Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 36
36 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009
Sudoku
Frumstig
2 6
3 9 8 1 2
4 9 6 1
2 5 1
5 2 9 8
6 8 4
4 3 6 7
7 8 2 6 5
8 1
6 8 5
5 8 9 6 7
1 2 7 6
2 5 3
4 6
1 7 2
4 9 2 6
3 8 6 9 5
1 7 4
3 7 2 4 8
2 8 5
1 6 2
7 6 9
8 5 6 4
7 6 8
1 5 9
9 8 1
6 3 1 8 7
4 8 2 6 5 1 7 3 9
6 7 3 8 9 4 5 2 1
9 1 5 2 7 3 8 4 6
7 9 8 4 2 5 6 1 3
5 2 4 1 3 6 9 7 8
3 6 1 9 8 7 4 5 2
2 4 7 3 6 9 1 8 5
8 5 9 7 1 2 3 6 4
1 3 6 5 4 8 2 9 7
6 2 8 3 7 4 1 9 5
9 1 7 5 8 6 4 2 3
3 5 4 9 1 2 8 6 7
7 9 3 6 4 8 5 1 2
5 4 6 2 3 1 7 8 9
1 8 2 7 5 9 3 4 6
8 7 9 1 2 3 6 5 4
2 3 1 4 6 5 9 7 8
4 6 5 8 9 7 2 3 1
9 7 2 3 5 6 4 8 1
1 6 5 2 4 8 9 7 3
4 3 8 1 7 9 2 6 5
3 2 7 6 8 1 5 4 9
8 5 1 4 9 2 6 3 7
6 4 9 7 3 5 1 2 8
2 8 4 9 1 7 3 5 6
5 9 3 8 6 4 7 1 2
7 1 6 5 2 3 8 9 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að
fylla út í reitina þannig
að í hverjum 3x3-reit
birtist tölurnar 1-9. Það
verður að gerast þann-
ig að hver níu reita lína
bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9
og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 26. febrúar,
57. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Á þeim degi skulu leif-
arnar af Ísrael og þeir af Jakobs húsi,
sem af komast, eigi framar reiða sig á
þann sem sló þá, heldur munu þeir
með trúfestu reiða sig á Drottin, Hinn
heilaga í Ísrael. (Jesaja 10, 20.)
Víkverjiskrifar
Víkverji hefur alvarlega velt fyrirsér framboði til Alþingis. Vík-
verji kemur óspjallaður að pólitík-
inni og honum verður ekki kennt um
hrunið. Síðast en ekki síst telur Vík-
verji að hann hafi svo margt fram að
færa. Víkverji telur það skyldu sína
að taka þátt í uppbyggingarstarfinu
og íhugar því að bjóða fram krafta
sína. Víkverji fær ekki betur séð en
að helmingur þjóðarinnar vilji á þing
en er hugsi yfir því hvort það verður
þverskurður þjóðarinnar eða bara
þverskurður karlþjóðarinnar sem
sest á Alþingi að loknum kosningum.
Víkverji óttast að konum fækki á
þingi og væri það miður. En það
verða þó í öllu falli ekki eintómir
fræðingar á þinginu. Nú eru það
nemar, sjómenn, bændur, fjölmiðla-
fólk og kennarar sem eru áberandi í
hópi þeirra sem vilja á þing. Víkverji
kvíðir ekki lífinu þegar hann vaknar
að morgni 26. apríl. Þá verða komnir
til sögunnar 63 nýir, óspjallaðir
þingmenn sem öllu munu bjarga.
Eða hvað?
x x x
Víkverji reynir að spara eftirfremsta megni og ætlast til að
það geri hið opinbera líka. Víkverji
veltir þess vegna fyrir sér hvort hin-
ir nýju og væntanlega aðsópsmiklu
þingmenn muni láta það verða eitt af
sínum fyrstu verkum, að afnema lög
um aðstoðarmenn þingmanna. Vík-
verji hefur aldrei skilið hvers vegna
menn og konur sækja um vinnu,
leggja hart að sér og stundum
ómælda fjármuni í umsóknarferlið
eða prófkjörin, en sjá sér svo ekki
fært að sinna vinnunni hjálparlaust.
x x x
Víkverji hefur undrast margt semfrá Framsóknarflokknum kem-
ur en ekkert jafnmikið og tillögur
um flata 20% niðurfellingu allra
íbúðalána. Sá sem skuldar 35 millj-
ónir fengi 7 milljóna niðurfellingu, 4
milljónir yrðu felldar niður af 20
milljóna íbúðalánum og heil milljón
af 5 milljóna króna láni. Víkverji
veltir í þessu sambandi fyrir sér orð-
inu jafnræði. víkverji@mbl.is
Krossgáta
Lárétt | 1 leynd, 4 hefja,
7 málmpinninn, 8 kann-
að, 9 væn, 11 lund, 13
nokkur, 14 gróði, 15
hrumur maður, 17 radd-
ar, 20 óhreinka, 22 skófl-
ur, 23 ganga, 24 drita, 25
afkomandi.
