Morgunblaðið - 06.03.2009, Page 36

Morgunblaðið - 06.03.2009, Page 36
36 Fermingar Kurteisi ætti að vera í hávegum höfð og því mikilvægt að láta fermingarbarnið þakka fyrir sig. Gætið að því að öll kort haldist á gjöfunum til að fermingarbarnið komi nú ekki af fjöllum þegar það er spurt hvernig því líkaði gjöfin frá hinum eða þessum. Sumir senda sérstök þakkarkort en aðrir láta barnið hringja og svo má jafnvel senda tölvupóst. Mikilvæg kurteisi Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is V ið viljum leyfa æskunni að njóta sín og börn hafa svo fallegt hár á þessum aldri þar sem í því er mikið af litarefnum sem gefur meiri glans,“ segir Katrín Ósk Guðlaugsdóttir, hár- greiðslukona á hárstofunni Eplinu. „Fallegast er að hafa hárið sem náttúrulegast og leyfa æskunni að njóta sín í stað þess að lita það. Við mælum því frekar með því að börn fái sér glansskol eða fíngerðar strípur sem ger- ir oft mikið en leyfir samt náttúrulega lit barnsins að njóta sín. Með glansskoli kemur fallegur blær á hárið og meiri glans og það dofnar síðan úr hárinu. Þannig er hægt að auka blæbrigði hársins án þess að breyta algjörlega um lit.“ Börn með sjálfstraust Katrín segir að þó séu alltaf einhverjir sem vilji láta lita hárið fyrir ferminguna en hún bendir börnum á að það sé nægur tími til að lita hárið síðar. „Eins er mjög mikilvægt að nota hitavörn ef stelpur á þessum aldri nota sléttujárn, hárblásara eða krullujárn, því annars geta endarnir brotn- að, slitnað og brunnið. Utan um hárið er hárhimna sem ver hárið og óheilbrigt hár verður stökkara og missir hreyf- anleika sinn,“ segir Katrín og bætir við að það sé misjafnt hvernig klippingu fermingarkrakkar vilji. „Það má segja að allt sé í tísku. Börnin eru með mikið sjálfstraust og gera það sem þau vilja. Það er því mjög persónubundið hvað krakkarnir vilja gera við hárið fyrir ferminguna.“ Jökull Steinn Ólafsson Hér má sjá klassíska lubbaklipp- ingu. Hárið er því frekar þungt en þó styttra að ofan. Það er frekar mikil sídd í hárinu en ekki mikil að aftan. Fannar Þór Ragnarsson Katrínu langaði að sýna fram á að hægt er að vera með stutta klippingu sem virkar samt eins og viðkomandi sé með lubba. Allar útlínur eru því frekar stuttar en þó er meira hár að ofanverðu. Áslaug Eik Ólafsdóttir Í hár Áslaugar voru settar nokkrar fíngerðar ljósar strípur. Hún var klippt í stytt- ur auk þess sem toppurinn er smá tjásaður og til hliðar. Náttúrulegt og glansandi Eitthvað er um að börn vilji láta lita á sér hárið fyrir ferminguna að sögn Katrínar Óskar Guðlaugsdóttur hárgreiðslukonu sem hvetur börn til að hafa hárið sem náttúrulegast enda fallega glansandi á þessum aldri. Hrafnkatla Agnarsdóttir Hrafnkatla vildi fylgja eigin stíl og fá týpuklippingu. Á hana var því klipptur smá stallur sem samt er mjúkur. Svo var hárið blásið fallega og liðað. Eins var Hrafnkatla lituð með glansskoli. Morgunblaðið/Ómar Katrín Ósk Guðlaugsdóttir: „Eins er mjög mikilvægt að nota hitavörn ef stelpur á þessum aldri nota sléttu- járn, hárblásara eða krullujárn.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.