Morgunblaðið - 26.02.2009, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 26.02.2009, Qupperneq 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is MEGINREGLAN hjá gömlu við- skiptabönkunum var sú að samskipti starfsmanna þeirra við viðskiptavini áttu að vera hljóðrituð eða til í tölvu- póstum eða faxsendingum, þegar um verðbréfaviðskipti var að ræða. T.d. fyrirmæli um kaup eða sölu. Sú laga- skylda hvíldi á bönkunum að hafa öll slík samskipti staðfest og skjalfest með einhverjum hætti. Þessi gögn átti að geyma í fimm ár frá því við- skiptin áttu sér stað, samkvæmt lög- um um verðbréfaviðskipti. Sam- skipti við viðskiptavini voru hins vegar ekki svona formföst vegna lánafyrirgreiðslu og ekki skylda að skrásetja öll orðaskipti. Lánapapp- írar eiga þó allir að liggja fyrir. Davíð Oddsson seðlabankastjóri sagði í Kastljósi á þriðjudag að hundruð einkahlutafélaga hefðu fengið sérmeðferð í bönkunum fyrir hrun þeirra. Þessu hefði verið ýtt til hliðar og það ekkert rannsakað, sem sé fyrir neðan allar hellur. Hjá Fjár- málaeftirlitinu fengust þau svör í gær að í þessu sambandi gæti stofn- unin einungis vísað til þess sem fram hefur komið um rannsóknir hennar og óháðra sérfræðinga. Þ.e. að FME lét skilanefndir gömlu bankanna skipa endurskoðendateymi til að skoða hugsanleg lögbrot innan bank- anna, en starfsmenn FME skoðuðu sjálfir til dæmis verðbréfaviðskipti innan þeirra í aðdraganda hrunsins. Davíð sagði einnig að í ýmsum til- vikum hefðu samskipti um þessa sér- meðferð ekki verið hljóðrituð eins og skylt er. Þau hafi þess í stað átt sér stað með hjálp farsíma eða starfs- menn jafnvel gengið milli hæða á starfsstöðvum banka til að fá munn- leg fyrirmæli frá yfirmönnum um þjónustu við slík félög. Ekki verður þetta rengt hér, enda náðist í fæsta stjórnendur gömlu bankanna við vinnslu fréttarinnar. Þeir sem náðist í vildu ekkert láta hafa eftir sér undir nafni. Margt bendir hins vegar til að ekki hafi einungis hin meinta óeðli- lega sérmeðferð farið á svig við sam- skiptareglurnar. Slík tilvik voru alls ekki fáheyrð og verða líklega ekki bein ávísun á sérmeðferð við rann- sókn á lögbrotum innan bankanna. Vildu ekki láta hljóðrita sig Samkvæmt eftirgrennslan var all- ur gangur á því hvort verðbréfamiðl- arar fóru eftir reglum í samskiptum við viðskiptavini. Að sögn lögfræð- ings sem starfað hefur lengi í þessu umhverfi vildu margir viðskiptavinir eiga í persónulegum samskiptum við sína verðbréfamiðlara og hringdu oftar en ekki í farsíma þeirra með fyrirmæli. Þá hafi miðlarar reynt að hringja til baka úr hljóðrituðum síma, enda hafi FME lagt áherslu á Geymi öll samskipti í fimm ár  Ólíkar reglur gilda um samskipti við viðskiptavini banka eftir tegund viðskipta  Strangar reglur gilda í verðbréfaviðskiptum en minni kröfur eru um skráningu samskipta í öðrum viðskiptum Í HNOTSKURN »Varðveita skal í fimm árgögn um öll viðskipti með fjármálagerninga. Þau skulu m.a. innihalda upplýsingar sem skylt er að afla á grund- velli laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Viðbrögð Ummæli Davíðs hafa vakið athygli. Geir segir bankana sjálfa bera höfuðábyrgð á aðdraganda hrunsins. Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is GEIR H. Haarde, formaður Sjálf- stæðisflokksins og fyrrverandi for- sætisráðherra, segist vilja að upp- lýst verði hvaða einkahlutafélög hafi fengið sérstaka fyrirgreiðslu hjá ís- lensku bönkunum. Þetta kom fram í samtali hans við fréttamenn í gær vegna viðtals Kastljóss við Davíð Oddsson seðlabankastjóra í fyrra- kvöld. Davíð sagði í Kastljósviðtal- inu að hundruð slíkra félaga hefðu fengið sérstaka þjónustu í banka- kerfinu. „Það sem mér þótti athyglisverð- ast í þessu viðtali, en margt sem þarna kom fram var ekki nýtt, var það sem hann sagði frá um hundrað einkahlutafélög í eigu hinna og þess- ara aðila, meðal annars í stjórnmál- um,“ sagði Geir. Sagðist hann vilja að upplýst yrði um hvaða fólk þetta væri og hvort um sérstaka og óeðli- lega fyrirgreiðslu hefði verið að ræða. Spurður