Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009 ✝ Garðar HlíðarGuðmundsson blikksmiður fæddist í Túngarði á Fells- strönd í Dalasýslu 16. maí 1962. Hann varð bráðkvaddur 13. febr- úar síðastliðinn. For- eldrar hans eru Est- her Kristjánsdóttir, f. 11. júní 1938 og Guð- mundur Jónsson, f. 9. maí 1932. Systkini Garðars Hlíðars eru: 1) Jón, f. 28. júní 1956, maki Ragnheið- ur Þórarinsdóttir, 2) Valgeir Krist- ján, f. 7. apríl 1958, maki Elísabet Guðrún Birgisdóttir, 3) Friðjón, f. 25. mars 1959, maki Kristín Heiðbrá Sveinbjörnsdóttir, 4) María Kristín, Sylvía Magiera, og 2) Rósa Kristín, f. 24. október 1985, sambýlismaður Pétur Rúnar Guðmundsson, sonur þeirra Guðmundur Hlíðar, f. 18. apríl 2007. Seinni kona Garðars Hlíðars er Kristín Alfhild Ákadóttir, f. 21. janúar 1964. Foreldrar Kristínar eru Sigurlín Ellý V. Thacker og Åke Långermyr, þau skildu. Börn Garðars og Kristínar eru Hilmir Örn, f. 19. júní 2003, og Sylvía Tara, f. 21. september 2004. Dóttir Kristínar og stjúpdóttir Garðars Hlíðars er Sigurlín Ellý Sigvalda- dóttir, maki Björgvin Þor- steinsson. Garðar Hlíðar fluttist til Reykja- víkur 1980 og fór að vinna í Blikk- smiðjunni Vogi. Færði sig síðan til Blikksmiðjunar Funa og vann hann þar lengst af og lauk námi í blikk- smíði. Garðar Hlíðar var nýfarinn að vinna hjá blikksmiðjunni Vík þegar hann lést. Útför Garðars Hlíðars fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi kl. 13. f. 9. apríl 1965, maki Jón Helgi Eiðsson, 5) Guðni Hannes, f. 20. október 1972, maki Inda Björk Gunn- arsdóttir, og 6) hálf- bróðir Garðars Hlíð- ars, samfeðra, Kristinn Helgi, f. 5. nóvember 1962, maki Hafdís Bjarnadóttir. Fyrri kona Garðars Hlíðars var Máney Kristjánsdóttir, f. 16. maí 1962, d. 29. júní 1996. Foreldrar henn- ar voru Rósa Kristín Stefánsdóttir og Kristján Röðull. Þau eru bæði látin. Börn Garðars og Máneyjar eru: 1) Sigmundur Bjarki, f. 9. mars 1981, sambýliskona Magdalena Elsku Garðar. Nú ertu horfinn frá okkur langt fyrir aldur fram og mað- ur er varla farinn að trúa því ennþá, enda er maður allur svo dofinn. Við söknum þín sárt, öll sem eitt, úr fjöl- skyldunum, við höfum verið að rifja upp minningar frá liðnum tímum með þér, þú varst alltaf svo hjálpleg- ur, komst alltaf í sveitina og hjálp- aðir okkur í heyskapnum á sumrin þótt svo að þú værir að sálast í bak- inu þínu, stundum varstu svo kvalinn en samt reyndirðu að hjálpa okkur og eins komstu í smalamennsku á haustin, og gerðir reyndar síðast í haust, til bróður þíns. Ég saknaði þín þegar þú fluttir 18 ára suður með Máneyju, kærustunni þinni í Kópavoginn, en þar hefur þú búið síðan. Þú áttir tvö yndisleg börn með henni, svo þegar hún dó þá tókst þú við börnunum og ólst þau upp, Sigmundur þá 14 ára og Rósa 11 ára, og þetta gekk vel hjá ykkur. Ég var hjá þér þegar þú fórst í bakað- gerðina þína og reyndi að hjálpa þér eins og ég gat. Svo kynntist þú elsku- legri konu, Kristínu Ákadóttur, og áttir Hilmi og Sylvíu með henni, þau eru bara 4 og 5 ára og hafa nú misst mikið og svo áttu eitt barnabarn, Guðmund Hlíðar, og hann er barn á öðru ári. Kristín átti eina uppkomna dóttur, Ellý. Já, þau hafa öll misst mikið og sakna þín mikið, svo er lítið afabarn á leiðinni og þú fékkst ekki að lifa til að sjá það. Elsku Stína mín, Rósa, Sigmundur, Hilmir, Sylvía, Ellý, Guðmundur Hlíðar, Pétur, Magdalena og Björgvin, megi Guð blessa ykkur og styðja á erfiðri stundu. Garðar, nú vona ég að þér líði vel, sért laus við alla verki úr þínum skrokk. Kveðja Mamma og pabbi. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér. Því veit mér feta veginn þinn og verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson.) Þinn sonur, Sigmundur Bjarki Garðarsson. Elsku pabbi, ég veit ekki hvar ég á að byrja. Það er svo margt sem mig langar að segja. Ég er svo reið yfir því að þú varst tekinn svona fljótt af okkur, þú áttir svo mikið eftir af líf- inu, skildir svo mikið eftir hérna. En lífið er víst ekki sanngjarnt og ekki alltaf eins og maður vill hafa það. Mig langar að þakka þér fyrir þennan tíma sem þú varst hjá mér. Þú skilur eftir svo margar góðar minningar í huga mér sem munu ávallt fylgja mér í gegnum lífið. Svo margt sem þú kenndir mér sem mun nýtast mér í lífinu. Þú varst svo ynd- islegur faðir, vildir öllum vel og varst ávallt reiðubúinn til að hjálpa ef þess þurfti. Þegar mamma lést 1996 og við Simmi fluttumst til þín tók við stórt og mikið verkefni fyrir þig, að ganga bæði í móður- og föðurhlutverk. En aldrei brástu okkur, þú stóðst þig eins og hetja, pabbi. Án þín væri ég ekki þessi góða og sterka manneskja sem ég er í dag. Þú kenndir mér margt á æskuárum mínum sem mun nýtast mér í lífinu. Ég man allar ferðirnar vestur í sveitina. Alltaf með kassettu í tæk- inu, okkar uppáhaldslög og auðvitað öll íslensk. Oft sungum við með, enda alveg ágætis söngvarar þar á ferð þó ég segi sjálf frá. Ég er þér svo þakk- lát fyrir að hafa fengið að vera svona mikið í sveitasælunni. Það eru svo margar minningar, pabbi, sem ég gæti þulið upp, en margar minningar vil ég líka bara geyma í hjarta mínu og kannski mun ég deila þeim með litlu systkinum mínum þegar þau eru orðin eldri. Segja þeim hve góður maður þú varst og segja þeim frá öllum hesta- ferðunum sem við fórum í saman og hversu góður hestamaður þú varst. Ég var alltaf voða montin af þér pabbi því mér fannst þú bestur. Þú vissir svör við öllum spurningum og það var sama hvað þú tókst þér fyrir hendur, þú gerðir það svo vel. Þú varst mín fyrirmynd. Ég leit alltaf svo mikið upp til þín. Þú varst bara besti pabbi sem ég gat hugsað mér að eiga, ég var líka „stelpan hans pabba“. Það var svo gott að knúsa þig ef mér leið illa, þá bara eins og allt það slæma hyrfi bara. Ég er svo fegin að við fluttum aft- ur suður 2007, því þessi tími sem við fengum með þér er ómetanlegur. Og þú náðir að kynnast afahlutverkinu, þó svo það væri allt of stuttur tími. Guðmundur Hlíðar var svo hrifinn af þér, leit upp til afa síns. Ég mun passa vel upp á það að hann minnist þín, sýna honum myndir, tala um þig og segja honum hversu yndislegur afi þú varst honum. Guðmundur Hlíðar mun bera nafn þitt með stolti. Elsku pabbi, mér þykir svo erfitt að sitja hér og skrifa þetta í þessari merkingu. Þú áttir ekki að kveðja svona fljótt. Ég fékk ekki tíma til að segja þér hve mikið ég elskaði þig og hvað ég er stolt af að vera dóttir þín. En þú veist það og þó þú sért farinn frá okkur hér, þá ertu alltaf með okkur og við getum alltaf talað við þig. Ég mun passa vel upp á litlu systkinin mín, sem eru svo ung að þau skilja þetta ekki nógu vel. Við fjölskyldan munum standa þétt sam- an og gæta hvert annars. Ég mun sakna þín svo sárt, pabbi. Minning þín mun ávallt lifa. Þín dóttir, Rósa Kristín Garðarsdóttir. Elsku pabbi, við söknum þín svo mikið. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Þín börn, Hilmir Örn og Sylvía Tara. Elsku tengdafaðir. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Minning þín mun ávallt lifa í hjarta mér Þinn tengdasonur, Pétur Rúnar Guðmundsson. Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónss. frá Presthólum.) Elsku afi, þín verður sárt saknað. Þitt afabarn, Guðmundur Hlíðar Pétursson. Elsku Garðar. Mér líður svipað og mér leið þegar ég var átta ára og þú fluttir að heim- an, nema núna veit ég að það tóma- rúm sem hefur myndast innra með mér verður aldrei fyllt alveg aftur. Ég á bara fallegar minningar um þig, því þú varst mér alltaf svo ein- staklega góður. Þegar ég var lítill þá varstu duglegur að lesa fyrir mig á kvöldin og þá var bókin um hann Sól- faxa sérstaklega í miklu uppáhaldi. Þú gafst mér willysjeppa sem þú smíðaðir einn veturinn í skólanum og þetta var enginn venjulegur leik- fangabíll