Morgunblaðið - 06.03.2009, Side 31

Morgunblaðið - 06.03.2009, Side 31
F ermingardag- urinn er stór dagur í lífi margra barna og það eru því sífellt fleiri stúlkur sem ákveða að láta farða sig á þessum degi. Sú förð- un er jafnan mjög nátt- úruleg og falleg að sögn Þóru Ólafsdóttur, list- förðunarfræðings hjá Airbrush & Make up gallery. Þóra farðaði Miriam Eriksdóttir Giovanni fallegri og náttúrulegri förðun í líkingu við það sem margar ferming- arstúlkur kjósa á fermingardaginn. „Það er að aukast heilmikið að ferming- arstúlkur fari í förðun og kannski ekki síst vegna þess að þær ætla í myndatöku. Það er oft nauðsynlegt að hafa einhverja förðun fyrir myndatöku svo hún komi bet- ur út.“ Fallegar í fermingunni Fyrir fermingardaginn segist Þóra farða stúlkur á mjög náttúrulegan hátt. „Þannig eru stúlkurnar fallegastar. Á þessum aldri hafa þær heldur ekki áhuga á að vera mikið málaðar. Það er ofboðs- lega fallegt að vera náttúrulegur. Ég nota því léttan og ferskan farða og alls ekki mikið af honum. Þá set ég ljósan augn- skugga á augun og örmjóan „eyeliner“ þar á eftir. Ekki má heldur gleyma mask- aranum. Í kinnarnar er settur smá roði til að sýna ferskleikann og svo er sett fallegt gloss á varirnar.“ Létt förðun Þóra segir að flestar stelpur vilji vera með einhverja förðun á fermingardaginn. „Ég ráðlegg stelpum að nota bara léttan farða, kannski smá sólarpúður í kinnar, smá maskara og gloss. Eins má nota „eyeliner“ en augun verða skarpari þá,“ segir Þóra sem heldur förðunarnámskeið á fimmtudagskvöldum. „Konur geta kom- ið á námskeiðin með sínar vörur og lært að nota þær.“ svanhvit@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Náttúruleg förðun Það þarf ekki mikla förðun á fermingardaginn til að líta vel út enda eru stúlkur á þessum aldri fallegastar náttúrulegar. Náttúruleg förðun í ferminguna Stór dagur Þóra Ólafsdóttir farðar hér Miriam Eriks- dóttur Giovanni en förðunin hentar vel á fermingardaginn. Fermingar 31 Brauðbær • Hótel Óðinsvé • Þórsgata 1 • odinsve@odinsve.is • odinsve.is Við gerum veisluna þína Brauðbær sérhæfir sig í dönsku smurbrauði og pinnamat. 40 ára reynsla og fagmennska tryggir gæði veisluþjónustu okkar – vertu viss um að fá fyrsta flokks veitingar í veisluna þína. Pöntunarsími 552 0490 eða 511 6200 Junior Original Marimekko Original Catbag Avenue Doggielounge Original Original Island Point Headdemock sími: 578 2004 • e-mail: fatboy@fatboy.is, www.fatboy.is Suðurveri, Stigahlíð 45-47, 105 Reykjavík Outdoor

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.