Morgunblaðið - 27.03.2009, Qupperneq 2
UM 15 milljónir króna söfnuðust í
sameiginlegri landssöfnun Rauða
kross Íslands og Hjálparstarfs
kirkjunnar sem fram fór undir ein-
kunnarorðunum Stöndum saman –
gefum hundraðkall á haus vikuna
16.-22. mars síðastliðinn.
Upphæðin jafngildir því að um
helmingur þjóðarinnar hafi hlýtt
kalli Rauða krossins og Hjálp-
arstarfs kirkjunnar, segir m.a. í til-
kynningu.
Söfnunarfénu verður varið til
matvælaaðstoðar á vegum Hjálp-
arstarfs kirkjunnar um allt land og
Rauði krossinn mun veita sálrænan
stuðning og hjálpa fólki við að
halda sér virku í samfélaginu þrátt
fyrir áföll í kjölfar efnahagshruns-
ins.
Öll símafyrirtæki í landinu gáfu
eftir kostnað og þjónustugjöld við
símasöfnunina.
50 krónur á haus
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
STÓRMEISTARARNIR Héðinn Steingrímsson, Henrik Danielsen og
Hannes Hlífar Stefánsson voru allir í 6.-17. sæti með tvo og hálfan vinning að
lokinni 3. umferð Reykjavíkurskákmótsins í gærkvöldi. Þröstur Þórhallsson
stórmeistari sést hér í þungum þönkum. Í mótinu taka þátt 110 skákmenn
sem er met. Þar af eru 19 stórmeistarar og tveir stórmeistarar kvenna.
Morgunblaðið/Ómar
Í þungum þönkum
VINSTRI grænir, Framsóknar-
flokkurinn og Borgarahreyfingin
bæta við sig fylgi í nýjustu skoð-
anakönnun Gallup fyrir Morgun-
blaðið og RÚV miðað við síðustu
könnun fyrir viku. Vinstri grænir
fara á einni viku úr 24,6% í 26,2% en
flokkurinn var með landsfund um
síðustu helgi.
Samfylkingin heldur þó stöðu
sinni sem stærsti stjórnmálaflokkur-
inn, með 30% fylgi, rúmu prósentu-
stigi minna en fyrir viku. Um var að
ræða net- og símakönnun sem var
gerð dagana 18. til 25 mars. Heildar-
úrtaksstærð var 1.424 manns 18 ára
og eldri. Svarhlutfall var 63,2%.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins fer nið-
ur í 24,4%, var 26,5% fyrir viku, og
hefur ekki verið minna í könnunum
Gallup síðan í nóvember, er það
mældist 20,6%. Í janúar sl. var fylgið
einnig 24,4% en í síðustu þingkosn-
ingum fékk flokkurinn 36,6% at-
kvæða.
Framsóknarflokkurinn mælist nú
með 12,5% fylgi, var 11,3% í síðustu
könnun. Fylgið nú er mjög svipað og
það var í mælingum Gallup vikurnar
þar áður. Flokkurinn fékk 11,7% at-
kvæða í síðustu kosningum. Frjáls-
lyndi flokkurinn er aðeins með 1,2%
sem er minnsta fylgi sem Gallup hef-
ur mælt frá síðustu kosningum, er
flokkurinn fékk 7,3% atkvæða.
Hlutfallslega bætir Borgarahreyf-
ingin við sig mestu fylgi frá síðustu
könnun, eða úr 2,5% í 3,4%.
Samkvæmt könnuninni fengi
Samfylkingin 20 þingmenn, Vinstri
grænir 18, Sjálfstæðisflokkurinn 17
og Framsóknarflokkurinn átta.
Fylgi við ríkisstjórnina er 63,8%,
svipað og síðast, og fleiri segjast
ætla að kjósa, eða 76%. bjb@mbl.is
VG upp fyrir Sjálfstæðisflokkinn
!
"#
$ %"#
&
%
&$$'
&'
$ '
%%'
()
()
*+
,+ ,-
*
(.
/0 (.
