Morgunblaðið - 26.02.2009, Síða 42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009
Í fermingarblaði Morgunblaðsins er fjallað um allt
sem tengist fermingunni og fermingarundirbún-
ingnum ásamt því hvernig þessum tímamótum í lífi
fjölskyldunnar er fagnað. Blaðið í ár verður sérlega
glæsilegt og efnismikið.
Meðal efnis:
• Veitingar í veisluna – heimatilbúnar eða keyptar
• Mismunandi fermingar
• Skreytingar í veisluna
• Veisluföng og tertur
• Fermingartíska, stelpur og strákar
• Fermingarförðun og hárgreiðsla
• Fermingarmyndatakan
• Fermingargjafir – hvað er vinsælast?
• Hvað breytist við þessi tímamót í lífi barnanna?
• Hvað merkir fermingin?
• Viðtöl við fermingarbörn
• Fermingarskeytin
• Ásamt fullt af spennandi fróðleiksmolum
Fermingarblaðið verður borið út á hvert
einasta heimili á höfuðborgarsvæðinu
ásamt nágrannabyggðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín
Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða
kata@mbl.is Tekið er við auglýsingapönt-
unum til kl. 16.00, mánudaginn 2. mars.
fermingar
kemur út föstudaginn 6. mars
Efnismikið sérblað Morgunblaðsins um
– meira fyrir auglýsendur
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
VERÐANDI, leikfélag Fjölbrauta-
skólans í Garðabæ, frumsýnir í dag
revíuleikritið Chicago í sal skólans.
„Verkið gerist á góðæristímum
þriðja áratugarins í Bandaríkj-
unum. Góðærið er alveg að springa
út, allar persónurnar eru mjög sið-
lausar, athyglissjúkar og gráðugar,
og kreppan bíður rétt við hornið,“
segir Tómas Oddur Eiríksson, for-
maður Verðanda, og bætir við að
verkið hafi óneitanlega skírskotun
til Íslands í dag á tímum kreppu og
samfélagslegrar endurskoðunar.
Söngleikurinn segir frá Roxy
Hart, ungri mey sem þráir ekkert
meira en að verða kabarettstjarna
en gengur lítið að láta draum sinn
rætast þar til hún kemst í kast við
lögin eftir að hafa myrt viðhaldið
sitt. Í steininum kynnist hún fyr-
irmynd sinni, Velmu Kelly kabar-
ettsöngkonu. Meðan á réttarhöld-
unum stendur leikur Billy Flynn,
lögmaður Roxy, sér að rétt-
arkerfinu og notfærir sér fjöl-
miðlana til þess að markaðssetja
Roxy sem saklausa unga stúlku og
fá þannig sem mestan pening út úr
henni og að sjálfsögðu auglýsa
sjálfan sig svolítið í leiðinni.
Tómas fer með eitt aðal-
hlutverkið, lögfræðinginn Billy
Flynn sem Richard Gere lék í sam-
nefndri kvikmynd sem var valin
besta myndin á Óskarsverðlaun-
unum árið 2003.
„Verkið er byggt á þýðingu Gísla
Rúnars Jónssonar sem hann gerði
fyrir Borgarleikhúsið á sínum
tíma. En við völdum að hafa kvik-
myndina sem fyrirmynd,“ segir
Tómas.
Mikill listaskóli
Leiklistarhefðin í Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ er mjög sterk
að sögn Tómasar og koma yfir
hundrað nemendur að uppsetning-
unni á Chicago. „Vinnan við verkið
fer öll fram utan skóla og fá þeir
nemendur sem taka þátt þrjár ein-
ingar fyrir þátttökuna.
FG er mikill listaskóli, með öfl-
uga myndlistar- og textílbraut og
virkt leikfélag sem verður sterkara
með hverju árinu. Þetta er áttunda
uppfærsla skólans í röð. Við erum
búin að setja upp Hárið, Rocky
Horror, Litlu hryllingsbúðina, Sis-
ter Act, Öskubusku, Moulin Rouge,
en sú uppfærsla var keypt af Loft-
kastalanum til áframhaldandi sýn-
ingar, og í fyrra settum við upp
Birdcage,“ segir Tómas. Þau höfðu
fyrst hugsað sér að að vinna spuna-
leikrit þetta árið en ákváðu að stór-
sýning eins og Chicago væri eitt-
hvað sem þau vildu frekar ráðast í.
Leikstjóri verksins er Bjarni Sæ-
björnsson, danshöfundur er Lovísa
Ósk Gunnarsdóttir og um tónlistar-
stjórn sér Hallur Ingólfsson.
Frumsýning á Chicago verður í
hádeginu í dag í Urðarbrunni, há-
tíðarsal FG. Næstu sýningar verða
svo 4. og 5. mars. Sýningum lýkur
22. mars.
Siðleysi, athyglis-
sýki og græðgi
Nemendur Fjölbrautaskólans í Garðabæ frumsýna söng-
leikinn Chicago í dag Yfir hundrað nemendur taka þátt
Þriðji áratugurinn „Góðærið er alveg að springa út, allar persónurnar eru mjög siðlausar, athyglissjúkar og gráð-
ugar, og kreppan bíður rétt við hornið,“ segir Tómas Oddur Eiríksson, formaður Verðanda, um Chicago.
Söngleikur Kvikmyndin Chicago er fyrirmyndin að uppsetningunni.