Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
„Samdráttaraðgerðir eru þannig
að við reynum að skerða sem
minnst í því sem lýtur að leit og
björgun,“ segir Georg Kr. Lár-
usson, forstjóri Landhelgisgæsl-
unnar. Þremur þyrluflugmönnum
hefur verið sagt upp auk þess
sem sagt hefur verið upp á skip-
unum og á skrifstofunni.
Georg segir jafnframt að leit-
ast sé við að draga sem minnst úr
viðbragðsgetu Landhelgisgæsl-
unnar á neyðartímum. „Við erum
að draga mjög saman í öllum
rekstri Landhelgisgæslunnar,“
segir hann og að í raun sé
minnstur samdráttur í fluginu.
„Þessar aðgerðir hljóta nátt-
úrlega að minnka getu okkar
eitthvað til að þjónusta fólk,
þannig að segja má að um leið
skerði þær möguleika okkar á að
þjónusta að einhverju leyti,“ seg-
ir Georg.
Landhelgisgæslan voni, rétt
eins og aðrir landsmenn, að
ástandið á landinu batni. „Það
eru sex mánuðir þangað til þess-
ar uppsagnir taka gildi og það
getur ýmislegt breyst á þeim
tíma. Landhelgisgæslan er mjög
háð gengi íslensku krónunnar,
gengisþróunin hefur mest að
segja um gengi Landhelgisgæsl-
unnar,“ segir Georg.
Hann upplýsir að uppsagnir
flugmannanna séu minnsti hluti
hagræðingaraðgerðanna hjá
LHG. Þannig muni sjö skipstjórn-
armenn hætta á árinu, þrír vél-
stjórar, tíu hásetar, fimm skrif-
stofumenn og aðrir vaktmenn.
„Þetta eru víðtækar aðgerðir
en miða allar að því að sem
minnst skerðing verði í þjónustu.
Þess vegna er ekki fleiri en
þremur flugmönnum sagt upp,“
segir Georg.
Morgunblaðið/RAX
Samdráttur Landhelgisgæslan þarf
að spara eins og aðrir landsmenn.
Sem minnst
skerðing
RÆKJUSKIPIÐ Sigurborg frá
Grundarfirði fékk í gærmorgun
loðnu með rækjuafla á Stranda-
grunni, út af Húnaflóa. Talin er
ástæða til að kanna frekar hvernig
loðna er þarna á ferðinni og hversu
mikið magn. Í gær var unnið að því
að loðnuskip færi frá Vopnafirði á
þessar slóðir.
Hafrannsóknarskipið Árni Frið-
riksson var við loðnuleit suðaustur
af landinu í gær, en engar nýjar
fréttir hafa borist af loðnugöngum
á þeim slóðum.
Nokkur skip voru að veiðum á
Faxaflóa í gær. Loðnan er komin að
hrygningu og fer ýmist í frystingu
eða hrognavinnslu. Skipin eru
langt komin með að veiða upp í 15
þúsund tonna leitarkvóta, sem sjáv-
arútvegsráðuneytið gaf út í byrjun
mánaðarins. aij@mbl.is
Vart við loðnu á
Strandagrunni
ENGU er líkara en þessar blómarósir séu annars
heims, þar sem þær snerta ekki jörðina, kannski
af einskærum fögnuði, þar sem þær skokka við
Reykjavíkurtjörn í veðurblíðunni. Nú þegar sól-
in hækkar á lofti með degi hverjum og vonin um
vorið færist nær, læðist kraftur í kroppinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Unga kynslóðin hleypur af krafti í átt til vors
SÍMINN hækkar verð á þjónustu
sinni frá og með næstu mánaðamót-
um, hvort heldur er vegna símanotk-
unar, áskrifta, sjónvarps eða net-
þjónustu. M.a. verður nú tekið gjald
fyrir leigu á netbeinum og myndlykl-
um, séu notendur ekki með net- eða
sjónvarpsáskrift hjá fyrirtækinu.
Tekið verður 600 króna gjald fyrir
myndlyklana og 350 króna gjald fyr-
ir netbeinana frá og með næstu mán-
aðamótum en á sínum tíma var
grunnpakki Sjónvarps Símans aug-
lýstur sem ókeypis. „Á þeim tíma
þegar ákveðið var að bjóða þetta á
núll krónur gekk það dæmi upp. En
svo breytist heimurinn og þá horfir
þetta öðruvísi við,“ segir Margrét
Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi
Símans. Aðspurð segir hún ekki
komið aftan að fólki með gjaldtök-
unni. „Fólk fékk að vita af þessu með
mánaðar fyrirvara og hefur þá tök á
því að skila þessum tækjum.“
Hún bætir því við að kostnaður
hafi aukist við kaup á tækjunum og
gjöldin séu m.a. sett á „í þeim til-
gangi að halda betur utan um þann
búnað sem viðskiptavinur leigir af
okkur“. ben@mbl.is
Síminn hækkar gjald-
skrá fyrir þjónustuna
Setur á mánaðargjald fyrir leigu á myndlyklum og netbeinum
Í HNOTSKURN
»Upphafsgjald símtals íFrelsi hækkar úr 4,50 kr. í
5,90 kr. eða um rúmt 31%.
Upphafsgjald í GSM-
áskriftum hækkar úr 4,15 í
4,90 eða um rúm 18%.
»Grunnáskrift heimasímahækkar úr 1595 kr. í 1645
kr. Áskrift TAL sambands
hækkar einnig um 100 kr.
Sæktu
um núna
á n1.is
-5kr. / -15%
OPNAÐUR hefur ver-
ið leiguvefur á mbl.is.
Þar er að finna íbúð-
ar- og atvinnu-
húsnæði sem boðið er
til leigu. Notendur
geta með auðveldum
hætti valið að hverju
skal leita með því að
smella á viðkomandi
flipa fyrir ofan leit-
arvélina. Á vefnum er
einnig að finna yfirlit
yfir vinsælustu leitirnar og gagn-
lega tengla. Þá eru notendur
hvattir til að senda inn at-
hugasemdir og ábendingar tengd-
ar vefnum.
Notendur geta skráð eignir
frítt til 20. mars nk. Til að geta
sett inn eignir þarf viðkomandi að
vera skráður notandi. Slík skrán-
ing tekur örskamma stund. Þeir
sem þegar eru skráðir notendur
hjá mbl.is geta notað núverandi
auðkenni til að skrá sig inn.
Hægt er að skoða vefinn með
því að smella á tengilinn Leigu-
húsnæði efst í vinstra dálki á for-
síðu mbl.is. Þá má einnig smella á
hnapp sem er undir hausnum
Nýtt á mbl.is eða slá inn slóðina
mbl.is/leiga.
Leiguvefur
opnaður á mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ hefur tekið
upp nýtt fyrirkomulag við af-
greiðslu greina frá frambjóðendum
í prófkjörum og kosningum sem
framundan eru.
Svo efninu verði sem best fyrir
komið og til að liðka fyrir birtingu
þess fer Morgunblaðið þess á leit
að frambjóðendur stytti mál sitt
þannig að hver grein verði ekki
lengri en 2.000 tölvuslög með bil-
um.
Samhliða birtingu greina í
blaðinu verður boðið upp á birtingu
greina í ótakmarkaðri lengd á
kosningavef mbl.is. Hægt er að
fara á kosningavefinn beint af for-
síðu mbl.is og verða þar ferskar
upplýsingar og fréttir af öllu því
sem hæst ber vegna kosninganna,
sem fram eiga að fara 25. apríl
næstkomandi.
Greinar fram-
bjóðenda í
prófkjörum