Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009 BÚAST má við miklum og heitum umræðum á Alþingi í dag þegar seðlabankafrumvarpið kemur til loka- umræðu eftir umdeilda afgreiðslu í viðskiptanefnd. Frumvarpið var fellt út af dagskrá bæði á mánudag og þriðjudag en stjórnarliðar ætla að kappkosta að fá það afgreitt sem lög í dag. Þingfundur hefst kl. 10:30. Morgunblaðið/Golli Seðlabankafrumvarpið tekið til lokaumræðu Hitnar í kolunum í dag? BIRGIR Ár- mannsson, þing- maður Sjálfstæð- isflokksins, undrast yfirlýs- ingar forsætis- ráðherra um að ríkisstjórnin hafi afgreitt frá sér 24-25 laga- frumvörp, sem nú væru í hönd- um þingsins. Samkvæmt samantekt hans séu stjórnarfrumvörpin sem fram eru komin 9 en ekki 24-25. Meirihluti þessara mála hafi verið undirbúinn að verulegu leyti eða jafnvel fullkláraður í tíð fyrri rík- isstjórnar. „Eftir stendur þá spurn- ingin um þau 15 til 16 stjórn- arfrumvörp, sem forsætis- ráðherrann segir að ríkisstjórnin hafi afgreitt til þingsins, en ekki hafa verið lögð þar fram. Hvaða mál eru þetta? Hvar eru þau á vegi stödd? Hvenær er von á þeim inn í þingið?“ segir Birgir. Níu mál kom- in, ekki 24-25 Birgir Ármannsson ÖGMUNDUR Jónasson heil- brigðisráðherra hefur skipað nefnd til að sam- hæfa starfsemi á Landspítala og Heilbrigðis- stofnun Suður- nesja. Í nefndinni sitja m.a. for- stjórar stofn- ananna og einnig fulltrúar al- mannasamtaka á svæðinu. „Þarna er reynt að kalla saman að máli fulltrúa þeirra stofnana, sem tengjast þessari samhæfingu auk fulltrúa þessara almanna- samtaka,“ sagði Ögmundur þegar hann svaraði fyrirspurn frá Björk Guðjónsdóttur, þingmanni Sjálf- stæðisflokks. Nefndin á að skila áliti 16. mars. Önnur nefnd skoðar starfsemi á St. Jósefsspítala í Hafn- arfirði og á að skila áliti 12. mars. Skoða sam- starf spítala Ögmundur Jónasson BÚIÐ er að selja um 80% af uppsettri flutningsgetu Farice-ljósleiðara- strengsins. Einnig hafa samningar náðst um sölu á um 80% af þeirri flutningsgetu Danice-ljósleiðara- strengsins, sem fyrirhugað er að taka í notkun í júní á þessu ári. Þetta kom fram í svari Kristjáns L. Möller sam- gönguráðherra við fyrirspurn Ár- manns Kr. Ólafssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í gær. Uppsett flutningsgeta Farice 1- strengsins er 100 gígabit á sekúndu en mesta mögulega flutningsgeta strengsins er 720 gígabit á sekúndu. Unnið hefur verið að lagningu Da- nice-strengsins og er nú áætlað að í júní verði sett upp 100 gígabit á sek- úndu af þeim þeim 5.120 gígabitum sem strengurinn mun bjóða upp á. Ármann Kr. sagði að öflug erlend fyrirtæki hefðu beðið í röðum eftir því að fá að byggja gagnaver á Íslandi. Hann benti á að gagnaver á Suð- vesturlandi sem nýtti allt að 25 MW í upphafi, gæti þurft á 30 til 60 föstum starfsmönnum að halda. Reiknað sé með að jafnmörg störf verði til við ýmsa þjónustu í kringum hvert gagnaver, þannig myndu 60- 120 störf tengjast þessum rekstri beint og óbeint. Hann sagði ljóst af svörum ráð- herra, að það gagnamagn sem búið væri að selja, væri aðeins lítið brot af flutningsgetu strengjanna. Kvaðst Ármann Kr. geta fullyrt að þrjú eða fjögur fyrirtæki vildu koma til lands- ins og reisa gagnaver en verðlagið sem þeim stæði til boða inn á þessa strengi væri allt of hátt sem stæði í veginum. „Ég fullyrði að það er ekk- ert mál að koma tveimur gagnaver- um hér af stað á næstu vikum, sem skapa 400 störf á meðan er verið að byggja þau,“ sagði hann. Samgönguráðherra sagðist vera mjög bjartsýnn á að undirbúningur netþjónabúa kæmist aftur á fulla ferð þegar færi að rofa til í efnahagslífi heimsins. Eitt gagnaver væri þegar í höfn en í bæði iðnaðarráðuneyti og samgönguráðuneyti hafi farið fram mikil vinna vegna málsins og fjöl- margir komið á fund ráðuneytanna og lýst áhuga sínum á að byggja net- þjónabú á Íslandi. Þá væri einnig til skoðunar nauð- syn þess