fyrir aðstandendurna því réttur brottfarartími er ekki til. Þeim fækkar óðum sem settu svip sinn á miðbæinn á öldinni sem leið. Haukur Gunnarsson, oftast kenndur við Rammagerðina, var einn þeirra en við hjónin minnumst hans fyrst og fremst sem pabba Imbu vinkonu okkar. Haukur var glæsimenni með mikla persónutöfra. Krökkunum okkar fannst hann vera eins og Hollywood-leikari í útliti, hann minnti einna helst á Frank Si- natra. Haukur bræddi alla með brosinu, hlýlegu viðmóti og þéttu handtaki. Gamla konan hér að ofan var ein þeirra sem drýgðu tekjur heimilisins á árum áður með því að prjóna lopapeysur og selja í Rammagerðinni. Hún minnist Hauks aðeins af góðu einu. Hann töfraði allar konurnar upp úr skón- um. Frá fæðingu hvers manns hefst niðurtalningin og nú er hans lokið. Nú sér maður ekki lengur Hauk á rölti um göturnar með sixpensarann á höfðinu. Eftir situr minning um góðan mann sem hlýjar þeim sem hann þekktu. Við sendum aðstand- endum Hauks okkar hugheilu sam- úðarkveðjur. Guð blessi minningu Hauks Gunnarssonar. Birna og Kristján. Meira: mbl.is/minningar Haukur Gunnarssonhátt léttara og einkennist af bjart-sýni og glaðværð. Armæðu- og nið- urrifshjal víkur fyrir snjöllum hug- myndum og nýjum tækifærum með hæfilegri blöndu af glensi og góðum sögum. Þær gefa lífinu lit og með útgeislun sinni og góðri nærveru líður fólki vel í návist þeirra. Þann- ig manneskja var hún vinkona mín Auður Kristmundsdóttir. Fáar manneskjur hef ég hitt á lífsleiðinni sem kunnu betur þá list að gera gott úr aðstæðum þannig að allt sem virtist erfitt og óyf- irstíganlegt varð að áskorun til að takast á við eða tilefni til að sætta sig við orðinn hlut möglunarlaust. Það kom sér oft vel á lífsgöngunni því lífið fór ekki alltaf um hana mildum höndum og stundum reynd- ist ágjöfin óvægin. Þessi hæfileiki Auðar endurspeglaðist hvað best í baráttu hennar við veikindin sem að lokum náðu yfirhöndinni svo ekki varð við ráðið. Allt til hinsta dags var hún staðráðin í því að nota tím- ann vel og njóta hverrar stundar sem lífið gaf. Kynni okkar hófust fyrir margt löngu í Varmárskóla í Mosfellsbæ. Mér er enn í fersku minni þegar Auður gekk í fyrsta skipti inn á kennarastofuna. Svo geislandi falleg kona, glæsileg í fasi, þannig að gustaði af, og spurði hvort hér væri laus kennarastaða. Hún var ráðin á staðnum. Með okkur tókst vinátta sem hélst allar götur síðan. Það er vart hægt að hugsa sér betri félaga en Auði. Svo leiftrandi greind og áhugasöm um allt milli himins og jarðar. Hún hafði einstaka frásagn- arhæfileika og fékk alla til að leggja við hlustir enda kunni hún að gæða frásögnina lífi með skemmtilegu látbragði og hæfilegum ýkjum. Kjarkmikill dugnaðarforkur sem vílaði ekki fyrir sér að takast á við verkefni sem fílelfdir karlmenn hefðu hikað við. Armæða og væll var ekki til í hennar orðabók – það var ekki hennar stíll. Svo um- hyggjusöm, úrræðagóð og örlát á tímann sinn ef aðrir þurftu á aðstoð hennar að halda. Svo tryggur og góður vinur. Dag er nú tekið að lengja og skammdegismyrkrið víkur fyrir hækkandi sól. Esjan tignarleg í feg- urð sinni skartar hvítu klæði sem tekur á sig fölbleikan og bláan lit í skini janúarsólar sem gefur fyrir- heit um betri tíð. Þó má ef grannt er skoðað greina fínlega sorgars- læðu sem sveipar hæstu tinda og teygir sig niður skorninga og gil. Ég kveð Auði Kristmundsóttur með söknuði og sárum trega. Ég mun sakna þess að heyra hana ekki segja hrakfallasögur af sjálfri sér með tilheyrandi bægslagangi og hlátrasköllum. Sakna stundanna þegar alvarleg málefni bar á góma og kryfja þurfti mál til mergjar og leita lausna. Sakna samverunnar þegar tíminn flaug, dagur varð að nóttu og nótt að degi en ekki hægt að hætta því stundin var svo dýr- mæt. Ég mun varðveita vel og lengi minninguna um góða vinkonu sem var einstök manneskja sem lifði hratt en allt of stutt. Ég votta aðstandendum öllum samúð. Sigríður Johnsen. Elsku Auður. Það er alltaf erfitt að kveðja. En þú hefur skilið eftir margar minningar í mínu hjarta. Ég eyddi mörgum sumrum með þér, Magga og krökkunum þegar ég var yngri og bjó í New York. Þú tókst mér eins og ég væri þinn son- ur. Við ferðuðumst um allt Ísland þegar ég var táningur sem var mik- il upplifun fyrir strák frá stórborg- inni New York, úr þessum ferðum á ég svo margar góðar minningar. Í gegnum árin höfum við alltaf verið í góðu sambandi þrátt fyrir mikla fjarlægð. Þú varst skemmtileg, góð og ákveðin kona. Ég á eftir að sakna þín, Auður mín, en minningu þína mun ég allt- af geyma í mínu hjarta. Johannes (Bussi) Thorberg.  Fleiri minningargreinar um Auði Kristmundsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.