Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 11
Fréttir 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009 ÁRNI Haraldsson gefur kost á sér í 2.-4. sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík sem fram fer 7. mars nk. Árni er 38 ára gamall og raf- magnsiðnfræð- ingur að mennt. Hann skráði sig í VG þann 1. febr- úar sl. en hafði þar áður ekki verið flokksbundinn. Árni vill að opnað verði á umræður um Evrópumál og metið hvort fara skuli til viðræðna um inngöngu í ESB sem og mynt- samstarf um evru. Árni Haraldsson vill 2.-4. sæti fyrir VG Árni Haraldsson KRISTJÁN Ketill Stefánsson gefur kost á sér í 3.-5. sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík. Kristján er með meistaragráðu í kennslufræði raun- greina frá Háskól- anum í Osló. Hann er nú aðjúnkt við menntavísinda- svið HÍ og hefur tekið virkan þátt í flokksstarfi VG undanfarin ár. Kristján Ketill sæk- ist eftir 3.-5. sæti Kristján Ketill Stefánsson BRYNJA Björg Halldórsdóttir gef- ur kost á sér í 3.-4. sæti í prófkjöri VG í Reykjavík. Hún er formaður UVG á höfuðborgarsvæð- inu og leggur áherslu á kven- frelsi, umhverf- ismál og málefni ungs fólks. Brynja Björg sækist eftir 3.-4. sæti Brynja Björg Halldórsdóttir ÞÓRDÍS Kolbrún R. Gylfadóttir gef- ur kost á sér í 6.-7. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Norðvestur- kjördæmi sem fram fer þann 21. mars næstkomandi. Þórdís Kolbrún er 21 árs gömul. Hún útskrifaðist frá Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi og stundar nú háskólanám. Þórdís gefur kost á sér í 6.-7. sæti Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir INGUNN Snædal gefur kost á sér í 4.-5. sæti í forvali Vinstri grænna í NA-kjördæmi sem fram fer 28. febr- úar næstkomandi. Ingunn er grunn- skólakennari að mennt og er nú komin vel á veg með meistaranám í íslenskum fræðum við Háskóla Ís- lands. Hún hefur reynslu af ýmsum störfum, m.a. sveitastörfum, fisk- vinnslu og þýðingum. Einnig hefur hún sinnt ýmsum þjónustu- og umönnunarstörfum. Ingunn sækist eftir 4.-5. sæti fyrir VG Ingunn Snædal KOLBRÚN Hall- dórsdóttir alþing- ismaður gefur kost á sér í forvali Vinstri grænna í Reykjavík þann 7. mars nk. Í tilkynn- ingu segist Kolbrún tilbúin að vera áfram í forustu- sveit flokksins og starfa að þeim málefnum sem flokkurinn stendur fyrir, þ.e. vernd náttúru og umhverfis, kvenfrelsi, jöfnuði og samábyrgð. Kolbrún sækist eftir endurkjöri Kolbrún Hall- dórsdóttir SVEINN Halldórs- son gefur kost á sér í 2. sæti á lista Framsóknarflokks- ins í SV-kjördæmi fyrir komandi al- þingiskosningar. Sveinn er húsa- smíðameistari að mennt. Hann er formaður Fram- sóknarfélags Hafnarfjarðar og hef- ur tekið mikinn þátt í málefnavinnu flokksins, m.a. í tengslum við nýlið- ið flokksþing. Hann telur að með stefnu Fram- sóknarflokksins sé hægt að tryggja siðbót í íslensku samfélagi. Sveinn Halldórs- son vill 2. sæti Sveinn Halldórs- son Samfylking og Vinstri hreyfingin grænt framboð hafa komið sér saman um að Alþingiskosningar fari fram laugardaginn 25. apríl næstkomandi. Morgunblaðið mun daglega birta fréttir sem tengjast framboðum, prófkjörum, kosningafundum o.fl. Alþingiskosningar 2009 ÁRNI Björn Guð- jónsson býður sig fram í 3. sæti í öðru hvoru Reykjavík- urkjördæminu fyr- ir VG í forvali flokksins. Árni fæddist 6. apríl 1939. Hann mennt- aði sig í smíðaiðn og myndlist og rak trésmiðju og síðar húsgagnaversl- un í Reykjavík. Hann var í framboði fyrir Kristilega lýðræðisflokkinn í Reykjavík 1995 og 1999. Árni Björn sækist eftir 3. sæti Árni Björn Guð- jónsson STUTT FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is STARFSMENN Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins (IMF) komu hingað til lands í gær og funda með íslenskum stjórnvöldum um framgang sameig- inlegrar efnahagsáætlunar fram til 10. mars. Forsætisráðuneyti Jóhönnu Sig- urðardóttur fer með málefni Íslands er varðar samskipti við sjóðinn, þó að margar stofnanir og ráðuneyti komi einnig að vinnu við áætlunina. Öðru fremur ætla starfsmenn IMF, undir forystu hagfræðingins Mark Flanagan, að leggja mat á stöðu efnahagsmála eins og mál standa nú. Björn Rúnar Guðmundsson, deildarstjóri efnahags- og alþjóða- málaskrifstofu ráðuneytisins, hefur tekið við keflinu af Bolla Þór Bolla- syni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, sem