Morgunblaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 8
REYKINGAR unglinga eru fátíðari á Íslandi en í nær öllum löndum Evr- ópu og hvergi drekka færri unglingar áfengi. Mjög hefur dregið úr drykkju og reykingum unglinga hérlendis á síðustu árum. Þetta kemur fram í nýrri, viðamikilli evrópskri rannsókn. Umtalsvert fleiri unglingar á Ís- landi hafa engin vímuefni notað um ævina en í nokkru landi í Evrópu og virðast þeir, hvað þetta varðar, draga meiri dám af jafnöldum sínum í Bandaríkjunum. Kannabisneysla ís- lenskra unglinga er jafnframt tals- vert undir meðaltali Evrópu þótt sér- staða þeirra sé nokkru minni að því leyti en varðandi önnur vímuefni. Þóroddur Bjarnason, prófessor við Háskólann á Akureyri, sem stýrir rannsókninni kynnti niðurstöður hennar í gær. Sem dæmi úr könnun- inni má nefna eftirfarandi:  56% íslenskra þátttakenda sögðust hafa neytt áfengis síðustu 12 mánuði en 82% að meðaltali í Evrópu.  Reykingar síðustu 30 daga: 16% á Íslandi en 29% að meðaltali í Evrópu. Hlutfallið í Noregi var 19%, í Svíþjóð 21% og 32% í Danmörku. Hæst var hlutfallið í Austurríki, 45%.  Einhvern tíma á ævinni prófað kannabisefni: 9% á Íslandi en 19% að meðaltali í Evrópu.  31% íslenskra unglinga sagðist aldrei hafa prófað sígarettur, áfengi eða ólögleg vímuefni árið 2007 og sker Ísland sig algjörlega úr hvað þetta varðar. Næstbest kemur Noregur út, þar sem 19% sögðust aldrei prófað þessi efni, 16% í Svíþjóð og 12% í Finnlandi. Verst koma Lettland og Tékkland út en í báðum löndum sögð- ust aðeins 2% aldrei hafa prófað efnin. Þóroddur þakkar það forvarnar- starfi, hækkun á sjálfræðisaldri 1998 og stórauknu foreldraeftirliti að svo mikið hafi dregið úr notkun ávana- og vímuefna. skapti@mbl.is Hve glöð er vor æska  Mjög hefur dregið úr drykkju og reykingum íslenskra unglinga á síðustu árum  Hækkun sjálfræðisaldurs og stóraukið foreldraeftirlit talin skipta miklu máli Í HNOTSKURN »Rannsóknin, ESPAD, erunnin að tilstuðlan Evr- ópuráðsins og Upplýsinga- miðstöðvar ESB um vímuefni. »Alls tók 81% nemenda í 10.bekk á Íslandi þátt í rann- sókninni árið 2007. »Alþjóðlegur gagnabankiESPAD er starfræktur á vegum Rannsóknaseturs for- varna við Háskólann á Ak- ureyri í samstarfi við al- þjóðlegu verkefisstjórnina í Stokkhólmi.TENGLAR .............................................. www.espad.is 8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009 Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is SPRON á gott safn listaverka sem nú er í umsjón skilanefndar spari- sjóðsins. Hlynur Jónsson, formaður skilanefndarinnar, segir að þessi verk séu ekki í sölumeðferð. Ákvörðun verði tekin um það síðar hvernig farið verður með þessa verðmætu eign. „Það verður enginn asi í þessu máli,“ segir Hlynur. Eins og fram kom í fréttum í haust komust verðmæt listaverka- söfn Landsbankans, Glitnis og Kaupþings í umsjón ríkisins við hrun bankanna. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra vill tryggja að þessi listaverk verði áfram í eigu ríkisins. SPRON eignaðist mörg verðmæt listaverk í tíð Baldvins Tryggvason- ar, fyrrverandi sparisjóðsstjóra, enda beitti hann sér sérstaklega fyrir því að sparisjóðurinn fjárfesti í listaverkum. Baldvin sagði í samtali við Morgunblaðið, að hann teldi rétt að þessi verk rynnu nú til Lista- safns Reykjavíkur. Vísaði hann þar til sterkrar tengingar SPRON við reykvískt lista- og menningarlíf og þess að verkin væru fyrst og fremst keypt fyrir