um ummæli Davíðs um að hann hefði margoft varað ráð- herra við vegna stöðu bankanna sagði Geir: „Við höfum margfarið yfir þetta, m.a. hér á Alþingi. Það er fátt nýtt sem kom þarna fram. Auð- vitað höfum við margoft talað um þessi mál og gerðum það oft á síð- asta ári. Seðlabankinn hefur líka sent frá sér opinberlega ýmsar upp- lýsingar og skoðanir, sem hann gerði á síðasta ári. Svo voru aðrir aðilar, sem hafa aðrar skoðanir á þessu, m.a. komu álit frá fræði- mönnum sem gengu í báðar áttir. En auðvitað hlutum við líka að þurfa að taka tillit til þess að Fjármálaeft- irlitið gerði álagspróf á bönkunum, sem þeir flugu í gegnum og bank- arnir sögðu okkur alla tíð sjálfir, að þeir væru búnir að tryggja sína fjár- mögnun út árið 2009. Í þeim fjöl- mörgu samtölum, sem við áttum við þá, m.a. í kjölfar ábendinga frá Seðlabankanum, kom ekki annað fram en að þeir myndu komast í gegnum þetta,“ sagði hann. Geir sagði að Davíð hefði komið sjónarmiðum Seðlabankans mjög skilmerkilega á framfæri í Kastljós- viðtalinu. Einnig hefði komið mjög skýrt fram, að Seðlabankafrum- varpið sem nú er til meðferðar í við- skiptanefnd, varðaði ekki stefnu eða stjórntæki bankans heldur ein- göngu yfirstjórn hans. Staðreyndir munu koma í ljós Í viðtalinu við Davíð sagðist hann hafa komið á ríkisstjórnarfund 30. september í aðdraganda falls bank- anna og sagt þar, að hann teldi að allt íslenska bankakerfið yrði komið á höfuðið innan 2-3 vikna. Um þetta sagði Geir, að Davíð hefði komið á ríkisstjórnarfund þótt ekki hefðu allir ráðherrar verið jafnánægðir með það. „Hann sagði frá því sem gerst hefði í kjölfar Glitnismálsins og þá var mjög hart sótt að hinum bönkunum. Það voru veðköll og ann- að þess háttar, kröfur um upp- greiðslu á lánum og staðan leit illa út. Það var það sem hann var að gera okkur grein fyrir og hann reyndist sannspár með það, en það tók reyndar ekki 2-3 vikur heldur eina viku.“ „Ég býst við að þegar ábyrgðinni á þessu öllu verður deilt út, og farið nokkur ár aftur í tímann og atburða- rásin skoðuð, þá muni koma fram hvað gerðist og hverjar voru ástæð- ur þessa,“ sagði Geir ennfremur. Upplýsa á fyrirgreiðsluna  Geir H. Haarde segir oft hafa verið rætt um stöðu bankanna í fyrra og ólíkar skoðanir komið fram  Hann segir Davíð hafa komið sjónarmiðum skilmerkilega á framfæri og reynst sannspár um hrunið Í HNOTSKURN »Geir H. Haarde vísar því ábug að ráðamenn hafi skellt skollaeyrum við viðvör- unum seðlabankastjóra um yf- irvofandi hrun bankanna. »Geir segir bankana sjálfabera höfuðábyrgðina á því sem gerðist. »Rannsóknarnefnd Alþingismuni leiða sannleikann í ljós. »Davíð Oddsson sagði íKastljósviðtalinu að Seðla- bankinn hefði lengi varað við útþenslu íslenska bankakerf- isins. Í febrúar hefði hann var- að við að íslenska bankakerfið „færi á hausinn“ í október. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, kann- ast ekki við að endurteknar við- varanir seðlabankastjóra hafi ratað til sín. Hún viti til að mynda ekki hvað varð um skýrslu „eins færasta fjármálastöðugleika- sérfræðings Evrópu“ sem Davíð Oddsson nefndi svo í Kastljós- viðtalinu og sagðist hafa afhent ríkisstjórninni. Hann sagðist hafa látið forsætisráðherra hafa skýrsluna. „Ef það er rétt, þá barst hún ekki til mín.“ Ingibjörg sat fundi með Davíð í aðdraganda bankahrunsins. „Það voru mest fundir um gjaldeyr- isvarasjóðinn.“ Ingibjörg kannast heldur ekki við að hafa heyrt af 10-15 manna sérstakri nefnd sérfræðinga sem Davíð kynnti á ríkisstjórnarfundi 30. september, en hún var þá undir læknishendi í New York. „Ég veit hins vegar að starfandi var sérstök viðbragðsnefnd á ár- unum 2007 og 2008. Í henni voru fulltrúar frá forsætisráðuneytinu, fjármála- og viðskiptaráðuneyt- inu, ásamt FME og Seðlabanka en ég hef aldrei heyrt um þessa nefnd sem hann minnist nú á.“ Ingibjörg Sólrún fékk ekki upplýsingarnar MEIRA FYRIR NÁMSMENN! Landsbankinn veitir Námufélögum námsstyrki í tuttugasta sinn. Nánari upplýsingar og

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.