Lóðrétt | 1 skinnpoka, 2
fang, 3 skökk, 4 hús-
gagn, 5 ull, 6 að baki, 10
óglatt, 12 krot, 13 málm-
ur, 15 hákarlshúð, 16
bætt við, 18 döpur, 19
meiði, 20 öskra, 21 fædd.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 guðdómleg, 8 úrgur, 9 lemur, 10 ill, 11 afmáð,
13 akrar, 15 stóll,
18 stelk, 21 elt, 22 sting, 23 öngul, 24 gallagrip.
Lóðrétt: 2 ungum, 3 dýrið, 4 mylla, 5 eimur, 6 púma, 7
frár, 12 áll, 14 kát, 15 sósa, 16 ólina, 17 legil, 18 stöng,
19 engli, 20 kúla.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Staðan kom upp á ofurmótinu í Linares
á Spáni sem stendur yfir þessa dagana.
Heimsmeistarinn í skák, Viswanathan
Anand (2791) frá Indlandi, hafði hvítt
gegn hinum azerska Teimour Radja-
bov (2761). 55. g5+! Kxg5 56. Re7 hvít-
ur spinnur nú mátnet og varð framhald
skákarinnar eftirfarandi: 56…Kf6 57.
Rd5+ Kg7 58. De5+ Kh6 59. Df6+
Kh7 60. Df7+ Kh6 61. Re7 og svartur
gafst upp enda óverjandi mát. Mótinu í
Linares lýkur 7. mars næstkomandi og
meðan á því stendur er hægt að fylgj-
ast með skákunum í beinni útsendingu
á heimasíðu mótshaldaranna, http://
www.ajedrez.ciudaddelinares.es/
index.htm. Áskorendaeinvígi Veselins
Topalovs og Gata Kamskys stendur
einnig yfir þessa dagana í Búlgaríu og
hægt er að fylgjast með því á vefslóð-
inni http://www.wccc2009.com/.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarsonfff | ritstjorn@mbl.is
Trompslag fórnað.
Norður
♠6
♥Á43
♦ÁKDG108
♣1063
Vestur Austur
♠K10852 ♠94
♥1072 ♥KDG95
♦73 ♦9542
♣K97 ♣85
Suður
♠ÁDG73
♥86
♦6
♣ÁDG42
Suður spilar 6♣.
Írska konan Rebecca O’Keeffe sat í
sæti vesturs, í vörn gegn hálfslemmu í
laufi. Austur hafði doblað fyrirstöðu-
sögn norðurs í hjarta og O’Keeffe kom
þar út. Suður var Skotinn Victor Sil-
verstone. Hann tók á ♥Á, spilaði tígli
tvisvar og henti hjarta. Spilaði síðan
laufi á drottninguna.
Sagnhafi hefði helst viljað að svín-
ingin misheppnaðist, því þá mætti síð-
ar komast inn á ♣10 til að gæða sér á
tíglunum. En nei, svíningin heppnaðist
– eða það hélt Silverstone. O’Keeffe
dúkkaði nefnilega án minnsta hiks. Sil-
verstone spilaði næst ♣G að heiman og
aftur gaf O’Keeffe slaginn! Hún fórn-
aði trompslagnum fyrir tvo á spaða síð-
ar. Es. Það er nauðsynlegt að dúkka
fyrsta trompið fumlaust, því ef sagn-
hafi hefur grun um kónginn í vestur
spilar hann næst smáu laufi að tíunni.
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Bara það að sækjast eftir stöðu
gerir hana raunverulega í þínum augum.
Láttu þínar þarfir ganga fyrir núna til til-
breytingar.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú gerir þig ómissandi fyrir aðra, en
ætlast ekki til að fá þakkir. Með rétta við-
horfinu getur þú breytt skrýtinni uppá-
komu í eitthvað sem dýpkar vináttuna.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er eitt og annað sem þú hef-
ur látið sitja á hakanum að undanförnu.
