Morgunblaðið - 26.02.2009, Side 34
34 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Bækur til sölu
Íslensk myndlist 1-2, Íslenskir
sjávarhættir 1-5, Bergsætt 1-3,
Ormsætt 1-6, Manntal 1801 +
nafnaskrá, Manntal 1845 +
nafnaskrá, Sunnlenskar byggðir
1-6, Deildartunguætt 1-2, Dala-
menn nr. 1, Ættir Síðupresta,
Nokkrar Árnesingaættir.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Húsnæði í boði
Til leigu við Elliðavatn
76 fm stórglæsileg glæný íbúð
við Akurhvarf 1, innifalið þvottav.
/þurrkari/uppþottavél,leðursófas
ett /borð, hússjóður, frábært
útsýni, suðursvalir. Leiga pr.
mánuð 105 þús. Upplýsingar á
tölvupósti:. thorao@mbl.is og
s.896 3362.
Íbúð með öllu til leigu í 101
Björt og nýuppgerð 77 fm íbúð í 101
til leigu frá 1.3 - 31.5. Verð 120 þ. á
mán. Allt innifalið: húsgögn, internet,
þvottavél. www.apartmentinreykja-
vik.com, gsm 898-4989.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Sumarhús eða ferðaþjónustuhús
Vandað sænskt bjálkaklæðningarhús
með einangrun og panilklæðningu að
innan. Löng og góð reynsla hér á
landi. Þetta 32 fm hús er á sérlega
góðu verði. Stuttur afgreiðslufrestur.
JABO HÚS,
Ármúla 36,
sími 581 4070,
www.jabohus.is Námskeið
Frábært, rafrænt námskeið í
netviðskiptum. Notaðu áhugamál
þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að
skapa þér góðar og vaxandi tekjur á
netinu. Við kennum þér hvernig!
Skoðaðu málið á
http://www.menntun.com
Til sölu
Vilt þú frelsi eða öryggi?
Endalok Ameríku eftir Naomi Wolf.
Frá lýðræði til einræðis í tíu
einföldum skrefum. Kr. 2.354, frí
heimsending. Pantið á bendill.com
eða í síma 695-8918.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket,
útihurðir o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart,
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið – Hnébuxur
Gallabuxur hné, m/teygju í mitti.
Litir, svart, ljósblá, blá, dökkblá.
St. 42 – 56, verð kr. 6.500,-
Sími 588 8050.
Glæsilegir dömuskór úr leðri með
skinnfóðri. Margir litir.
Stærðir: 37 - 41. Verð: 14.450
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
AÐHALDSBUXUR -
NÝKOMNAR AFTUR!
Teg. 73390 - teygjubuxur mjúka
en halda vel að í S,M,L,XL á kr.
3.375,-
Teg. 74390 - teygjubuxur í
S,M,L,XL á kr. 2.850,-
Teg. 73394 - flottar teygjubuxur
stærðum S,M,L,XL á kr. 3.990,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 1
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
www.misty.is
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Eruð þið leið á baðherberginu?
Breytum, bætum og flísaleggjum.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
Stigahúsateppi
Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík. Sími 533-5800.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Óska eftir
Skrifstofubúnaður!
Óskum eftir að kaupa notaðan skrif-
stofubúnað s.s. skilrúm, skrifborð,
stóla, fundarborð, fundarstóla og
hirslur hverskonar. Landstólpi ehf.
Sími 480 5600.
Félagslíf
Landsst. 6009022619 IX
I.O.O.F. 5 1892268 Sk.
I.O.O.F. 11 1892268 Bk.
Biblíufræðsla fimmtudag -
kl. 20. Þema: Samfélag.
Umsjón: Anne M. Reinholdtsen.
Dagsetrið á Eyjarslóð 7
er opið alla daga kl. 13-18.
Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7
og fatabúð í Garðastræti 6,
opin alla virka daga kl. 13-18.
Einnig laugardaga á Eyjarslóð!
Fréttatíminn
þegar þér
hentar
Á hlaðinu þar sem
Hólar standa neðst í Fló-
anum bar Helgi Ívarsson sterkt svip-
mót bóndans. Þar átti hann heima og
féll um flest vel að umhverfi sínu. Í
ræðustól á fundum sjálfstæðismanna
á Suðurlandi bar hann jafnan höfuð
og herðar yfir aðra menn. Þar reis
hann upp úr flatlendinu sakir djúp-
færni og innsæis í lögmál stjórnmála-
baráttunnar.