helsti fulltrúi ráðuneytisins í samstarfinu við sjóðinn. Björn Rún- ar segir mikla áherslu verða lagða á það, í viðræðum við IMF, að kannað verði ítarlega hvort skilyrði séu fyr- ir lækkun stýrivaxta sem nú eru 18 prósent. „Heimsóknin er hluti af fyrirfram ákveðinni áætlun. Farið verður yfir stöðu mála hér á landi og hún greind eins vel og kostur er. Það verður rætt við fjölmarga, emb- ættismenn, ráðherra og greinendur hagsmunasamtaka og banka. Við vonumst auðvitað til þess að geta sannfært þá [starfsmenn IMF innsk. blm.] um að hér séu komin skilyrði fyrir lækkun vaxta,“ segir Björn Rúnar. Forgangsatriði í efnahagsáætlun stjórnvalda og IMF er að koma á meiri stöðugleika á gjaldeyrismark- aði og byggja upp bankakerfið að nýju. Engin pólitík Í viðtali við Flanagan um fyr- irhugaða Íslandsheimsókn, sem birtist á vefsíðu IMF 24. febrúar sl., kemur fram að hann hafi ekki áhyggjur af nýafstöðun stjórn- arskiptum hér á landi. Yfirlýsing frá nýrri ríkisstjórn, um að áætlun IMF og stjórnvalda verði fylgt áfram, sé það sem öllu máli skipti. „Margar þjóðir hafa gengið í gegnum kosn- ingar, á sama tíma og unnið er eftir efnahagsáætlun IMF, án þess að nokkuð hafi gerst. Aðalatriðið er að IMF styður góðar áherslur. Svo lengi sem þær eru fyrir hendi mun- um við styðja þær,“ er haft eftir Flanagan. Hann segir að tekist hafi að ná meginmarkmiðum áætlunarinnar, litið til skamms tíma. Það hafi öðru fremur verið að koma í veg fyrir að gengi krónunnar félli of mikið, með alvarlegum afleiðingum fyrir ís- lenskan efnahag. Það hefði getað komið sér illa fyrir fyrirtæki og heimili. Þá hefði verðbólga einnig aukist mikið, jafnvel um tugi pró- senta, sem hefði hækkað hefðbundin verðtryggð lán mikið og aukið þann- ig á skuldabyrði fólks. Gripið var til þess að setja á gjaldeyrishöft til að koma í veg fyrir fjármagnsflótta úr íslensku hag- kerfi, í kjölfar bankahrunsins. Bankakerfið komist í gang Í forgangi er nú að koma banka- kerfinu í gang, og ljúka við verðmat á eignum og skuldum gömlu bank- anna. Stefnt er að því að ljúka þeim málum fyrir 15. apríl. Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir að þeirri vinnu gæti lokið um miðjan þennan mánuð, en eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu reyndist vinnan við matið umfangsmeiri en gert var ráð fyrir. Þegar verðmatinu lýkur er fyrst hægt að leggja nýju bönk- unum til eigið fé sem áætlað er að verði 385 milljarðar króna, miðað við a.m.k. 10 prósent eiginfjárhlut- fall. Þá verður einnig búið að leggja fram efnahagsreikninga bankanna. Nokkurrar óvissu gætir þó um framtíðarskipulag bankakerfisins þar sem töluverðrar hagræðingar er þörf. Gylfi Magnússon við- skiptaráðherra sagði á Alþingi fyrr í vikunni að nokkuð ljóst væri að rík- isbankarnir væru of margir og of stórir, miðað við starfsemi þeirra. Áætlað er að vextir geti lækkað hratt frá á næstu vikum eða mán- uðum, samhliða lækkandi verð- bólgu. Morgunblaðið/Kristinn Málin rædd Poul M. Thomsen, hagfræðingur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sést hér ræða við Friðrik Má Baldursson. Farið yfir stöðuna  Starfsmenn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins koma til landsins  Kannað verður ítarlega hvort lækka má stýrivexti STARFSMENN Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eiga fund með starfsmönnum í fjármálaráðuneytinu klukkan níu í dag, þar sem fundaherferð þeirra hefst. Dagskrá starfsmanna sjóðsins er þétt næstu tvær vikurnar. Eftir dvöl þeirra hér, og fundi með stjórnvöldum og hagsmunasamtökum, skrifa þeir skýrslu um horfur í íslensku efnahagslífi. Stjórn sjóðsins tekur svo afstöðu til hennar og endurskoðar efnahagsáætlun sjóðsins og íslenskra stjórn- valda ef tilefni þykir til. Haft er eftir Mark Flanagan, hagfræðingi sjóðsins, á vefsíðu sjóðsins 24. febrúar að aðstæður hér séu ekki úr takti við það sem áætlunin byggist á. Líklegt er að fundað verði um heildstæða áætlun stjórnvalda þegar kemur að ríkisfjármálum, og hvernig fjárlög næstu ára muni líta út. Byrjað í fjármálaráðuneytinu Lýsingaráðgjöf Í febrúar bjóðum við upp á lýsingaráðgjöf og hönnun ....þér að kostnaðarlausu. Sendu mail á radgjof@lumex.is og við gefum þér tíma hjá ráðgjöfum okkar. Opið virka daga frá 9 - 18 Lumex Skipholti 37 Sími 568 8388 www.lumex.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.