Morgunblaðið - 06.03.2009, Síða 14

Morgunblaðið - 06.03.2009, Síða 14
14 Fermingar MJÚKU FERMINGARGJAFIRNAR Hjá Lín Design færðu vörur sem hannaðar eru á Íslandi og framleiddar úr sérvöldu úrvals efni. Sængurfatnaðurinn frá Lín Design er ofinn úr bómullardamask og því mjúkur, vandaður og einstaklega fallegur. Yfir 30 tegundir af íslenskum rúmfatnaði til fermingargjafa. Komdu við og skoðaðu úrvalið. Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is V ið bökum kransakökur í öllum stærðum og gerðum en stærðin fer alveg eftir gestafjölda. Ég held að fólk sé almennt hógvær- ara í ár og haldi minni veislur. Í gegnum tíðina hefur súkkulaðiskrautið á kökurnar verið svo þunnt og lítið að það hefur átt það til að detta af. Þess vegna notum við nóg af súkkulaði og skreytum kökurnar með konfekti sem við fram- leiðum sjálf. Síðan er fátt betra en að hafa ávexti eins og til dæmis jarðarber með kransaköku svo við setjum það saman í skreytingar með konfektinu og festum við kökuna,“ segir Ásgeir. Ömmurnar hjálpa til Ásgeir segir mestan hluta verðsins liggja í vinnunni enda tekur sinn tíma að búa til kransaköku auk þess sem marsípan er ekki ódýrt í dag. Fyrir þá sem vilja gera kökuna sjálfir er tilbúinn massi seldur í bakaríinu og segir Ásgeir fólk oft nýta sér að eiga góðar ömmur sem hafi reynslu af slíkum bakstri. Aðal- galdurinn sé að gefa sér nógan tíma í baksturinn og ekki hafa áhyggjur af því að baka hringina nógu lítið svo og að leyfa þeim að þorna í smá tíma. Þá segir hann kransaköku sem fari í frysti jafnvel vera betri en fersklagaða þar sem í frystinum drekki kakan í sig rakann og þægilegra verði að borða hana. Kransaköku má auð- veldlega geyma í viku í frysti og er nóg að taka hana út degi áður en á að borða hana. Mót ekki nauðsynleg „Það þarf engin mót til að gera kransa- kökur heldur bara lagnar hendur og tvo þumalputta. Norðmenn baka þetta í form- um sem þeir sprauta ofan í en bæði við og Danirnir rúlla pylsurnar og festa annan endann niður og reisa síðan upp við hliðina á hringjunum þannig að þær eru ekki lagð- ar í hringina. Þeir sem eiga ekki hringina geta gert pylsur með 3 cm stærðarmun, fyrsta pylsan er þá kannski 6 cm, næsta 9 cm og þannig koll af kolli,“ segir Ásgeir. Kransakakökumassi fyrir kökur 1.000 g kransamassi 480 g sykur 20 g hunang 2-3 eggjahvítur Aðferð: Vinnið eggjahvítur saman við sykur og hunangið í hrærivél eða höndunum og bæt- ið massanum saman við í nokkrum minni bit- um. Hyljið massann með plasti og kælið hann. Notið kaldan massann til að móta hringi eða kökur. Bakið við 200-220°C þar til hringirnir/ kökurnar eru gullinbrúnir eða í um 8-15 mín- útur. Kransamassi fyrir konkekt Notið sama magn af kransamassa en bleytið með 1-2 eggjahvítum til viðbótar. Sprautið í kúlur eða rósettur með kramarhúsi og bragð- bætið með mismunandi þurrkuðum ávöxtum. Bakið við örlítið hærri hita í styttri tíma. Einn- ig er hægt að pensla ávextina með hunangi eft- ir bakstur eða dýfa þeim í súkkulaði sem gerir þá ekki verri á bragðið. maria@mbl.is Kransaköku er hefðbundið að hafa á fermingarborðinu, annaðhvort sem hluta af kaffiveislu eða eftirrétt á eftir matnum. Ásgeir Sandholt hjá Sandholt bakaríi segir afturhvarf til fortíðar hafa aukið vinsældir kransakökunnar í ár. Kransakaka með nóg af súkkulaði Aðferð: Hrærið saman smjörlíki og sykur þar til blandan er létt og ljós, blandið svo eggjunum saman við í nokkr- um hlutum. Sigtið saman þurrefnin og vigtið mjólk og vanilludropa saman. Setjið þurrefnin saman við og bland- ið rólega saman og hellið um leið mjólkurblöndunni sam- an við. Setjið