Á þeim vettvangi mæltist engum
betur. Aðrir höfðu ekki vald á ís-
lenskri tungu til jafns við hann. Úr
hugum annarra spruttu ekki þau holl-
ráð sem Helgi Ívarsson hafði fram að
færa. Engir mæltu í senn af jöfnum
þunga og af sömu hógværð. Í svipti-
vindum stjórnmálabaráttunnar
sýndu aðrir ekki sömu staðfestu og
yfirvegun.
Ekki veit ég til að Helgi Ívarsson
hafi nokkru sinni sýnt áhuga á þing-
mennsku. En til þess stóðu þó öll efni.
Hann var bóndi og bar virðingu fyrir
því starfi. Flestum öðrum mönnum
lengur sat hann í hreppsnefnd og
naut þar trúnaðar að verðleikum. Á
Helgi Ívarsson
✝ Helgi Ívarssonfæddist í Vestur-
Meðalholtum í Gaul-
verjabæjarhreppi 2.
júní 1929. Hann lést 13.
febrúar síðastliðinn
og var jarðsunginn
frá Gaulverjabæj-
arkirkju 21. febrúar.
róstusömum tíma var
hann aukheldur kjör-
dæmisráðsformaður.
Helgi Ívarsson var
gæddur góðum mann-
kostum og var að sönnu
maður átthaga sinna.
Hugur hans og hug-
myndaheimur náði þó
langt út fyrir túnfótinn.
Í tómstundum sínum
fann hann viðnám ein-
lægum og áköfum
áhuga á stjórnmálum
og sagnafróðleik. Vel má vera að á
stundum hafi hallað á búskapinn þeg-
ar áhugi andans var annars vegar.
Úthafsaldan sem brotnar á strönd-
inni undan byggðinni í gamla Stokks-
eyrarhreppi getur verið býsna úfin.
Háttur Helga Ívarssonar var ekki af
því tagi. Drengskapur hans og holl-
usta við þann málstað, sem hann trúði
á, reis á hinn veginn jafn hátt og aldan
gerir þegar best lætur. Nú getur
minningin ein goldið meðhaldsmanni
þakkarskuld.
Þorsteinn Pálsson.
Í dag verður fræðimaðurinn og
bóndinn Helgi Ívarsson jarðsettur.
Það var mér mikill heiður að fá að
kynnast og starfa með þessum merka
manni. Í tæp þrjátíu ár höfum við
Helgi þekkst, aðallega í gegnum fé-
lagsstörf í þágu Sjálfstæðisflokksins,
en Helgi var gegnheill sjálfstæðis-
maður með óbilandi trú á málstaðn-
um. Hann var einstaklega minnugur
og úrræðagóður á fundum enda af-
burða ræðumaður. Helgi hafði þann
eiginleika að geta dregið saman öll
helstu atriðin er fram komu á fundum
og sett saman í hnitmiðaða ræðu sem
allir hlustuðu á. Ég minnist margra
ferða með Helga á fundi víðsvegar um
gamla Suðurlandskjördæmi. Það var
aðdáunarvert að sjá hvað Helgi gaf
sér tíma til að mæta á fundi þótt hann
væri önnum kafinn störfum sem
bóndi. Í eitt sinn vorum við að koma
frá kjördæmisþingi í Vík í Mýrdal,
vorum frekar seint á ferð á laugar-
dagskvöldi þegar Helgi segir okkur
að hann eigi eftir að mjólka. Hann
vildi ekki aðstoð frá okkur, heldur
kláraði málið sjálfur. Á sunnudags-
morguninn kom hann svo aftur með
okkur austur í Vík, en þingið stóð yfir
í tvo daga. Í tæpan áratug var hann
með mér í stjórn fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Árnessýslu. Það
var mikil gæfa og styrkur að hafa
reynslu hans og útsjónarsemi í störf-
um við úrlausn mála. Ég minnist þess
að stundum þegar mál voru komin í
strand, biðu allir eftir því hvað Helgi
segði. Það var lærdómsríkt að hlýða á
hann flytja mál sitt. Ég er þess full-
viss að Helgi hefur verið byrjaður að
hugleiða til hvaða úrræða íslenska
þjóðin ætti að grípa í erfiðleikum sín-
um. En framundan er Landsfundur
Sjálfstæðisflokksins og alþingiskosn-
ingar, þar hefði Helgi eins og hann
var vanur tekið fullan þátt og lagt
mönnum lífsreglurnar. Hann lagði sig
allan fram um að hafa samband við
menn, ræða málin og leggja gott til
málanna. Með þessum fátæklegu orð-
um langar mig að þakka Helga
ánægjuleg kynni og gefandi samstarf
og er sannfærður um að hugur hans
verður áfram á vaktinni.
