Morgunblaðið - 27.03.2009, Qupperneq 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009
Niðurfærsla á
höfuðstól hús-
næðislána er
nauðsynleg til að
draga úr fjölda
þeirra sem verða
gjaldþrota af
völdum fjár-
málakreppunnar,
segir Lilja Mós-
esdóttir, hag-
fræðingur og frambjóðandi Vinstri
grænna, í pistli á vefsvæðinu smug-
an.is.
Lilja bendir á að um 40% hús-
næðisskulda landsmanna séu hjá
Íbúðalánasjóði sem ekki hefur uppi
áætlanir um að afskrifa húsnæð-
islán. Því sé ljóst að niðurfelling
skulda muni lenda á ríkinu eða
landsmönnum.
Fyrirtækin á að skoða sér
„Ef sanngirni yrði gætt milli lán-
takenda og lánveitenda í að dreifa
byrðum fjármálakreppunnar ættu
höfuðstóll og afborganir verð-
tryggðra húsnæðislána ekki að
hækka nema um 13,5%. Slík aðgerð
myndi í raun fela í sér 13,5% nið-
urfellingu skulda eða að meðalupp-
hæð fasteignalána hækkaði aðeins
um fjórar milljónir í stað átta millj-
óna. Hins vegar er ekki réttlátt að
þeir sem skulda mest og eiga mest
fái mestu niðurfærsluna á húsnæð-
isskuldum sínum, þ.e. meira en fjór-
ar milljónir,“ segir Lilja sem leggur
til að ríkið fjármagni fjögurra millj-
óna króna niðurfærslu á höfuðstól
allra húsnæðislána.
Hvað fyrirtækin varðar segir
Lilja ekki hægt að meðhöndla
skuldaniðurfellingu þeirra án þess
að skoða hvert fyrirtæki fyrir sig.
Lækka um
4 milljónir
Lendir á ríkinu eða
landsmönnum
Lilja Mósesdóttir
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
HELGA Sigrún Harðardóttir, þing-
maður Framsóknarflokksins, hefur
lagt fram á Alþingi fyrirspurn til
Rögnu Árnadótt-
ur dómsmálaráð-
herra um skipan
skiptastjóra yfir
þrotabú.
Fyrirspurnin
er í þrennu lagi
og er augljóslega
borin upp í fram-
haldi af nýlegri
skipan skipta-
stjóra yfir
þrotabú Baugs, sem sætti talsverðri
gagnrýni á opinberum vettvangi.
Helga Sigrún spyr í fyrsta lagi
hvort fordæmi sé fyrir því að skip-
aðir séu fleiri en einn skiptastjóri
fyrir þrotabú hérlendis, samanber
lög um gjaldþrotaskipti, þar sem
segir að ef sýnt þyki að störf skipta-
stjóra verði umfangsmikil geti hér-
aðsdómari skipað tvo menn eða
fleiri til að gegna þeim. Og ef svo
er, í hvaða tilvikum var það gert?
Er hætta á að skiptastjóri sé
farinn að dæma í eigin málum?
Í öðru lagi spyr þingmaðurinn
hvernig hæfi skiptastjóra sé metið
innan dómstólanna.
„Telur ráðherra í anda reglu 6.
tölulið 1. mgr. 75. gr. laga nr. 21/
1991 að skipa skiptastjóra í
þrotabúi mann sem hefur unnið að
verkefnum tengdum félaginu sem
tekið er til gjaldþrotaskipta eða
öðrum verkefnum tengdum því í
gegnum sama eignarhald? Telur
ráðherra hætt við að slíkur skipta-
stjóri sé farinn að dæma í eigin
málum?“ segir orðrétt í fyrirspurn-
inni.