því þú hafðir tengt í hann rafhlöður og ljós. Ég get ímyndað mér að það hafi ekki alltaf verið auð- velt fyrir þig, unglinginn, að dröslast með mig, barnið, með þér í verkun- um heima í Túngarði og Skógum en ég man samt ekki til þess að þú hafir skammað mig fyrir uppátæki mín sem eflaust hafa íþyngt þér á köfl- um. Stundum gengu þau þó einum of langt og ég man að þér stóð ekki al- veg á sama þegar ég komst yfir skæri og ákvað að snyrta köttinn þinn, né heldur þegar ég uppgötvaði að eftir rigningar kemur mikil sverta af gömlum, fúnum hjólbörðum og ég litaði hundinn þinn svartan og þú skildir ekkert í því hvaða aðkomu- hundur væri kominn heim þó að þú kannaðist nú eitthvað við hann. En þú gast nú séð broslegu hliðarnar á hlutunum enda áttirðu til að vera stríðinn sjálfur. Síðasta stund okkar saman var fyrir vestan síðastliðið haust þegar við hjálpuðum Friðjóni bróður okkar að smala kindum. Það að hittast fyrir vestan á hverju hausti vóru ógleym- anlegar stundir og hafa alltaf skilið eftir stórar minningar. Að fara fram Flekkudalinn til funda við náttúruna og okkur sjálfa. Þá vórum við kóngar einn dag. Þú varst duglegur og ósérhlífinn og áttir erfitt með að segja nei. Þú varst mikill hestamaður og hver veit nema þú sért búinn að end- urnýja kynni þín við Glókollu og Kirkju sem vóru þér svo kærar og takir þær nú til kostanna um víða dali og grösug tún. Elsku Kristín, Hilmir og Sylvía. Rósa, Sigmundur og Ellý. Mamma og pabbi. Guð styrki ykkur í trúnni á þessum erfiðu tímum. Við verðum að trúa því að það sé einhver tilgangur með því að Garðar var tekinn svo snemma frá okkur. Elsku Garðar. Mér þykir svo vænt um þig og sakna þín svo sárt. Blessuð veri minning þín. Guðni litli bróðir. Garðar bróðir minn er dáinn. Ég skil ekki alveg tilganginn með því að taka ungan mann frá fjölskyldu sinni, mér er sennilega ekki heldur ætlað að skilja það. Garðar var 3 ár- um eldri en ég og vorum við góðir vinir, hann var í hestum og þegar dóttir mín fékk hest var leitað til hans. Það þurfti að járna, segja okk- ur til og fleira. Fórum við mæðgur oft í kaffi til hans í hesthúsin og í út- reiðatúra saman. Svo í vetur ákváðum við mæðgur að færa okkur um set, fara í annað hesthúsahverfi. Varð okkur oft að orði „það vantar nú hann Garðar.“ Var Garðar oft fenginn til að prófa aðra hesta og átti Sigga vinkona mín einn sem Garðar fór á. Ég man hvað Sigga var montin af honum Blossa sínum þegar hún mætti Garðari á Holtinu, „Hesturinn er svo flottur.“ En Garðar hjálpaði okkur meira en bara með hestana, hann hjálpaði okkur mikið innan- dyra, hann var mjög flinkur og vand- virkur. Leituðum við til hans með bílamálin, ég held að flest hafi leikið í höndum á honum, kannski ekki bakstur og þvottur en flest annað. Án Garðars verður lífið ekki eins, hver á að segja okkur til í hestum, eða bjarga okkur frá mörgum þum- alputtum. Elsku bróðir, ég leyfi mér að vona að þú kíkir á okkur og leiðbeinir okk- ur í gegnum ýmsa hluti. Elsku mamma, pabbi, Stína, Rósa, Simmi, Hilmir, Sylvía og aðrir í fjöl- skyldunni, megi Guð gefa ykkur styrk í sorg ykkar. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens.) Elsku bróðir, þín er sárt saknað. Þín systir, María Kristín Guðmundsdóttir. Það var mikið áfall föstudaginn 13. febrúar, þegar eiginkona mágs míns hringdi og tilkynnti mér að Garðar hefði orðið bráðkvaddur þá um kvöldið. Hann hafði verið að sinna hestunum sínum og nýbyrjaður að gefa þeim kvöldgjöfina, þegar hann fellur frá á þeim stað sem hann hefði sjálfur kosið, hjá vinum sínum hest- unum, sínum stað, sínu leiksviði. Garðar hafði mikið yndi og unað af að vera með vinum sínum hestunum, fara á hestbak á hverjum degi og strjúka þeim og klappa. Láta þá finna að þeir væru sínir hestar og ættu að fá það besta sem hann gæti gefið þeim, umhyggju og hlýju. En svo fellur hann frá, á sínu sviði, með sinni