Morgunblaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009 HAGSMUNASAMTÖK í sjávar- útvegi og landbúnaði hafa að und- anförnu farið mikinn um þær meintu hættur sem aðild að Evr- ópusambandinu hafi í för með sér fyrir þessar atvinnugreinar og at- vinnuhagsmuni í hinum dreifðu byggðum. Fátt er hins vegar fjær sanni þegar mál eru skoðuð af sanngirni. Allir viðurkenna orðið ágæti byggðastefnu Evrópusam- bandsins, sem styður af krafti við uppbyggingu fjarskipta- og sam- göngukerfis. Færri gera sér hins vegar grein fyrir þeim sókn- arfærum sem landbúnaður og sjáv- arútvegur geta átt við aðild að ESB. Ný og sókndjörf landbúnaðarstefna Af hálfu Bændasamtakanna hef- ur málum verið stillt upp á þann veg að valið standi um landbún- aðarstefnu ESB og óbreytt ís- lenskt stuðningskerfi við land- búnað. Það er ekki raunsönn mynd, því að engar líkur eru á að núverandi stuðningskerfi við ís- lenskan landbúnað standi til lengri tíma litið. Kerfið stenst ekki skuld- bindingar okkar samkvæmt al- þjóðasamningum og fyrirsjáanlegt er að við þurfum að draga stuðn- inginn saman um meira en helming þegar nýr samningur um milli- ríkjaviðskipti með landbún- aðarvörur tekur gildi, og opna fyr- ir umtalsverðan innflutning landbúnaðarvara. Það er því tjald- að til einnar nætur með núverandi fyrirkomulagi í landbúnaði. Framundan er því endurmat á landbún- aðarstefnunni, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Landbún- aðarstefna ESB hefur þegar verið löguð að fyrirhuguðum breyt- ingum á hinu al- þjóðlega viðskiptaum- hverfi. Þar er stuðningur ekki lengur tengdur framleiðslu heldur er honum ætl- að að styðja við fjöl- breytt atvinnulíf í hinum dreifðu byggðum. Innan þess ramma gætu fallið, auk hefðbundins landbún- aðar, ótal verkefni sem myndu skapa fjölmörg ný störf í sveitum – umhverfisverkefni á borð við end- urheimt votlendis og matvælafram- leiðsla sem nýtir staðbundin hrá- efni, svo dæmi séu nefnd. Landbúnaðarstefna okkar er í dag bæði einhæf og óskilvirk. Hún styður ekki við þann fjölbreytta landbúnað sem er í landinu, heldur einungis dilkakjöts- og mjólk- urframleiðslu. Kvótakerfið í mjólk hefur lagt efnahag fjölmargra bænda í rúst og torveldar nýliðun í greininni. Óbreytt landbún- aðarstefna leiðir óhjákvæmilega til sífellt færri og stærri búa. Það kallar aftur á meiri auðn í sveitum, færri íbúa, færri börn, dýrari skóla og aðra þjónustu og þannig veikara dreifbýli. Hinn kosturinn er framrás og sókn fyrir íslenskan landbúnað. Er það lögmál að íslensk framleiðsla eigi engin sóknarfæri á erlendum mörkuðum ef þessir markaðir opn- ast? Allt bendir til að íslenskar afurðir á borð við smjör og skyr hafi mikla sér- stöðu á alþjóðlegum mörkuðum, en á það hefur ekki reynt af al- vöru vegna þeirra hafta sem atvinnu- greinin hefur búið við. Bændasamtökin hafa spáð hruni í markaðshlutdeild unninnar mjólkurvöru ef við göngum í ESB. Gott og vel, setjum svo. En hver er valkosturinn? Hver verður mark- aðshlutdeild innlendra osta þegar við höfum verið knúin til að opna markað okkar í auknum mæli fyrir innflutningi í óbreyttu kerfi, án nokkurra aðgerða til að milda það högg? Því að höggið kemur, alveg óháð aðild okkar að Evrópusambandinu. Það veit forysta Bændasamtak- anna mætavel. Ný og framsækin landbún- aðarstefna gefur okkur færi á að styðja betur við vaxtarsprota í at- vinnulífi á landsbyggðinni. Það eru ekki hagsmunir allra bænda að skilgreina íslenska landbún- aðarhagsmuni jafn þröngt og bændaforystan gerir – sannarlega ekki hagsmunir ferðaþjón- ustubænda og hrossabænda, svo dæmi sé tekið. Ferðaþjónusta hef- ur verið vaxandi búgrein, en hún líður fyrir ónothæfan gjaldmiðil og miðstýrða búvöruframleiðslu. Einn helsti kostur landbún- aðarstefnu ESB er að hún styður sérstaklega við staðbundna bú- vöruframleiðslu og tengingu henn- ar við ferðaþjónustu í nágrenni framleiðslunnar. Í því eru sókn- arfæri fyrir ferðaþjónustuna sem búgrein. Íslenskur landbúnaður stendur á tímamótum. Óbreytt stuðningskerfi fær ekki staðist til frambúðar vegna alþjóðlegrar þróunar. Sú þróun kallar á annaðhvort sókn og nýsköpun eða áframhaldandi und- anhald og óhjákvæmilega fækkun starfa í dreifbýli. Tækifæri í sjávarútvegi Samkeppnisstaða íslensks sjáv- arútvegs myndi batna við