Lagagreinin sem Helga Sigrún
vísar til hljóðar þannig: „Engan má
skipa í starf skiptastjóra nema hann
yrði ekki vanhæfur sem dómari í
einkamáli sem þrotamaðurinn eða
sá sem á kröfu á hendur þrotabúinu
ætti aðild að eða, ef félag eða stofn-
un er til gjaldþrotaskipta, í einka-
máli sem stjórnarmenn eða starfs-
menn sem hafa haft daglega stjórn
félagsins eða stofnunarinnar með
höndum ættu aðild að.“
Loks spyr Helga Sigrún dóms-
málaráðherra hvaða reglur gildi um
úthlutun þrotabúa til skiptastjóra
hjá héraðsdómstólum og hvort hún
telji að þær séu nægjanlega gagn-
sæjar.
Þingmaðurinn óskar eftir því að
dómsmálaráðherra leggi fram skrif-
legt svar á Alþingi.
Ráðherra spurður um
skipan skiptastjóra
Helga Sigrún
Harðardóttir
NOTENDUR mbl.is geta nú skoðað
innlend og erlend fréttamyndskeið
í GSM-símum sem ráða við slíka
þjónustu. Til að
virkja þjón-
ustuna nægir
að setja inn
slóðina
m.mbl.is/
sjonvarp í síma
viðkomandi. Í
sjálfvali eru
sýndar helstu fréttir, en hægt er að
velja á milli þess að skoða innlend
eða erlend myndskeið í framhaldi.
Nokkrar símgerðir bjóða einnig
upp á að hægt sé að snúa símunum
til að skoða stærri útgáfur mynd-
skeiðanna.
Hægt að
skoða mynd-
skeið mbl.is
í gemsum
mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
UMRÆÐUR um
aðgerðir vegna
skuldavanda
heimila og fyrir-
tækja stigmagn-
ast með hverjum
deginum. Einna
mest hefur verið
rætt um 20% nið-
urfellingu skulda
og sitt sýnist
hverjum. Í dag
opinberar Seðlabankinn útreikninga
sína vegna þeirrar hugmyndar en
forsætisráðherra vitnaði í þá um
miðja viku, og hafnaði jafnri niður-
fellingu skulda.
Tryggvi Þór Herbertsson, hag-
fræðingur og frambjóðandi Sjálf-
stæðisflokks, sem talað hefur fyrir
20% niðurfellingu skulda ritaði ný-
verið greinargerð um það sem hann
nefnir „Leiðréttinguna“. Ekki liggur
fyrir nákvæmt mat á þeim eignum
sem færðar voru yfir í nýju bankana
úr þeim gömlu. „Nafnverð þeirra var
um 6.000 milljarðar króna en bók-
fært verð þeirra gæti verið um 3.000
milljarðar – m.ö.o. afskriftir nema
um 50% af nafnverði. Lykillinn að
„Leiðréttingunni“ felst í þessari
staðreynd,“ segir í greinargerðinni.
Mætti fara báðar leiðir
Jafnframt segir að sú staðreynd
að mat á eignasafni bankanna geri
ráð fyrir að ekki náist að innheimta
nema hluta af skuldabyrði landans
leiði af sér að afskriftir þurfi að fara
fram. Tryggvi segir tvær leiðir eink-
um mögulegar, annars vegar jafna
leiðréttingu á öllum fasteignaskuld-
um heimilanna og niðurfellingu
skulda á einstaklinga sem byggist á
mati á greiðslugetu. „Reyndar mætti
vel hugsa sér að fara báðar leiðirnar
þar sem þær fara vel saman og t.a.m.
gerir fyrri leiðin hina síðari mun auð-
veldari í framkvæmd.“
„Leiðréttingin“ gerir ráð fyrir að
þegar sé búið að gera ráð fyrir afföll-
um í lánasafni þegar viðskipti urðu á
milli nýju og gömlu bankanna. Þessi
afföll verði síðan að hluta til leidd í
gegnum fjármálakerfið til viðskipta-
vina til að freista þess að fjölga
greiðendum svo hver og einn beri
minni skuldbindingar og geti staðið í
skilum.
