Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009 biðja guð um styrk til fjölskyldna ykkar í mínum bænum. Þín vinkona, Hafdís. Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár, hún brýtur þá viðkvæmu strengi, er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns. Nú birtir, og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör sem gist hefur þjáning og pínu. Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl sem eygir í hugskoti sínu, að sorgina við getum virkjað til góðs, í vanmætti sem er oss yfir, ef ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga.) Elsku Ottó, Valdís, Ingvar og fjöl- skyldur, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðj- um góðan guð að gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Sigurborg og Jón Ólafsson. Góða nótt elsku Anna mín! Augun þreyttu þurftu að hvíla sig. Það er stundum gott að fá að sofa. Armar drottins umlykja nú þig, okkar er að tilbiðja og lofa. Við þér tekur annað æðra stig, aftur birtir milli skýjarofa. Enginn nær flúið örlögin sín aldrei ég þér gleymi. Hlátra og hlýju brosin þín í hjarta mínu geymi. (Haraldur Haraldsson.) Það er svo skrýtið, ótrúlegt og hræðilega sorglegt að þú skulir vera farin úr þessum heimi, elsku Anna mín, og við sem áttum eftir að bralla svo margt saman, en það verður víst að vera á öðrum stað í annan tíma. Ég kveð þig nú, mín kæra vin- kona. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Þín vinkona Sigurborg (Bogga). Kær vinkona mín, Anna Fríða, er látin. Ég hef engin orð til að lýsa söknuði mínum. Enginn átti von á þessu er þú greindist með illskeytt- an sjúkdóm fyrir tæpu ári síðan. Þú barst veikindi þín með æruleysi og stillingu og aldrei var kvartað. Við kynntumst fyrir um 35 árum því eiginmenn okkar,Gísli og Vil- hjálmur, voru vinir. Við áttum margar ánægjustundir saman en þú misstir Villa þinn aðeins 42 ára gömul. Það var mikill missir fyrir þig og börnin. Saman höfum við far- ið til útlanda og átt margar sam- verustundir saman í sumarhúsum okkar og í veiðiferðum. Anna hafði mjög gaman af laxveiði og var ég með henni er hún fékk sinn fyrsta lax og var það ógleymanlegt. Anna var fyrirmyndar húsmóðir og alltaf voru börnin í fyrirrúmi. Til að sýna kímnigáfu hennar og styrk vil ég segja frá síðustu veiðiferð okkar saman í júní á síðasta ári. Þegar við vorum að bíða eftir kvöld- matnum þá kemur Anna fram í stofu til okkar, full af lífi og fjöri og segir „Það er aldeilis munur að vera hárlaus, maður þarf þá ekki að eyða tíma í að blása á sér hárið“. Þessu mun ég aldrei gleyma, svona var hún vinkona mín, ég dáist að henni. Nú kveð ég vinkonu mína og geymi í huga og hjarta mínu allar okkar ánægjustundir saman. Ég sendi Ottó, Valdísi, Ingvari og fjölskyldum þeirra mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Ingveldur. Það var alltaf eitthvað svo sér- stakt að koma við á Sæbrautinni hjá Önnu Fríðu. Hún var alltaf til stað- ar fyrir mig og hún bar alltaf góðan hug til strákanna minna. Ég þakka Önnu Fríðu fyrir að hafa verið vin- kona mín og ég á eftir að sakna þess að koma við á Sæbrautinni. Ég votta fjölskyldu Önnu Fríðu minnar dýpstu samúð. Margt ég vildi þakka þér og þess er gott að minnast að þú ert ein af þeim sem mér þótti gott að kynnast. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Ragna. Stórt skarð hefur verið höggvið í saumaklúbbinn okkar. Við vinkon- urnar frá Seyðisfirði stofnuðum klúbbinn eftir að við vorum fluttar suður og höfum haldið hópinn síðan. Anna Fríða var sérstök kona, al- veg ótrúleg kona. Hún var falleg og góð. Hún var með glæsilegri stúlk- um á Seyðisfirði. Hún vakti eftirtekt hvar sem hún kom. Hún skipti aldr- ei skapi og allir voru jafnir í hennar augum, hún hafði þetta jafnaðargeð. Þegar hún var 17 ára gaf pabbi hennar henni bíl enda var hún auga- steinninn hans. Það þekktist nú ekki á þessum árum að ungar stúlkur ættu sinn eigin bíl. Þetta var S-600. Margar