inngöngu í ESB. Tollar af öllum sjávaraf- urðum yrðu afnumdir. Sjávar- útvegurinn hefur líka – rétt eins og landbúnaðurinn – liðið fyrir sífelld- ar gengissveiflur og óstöðugleika. Margs konar ranghugmyndir hafa verið uppi um sjávarútvegs- stefnu ESB og um möguleika Ís- lands til þess að gæta hagsmuna sjávarútvegsins í aðildarviðræðum. Bölsýnisspár sem byggjast á nei- kvæðum viðbrögðum fulltrúa ESB við einstökum óútfærðum hug- myndum eru ekki mikils virði. Hvers virði væru samningamenn ESB ef þeir gæfu út einhliða yf- irlýsingar um samþykki við slíkum hugmyndum í íslenskum fjöl- miðlum, áður en þær hafa verið settar fram með formlegum hætti eða rökstuddar? Ísland getur tryggt hagsmuni sjávarútvegsins í aðildarviðræðum. Það er ekki mikill mannsbragur að því að tapa samningaviðræðum fyr- irfram og sjálfsögð krafa að á þær verði látið reyna. Aðild að Evrópusambandinu fel- ur í sér tækifæri til að breyta fisk- veiðistjórnunarkerfi okkar og styrkja efnahagsleg tengsl á milli byggðarlaga og útgerðar. Fullt af- nám tolla skapar aukin tækifæri til fullvinnslu sjávarafurða á Íslandi, en í sjávarútvegi höfum við mátt búa við stighækkandi tolla þar sem tollar eru lægstir á óunninn fisk, hærri á flakaðan fisk og hæstir á fullunna neytendavöru. Þegar toll- arnir hverfa verður hagstæðara að fullvinna vörur hér á landi, sem getur nýst sérstaklega vel til at- vinnusköpunar á landsbyggðinni. Aðild að ESB er ekki töfralausn og halda þarf vel á spöðunum í að- ildarviðræðum til að verja brýna hagsmuni landbúnaðar og sjávar- útvegs. Um það markmið mun nást víðtæk samstaða hér á landi og enginn stjórnmálaflokkur mun styðja samning þar sem hagsmuna hinna dreifðu byggða er ekki gætt. Hitt er líka ljóst að í aðild felast mörg ný og spennandi tækifæri fyrir kröftugt atvinnulíf á lands- byggðinni, sem geta skotið fleiri stoðum undir búsetu og mannlíf í dreifbýli. Sú framtíðarsýn hlýtur að verða keppikefli okkar allra. Eftir Árna Pál Árnason » Landbúnaðarstefna ESB hefur þegar verið löguð að fyrirhug- uðum breytingum á hinu alþjóðlega við- skiptaumhverfi. Árni Páll Árnason Höfundur er alþingismaður. Sóknarfæri fyrir byggðirnar Kveðja Geir H. Haarde flutti sína síðustu setningarræðu sem formaður Sjálfstæðisflokksins á 38. landsfundi flokksins í gær. Geir sagðist stoltur af því að hafa eytt drjúgum hluta úr sinni starfsævi í störf fyrir flokkinn og þjóðina. Sá tími hefði gefið honum, og hans nánustu, mikið. Árni Sæberg Hallur Magnússon | 26. mars Gylfi segir ekki satt Gylfi segir ekki satt. Svo einfalt er málið. Ég bauð mig fram gegn Vigdís i fyrsta sætið. Vigdísi var mjög brugðið eftir símtal- ið við Gylfa þar sem hann gerði henni ljóst að hún yrði að velja milli þess að taka 1. sæti Framsóknarflokksins ef hún hlyti það – eða starfsins hjá ASÍ. Launalaust leyfi kæmi ekki til greina. Vigdís valdi að taka sætið. Sótti því ekki um launalaust leyfi þar sem Gylfi hafði sett kostina afar skýrt upp við hana. Væntanlega hafa samfylkingarmenn- irnir á skrifstofu ASÍ ekki beðið um launalaust leyfi vegna kosningabarátt- unnar – væntanlega verða þeir bara á launum í kosningabaráttunni. Það er ómaklegt hjá Gylfa að reyna að snúa sig út úr þessu máli með því að segja að: „...enginn starfsmaður hafi óskað eftir launalausu leyfi vegna fram- boðs til Alþingis í vor“. Vigdísi var aldrei gefinn kostur á því. Meira: hallurmagg.blog.is Ómar Ragnarsson | 26. mars Það var mikið! Það var kosningastefna Íslandshreyfingarinnar 2007 að fara strax í ít- arlega úttekt á Evrópu- málunum sem leiddi til þess að tilbúin væri markviss stefna með samningsmark- miðum hvort sem sá tími kæmi eða ekki að þjóðin ákveddi sjálf hvort fara skyldi í aðildarviðræður. Loksins núna hefur stærsti flokkur þjóðarinnar drattast til að vinna hluta af þessu verki þótt svo sé að sjá að samningsmarkmið hafi ekki verið skil- greind í einstökum liðum. Framsóknarflokkurinn setti fram sín markmið í vetur og Vinstri græn eru tilbúin til að leggja aðildarviðræður í dóm þjóðarinnar. Árum saman hefur skort á það að horfa nógu langt fram. Sagt hefur verið að aðildarferlið taki svo langan tíma að ef það klárist loksins verði það of seint. Meira: omarragnarsson.blog.is BLOG.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.