Með þessu móti yrði meðal-
greiðsla hvers og eins til bankans
lægri en fjölgun þeirra sem standa í
skilum vegur upp lækkaða meðal-
greiðslu. Bankinn væri jafnsettur
fyrir og eftir aðgerð ef gjaldþrotum
fækkar um 25%. Þannig ætti „Leið-
réttingin“ að verða án kostnaðar.
Rjúfa þarf vítahring
Verkefni nýju bankanna, ef fyrr-
nefnt afskriftarmat er rétt, er að
ganga að heimilum og fyrirtækjum,
freista þess að innheimta kröfur. Í
greinargerðinni segir að ef að líkum
lætur muni um 3.000 milljarðar af
nafnvirði skuldanna ekki innheimt-
ast. Einnig að mikilvægt sé að hafa í
huga að þrátt fyrir að eignirnar séu
bókaðar á hálfvirði þá miðast inn-
heimtur við að 100% verði rukkuð.
„Fyrirtæki munu verða gjaldþrota
og þau munu segja upp starfsfólki
sínu sem getur þá ekki staðið lengur
við skuldbindingar sínar og fleiri
heimili þarf að gera upp. Eignir
verða settar á uppboð sem lækkar
enn eignaverð og eigið fé enn fleiri
Íslendinga mun brenna upp. Svona
gengur þetta koll af kolli og stöðugt
fleiri sogast inn í vítahringinn allt
þar til milljarðarnir 3.000 hafa verið
afskrifaðir.“
„Leiðréttingin“ ætti að vera til
þess fallin að rjúfa þann vítahring.
Mikil vinna þarf að fara fram
Í greinargerðinni segir að mikil
talna- og rannsóknarvinna þurfi að
fara fram áður en henni sé hrundið í
framkvæmd, og það þurfi að skoða
og magnsetja nákvæmlega þau áhrif
sem hún hefur í för með sér. Hún sé
að auki ekki endilega lausn fyrir öll
fyrirtæki og heimili.
Burt séð frá því er hún einföld í
framkvæmd og hefur merkjanleg
áhrif á hagkerfið án tafar, leiðréttir
áföllin í haust og komi efnahagslífinu
þannig í gang. Því sé full ástæða til
að skoða hugmyndina af mikilli al-
vöru.
Er „Leiðrétt-
ing“ lausnin?
Fjölgun þeirra sem standa í skilum veg-
ur upp á móti lægri meðalgreiðslum
Morgunblaðið/Heiddi
Lán Um mitt síðasta ár voru um 90 þús. lán hjá Íbúðalánasjóði og 65 þúsund
hjá bönkum og sparisjóðum. Sitt sýnist hverjum um 20% niðurfellingu skulda.
Tryggvi Þór
Herbertsson
Hvað um aðra lánveitendur?
Í greinargerðinni segir að gæta
verði jafnræðis enda gildi sömu rök
um viðskiptavini nýju bankanna og
Íbúðalánasjóðs, lífeyrissjóða, spari-
sjóða og smærri fjármálastofnana.
Ekki sé þó hægt að beita sömu
aðferðum.
Dæmi er tekið til að sýna hvernig
hægt væri að láta alla njóta jafn-
ræðis: „Nafnverð íbúðarlána nýju
bankanna nemur um 500 millj-
örðum króna, eða sem nemur rúm-
um 8% af lánasafni þeirra. Íbúða-
lánasjóður kaupir íbúðalán
bankanna með 20% afföllum af nýju
bönkunum. Verðið sem nýju bank-
arnir greiddu þeim gömlu fyrir
íbúðalánin er ekki enn vitað en talað
hefur verið um allt að 15% afföll frá
nafnvirði.
Það sem upp á vantar, 5%, væri
hægt að fjármagna með afföllum
annarra lána í nýju bönkunum.
Íbúðalánasjóður rukkar síðan við-
skiptavini sína um 80% af nafnverði
lánanna.“
S&S
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Margir litir
Bæjarlind 6 sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
Kápa kr. 7500
kjóll kr. 6900
leggings kr. 2500