síðustu gjöf til þeirra. Garðar var einstaklega ljúfur drengur, hjálpfús við sína nánustu, og alltaf boðinn og búinn til að hjálpa öðrum. Ég mun sakna þess að hafa hann ekki nálægt mér, til að hjálpa mér að setja upp hillur og laga ljósin hjá mér, sem og annað ef á þurfti að halda. Hann var fyrir mér einstakur og hjálpfús vinur. Hann hafði gaman af að tala um pólitík og gat verið svo- lítill nöldrari á því sviði, þann skemmtilega hátt hafði hann líklega frá pabba sínum, en ég hafði gaman af því. Eitt sinn í okkar gleði tókum við það upp hjá okkur að syngja eitt lag saman, en hann bað mig fljótlega að hætta, því ég héldi ekki lagi, svo hló hann sínum einstaka hlátri. Hvað er hægt að segja um 46 ára gamlan mann, mann sem átti allt lífið framundan með börnum og eiginkonu? Jú, hann var drengur góður. Tel ég það vera bestu um- mæli sem hægt er að hafa um ann- an mann. Ég held að ég geti sagt það með fullri vissu, að hann var einstakur faðir og afi. Garðar átti eitt afabarn og annað er á leiðinni sem mun því miður ekki sjá né kynnast sínum góða afa. Sonur Garðars sem er 6 ára fór oft með pabba sínum á hestbak, hafði hann mikla ánægju af því að vera með pabba sínum. Nú er enginn pabbi til að fara með á hestbak. En hann á góða frænku sem mun taka við því hlutverki að taka hann með sér á hestbak. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Sendi Esther, Guðmundi, Krist- ínu, börnum, systkinum og öðrum ástvinum mína dýpstu samúð. Hvíl í friði, elsku mágur og vinur. Þinn mágur, Jón Helgi. Margar spurningar veltast um í kollinum á svona stundum. Hvers vegna maður á besta aldri er tekinn frá konu, börnum, fjölskyldu og vin- um. Og eina niðurstaðan sem mað- ur fær alltaf er hversu mikið órétt- læti þetta er. En svo hugsar maður út í það að maður staldrar víst aldr- ei lengur við í þessum heimi en manni er ætlað og því verðum við sem eftir sitjum að sætta okkur við það að þinn tími hafi verið kominn. Af lifandi gleði var lund þín hlaðin, svo loftið í kringum þig hló, en þegar síðast á banabeði brosið á vörum þér dó, þá sóttu skuggar að sálu minni og sviptu hana gleði og ró. En seinna skildi ég: Hér áttirðu ekki að eiga langa töf. Frá drottni allsherjar ómaði kallið yfir hin miklu höf: Hann þurfti bros þín sem birtugjafa bak við dauða og gröf. (Grétar Ó. Fells.) Það er nokkuð víst að lífið kemur manni sífellt á óvart og aldrei datt manni í hug að maður ætti ekki eftir að hitta þig aftur og sitja og spjalla eða skreppa í reiðtúr. Í froststill- unum síðustu daga hefur mér oft dottið í hug að skreppa til þín eftir vinnu og kíkja í hesthúsin til þín í reiðtúr og í kaffi á eftir. En alltaf lætur maður heimsóknir sitja á hakanum, því maður heldur að það sé nógur tími eftir til þess. En svo vaknar maður upp við vondan draum einn daginn, að tíminn sé bú- inn. Sennilega var einhver að reyna að segja mér það, þegar þessi hugs- un kom upp, að kíkja á þig marga daga í röð, en aldrei datt mér í hug að þetta væri síðasti séns. Margs er að minnast þegar hugs- að er til baka, góðar minningar um skemmtilega útreiðartúra og ljúfar samverustundir. Og getur maður alltaf brosað þegar maður hugsar um það þegar hestamaðurinn sjálf- ur datt af barnahrossinu, en þú gast svo gert mikið grín að því þegar ég sjálf datt svo af sama barnahrossi. Ég minnist síðasta útreiðartúrsins okkar saman þegar ég bjó í bænum og skellti mér í hesthúsin til þín og við ætluðum bara í stuttan reiðtúr en hann endaði víst í einum fimm klukkutímum því nóg var um að spjalla. Ég trúi því að þú verðir tilbúinn með reiðskjótana þegar við hittumst á ný á öðru tilverustigi. Ég berst á fáki fráum fram um veg. Mót fjallahlíðum háum hleypi ég. Og golan kyssir kinn. Og á harða, harða spretti hendist áfram klárinn minn. Það er sem fjöllin fljúgi móti mér, Garðar Hlíðar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.