Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Bækur Bækur til sölu Íslensk myndlist 1-2, Íslenskir sjávarhættir 1-5, Bergsætt 1-3, Ormsætt 1-6, Manntal 1801 + nafnaskrá, Manntal 1845 + nafnaskrá, Sunnlenskar byggðir 1-6, Deildartunguætt 1-2, Dala- menn nr. 1, Ættir Síðupresta, Nokkrar Árnesingaættir. Upplýsingar í síma 898 9475. Húsnæði í boði Til leigu við Elliðavatn 76 fm stórglæsileg glæný íbúð við Akurhvarf 1, innifalið þvottav. /þurrkari/uppþottavél,leðursófas ett /borð, hússjóður, frábært útsýni, suðursvalir. Leiga pr. mánuð 105 þús. Upplýsingar á tölvupósti:. thorao@mbl.is og s.896 3362. Íbúð með öllu til leigu í 101 Björt og nýuppgerð 77 fm íbúð í 101 til leigu frá 1.3 - 31.5. Verð 120 þ. á mán. Allt innifalið: húsgögn, internet, þvottavél. www.apartmentinreykja- vik.com, gsm 898-4989. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Sumarhús eða ferðaþjónustuhús Vandað sænskt bjálkaklæðningarhús með einangrun og panilklæðningu að innan. Löng og góð reynsla hér á landi. Þetta 32 fm hús er á sérlega góðu verði. Stuttur afgreiðslufrestur. JABO HÚS, Ármúla 36, sími 581 4070, www.jabohus.is Námskeið Frábært, rafrænt námskeið í netviðskiptum. Notaðu áhugamál þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að skapa þér góðar og vaxandi tekjur á netinu. Við kennum þér hvernig! Skoðaðu málið á http://www.menntun.com Til sölu Vilt þú frelsi eða öryggi? Endalok Ameríku eftir Naomi Wolf. Frá lýðræði til einræðis í tíu einföldum skrefum. Kr. 2.354, frí heimsending. Pantið á bendill.com eða í síma 695-8918. Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Tískuverslunin Smart, Grímsbæ/Bústaðavegi Nýkomið – Hnébuxur Gallabuxur hné, m/teygju í mitti. Litir, svart, ljósblá, blá, dökkblá. St. 42 – 56, verð kr. 6.500,- Sími 588 8050. Glæsilegir dömuskór úr leðri með skinnfóðri. Margir litir. Stærðir: 37 - 41. Verð: 14.450 Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18. laugard. 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is AÐHALDSBUXUR - NÝKOMNAR AFTUR! Teg. 73390 - teygjubuxur mjúka en halda vel að í S,M,L,XL á kr. 3.375,- Teg. 74390 - teygjubuxur í S,M,L,XL á kr. 2.850,- Teg. 73394 - flottar teygjubuxur stærðum S,M,L,XL á kr. 3.990,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 1 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf www.misty.is Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Öruggur í vetraraksturinn. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Húsviðhald Eruð þið leið á baðherberginu? Breytum, bætum og flísaleggjum. Upplýsingar í síma 899 9825. Tökum að okkur að leggja PVC dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands- byggðinni einnig. Erum líka í viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598. Stigahúsateppi Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík. Sími 533-5800. Þjónustuauglýsingar 5691100 Óska eftir Skrifstofubúnaður! Óskum eftir að kaupa notaðan skrif- stofubúnað s.s. skilrúm, skrifborð, stóla, fundarborð, fundarstóla og hirslur hverskonar. Landstólpi ehf. Sími 480 5600. Félagslíf Landsst. 6009022619 IX I.O.O.F. 5  1892268  Sk. I.O.O.F. 11  1892268  Bk. Biblíufræðsla fimmtudag - kl. 20. Þema: Samfélag. Umsjón: Anne M. Reinholdtsen. Dagsetrið á Eyjarslóð 7 er opið alla daga kl. 13-18. Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7 og fatabúð í Garðastræti 6, opin alla virka daga kl. 13-18. Einnig laugardaga á Eyjarslóð! Fréttatíminn þegar þér hentar Á hlaðinu þar sem Hólar standa neðst í Fló- anum bar Helgi Ívarsson sterkt svip- mót bóndans. Þar átti hann heima og féll um flest vel að umhverfi sínu. Í ræðustól á fundum sjálfstæðismanna á Suðurlandi bar hann jafnan höfuð og herðar yfir aðra menn. Þar reis hann upp úr flatlendinu sakir djúp- færni og innsæis í lögmál stjórnmála- baráttunnar. Á þeim vettvangi mæltist engum betur. Aðrir höfðu ekki vald á ís- lenskri tungu til jafns við hann. Úr hugum annarra spruttu ekki þau holl- ráð sem Helgi Ívarsson hafði fram að færa. Engir mæltu í senn af jöfnum þunga og af sömu hógværð. Í svipti- vindum stjórnmálabaráttunnar sýndu aðrir ekki sömu staðfestu og yfirvegun. Ekki veit ég til að Helgi Ívarsson hafi nokkru sinni sýnt áhuga á þing- mennsku. En til þess stóðu þó öll efni. Hann var bóndi og bar virðingu fyrir því starfi. Flestum öðrum mönnum lengur sat hann í hreppsnefnd og naut þar trúnaðar að verðleikum. Á Helgi Ívarsson ✝ Helgi Ívarssonfæddist í Vestur- Meðalholtum í Gaul- verjabæjarhreppi 2. júní 1929. Hann lést 13. febrúar síðastliðinn og var jarðsunginn frá Gaulverjabæj- arkirkju 21. febrúar. róstusömum tíma var hann aukheldur kjör- dæmisráðsformaður. Helgi Ívarsson var gæddur góðum mann- kostum og var að sönnu maður átthaga sinna. Hugur hans og hug- myndaheimur náði þó langt út fyrir túnfótinn. Í tómstundum sínum fann hann viðnám ein- lægum og áköfum áhuga á stjórnmálum og sagnafróðleik. Vel má vera að á stundum hafi hallað á búskapinn þeg- ar áhugi andans var annars vegar. Úthafsaldan sem brotnar á strönd- inni undan byggðinni í gamla Stokks- eyrarhreppi getur verið býsna úfin. Háttur Helga Ívarssonar var ekki af því tagi. Drengskapur hans og holl- usta við þann málstað, sem hann trúði á, reis á hinn veginn jafn hátt og aldan gerir þegar best lætur. Nú getur minningin ein goldið meðhaldsmanni þakkarskuld. Þorsteinn Pálsson. Í dag verður fræðimaðurinn og bóndinn Helgi Ívarsson jarðsettur. Það var mér mikill heiður að fá að kynnast og starfa með þessum merka manni. Í tæp þrjátíu ár höfum við Helgi þekkst, aðallega í gegnum fé- lagsstörf í þágu Sjálfstæðisflokksins, en Helgi var gegnheill sjálfstæðis- maður með óbilandi trú á málstaðn- um. Hann var einstaklega minnugur og úrræðagóður á fundum enda af- burða ræðumaður. Helgi hafði þann eiginleika að geta dregið saman öll helstu atriðin er fram komu á fundum og sett saman í hnitmiðaða ræðu sem allir hlustuðu á. Ég minnist margra ferða með Helga á fundi víðsvegar um gamla Suðurlandskjördæmi. Það var aðdáunarvert að sjá hvað Helgi gaf sér tíma til að mæta á fundi þótt hann væri önnum kafinn störfum sem bóndi. Í eitt sinn vorum við að koma frá kjördæmisþingi í Vík í Mýrdal, vorum frekar seint á ferð á laugar- dagskvöldi þegar Helgi segir okkur að hann eigi eftir að mjólka. Hann vildi ekki aðstoð frá okkur, heldur kláraði málið sjálfur. Á sunnudags- morguninn kom hann svo aftur með okkur austur í Vík, en þingið stóð yfir í tvo daga. Í tæpan áratug var hann með mér í stjórn fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Árnessýslu. Það var mikil gæfa og styrkur að hafa reynslu hans og útsjónarsemi í störf- um við úrlausn mála. Ég minnist þess að stundum þegar mál voru komin í strand, biðu allir eftir því hvað Helgi segði. Það var lærdómsríkt að hlýða á hann flytja mál sitt. Ég er þess full- viss að Helgi hefur