Morgunblaðið - 12.02.2009, Page 43
Menning 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
Nokkrir vinir, er heiti sýningar semopnuð verður í Listasafni Íslandsá Safnanótt á föstudagskvöld kl.20, en þar verður brugðið ljósi á
þann kafla íslenskrar listasögu þegar form-
ræn list lét undan síga fyrir óformrænum
gildum og önnur viðhorf knúðu á af miklum
krafti. Sýningarstjórar eru þrír, Sigríður Mel-
rós Ólafsdóttir, Halldór Björn Runólfsson og
Björn Roth.
„Það má segja að það sé Dieter Roth sem
tengi þá listamenn saman sem eiga verk á
sýningunni,“ segir Sigríður Melrós. „Milli
þessa fólks voru tengsl, kunningsskapur og
vinátta og þau höfðu áhrif hvert á annað með
samskiptum sínum.“
Rifu sig burt frá gömlum gildum
Þegar Sigríður Melrós er spurð hvernig
vináttan og áhrif hennar birtist í verkum lista-
mannanna, segir hún best að fólk komi og
skoði það með eigin augum. „Við byggjum
sýninguna á safneignum Listasafnsins og Ný-
listasafnsins og reynum að velja verk sem vísa
hvert í annað að einhverju leyti. Það sem ger-
ist á þessum tíma upp úr miðri öld var það að
listamenn voru að rífa sig út úr formalisma og
þeim gildum sem þá voru ráðandi. Það er
rauður þráður hjá þessum listamönnum. Þeir
voru að rífa sig lausa frá þeim fagurfræðilegu
gildum sem höfðu verið ríkjandi, létu sig ým-
islegt í samfélaginu varða, bæði hér heima og
í heimi. Þetta eiga listamennirnir sameig-
inlegt, en gera það hver með sínum hætti.
Þeir kúvenda frá abstraktlistinni sem var alls-
ráðandi og landslaginu. Það er eitthvað allt
annað sem er í gangi hjá þessu fólki.“
Sigríður Melrós segir aðspurð að hægt sé
að kalla þennan hóp listamanna tímamótakyn-
slóð í listrænum skilningi. „Þau eru líka flest
hluti af ’68 kynslóðinni. Hörður Ágústsson er
þó eldri og var byrjaður að vinna í abstrakt-
inu, en þeir Dieter náðu þó fljótt vel saman.“
Verkin á sýningunni spanna tímabilið frá
miðri síðustu öld fram á daginn í dag og eru
eftir: Arnar Herbertsson, Björn Roth, Dieter
Roth, Erró, Hrein Friðfinnsson, Hörð Ágústs-
son, Jóhann Eyfells, Jón Gunnar Árnason,
Kristján Guðmundsson, Magnús Pálsson,
Magnús Tómasson, Rósku, Rúrí, Sigurð Guð-
mundsson, Sigurjón Jóhannsson og Þórð Ben
Sveinsson. Auk þess verður kvikmynd Hilmars
Oddsonar um Dieter Roth sýnd í tengslum við
sýninguna.
Gólf sagað úr húsi og flutt með verkinu
Sigríður Melrós segir verkin á sýningunni
mjög fjölbreytt og sum hafa ekki komið fyrir
almenningssjónir fyrr.
„Ég stend hér við verk eftir Dieter Roth
sem aldrei hefur verið sýnt áður og er nefnt
Bryggjuhúsverkið. Það hefur verið í Bryggju-
húsinu á Seyðisfirði þar sem Dieter vann það
með hjálp fjölskyldu sinnar. Hann byrjaði á
því um 1991. Þau bættu í það, smávegis á
hverju sumri, þegar þau komu austur. Þetta
er mikið af dóti sem hefur verið við höndina á
vinnustofu Dieters. Þarna er vinnustóllinn, út-
varp, lím, fullt af málningu og málning-
ardósum. Fjölskyldan fór og sótti verkið til
Seyðisfjarðar í síðustu viku, sagaði part úr
gólfinu, þar sem verkið stóð, og kom með
hann í heilu lagi. Dieter gerði nokkur svona
verk og þau eru komin út um allan heim og
eru í einkaeigu. Þetta er eina verkið í þessum
dúr sem fjölskylda hans á. Þetta verk gefur
tóninn fyrir margt af því sem listamennirnir í
þessum hópi voru að gera. Þetta er eins og
stórt þrívítt málverk og allri fagurfræði hent í
burtu.“
Formsmiðja og sláturkeppir
Sigríður nefnir annað verk og ólíkt. „Það er
falleg sería eftir Hörð Ágústsson sem heitir
Úr formsmiðju, og er 17 pennateikningar frá
1956. Það lýsir því sem Hörður var svo þekkt-
ur fyrir, formfræðinni, og rímar við margt af
því sem Dieter gerði. Hér eru líka bókverk
sem Dieter skar út í abstrakt form.
Þá eru hér líka gömul verk eftir Kristján
Guðmundsson, Sláturkeppir, partur úr verki
sem hann setti upp í Súm 1970. Það var inn-
setning sem hann gerði af sláturkeppum sem
lágu á víð og dreif um gólfið og við þá nældi
Kristján litla viskumola. Þrír af þessum kepp-
um eru hér á sýningunni. Þannig erum við
með vísanir í ýmis gömul verk og gjörninga
eftir þetta fólk.“
Sýningin er í öllum sölum Listasafnsins og
stendur til 3. maí. Frítt er inn á sýningar
safnsins.
Kúvending frá abstraktinu
Morgunblaðið/RAX
Dieter Roth „Þetta er hellingur af dóti sem hefur verið við höndina á vinnustofu Dieters. Þarna er vinnustóllinn, útvarp, lím, fullt af málningu og málningardósum.,“ segir Sigríður Melrós.
Morgunblaðið/RAX
Listamennirnir „Þeir voru að rífa sig lausa frá þeim fagurfræðilegu gildum sem höfðu verið
ríkjandi, létu sig ýmislegt í samfélaginu varða, bæði hér heima og í heimi.“
Verk 16 listamanna af tímamótakynslóð sýnd í Listasafni Íslands Dieter Roth tengir listamennina
saman í vináttu og kunningsskap Áður ósýnt verk eftir Dieter Roth meðal verkanna á sýningunni
Þýsk-svissneski listamaðurinn Dieter Roth bjó um árabil
á Íslandi og hafði mikil áhrif á SÚM-hópinn og þróun ís-
lenskrar myndlistar á 7. og 8. áratugnum. Dieter Roth
lærði grafíska hönnun í Bern og vann fyrir sér sem hönn-
uður bæði í Bern, Kaupmannahöfn og Reykjavík þar sem
hann hélt sína fyrstu einkasýningu á Mokka-kaffi 1958.
Hann var einn af forvígismönnum konkret-ljóðlistar þar
sem leikið er á mörkum orða og forma. Eftir hann liggur
fjöldi grafíkverka og skipta bókverk hans hundruðum, og
eru mörg þeirra gefin út í Reykjavík, oft í samvinnu við
aðra. Dieter vann að mörgu leyti í anda Fluxus-
hreyfingarinnar, og blandaði meðvitað saman faglegum
og viðvaningslegum vinnubrögðum og notaði einnig
hvers kyns rusl og úrgang eða mat í verk sín. Auk bók-
verka, grafíkverka og skúlptúra hefur Dieter Roth unnið
með tónlist, oft í samvinnu við annað myndlistarfólk.
Dieter Roth 1930-1998
Dieter Roth