/01 * 1
/0
,1
/0
,1
/0
* 1 /0
2 /3
-
1
$
$$
$
$
45
6/7
'
! ""#$%#
4 5
'
45
'
4 5
'
4 5
'
Samfylkingin áfram stærsti flokkurinn samkvæmt könnun Gallup VG fer upp fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn sem ekki hefur verið með minna fylgi frá í nóvember Borgarahreyfingin bætir mestu við sig
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„ÞAÐ vekur alltaf mikla athygli
þegar Sjálfstæðisflokkurinn lendir
í þriðja sæti í skoðanakönnunum
en munurinn er nú mjög lítill,“ seg-
ir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, um nýja skoðanakönnun
Capacent Gallup á fylgi stjórn-
málaflokkanna.
„Það hefðu nú einhvern tímann
þótt tíðindi að Sjálfstæðisflokkur
og Framsóknarflokkur mældust
samanlagt með 37% fylgi,“ segir
Ólafur. Niðurstöður skoðanakann-
ana síðustu vikur endurspegla
óvenjulegar aðstæður í íslensku
stjórnmálalífi að mati Ólafs. Einna
athyglisverðast sé að sjá að nýtt
landslag í íslenskum stjórnmálum
hafi nú haldist í nokkuð langan
tíma, nokkuð sem verði merkilegra
með hverri vikunni sem líði.
Enn er allt opið
„Þetta nýja landslag sem við höf-
um séð undanfarið hefur nú í gróf-
um dráttum haldist óbreytt í 5-6
vikur, þar sem núverandi stjórn-
arflokkar hafa verið með mjög góð-
an meirihluta og stuðningur við
stjórnarflokkana mælst í kringum
tveir þriðju hlutar,“ segir Ólafur.
Hann segir
einnig athyglis-
vert að sjá að
Frjálslyndi
flokkurinn
mælist nú í ann-
að skiptið í röð
með minna fylgi
en Borgara-
hreyfingin og
listi Fullveldis-
sinna.
Ólafur segir þó að enn sé allt
opið og margt geti breyst á þeim
fjórum vikum sem enn séu til kosn-
inga. Enn sé of snemmt að segja til
um endanlegar niðurstöður.
Væru óvenjuleg úrslit
Hann segir að yrðu úrslit kosn-
inganna eins og þessi nýjasta
könnun segi til um væri það mjög
óvenjulegt „því þetta er svo ólíkt
hefðbundnum úrslitum í íslenskum
stjórnmálum“, segir Ólafur.
Hann segir að sé litið til kosn-
inga síðustu 20-25 árin hafi það
stundum gerst á síðasta mánuði
kosningabaráttu að flokkar bæti
við sig eða tapi allt að 5-10% fylgi.
Það séu því breytingar sem gera
megi ráð fyrir á komandi vikum.
„Það gildir bara áfram að margt
getur breyst fram til kosninga,“
segir Ólafur.
Óvenjulegt að
mynstrið haldi
Niðurstöður Gallup sýna óvenjulega tíma
Ólafur Þ.
Harðarson
TILKYNNT var um neyðarblys í
Álftanesvogi seinnipartinn í gær.
Tveir björgunarsveitarbátar voru
sendir til leitar auk þess sem þyrla
Landhelgisgæslunnar, sem hafði
verið við æfingar fyrr um daginn,
flaug yfir svæðið. Ekkert sást sem
benti til þess að blysinu hefði verið
skotið frá báti í neyð. Að sögn varð-
stjóra í lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu er helst talið að neyð-
arblysinu hafi verið skotið á loft af
landi.
Leituðu en
fundu ekki neitt
MP Banki hyggst
hefja ein-
staklingsþjón-
ustu fljótlega, að
sögn Margeirs
Péturssonar
stjórnarfor-
manns.
„Við höfum öll
leyfi til að gera
þetta,“ sagði
Margeir. Hann
sagði fjölda fólks hafa haft sam-
band við MP Banka undanfarið til
að leita eftir bankaþjónustu.
„Við fáum fjölda fyrirspurna á
hverjum degi,“ sagði Margeir. „Það
eru margir sem átta sig á því að við
erum eini bankinn sem er með sín
mál á hreinu. Við finnum fyrir
miklum velvilja og trausti og erum
tilbúin að vera valkostur gagnvart
ríkisbankakerfinu.“
MP fljótlega í ein-
staklingsþjónustu
Margeir
Pétursson
segðu
smápestum
stríð á hendur!
Fæst í apótekum og
heilsubúðum um land allt.