að leggja sæstreng milli Ís- lands og Bandaríkjanna og fyrir 2-3 vikum hafi stór hópur fjárfesta komið í samgönguráðuneytið til að lýsa áhuga sínum á því verkefni. omfr@mbl.is 80% af uppsettri getu Farice- og Danice seld Verðið sagt allt of hátt og fæla frá Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsd Á land Sæsímastrengurinn FA- RICE-1 var tekinn í land 2003. Taka á Danice-strenginn í notkun í júní. SKULDIR Spalar ehf., sem rekur Hvalfjarðargöngin, nema nú um fjórum milljörðum króna. Ragnheiður Ólafsdóttir, Frjáls- lynda flokknum, sagðist í fyrirspurn- artíma á Alþingi hafa fengið þessar upplýsingar hjá framkvæmdastjóra Spalar í gær. Ástæða þessara skulda væri misgengi vísitölu og gengis. Spurði hún samgönguráðherra hvort hann hygðist nú beita sér fyrir gjald- frjálsri umferð um Hvalfjarðargöng, líkt og flokkur hans hefði lagt til fyr- ir seinustu kosningar. ,,Ef yrði farið í framkvæmd samhliða núverandi göngum undir Hvalfjörð, þá yrði það sennilega gert af Vegagerðinni, eða það taldi Gylfi líklegast,“ sagði hún. Kristján L. Möller samgönguráð- herra sagði að afnám veggjaldsins væri ekki á stefnuskrá ríkisstjórn- arinnar. Ekki hefði komið til greina að afnema gjaldið á sama tíma og í umræðu væru hugmyndir um gerð annarra ganga. Á síðasta ári hefði verið mun minni umferð um göng- in en á árunum þar á undan og fjöldi bíla verið svipaður og á árinu 2002. Skuldar 4 milljarða Engin áform um að fella niður veggjald Fyrirtækið Verne Holding hefur frestað uppbyggingu gagnavers á gamla varnarsvæðinu um ár. Greint var frá þessu í vikunni og að fyrirtækið Greenstone geri sér vonir um að bygging gagna- vers hefjist í sumar nái allir samningar fram að ganga. Fé- lagið Titan Global hefur einnig skoðað byggingu gagnavers hér á landi. Lagning Danice- strengsins milli Íslands og Dan- merkur hófst í september sl. Nú er áætlað að strengurinn verði tekinn í notkun í júní. Í notkun í júní Félag kvenna í atvinnurekstri ER EKKERT GOTT AÐ FRÉTTA? Impra frumkvöðlar og sprotar Eiga jákvæðar fréttir erfiðara með að komast að í fréttum? Hvers vegna er það? Hver er samfélagsleg ábyrgð fjölmiðla? Eiga þeir stóran þátt í geðheilsu landsmanna? Agnes Bragadóttir, Morgunblaðið Óðinn Jónsson, RÚV Óskar Hrafn Þorvaldsson, Stöð 2 Reynir Traustason, DV Steinunn Stefánsdóttir, Fréttablaðið Fundarstjóri: Lára Ómarsdóttir, blaðamaður Fundurinn fer fram í Víkingasal á Hótel Loftleiðum föstudaginn 27. febrúar 2009 milli kl. 8.00-9.45 Aðgangseyrir kr. 3.000 - morgunverður innifalinn. Skráning á fka@fka.is Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „AÐ sjálfsögðu tekur [rík- isstjórnin] ekki ákvarðanir í skattamálum á öndverðu fjárlaga- og skattaári, sitjandi í 80 daga eða hvað það nú verður,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra við umræður um skattamál á Alþingi í gær. Tók hann af öll tvímæli um að ríkisstjórnin myndi ekki hrófla við sköttum á starfs- tíma sínum. Hins vegar væri und- irbúningur undir fjárlög næsta árs og ríkisfjármálaramma til lengri tíma verkefni núverandi rík- isstjórnar og hefðbundinn und- irbúningur fjárlaga væri að sjálf- sögðu í gangi. „Og þá þarf að leita leiða til þess að brúa gríðarlegt bil milli tekna og gjalda ríkissjóðs, sem við stöndum frammi fyrir.“ Það var Ragnheiður Elín Árna- dóttir, Sjálfstæðisflokki, sem hóf umræðuna og spurði ráðherrann um fyrirætlanir hans í skatta- málum. Hvort til stæði að leggja á hátekjuskatt að nýju. Sagði hún mikla hættu á að slíkur skattur legðist á venjulegt vinnandi fólk, millitekjuhópana. Skattar hækka ekki Ráðherra segir fjárlagaundirbúning hafinn og brúa þurfi gríðarlegt bil Morgunblaðið/Ómar Verkefni Fjármálaráðherra segir að þessi ríkisstjórn hækki ekki skatta á stuttum líftíma en stór viðfangsefni bíði næstu stjórnar m.a. um öflun tekna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.