Morgunblaðið - 06.03.2009, Qupperneq 22
22 Fermingar
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@heimsnet.is
F
ermingarmyndir eru orðnar mun
persónulegri en þær voru áður
fyrr,“ segir Kristín Couch hjá KC
myndum í Reykjanesbæ en hún
býður fermingarbörnum upp á að
koma með eitthvað tengt áhugamálinu
sem er þá myndað líka. „Segja má að þetta
sé þrenns konar myndataka, fyrst eru
börnin mynduð í fermingarfötum, svo í
sínum hefðbundnu fötum eins og þau eru
hversdags og svo eru þau mynduð með
áhugamálið sitt, hvað svo sem það er. Með
þessari fjölbreytni næ ég börnunum líka
eðlilegum því þau eru oft svolítið stíf í
fermingarfötunum. Þau eru miklu eðli-
legri í því sem þeim líður best í sjálfum.
Myndirnar verða líka meira flæðandi þeg-
ar börnin eru eðlileg.“
Áhugamálið myndað
Kristín talar um að það sé allt mögulegt
sem börnin koma með sem áhugamál og
eftirminnilegast sé mótorhjól sem hún tók
eitt sinn mynd af. „Þá var mótorhjólið tek-
ið hingað inn og fermingarstrákurinn var
myndaður á mótorhjólinu og vitanlega í
mótorhjólagallanum. Svo hefur verið kom-
ið með páfagauk, fótbolta, fiðlu og allt þar
á milli. Þessar myndir af áhugamálinu eru
mjög eigulegar og þetta er eitthvað sem
maður man alltaf eftir,“ segir Kristín og
bætir við að með stafrænum lausnum sé
hægt að gera svo miklu meira við mynd-
irnar. „Möguleikarnir eru miklu fleiri og
það er auðveldara að gera tilraunir, til
dæmis með margmiðlun en þá setjum við
ýmislegt inn á myndirnar. Í fyrra settum
við til að mynda fugla, dúfur og fiðrildi inn
á myndirnar en stelpunum finnst mjög
gaman að hafa fullt af fiðrildum á mynd-
inni. Svo hef ég líka búið til ævintýra-
myndir en það þarf að biðja sérstaklega
um það. Þá breyti ég myndunum al- gjörlega og set ýmislegt inn á þær en það
liggur mjög mikil vinna á bak við það.“
Fleiri stelpur í myndatöku
Að sögn Kristínar virðast flestar stelpur
sem fermast koma í myndatöku en það
virðist ekki vera eins algengt að strákar
láti taka myndir af sér. Þó segir Kristín að
venjulega sé brjálað að gera fyrir ferm-
ingar. „Yfirleitt byrja ég á því að spyrja
börnin hvort þau vilji hafa foreldrana inni
á meðan myndatöku stendur eða ekki.
Stundum finnst börnunum verra að hafa
foreldrana inni og þá er best að bjóða þeim
bara upp á kaffi. En ég vil að börnin ráði
þessu sjálf, stundum eru þau öruggari og
stundum óöruggari með að hafa foreldr-
ana í myndatökunni.“
Það er ein nýjung sem hefur verið mjög
vinsæl hjá Kristínu en það er svokölluð
ljósmyndabók. „Fremst í bókinni eru
fermingarmyndirnar en aftast eru myndir
frá fæðingu barnsins og fram að fermingu.
Yfirleitt er það þannig að foreldrar koma
með disk af myndum til mín og ég set bók-
ina upp. Þetta hefur vakið mikla lukku
enda mjög eiguleg bók.“
Myndir/Kristín Couch
Áhugamálið Fermingarbörnin koma með hluti sem tengjast sínu áhugamáli.
Flæðandi myndir Margar fermingarstúlkur hafa gaman af að hafa eitthvað með sér
á myndunum, til dæmis flögrandi fiðrildi eða jafnvel fugla.
Eðlileg mynd Kristín talar um að þegar fermingarbörn eru mynduð í sínum hvers-
dagslegu fötum þá verði þau eðlilegri enda líður þeim betur.
Fermingarbarn Mörg börn fara í mynda-
töku á fermingardaginn.
Kristín Couch: „Með þessari fjölbreytni
næ ég börnunum líka eðlilegum því þau
eru oft svolítið stíf í fermingarfötunum.“
Persónulegri
myndir
Í KC myndum eru fermingarbörn mynduð í fermingarfötum,
hversdagsfötum og með einhverju sem tengist áhugamáli
þeirra. Fyrir vikið verða myndirnar mun persónulegri.
Glæsifatnaður
Endilega kíktu inn á
www.gala.is
Netverslun
7 daga skilafrestur
Suðurlandsbraut 50
(Bláu húsunum Fákafeni)
www.gala.is • S:588 9925
Opið 11-18 og 11-16 lau.
Stærðir 34-58