Morgunblaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 27
Umræðan 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009 Í Morgunblaðinu 18. mars er fullyrt í les- endagrein að slæm frammistaða íslenskra barna í PISA- könnunum sé leti þeirra að kenna. Grein- in ber nafnið „15 ára geta staðið sig betur í PISA-könnuninni“ og er rituð af „formanni aðgerðahóps Pisa og varaformanni menntaráðs“. Staðhæfði hún þetta sama í Kastljósi sjónvarpsins 12. mars sl. Tilefni greinarinnar er niðurstöður PISA- kannana OECD á lestri, nátt- úrufræði og stærðfræði. Því verður ekki mótmælt að árangur íslenskra barna hefur verið slakur í þessum könnunum. Hinsvegar verður ekki við það unað að stofnanir í mennta- kerfinu, ríki eða sveitarfélög, afgreiði þá niðurstöðu með „leti skólabarna“ eins og gert er í greininni, en sleppi því að líta í eigin barm. Telja opinber- ir aðilar að þetta sé leiðin til að efla sjálfstraust barnanna og stappa stál- inu í uppalendur? Ég bið umboðs- mann barna að halda uppi vörnum fyrir þeirra hönd. En er ekki mögulegt að orsaka PISA-niðurstaðna sé að leita í kerf- inu sjálfu? Hvað er það sem gerir okkar skólakerfi frábrugðið kerfinu í öðrum samanburðarlöndum? Hvaða kennslutæki er þar að finna sem okk- ur vantar? Einn þátt vil ég benda á sem þarna á örugglega hlut að máli, þó að hann skýri e.t.v. ekki allt. Ísland er á bekk með vanþróuð- ustu ríkjum heims hvað varðar skort á mikilvægu kennslutæki. Um það má kenna stjórnvöldum en ekki „leti skólabarna“. Hér er ekki að finna neina heildstæða tæknimiðstöð (e. science center) af þeirri gerð sem al- gengar eru í öðrum viðmiðunar- löndum PISA-kannana, og þykja þar ómissandi þáttur í skólastarfi, eink- um í raungreinamenntun. Hérlendis er umræðan um þennan mikilvæga þátt skólastarfsins varla farin af stað, og má það furðu gegna í þróuðu þjóð- félagi sem vill vera í fremstu röð í menntun. Starfsemi tæknimiðstöðva er byggð upp í þágu skólastarfs. Ferðir skólabekkja í slík söfn eru meginregla á einhverju skólastigi, gjarnan í grunnskóla. Fyrir hvert skólaár eru þessar ferðir skipulagðar í samvinnu skóla og tæknimiðstöðvar og er starfsemi miðstöðvarinnar sett upp með tilliti til kennslu og nám- skráa. Sumar tæknimiðstöðvar eru um leið minjasöfn um tæknisögu, en rauði þráðurinn í starfsemi þeirra allra er áhugavekjandi gagnvirkni. Þau eru í raun leiktækjasalir með gagnvirkum og fræðandi tækjum, sem hvert og eitt er prófun á tiltek- inni virkni eða náttúrulögmáli. Tækin eru gerð til að standast mikið álag og öryggiskröfur, en skemmtun og fræðsla er í fyrirrúmi. Þarna skemmta börnin sér í leikjum, en uppgötva um leið fleira en hægt er að kenna í mörgum kennslustundum. Kennarar eða aðrir aðstoða svo barn- ið að vinna úr þessari skemmtilegu upplifun á staðnum eða í kennslustof- unni. Gagnsemi slíks áhugavaka er sérlega mikil fyrir börn sem eiga erf- iðara með bóknám. Eins og áður sagði er engin heild- stæð stofnun af þessu tagi starfandi hérlendis, og er það einsdæmi í svo þróuðu ríki. Undanfarin fjögur ár hefur fámennur, en ört stækkandi hópur áhugafólks unnið að úrbótum í þessu efni, með verkefni sem gengur undir vinnuheitinu „Tæknimiðstöð Íslands“. Meginþáttur þessarar stofnunar verður vísindastofa eins og hér var lýst, en auk þess er henni ætlað að sýna sögu íslenskrar tækniþróunar í heild sinni, með sér- stakri áherslu á framlag hugvits- manna og frumkvöðla. Það er þáttur sem engin íslensk stofnun fæst við í heild, en er einnig mjög mikilvægur fyrir skólastarf. Þriðji meginþáttur fyrirhugaðrar starfsemi snýr að kynningu á tækni dags- ins í dag. T.d. virkni al- gengra tækja í um- hverfi okkar; aðferðir við orkuframleiðslu; verktækni; þættir í náttúru og umhverfi o.s.frv. Ekki er hér ver- ið að feta nýjar slóðir, heldur einungis að „flytja inn“ fræðslu- aðferð sem hefur sann- að gildi sitt í nágranna- löndum okkar. Margir áfangar hafa þegar náðst í þessum undirbúningi, og er mikið starf áhugafólks að baki. Kannanir hafa verið gerðar á okkar stöðu; stofnað til tengsla við erlendar stofnanir af svipuðu tagi og sérfræð- ingar hafa gert kostnaðarmat. Kenn- araháskóli Íslands hefur gert úttekt á þörfinni, með þeirri niðurstöðu að „stofnun Tæknimiðstöðvar Íslands er brýnt og tímabært verkefni“. Fjöl- mörg landssambönd og skólar hafa skipað sína fulltrúa í undirbúnings- hóp, ásamt því að álykta um mik- ilvægi málsins. Undirbúnings- samtökin ÁTAK eru öllum opin, án skuldbindinga. Unnið hefur verið í nánu samráði við stjórnvöld, og hefur skilningur á málinu aukist nokkuð. Stjórnvöld hafa þó hingað til ekki tekið af skarið, en vænta má að úr því rætist með nýrri ríkisstjórn. Ráðamenn geta varla lengur litið framhjá sérstöðu landsins í þessum efnum, einkanlega í ljósi PISA-niðurstaðna. Íslensk skólabörn eiga ekki að þurfa lengur að búa við lakari námsúrræði en jafn- aldrar þeirra erlendis, og sæta fyrir það ósanngjarnri gagnrýni fyrir sína frammistöðu. Ég hvet til að nú þegar verði haf- inn undirbúningur að þessu úrræði, og að það verði sett í forgang op- inberra framkvæmda. Væri það ekki vænlegri leið til árangurs en ásakanir opinberra aðila í garð barnanna? Áhugasömum er bent á vefsíðuna www.tsi.is. Valdimar Össurar- son skrifar í tilefni af umfjöllun um PISA-könnun » Ísland er á bekk með vanþróuðustu ríkjum heims hvað varðar skort á mikilvægu kennslu- tæki. Um það má kenna stjórnvöldum en ekki „leti skólabarna“. Valdimar Össurarson Höfundur er fyrrv. kennari og verkefnisstjóri ÁTAKs. „Leti barna“ eða trassaskapur stjórnvalda Panasonic TX-32LED8F Glæsilegt 32” HD-Ready LCD sjónvarp frá Panasonic með stafrænum móttakara. Verslun Ármúla 26 | Sími 522 3000 | www.hataekni. is SJÁÐU FERMINGARBARNIÐ REKA UPP STÓR AUGU HUGMYNDABANKI FERMINGANNA fermingar.hataekni.is iPod & MP3 hljómtæki gsm símar tölvuvö rur smástæður í Fullt verð 139.995 119.995 kr. Fermingartilboð P IP A R • S ÍA • 9 0 4 3 9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.