Ég votta aðstandendum samúð
mína og veit að minningin um heið-
ursmanninn Helga Ívarsson mun lifa
með okkur öllum um ókomin ár.
Björn Ingi Gíslason.
Hugsuður og hugsjónamaður af
Guðs náð, Njáll okkar tíma, ráðagóð-
ur og gegnheill eins og sagan lýsir
Njáli á Bergþórshvoli í þeirri frómu
sögu Njálssögu, spegli Íslandssög-
unnar í mannlífsstíl og skapgerð ís-
lenskrar þjóðar. Helgi Ívarsson bóndi
á Hólum var sterkur og staðfastur
persónuleiki, bóndi fram í fingur-
góma, en ekki síður fræðimaður um
stjórnmál og gildi lífsins þar sem hon-
um var einkar lagið að tjalda rökum í
málflutningi sínum, ígrundun og yf-
irvegun. Helgi var ákafur sjálfstæð-
ismaður með manngildin í hávegum
og það var alltaf hátíð að hlusta á
hann. Þegar Helgi hávaxinn og glæsi-
legur með einkar rólegt yfirbragð
gekk til pontu þá var það eins konar
aðfaraorð að ræðum hans sem virtust
alltaf vera hugsaðar fyrirfram og
hvergi veikan hlekk að finna. Þar með
var fundurinn horfinn frá hversdags-
leikanum og orðinn hátíðarfundur.
Það átti einhvern veginn svo auðveld-
lega við Helga í Hólum ljóðlínan
bóndi er bústólpi, bú er landstólpi og
maður skynjaði í honum sagnahefð
Íslendinga, hvernig sveitir landsins
voru grunnurinn að ræktun sagnanna
sem túlka hjartslátt fólksins okkar í
gegnum aldirnar. Aflið í sveitamenn-
ingunni, þroskinn í hugsun fólksins
þar, brjóstvitið og upphafning þess til
metnaðar og manngilda, árangurs
sem byggist á nýtingu landsins sjálfs
án þess að ganga á rétt þess, hefur í
raun gefið þann púls sem hefur verið
raunbestur, laus við tækifæris-
mennsku og hégóma.
Nú stendur Njáll upp sagði maður
stundum með sjálfum sér þegar Helgi
stóð upp á fundum. Það er falleg lýs-
ing og það var frábært að geta upp-
lifað þá stemningu sem kennd er við
snjöllustu ræðumenn Íslands.
Einu sinni var Helgi á fjölmennum
fundi með okkur Þorsteini Pálssyni á
Selfossi. Við vorum að ræða um nauð-
syn þess að fjölga fólki í á Suðurlandi,
en um þessar mundir hafði verið
fjallað nokkuð í fréttum um innflutn-
ing á dönsku sæði karlmanna til Ís-
lands. Í miðju kafi spyr Helgi í Hólum
hvernig við ætlum að fjölga Sunn-
lendingum. „Með gömlu aðferðinni og
við erum alltaf reiðubúnir,“ svaraði ég
að bragði. Það fór ekkert á milli mála
að Helgi hafði gaman af þessu svari
og hló glatt, en það gerði hann sjald-
an.
Þegar Helgi hringdi þá kynnti
hann sig með fullu nafni, titli og bæj-
arnafni, þótt maður þekkti hann að
sjálfsögðu á fyrsta orði. Nú er þessi
meistari orðsins og alúðarinnar horf-
inn á braut. Hans er sárt saknað.
Megi góður Guð vernda minningu
hans, vini og vandamenn og vísa hon-
um leiðina á engin grænu með álit-
legum búsmala og ræðupúlti. Að
óþörfu mun hann kynna sig með fullu
nafni þegar hann gengur fyrir þann
sem öllu ræður, en þá mun sá sem gaf
Guðsgjafirnar hitta sinn hugsuð og
hugsjónamann.
Árni Johnsen.