Morgunblaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 27
Fermingar 27
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
Þ
etta er í fyrsta skipti sem ég sé
um fermingarfræðslu unglinga,
en ég er ekki ókunnug því efni
sem hér er til umfjöllunar því ég
er doktor í heimspeki með trúar-
heimspeki sem sérgrein. Þekkingarleit
mín á sviði trúfræði leiddi til þess að ég
gerðist trúskiptingur frá lúterskri til
kaþólskrar trúar. Hvað snertir tengsl mín
við unglingana á trúargrundvelli, þá auð-
veldar það mjög að í öllum, ungum sem
öldnum, lúrir lítill forvitinn heimspekingur
sem auðvelt er að tengjast ef maður hefur
eitthvað fram að færa sem seður forvitnina
um hinstu rök tilverunnar,“ segir dr. Gígja
Gísladóttir, sem er ein þeirra sem sjá um
fermingarfræðsluna í ár.
Hinstu rök tilverunnar
„Við fermingarfræðsluna er notað lítið
kaþólskt trúfræðslurit sem ber heitið Ég
trúi en kennsla í kaþólskri fermingar-
fræðslu hefst með spurningum sem lúta að
hinstu rökum tilverunnar, til dæmis hvers
vegna við vorum sköpuð, hvers vegna við
verðum að deyja og hvort einhver grund-
vallartilgangur sé með lífi okkar sem ljær
lífinu og jafnvel þjáningunni gildi. Slíkar
spurningar leiða til íhugunar á grundvall-
aratriði trúarinnar, hinum þríeina Guði
sem fermingarbörnin eru í þann mund að
játa trú sína á. Í framhaldi af þeirri um-
fjöllun er sköpun lífs rædd og hin ódauð-
lega sál mannsins, náðin sem er forsenda
eilífs lífs, Frelsarinn Jesús Kristur og
tengsl okkar við hann í daglegu lífi svo
nokkuð sé nefnt.
Kærleiksboðorðin skilgreind
Í fermingarfræðslunni er tekin til um-
fjöllunar postulleg trúarjátning og hún
skilgreind lið fyrir lið og lærð utanbókar.
Faðirvorið er skilgreint og beðið í hverri
kennslustund og boðorðin 10 tekin til um-
fjöllunar og lærð utan að til að styrkja
meðvitund um hvað felst í syndugu líferni.
Kærleiksboðorðin tvö eru skilgreind sem
grundvöllur að daglegu lífi með hliðsjón að
eilífðinni. Hreinsunareldurinn eða víti er
skilgreint sem eldur samviskunnar og
sakramentin sjö, náðarmeðulin stofnuð af
Jesú Kristi sem hjálpartæki til dyggðugs
lífernis. María er tignuð sem móðir Guðs á
jörðu og miðlari bæna manna líkt og hún
gerðist miðlari Jesú til manna með fæð-
ingu hans. Einnig er hugtakið dýrlingar
skilgreint sem hinir sælu á himnum en
styttur og myndir hjá kaþólskum fjöl-
skyldum og kirkjum þeirra eru skil-
greindar í kaþólskri trú sem táknmyndir af
fjölskyldu okkar á himnum líkt og ljós-
myndir ættingja og vina skreyta jarðnesk
heimili. Bænir eru kenndar og sérstök
áhersla lögð á talnabandið eða rósakrans-
inn, sem er í sérstökum hávegum haft, er
hugleiðsla tengd vegferð Krists frá jötu til
krossfestingar og upprisu. Einnig er rætt
um stofnun kaþólsku kirkjunnar, hlutverk
hennar og einkenni,“ segir Gígja.
Boða fagnaðarerindið
Fermingarfræðsla kaþólskra ungmenna
hefst að hausti árið áður en ferming fer
fram að vori. Börnin eru hvött til að mæta í
messu kl. 10.30 á sunnudagsmorgni, en að
lokinni messu fer trúfræðslan fram í húsa-
kynnum Landakotsskóla. Hlutverk leið-
beinanda fermingarnema er svipað og
kennsluhlutverk lærisveinanna; að boða
fagnaðarerindið og kenna hinum trúuðu að
halda það í heiðri í orði og verki.
Hafa hlutverk lærisveinanna
Í Kristskirkju í Landakoti
fermast 40 börn í ár, en í
kringum 110 börn fermast í
kaþólskum kirkjum á öllu
landinu í ár. Kaþólski söfn-
uðurinn hefur vaxið ört á
undanförnum árum og er nú
samtals 9.351 skráður með-
limur samkvæmt þjóðskrá í
kaþólsku kirkjunni.
Morgunblaðið/Heiddi
Heilræði Þar sem kærleikurinn og elskan er þar er Guð.
Fermingakjólar 10.990 kr.
Moss ermar 3.990 kr.
Moss leggings 5.990 kr.
Made jakkaföt 19.990 kr.
Made skyrta 4.990 kr.
Made bindi 2.990 kr.
Nánari upplýsingar og fleirri
myndir má sjá á www.ntc.is
Fermingarfötin
fást hjá okkur
M
bl
-A
A-
10
93
65
8