Morgunblaðið - 06.03.2009, Side 38
38 Fermingar
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
Á
hlaðborðinu eru tvær tegundir af brauðtertum, heitir
brauðréttir með skinku og aspas, fimm tegundir af kaffi-
snittum, jarðarberjakókosterta, súkkulaðitertur og
marsipanterta. Kransakaka er ekki innifalin en hana er
hægt að panta sér.
Kaffiveislur vinsælar í ár
„Það er svolítið sveiflukennt á milli ára hvort meira er pantað
af mat eða kaffi en ég hef ekki getað tengt það við neitt ákveðið.
Það er þegar búið að panta mjög mikið hjá okkur og virðist vera
meira um kaffiveislur í ár. Fólk pantar fyrir ákveðinn fjölda og
við áætlum magnið í það og sjáum til þess að allir fái nóg. Und-
anfarin ár höfum við þurft aðeins að breyta hlutföllunum og er
nú mun meiri hluti kaffiborðsins brauðmeti miðað við það sem
áður var. Hvað varðar pantanir þá eru þær tvískiptar, það er
ákveðinn fjöldi sem pantar strax í september og það eru yfirleitt
þeir sem ætla að halda veisluna í sal. Strax eftir áramót fara
pantanir að streyma inn aftur og þá fyrir fólk sem ætlar að halda
veislu heima,“ segir Bjarni Óli Haraldsson, yfirmatreiðslumaður
og eigandi Veislunnar.
Þægileg samskipti
Bjarni segir það mjög algengt að fólk leiti aftur eftir þjónustu
fyrirtækisins þegar kemur að því að ferma næsta barn. Sérstök
fermingarkynning er haldin þar sem fjölskyldum og ferming-
arbörnum er boðið að koma og sjá hlaðborðin uppstillt. Þannig
sér fólk innihald þeirra og hvernig borðið kemur til með að líta
út. „Fólki finnst líka þægilegt að hitta veitingamanninn sem sel-
ur þeim matinn og ekki hafa eingöngu samskipti í gegnum síma.
Allir vilja að fermingardagurinn gangi snurðulaust fyrir sig og
fólk á það til að vera stressað, því er traustvekjandi að fá tæki-
færi til þess að fara að-
eins saman yfir hlutina,“
segir Bjarni.
Alls kyns útfærslur
Sumt af veitingunum
má undirbúa fyrirfram
en síðustu dagana fyrir
fermingar er nóg að
gera og langmest fyrir
pálmasunnudag sem er
orðinn einna algeng-
astur fyrir fermingar.
Þetta segir Bjarni að
hafi breyst, áður fyrr
hafi fermingar á skírdag
og öðrum í páskum verið
algengari en nú virðist
fólk frekar vilja vera í
fríi um páskana. Á heimasíðu fyrirtækisins eru settar upp fjórar
hugmyndir að matseðlum en Bjarni segir þær þó engan veginn
tæmandi. Sumir vilji hafa smárétti á borðum, aðrir aðeins eina
heita steik eða eingöngu kalda rétti. Ýmis konar útfærslur eru
því mögulegar en Bjarni segir algengt að ef fólk kaupi mat-
arveislu kaupi það líka annaðhvort marsipantertu, kransatertu
eða kransahorn.
Hefðbundið kaffihlaðborð
Hjá veisluþjónustunni Veislan hefur í fjölda
mörg ár verið í boði hefðbundið kaffihlaðborð
fyrir fermingarveislur. Ýmiss konar aðrar veit-
ingar eru þar einnig í boði.
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
Á
fermingardaginn er öll fjölskyldan saman kom-
in og fólk vill hafa hefðbundinn mat sem flest-
um finnst góður á borðum, eins og hamborg-
arhrygg, graflax og annað slíkt. Inn á milli
hefur maður þó spennandi nýja rétti og fær líka sér-
óskir frá fermingarbörnum sem vilja til dæmis hafa
sushi og þá bjargar maður því. Síðastliðin ár finnst mér
eftirspurn eftir matarveislum hafa aukist og að dregið
hafi úr kaffisamsætum eins og hér tíðkuðust fyrir ein-
um 20 árum,“ segir Sturla.
Tex-mex og kalkúnabringur
Sturla starfrækir veislusalinn Glersalinn sem hægt
er að leigja undir fermingarveislur og velja þá um
tvenns konar mismunandi matseðla. Sá matseðill sem
hefur verið hvað vinsælastur inniheldur bæði kalda og
heita rétti, meðal annars kjúklingasalat með tex-mex
sósu, graflax með sinnepsdillsósu, parmaskinku með
klettasalati og parmesan, hamborgarhrygg, heilsteiktar
kalkúnabringur og ýmiss konar meðlæti. Hann segir
fólk bóka sali óvenju snemma miðað við það sem áður
tíðkaðist þó að í ár hafi fólk verið aðeins lengur að
ákveða sig og efnahagsástandið þar vafalaust sett strik í
reikninginn. Pálmasunnudag segir hann vera einna vin-
sælasta daginn en í salnum eru haldnar tvær veislur á
dag, í hádegi og síðdegis.
Góður matur og nóg af honum
Um leið og ekkert virðist hafa dregið úr vinsældum
þess að halda fermingarveislu í sal er einnig aukning á
veislum í heimahúsum. Veisluþjónustan Matur fyrir líf
sem Sturla rekur einnig er hugsuð fyrir þá sem vilja
halda veislu heima. Þar eru á matseðlum ýmiss konar
ólíkir réttir eins og graflax, pastasalat, tígrisrækjur og
hamborgarhryggur. „Ég legg áherslu á góða þjónustu
og góðan mat og nóg af honum. Stundum hef ég heyrt af
kollegum mínum sem hafa verið í veislu þar sem ekki
var nóg að borða. Ég hef gjarnan hugsað á þann hátt að
í raun er ódýrara að hafa meiri mat og viðskiptavininn
ánægðan heldur en að hann verði óánægður og vilji
kannski ekki borga veisluna. Þá hef ég reynt að halda
sama verði og í fyrra þrátt fyrir hækkanir,“ segir
Sturla.
Eitthvað sem öllum
finnst gott
Nóg af mat Sturla Birgis segir mestu skipta að við-
skiptavinurinn sé ánægður.
Í matarveislu er mikilvægt að eitthvað
sé á borðum sem hentar öllum. Sturla
Birgis matreiðslumaður segir fólk al-
mennt velja hefðbundnar veitingar, en
stundum í bland við eitthvað nýstárlegt.
Freistandi Sturla töfrar fram ýmsa kjúkingarétti.
Ferskt Girnilegir sjávarréttir eru góðir og ferskir.
Þetta Stúdíó er ný ljósmynda-
stofa í Nethyl 2b í Árbænum. Í
ár bjóðum við 10% afslátt af
fermingarmyndatökum.