verið byrjaður að hugleiða til hvaða úrræða íslenska þjóðin ætti að grípa í erfiðleikum sín- um. En framundan er Landsfundur Sjálfstæðisflokksins og alþingiskosn- ingar, þar hefði Helgi eins og hann var vanur tekið fullan þátt og lagt mönnum lífsreglurnar. Hann lagði sig allan fram um að hafa samband við menn, ræða málin og leggja gott til málanna. Með þessum fátæklegu orð- um langar mig að þakka Helga ánægjuleg kynni og gefandi samstarf og er sannfærður um að hugur hans verður áfram á vaktinni. Ég votta aðstandendum samúð mína og veit að minningin um heið- ursmanninn Helga Ívarsson mun lifa með okkur öllum um ókomin ár. Björn Ingi Gíslason. Hugsuður og hugsjónamaður af Guðs náð, Njáll okkar tíma, ráðagóð- ur og gegnheill eins og sagan lýsir Njáli á Bergþórshvoli í þeirri frómu sögu Njálssögu, spegli Íslandssög- unnar í mannlífsstíl og skapgerð ís- lenskrar þjóðar. Helgi Ívarsson bóndi á Hólum var sterkur og staðfastur persónuleiki, bóndi fram í fingur- góma, en ekki síður fræðimaður um stjórnmál og gildi lífsins þar sem hon- um var einkar lagið að tjalda rökum í málflutningi sínum, ígrundun og yf- irvegun. Helgi var ákafur sjálfstæð- ismaður með manngildin í hávegum og það var alltaf hátíð að hlusta á hann. Þegar Helgi hávaxinn og glæsi- legur með einkar rólegt yfirbragð gekk til pontu þá var það eins konar aðfaraorð að ræðum hans sem virtust alltaf vera hugsaðar fyrirfram og hvergi veikan hlekk að finna. Þar með var fundurinn horfinn frá hversdags- leikanum og orðinn hátíðarfundur. Það átti einhvern veginn svo auðveld- lega við Helga í Hólum ljóðlínan bóndi er bústólpi, bú er landstólpi og maður skynjaði í honum sagnahefð Íslendinga, hvernig sveitir landsins voru grunnurinn að ræktun sagnanna sem túlka hjartslátt fólksins okkar í gegnum aldirnar. Aflið í sveitamenn- ingunni, þroskinn í hugsun fólksins þar, brjóstvitið og upphafning þess til metnaðar og manngilda, árangurs sem byggist á nýtingu landsins sjálfs án þess að ganga á rétt þess, hefur í raun gefið þann púls sem hefur verið raunbestur, laus við tækifæris- mennsku og hégóma. Nú stendur Njáll upp sagði maður stundum með sjálfum sér þegar Helgi stóð upp á fundum. Það er falleg lýs- ing og það var frábært að geta upp- lifað þá stemningu sem kennd er við snjöllustu ræðumenn Íslands. Einu sinni var Helgi á fjölmennum fundi með okkur Þorsteini Pálssyni á Selfossi. Við vorum að ræða um nauð- syn þess að fjölga fólki í á Suðurlandi, en um þessar mundir hafði verið fjallað nokkuð í fréttum um innflutn- ing á dönsku sæði karlmanna til Ís- lands. Í miðju kafi spyr Helgi í Hólum hvernig við ætlum að fjölga Sunn- lendingum. „Með gömlu aðferðinni og við erum alltaf reiðubúnir,“ svaraði ég að bragði. Það fór ekkert á milli mála að Helgi hafði gaman af þessu svari og hló glatt, en það gerði hann sjald- an. Þegar Helgi hringdi þá kynnti hann sig með fullu nafni, titli og bæj- arnafni, þótt maður þekkti hann að sjálfsögðu á fyrsta orði. Nú er þessi meistari orðsins og alúðarinnar horf- inn á braut. Hans er sárt saknað. Megi góður Guð vernda minningu hans, vini og vandamenn og vísa hon- um leiðina á engin grænu með álit- legum búsmala og ræðupúlti. Að óþörfu mun hann kynna sig með fullu nafni þegar hann gengur fyrir þann sem öllu ræður, en þá mun sá sem gaf Guðsgjafirnar hitta sinn hugsuð og hugsjónamann. Árni Johnsen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.