peninga frá Reykvík- ingum og íbúum í nágrannasveit- arfélögunum. Morgunblaðið leitaði í gær eftir upplýsingum um fjölda listaverka og samsetningu safnsins hjá Stefáni Kjartanssyni, forstöðumanni rekstr- arsviðs SPRON. Stefán kvaðst ekki geta veitt upplýsingar og vísaði á skilanefndina. Samkvæmt upplýsingum sem blaðið aflaði sér eftir öðrum leiðum eru verkin í safninu skráð og geymd í öruggri geymslu. Í safninu eru nokkur verk eftir gamla meistara, svo sem Kjarval og Gunnlaug Scheving. En uppistaðan í safninu eru verk eftir yngri myndlist- armenn, og má t.d. nefna Kristján Guðmundsson, Einar Hákonarson, Magnús Tómasson og Karólínu Lárusdóttur. Listaverkasafn SPRON er ekki til sölumeðferðar Lagt til að Listasafn Reykjavíkur eignist listaverkin TVÖ af þekktustu húsum Reykjavík- ur hafa verið auglýst til sölu. Um er að ræða húsið Austurstræti 16 sem margir þekkja sem gamla Reykja- víkurapótekið og hinsvegar Naustið, Vesturgötu 6-10. Fjölbreyttur rekstur Fyrirtæki Nathans og Olsen byggði húsið Austurstræti 16 á ár- unum 1916-18 eftir teikningum Guð- jóns Samúelssonar, sem síðar varð húsameistari ríkisins. Upphaflega var Landsbankinn með afgreiðslu í húsinu, svo hóf veitingastofa Rosen- bergs þar starfsemi sína en árið 1930 flutti Reykjavíkurapótek í húsið og var þar til ársins 1999. Þá hóf veit- ingastaðurinn Apótekið rekstur sinn en gömlu innréttingarnar voru tekn- ar niður og settar í geymslu. Þá voru bæjar- og borgarskrifstofur í húsinu frá 1929 og þangað til Ráðhúsið var byggt auk þess sem Frímúrara- reglan hafði þar samkomusal. Athafnamaðurinn Geir Zoëga lét byggja verslunarhús við Vesturgötu árið 1882 og var húsið stækkað í áföngum til ársins 1902 þegar það náði núverandi stærð. Þar var rekin verslun í nafni Geirs til ársins 1982 en frá árinu 1954 til 2006 var þar líka rekinn veitingastaðurinn Naustið. Á síðu Minjasafns Reykjavíkur fást þær upplýsingar að húsið hafi mikið menningarsögulegt, umhverf- is- og varðveislugildi. ylfa@mbl.is Perlur Reykjavík- ur til sölu HJÖRDÍS Dröfn Vilhjálmsdóttir hagfræðingur og Ragnhildur Arn- ljótsdóttir ráðuneytisstjóri hafa verið skipaðar í nefnd sem semur við fulltrúa erlendra ríkja vegna gjaldeyrislána. Ákvörðunin var tek- in af fjármálaráðherra og réðu jafnréttissjónarmið för, að sögn Indriða H. Þorlákssonar ráðuneyt- isstjóra. Hjördís Dröfn kemur ný inn sem fulltrúi fjármálaráðherra, en hún starfaði áður hjá Glitni og þar áður hjá Seðlabanka Íslands. Ragnhildur kemur í staðinn fyrir Björn Rúnar Guðmundsson. Aðrir nefndarmenn eru Sturla Pálsson, yfirmaður alþjóða- og markaðssviðs Seðlabanka Íslands, Martin Eyjólfsson, sviðsstjóri í ut- anríkisráðuneytinu, og formaðurinn Jón Sigurðsson, fyrrverandi stjórn- arformaður Fjármálaeftirlitsins. onundur@mbl.is Konur í nefnd en karlinn út TÍSKUHÖNNUÐURINN Mundi hélt tískusýn- ingu í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu í gærkvöldi. Sýningin er einn viðburða Hönn- unarMars sem nú fara fram víðsvegar um Reykjavíkurborg. Fyrirsæturnar voru glaðar og skunduðu um sviðið af mikilli innlifun. Enda ekki ónýtt að fá að sýna fyrir fullu húsi hönnun hins hug- myndaríka Munda. Flottar fyrirsætur sýndu flotta fatahönnun Morgunblaðið/Árni Sæberg – Skipholt 50 c – www.salka.is Flottar skref-fyrir-skref leiðbeiningar, ljósmyndir og góð ráð til að gera okkur enn glæsilegri! Óskabókin okkar! Loksins komin aftur í búðir!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.