Morgunblaðið - 06.03.2009, Qupperneq 8
8 Fermingar
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
M
ikilvægt er að hafa góðan
skilning á því að ungling-
urinn hefur sínar einstöku
hugmyndir og óskir um
hvernig hlutirnir eiga að
vera. Það skiptir því verulegu máli að við
getum sett okkur inn í upplifun og hugar-
heim hans fremur en að stjórnast of mikið
af okkar eigin viðhorfum sem þurfa ekki
endilega að endurspegla þann lífheim og
veruleika sem unglingurinn býr við. Hvað
það er sem hann eða hún getur hugsað
sér. Varhugavert er að gera öðrum fyrir-
fram upp afstöðu og hugmyndir og að
ganga út frá því að við hljótum að vita bet-
ur hvað sé réttara og meira viðeigandi. Til
að skilja unglinginn er því heillaríkast að
reyna sem best við getum að setja okkur
inn í hugarheim hans. Mikill ávinningur
felst í því að geta hlustað af athygli og
virðingu, án tillits til hvort við séum endi-
lega sammála og fylgja ávallt þeirri reglu
að reyna fyrst að skilja upplifun og af-
stöðu unglingsins áður en við ætlumst til
þess að hann taki tillit til þeirrar afstöðu
sem við höfum til þess sem um er að ræða
“ segir Marteinn Steinar Jónsson sálfræð-
ingur sem reglulega fær til sína foreldra
og unglinga sem eiga í erfiðleikum með
samskiptin sín á milli.
Róttæk breyting tekur á
Sú róttæka breyting sem á sér stað hjá
unglingum í kringum ferminguna þegar
barnið er að breytast yfir í ungling segir
Marteinn Steinar að sé oftar en ekki erf-
iður átakatími. Unglingurinn getur átt
erfitt með að höndla hlutina þegar hann
þarf að laga sig að nýju hlutverki. Sjálfs-
mynd unglingsins er í róttæku
umbreytingarferli, hann er að verða kyn-
þroska og er að takast á við breyttar kröf-
ur um viðbrögð og hegðun, til dæmis í fé-
lagslegum samskiptum við jafnaldra og
foreldra. „Hvernig ætti ég að líta út,
hvernig get ég aflað mér viðurkenningar
og vinsælda?“ veltir unglingurinn gjarnan
fyrir sér. Þetta umbreytingarferli getur
ýtt undir kvíða og öryggisleysi sem er trú-
lega ein af ástæðum þess að unglingar
eiga oft nokkuð erfitt með að taka ákvarð-
anir, því þeirra sýn á sjálfa sig og lífið er
einfaldlega ekki nægjanlega fullmótuð.
Fá að vera í friði
Marteinn Steinar er þó ekki á því að
ferma eigi börn fyrr eða seinna. „Einn vin-
ur minn er sóknarprestur og segir að
flestir unglingar séu heilshugar og ein-
lægir í fermingunni. Hún sé skref sem
þeir vilji taka og séu ánægðir með það. Á
árum áður komust unglingar við fermingu
í fullorðinna manna tölu en núna er öldin
önnur og við tekur unglingamenning. Það
er mín skoðun að mikilvægt sé að börn fái
að vera börn eins lengi og mögulegt er, að
ekki sé kerfisbundið verið að þröngva upp
á þau greiðslukortum, og öðrum þvílíka
varningi þannig að börn og unglingar séu
einhverskonar markhópur sem gefur fyr-
irheit um fjárhagslegan ávinning fyrir
suma. Mér finnst vanta upp á að krakkar á
þessum aldri fái að vera í friði fyrir mark-
aðsöflunum, ýtt er á þau að taka þátt í
hinu og þessu sem þau eru í raun ekki
tilbúin fyrir eða hafa þroska til,“ segir
Marteinn Steinar.
Virðing er yfirskriftin
Hann segir oft vanta upp á að fólk sýni
unglingum virðingu, en mikilvægt sé að
setja ekki alla unglinga undir einn hatt,
eftir staðlaðri ímynd, eins og stundum
gerist. Virðing sé í raun grunnforsenda
árangurs í uppeldi því ef foreldrarnir sýni
börnum og unglingnum virðingu ávinni
þeir sér virðingu, að öðrum kosti er hætta
á að þeir missi tökin og að trúnaður og
samskipti bíði skipbrot. Hvað varðar sam-
skipti foreldra og unglinga þurfi foreldar
einkum að temja sér hlýlegt viðmót og
læra að hlusta vel, að geta jafnframt hlust-
að eftir tilfinningum barnsins eða ung-
lingsins. „Foreldrar þurfa að geta hlustað
það vel að unglingurinn fái gott tækifæri
til að tjá sig í ró og næði án þess að gripið
sé fram í og flæði tjáningarinnar rofni.
Með þeim hætti gefst þeim tækifæri til að
setja sig vel inn í þann veruleikaheim sem
unglingarnar búa við. Afraksturinn kem-
ur fram í auknu innsæi og skilningi á
hvers vegna barninu eða unglingnum
finnst umræðuefnið mikilvægt. Með þess-
um hætti er traustur grunnur lagður að
gagnkvæmum skilningi, virðingu og trún-
aðartrausti. Trúnaðartraust er mikilvægt.
Við sýnum traust í garð barnsins eða ung-
lingsins í verki með því að hlusta vel frem-
ur en að mynda okkur fyrirfram skoðanir
og vera stöðugt á nálum yfir hinum og
þessum málefnum sem koma upp. En
jafnfram er brýnt að vera vel á verði.
Miklu skiptir að fylgjast vel með ung-
lingnum, sýna festu og setja sanngjarnar
og jafnframt sveigjanlegar reglur um
hegðun, til dæmis útivistartíma og annað í
þeim dúr,“ segir Marteinn Steinar.
Mynd/Photos
Sátt Það getur reynt á samskipti foreldra og barna á unglingsárunum en nauðsynlegt er að foreldrar beri virðingu fyrir barninu.
Að geta haldið í barnið í sér
Ávinningur Marteinn Steinar segir mik-
ilvægt að hlusta af athygli og virðingu.
Það hafa allir verið unglingar
og það er því vitað hve flók-
inn og erfiður heimurinn get-
ur verið á þeim árum. Virðing
og það að geta sett sig í spor
unglingins er bæði mikilvæg
og jafnframt nauðsynleg for-
senda þess að foreldrar geti
átt í góðum samskiptum við
unglinginn sinn.
FÆST Í ÖLLUM HELSTU
BÓKAVERSLUNUM LANDSINS
Gestabók • Myndir • Skeyti
VINNUSTOFA SÍBS • Hátúni 10c • SÍMI 5628500 • WWW.MULALUNDUR.IS