ferðirnar voru farnar um bæinn, eftir Austurvegi og Hafn- argötu, og oft var farið yfir heiðina. Í bílnum var forláta plötuspilari þar sem plötunum var bara stungið inn og svo var spilað, Cliff Richard, Fats Domino, Paul og Paula. Anna Fríða var mjög ung þegar hún missti mömmu sína og Ottó hélt heimilið í Brekkugötunni fyrir dótt- ur sína og það var ávallt opið fyrir okkur vinkonunum. Á Seyðisfirði kynntist Anna Fríða eiginmanni sínum, Vilhjálmi Ingv- arssyni, sem nú er látinn. Þau eign- uðust tvö börn, Valdísi og Ingvar, en fyrir átti hún Ottó Val sem Vil- hjálmur gekk í föður stað. Margs er að minnast. Ógleyman- legar eru ferðirnar í sumarbústað- inn hennar á Þingvöllum og utan- landsferðir saumaklúbbsins. Í mörg ár fórum við í bústaðinn í kringum afmælisdaginn hennar. Þar var margt gert til skemmtunar, farið í gönguferðir, farið í heita pottinn, mikið spjallað og hlegið, borðaður góður matur. Anna Fríða háði harða baráttu við þennan illvíga sjúkdóm af hetju- skap og æðruleysi. Við þökkum Önnu Fríðu fyrir samfylgdina. Vottum börnunum, Ottó Val, Val- dísi og Ingvari, og fjölskyldum þeirra innilega samúð og biðjum Guð að styrkja þau í sorginni. Bára, Bjarndís, Borghildur, Elsa, Guðrún Ósk, Halldóra og Theódóra. mbl.is/minningar Samúðarkerti/hólkar með huggunarorðum fást í blómabúðum. isdecor@isdecor.is Samúðarkerti                          ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR, áður til heimilis Eskihlíð 16, verður jarðsungin frá Garðakirkju, Álftanesi, föstudaginn 27. febrúar kl. 13.00. Reynir Hlíðar, Þóra Pétursdóttir, Þórður Magnússon, Ólafur Már Magnússon, Erna Ágústsdóttir, Gunnar Magnússon, Eygló Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TORFI KRISTINN JÓNSSON, Mosabarði 6, Hafnarfirði, lést á Vífilsstöðum fimmtudaginn 19. febrúar. Útför hans verður gerð frá Jósefskirkju í Hafnarfirði föstudaginn 27. febrúar kl. 13.00. Þórdís Hansen, Ólafur Árni Torfason, Helena Högnadóttir, Jón Marías Torfason, Viktoría Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINBJÖRN GUÐBJARNASON fyrrv. útibússtjóri, Vesturvangi 22, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 27. febrúar kl. 15.00. Sigríður Magnúsdóttir, Magnús Sveinbjörnsson, Ingibjörg Steina Eggertsdóttir, Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, Dagbjört Lára Helgadóttir, Vilhjálmur Davíð Sveinbjörnsson,Elísa Kristinsdóttir, Viðar Freyr Sveinbjörnsson, Eva Hauksdóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Systir mín og frænka okkar, INGUNN SVEINSDÓTTIR frá Grjótá í Fljótshlíð, Sandprýði, Eyrarbakka, lést á dvalarheimilinu Kumbaravogi mánudaginn 23. febrúar. Útför hennar verður gerð frá Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð laugardaginn 28. febrúar kl. 11.00. Teitur Sveinsson og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir viljum við færa öllum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, VALS KRISTJÁNSSONAR rafvirkja, Ásvallagötu 19, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við færa dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir frábæra aðstoð og umönnun svo og Knattspyrnufélagi Reykjavíkur (KR). Guðríður Júlíusdóttir, Júlíus Valsson, Elinóra Inga Sigurðardóttir, Sigríður Valsdóttir, Guðmundur Jón Elíasson, Kristján Valsson, Ástríður Helga Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR SÆMUNDSSON frá Stóru-Mörk, Vestur-Eyjafjallahreppi, Stífluseli 16, lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 23. febrúar. Guðmunda S. Sveinsdóttir, Ólöf Ólafsdóttir, Grétar Karlsson, Guðbjörg María Ólafsdóttir, Jón Haukur Valsson, Svanhildur Ólafsdóttir, Þorleifur Kjartan Kristmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ARNÞRÚÐUR KRISTINSDÓTTIR MÖLLER, Efstaleiti 12, Reykjavík, lést á Landspítala, Landakoti þriðjudaginn 24. febrúar. Fyrir hönd dætra okkar og annarra aðstandenda, Óttarr Möller.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.