í form og bakið við 180°c, tíminn fer eftir þykkt á botninum. Krem 600 g flórsykur 100 g smjör 30 g vatn 5 g vanilludropar 2 egg 50 g kakó Aðferð: Bræðið smjörið og sigtið saman flórsykur og kakó í hrærivélarskál. Hellið bræddu, heitu smjörinu út í skálina og vinnið vel saman, því næst vatninu og van- illudropunum og svo síðast eggjunum. Vinnið vel í vél- inni. Ef það á að hjúpa kökuna með súkkulaðihjúp er best að frysta hana áður, passa þarf vel að hafa kantana á kök- unni eins slétta og hægt er. Súkkulaðihjúpur 150 g rjómi 50 g hunang (agasíu) 100 g dökkt súkkulaði Aðferð: Hitið rjómann og hunangið upp að suðu og hellið yfir saxað súkkulaðið og hrærið saman með sleif þar til súkkulaðið er bráðnað. Hellið yfir kökuna. Súkkulaðitertur sé allt í lagi að frysta svo lengi sem þeim sé pakkað vel inn og þannig geymist þær í góðan tíma. „Pantanir byrjuðu að streyma inn fyrir áramót að ein- hverju leyti. Sumir dagar eru þéttar setnir og við bökum í vikutörnum og tökum ekki nema ákveðið magn svo maður geti gert þetta almennilega. Ég mæli með því að fólk panti tímanlega hjá okkur því um helgar er alltaf nóg að gera,“ segir Hafliði. Skúffukaka 250 g smjörlíki 65 g sykur 4 egg 55 g kakó 5 g salt 8 g lyftiduft 8 g natron 600 g hveiti 20 g vanilludropar 400 g mjólk S úkkulaðitertur hafa verið mikið pantaðar hjá okkur og orðið vinsælli síðastliðin ár, bæði am- eríska súkkulaðitertan og súkkulaðiterta með súkkulaðiganache. Þær eru tilvaldar fyrir þá sem ekki eru hrifnir af marsipani. Hjá okkur kaupir fólk gjarnan eina köku með því sem það gerir sjálft, sama hvort um er að ræða kaffihlaðborð eða köku eftir matinn. Við skreytum kökurnar með súkkulaði og marsipanblómum og stundum líka myndum af ferming- arbörnunum. Síðan reynum við eins og við getum að mæta óskum viðskiptavinarins og höfum til dæmis búið til takkaskó úr súkkulaði,“ segir Hafliði. Að nota frystinn rétt Fyrir þá sem ætla sjálfir að baka tertur fyrir marga og eru ekki vanir því segir Hafliði gott að hafa í huga að það er ekki nauðsynlegt að gera eina stóra tertu heldur frek- ar að gera nokkrar minni. Þá sé ekkert mál að byrja að undirbúa sig tímanlega og hann mæli helst með því að gera kökurnar inn í tertuhringi og síðan frysta þær. Súkkulaði í stað marsipans Það finnst ekki öllum marsipan gott og þeir vilja því geta haft glæsilega tertu á veisluborðinu í stað kransa- köku. Hafliði Ragnarsson hjá Mosfells- bakaríi segir súkkulaðitertur sífellt verða vinsælli í fermingarveislur. Skeyti eru góð leið fyrir þá sem ekki eiga heimangengt að koma heillaóskum til fermingarbarnsins. Fyrsta heillaskeytið var sent árið 1906 en í dag er bæði hægt að velja úr myndabanka eða setja mynd úr eigin myndasafni á skeytið. Falleg minning „Þetta er alltaf vinsæl leið til að senda ferming- arbörnum kveðju, eins við tilefni eins og brúðkaup og útskriftir. Í fyrra hófst sú nýjung hjá okkur að senda eigin mynd á skeytinu sem er skemmtileg tilbreyting. Þannig er hægt að senda gaml- ar og góðar myndir af fermingarbarninu síðan það var yngra með heillaóskunum. Skeyti er skemmtileg minning og eitthvað sem fólk hendir ekki,“ segir Ágústa Hrund Steinarsdóttir, for- stöðumaður markaðs- og kynningardeildar Íslands- pósts. Öðruvísi frímerki Skeytin er hægt að panta á vefsíðu Íslands- pósts eða með því að hringja í síma 1446. Þá er einnig hægt að panta per- sónuleg frímerki sem eru tilvalin leið til að gera boðskortið í ferm- inguna persónulegra. Frímerkin eru sjálf- límandi og koma í örk með 24 stykkjum. Sívinsæl heillaóskaskeyti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.