Forðastu fólk sem finnst gaman að rífast,
þótt það sé skemmtilegt.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Gætið þess að ganga ekki svo upp í
hlutum að þið sjáið ekkert annað og miss-
ið um leið alla dómgreind til að vega og
meta.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Loforð sem gefin eru smáfólkinu
þarf að efna. Reyndu að leysa þau án þess
að annað sé tekið fram yfir hitt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú færð óvenju róttækar hug-
myndir. Vertu viss um að þú getir staðið
við þau fyrirheit sem þú gefur öðrum og
undirritaðu ekki samninga nema vera al-
veg viss um hvað í þeim felst.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Á næstu vikum verður þú sífellt at-
kvæðameiri í félagsstarfi, ekki síst í hóp-
um sem tengjast íþróttum. Afstaða þín
mun koma fjölskyldu og vinum á óvart.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ekki gefast upp þótt þig reki í
strand. Eitthvað sem einhver segir mun
hugsanlega minna þig á mikilvægi lífsins.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú þarft að fá útrás fyrir sköp-
unarhæfileika þína og þarft að finna þeim
útrás. En það gæti verið rétt í stöðunni að
leyfa hlutunum að þróast af sjálfu sér.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Gerðu það upp við þig hvað það
er sem þú raunverulega vilt en hlustaðu
ekki bara á skoðanir annarra. Leiddu
þetta ekki hjá þér heldur líttu í eigin
barm og skoðaðu málin.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Hver einasta breyting í lífinu
þarf ekki að gerast af djúpum og þýðing-
armiklum ástæðum. Þú vilt hafa eitthvað
spennandi og nýstárlegt fyrir stafni og
helst vera á ferðalagi á ókunnum slóðum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Spurningar sem ekki hefur verið
svarað liggja í loftinu. Taktu þér tíma fyr-
ir sjálfan þig og sinntu þeim, sem þér
standa næst.
Þetta gerðist…
26. febrúar 1930
Stóra bomban, grein eftir Jón-
as Jónsson dómsmálaráð-
herra, birtist í Tímanum. Þar
var greint frá ásökunum yf-
irlæknisins á Kleppi um slæma
geðheilsu ráðherrans. Miklar
deilur fylgdu í kjölfarið.
26. febrúar 1975
Tilkynnt var að Kristján
Sveinsson augnlæknir hefði
verið kjörinn heiðursborgari
Reykjavíkur. Hann var þá 75
ára, hafði verið starfandi
læknir í 43 ár og tók enn á
móti sjúklingum á lækn-
ingastofu sinni við Skólabrú.
26. febrúar 1989
Landsliðið í handknattleik
sigraði í B-heimsmeist-
arakeppninni í París. Á
mótinu skoraði Kristján Ara-
son sitt þúsundasta mark í
landsleik.
26. febrúar 1994
Magnús Scheving sigraði með
yfirburðum á Evrópumeist-
aramóti í þolfimi.
26. febrúar 2000
Átjánda Heklugosið á sögu-
legum tíma hófst kl. 18.18. Því
hafði verið spáð með hálftíma
fyrirvara. Það stóð til 8. mars.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
„ÉG er alæta á bækur og les hvað sem er, hef allt-
af verið hrifin af bókum. Guð er svo góður að ég
les gleraugnalaust og hef góða heyrn þótt ég sé
orðin svona gömul. Ég lít líka bara vel út, en það
eru náttúrlega komnar hrukkur í andlitið. Ég hef
alltaf verið reglumanneskja og aldrei bragðað á
víni eða tóbaki.“
Stofnandi kærleikssjóðs Sogns, réttargeðdeild-
ar í Ölfusi, frú Rósa Aðalheiður Georgsdóttir, er
níræð í dag, 26. febrúar. Hún er ekki vön að halda
upp á afmælið sitt en í þetta skiptið hefur hún látið
undan þrýstingi frá krökkunum sínum. Hún verð-
ur í rólegheitum heima hjá sér í dag, en á alveg eins von á að ein-
hverjir af krökkunum hennar líti inn, svona þeim sem dettur það í
hug. Aðspurð hvað hún eigi marga afkomendur segir hún það vera
heilan helling, líklegast um 40 stykki.
Í tilefni afmælisins verður hún með opið hús laugardaginn 28. febr-
úar á Sautjándajúnítorgi númer 7, 4. hæð, íbúð 414 í Garðabæ frá kl.
15-19 og eru allir velkomnir. Rósa afþakkar allar gjafir en þeim sem
vilja gleðja hana er bent á kærleikssjóð Sogns, reikning nr: 0101-26-
000645.
Rósa Aðalheiður Georgsdóttir 90 ára í dag
Les gleraugnalaust
Nýirborgarar
Reykjavík Sindri Lúðvík
fæddist 28. nóvember kl.
18.31. Hann vó 4.190 g og
var 53,5 cm langur. For-
eldrar hans eru Sigrún
Bergsdóttir Sandholt og
Sigurður Sigurðarson.
Reykjavík Heiðar Ingi
fæddist 17. nóvember kl.
9.04. Hann vó 4.125 g og
var 52 cm langur. For-
eldrar hans eru Fe Galicia
Isorena og Þórður Ingi
Guðjónsson.
Guðrún Jónína
Sigurpálsdóttir
er níræð á morg-
un, föstudaginn
27. febrúar. Í til-
efni afmælisins
er vinum og ætt-
ingjum boðið í
kaffi í Hæða-
garði 31, laug-
ardaginn 28.
febrúar kl 15.
90 ára
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum
á barn@mbl.is