Morgunblaðið - 06.03.2009, Síða 6

Morgunblaðið - 06.03.2009, Síða 6
6 Fermingar „Mér finnst dagurinn þýða að ég sé að fermast og Guð sé að taka mig til sín og þá verð ég alltaf kristin. Á fermingar- daginn verð ég í kjól sem systir mín sem býr í Bandaríkj- unum keypti handa mér og gaf mér í jólagjöf.“ Uma Karlsdóttir Verð alltaf kristin „Mér finnst fínt í fermingarfræðslunni að maður getur spurt fáránlegra spurninga og prestarnir koma samt með svör. Í veislunni vil ég ekki hafa lítil brauð með einhverju ofan á, mér finnst það svolítið misheppnað.“ Bergur Gunnarsson Spurningar og svör „Þetta er dagur sem ég mun alltaf muna eftir en ég held ég muni ekkert mikið breytast eftir hann. Mér finnst skemmti- legast við fermingarfræðsluna að við séum öll saman. Ég ætla að vera í buxum á fermingardaginn, en annars fæ ég nú nánast ekki að ráða neinu varðandi daginn.“ Guðbjörg Fjóla Hannesdóttir Ógleymanlegur dagur Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@mbl.is K rister Blær Jónsson og fjöl- skylda hans búa í Poole í Dorset- fylki sem er í um tveggja tíma akstursfjarlægð frá London. Krister Blær sækir fermingarfræðslu í London og þangað fer öll fjölskyldan einu sinni í mánuði og gerir sér dagamun um leið. Fermist í sumar „Við höfum búið hér í tæp þrjú ár með strákana okkar þrjá, en Krister Blær verður fermdur heima seinnipart sumars, að öllum líkindum hinn 23. ágúst þar sem eldri strákarnir tveir fá ekki sumarfrí fyrr en um miðjan júlí. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur kemur til með að ferma Krister Blæ en það var einmitt hann sem skírði strákinn á sínum tíma. Við höfum verið með hugann við veisluna í dágóðan tíma og viljum helst halda notalega veislu heima í litlu íbúðinni okkar á Íslandi,“ segir Hulda Ingibjörg Skúladóttir, móðir Kristers Blæs. Þýðingarmikill dagur Ekki eru margir Íslendingar búsettir á svæðinu þar sem fjölskyldan býr og segir Krister Blær skemmtilegt að hitta aðra krakka á sínum aldri í fermingar- fræðslunni. „Mér finnst fermingar- fræðslan mjög skemmtileg og Sigurður Arnarson setur okkur fyrir heimavinnu sem er mjög fjölbreytt. Stundum eigum við að fara á netið og stundum að lesa í Biblíunni eða sálmabókum. Mér finnst dagurinn þýðingarmikill því þá sanna ég að ég trúi á guð. Ég er í sambandi við vini mína heima á spjallforritinu msn og þeir eru líka að fara að fermast og finnst dálít- ið skrýtið að ég sé ekki að fermast með þeim. Ensku krakkarnir vita lítið um ferminguna en hafa aðeins spurt mig út í ferðirnar til London. Á fermingardaginn hlakka ég til að fá alla vinina heim, vera í veislunni og fara síðan út í fótbolta og hafa það gaman,“ segir Krister Blær. Fermist heima í sumar Bræðurnir Tristan Freyr, Eron Thor og fermingarbarnið Krister Blær. Suðurgata 41 · 101 Reykjavík · sími 530 2200 · www.thjodminjasafn.is · Opið alla daga vikunnar nema mánudaga kl. 11–17 FERMING 2009

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.