Morgunblaðið - 27.03.2009, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 27.03.2009, Qupperneq 18
18 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009 Eftir Steinunni Ósk Kolbeinsdóttur Hvolsvöllur | Hjónin Svanfríður Hagvaag og Bjarni Óskar Pálsson eiga og reka verslunina Gallerý prjónles sem einnig er vinnustofa þeirra í sápugerð sem þau kalla í gríni Sápu- óperuna. Hjónin búa á Velli þar sem ein frægasta saga íslensk hófst, sjálf Brennu- Njálssaga. Ekki truflar sú staðreynd þau hjónin sem eru rósemdin uppmáluð og segj- ast aðallega vera í þessu til að hafa eitthvað fyrir stafni en Bjarni er kominn á eftirlaun. Fyrir þremur til fjórum árum fengu þau Svanfríður og Bjarni þá hugmynd að fram- leiða sápu. Í dag framleiða þau tvenns konar sápu, annars vegar fljótandi sápuna Bjarma og hins vegar fasta sápu sem þau klæða í ull og þæfa. Bjarmi er umhverfisvænn sápulögur sem má nota í hvaðeina á heimilum, við þrif og einnig í uppþvottavélar og þvottavélar. „Þegar við fengum þessa hugmynd að fara að framleiða sápur nutum við ómetanlegrar að- stoðar og ráðlegginga frá Iðntæknistofnun sem svo hét þá,“ segir Bjarni og bætir við: „Bjarma gerum við úr repjuolíu og leysir hann vel upp fitu, þannig að það er meira að segja hægt að þrífa með honum úr köldu vatni; hann meira að segja er svo öflugur að hann er mjög góður fyrir niðurfallsrörin. Hann hentar líka vel fyrir þá sem hafa of- næmi fyrir aukaefnum í sápu.“ Nautamör, birkilauf og þari En önnur aðferð er notuð í föstu sápuna. „Í hana notum við nautamör sem við fáum í slát- urhúsinu á Hellu. Þetta er hráefni sem ann- ars væri hent. Svo bætum við í hana ólífuolíu og kókosfeiti og gerum svo þrjár mismunandi útgáfur, eina með þara, aðra með birkilaufi og þá þriðju með barrnálum. Þessar sápur eru vinsælar og seljast vel í túristabúðum víða um land.“ Bjarni býr einnig til mjög sniðuga sápubakka úr endurnýttum viði t.d. harðviði sem notaður er utan um parketstafla. En í búðinni er fleira til en sápur. Þar má líta garn í öllum regnbogans litum. Mesta at- hygli fréttarita vekur yndislega mjúk og litrík kasmírull sem ekki fæst víða. Svanfríður seg- ir þau flytja ullina inn frá Kína. „Við flytjum sjálf inn ull og silkigarn frá Kína og einnig frá Indlandi. Það er kamelull, silki og kasmírull en einnig seljum við íslenska ull, lopa sem ég prjóna líka mikið úr og sel hér í búðinni, það eru töskur, treflar, húfur og ýmislegt fleira. Svo flytjum við inn prjóna sem ég get selt á afar hagstæðu verði þess vegna.“ Aðspurð segist Svanfríður hafa fundið seljendurna á netinu, það sé ekkert flóknara en það. Á einum veggnum getur að líta afar fal- legar og óvenjulegar glertölur. Um þær segir Svanfríður: „Við voru á ferð í Tékklandi í fyrra og komum í lítinn bæ á landmærum Tékklands og Þýskaland. Í bænum er mikil kristals- og glermunaframleiðsla og þar er t.d. tölusafn. Í gömlu húsi sem við komum í reyndist vera tölugerð. Þar var glerið brætt yfir opnum eldi og tölur steyptar í 100-200 ára gömul mót. Tölurnar eru síðan skreyttar með ekta gyllingu. Ég féll alveg fyrir þessum tölum og flutti dálítið inn af þeim. Margir eru hrifnir af þeim og búa jafnvel til hluti sem henta fyrir tölurnar, þannig að þær verða kveikjan að flíkinni.“ Í búðinni má finna ýmislegt fleira eins og rennilása, tvinna og blúndur auk föndurvöru af ýmsu tagi. Litla búðin við Ormsvöllinn á Hvolsvelli leynir því svo sannarlega á sér og er vel þess virði að skreppa með budduna í heimsókn til þeirra Svanfríðar og Bjarna, því þar er hægt að gera hagstæð innkaup. Morgunblaðið/Steinunn Ósk Leynir á sér Svanfríður Hagvaag og Bjarni Óskar Pálsson reka Gallerý Prjónles við Ormsvöll. Líka fallegt Þæfðu sápurnar eru á sápubrettum sem Bjarni smíðar úr endurnýttum viði. Bjarmi er unninn úr repjuolíu en í föstu sápuna er notaður nautamör sem Svanfríður og Bjarni fá í sláturhúsinu. Sápa úr nautamör á harðviðarbeði Hún lætur lítið yfir sér litla verslunin Gallerý prjónles, sem er við Ormsvöllinn á Hvolsvelli. Þegar inn er komið kemur þó í ljós að þar má kaupa ýmislegt sem ekki fæst víða eins og dýrindis kasmírull og handgerðar sápur. Í HNOTSKURN »Bjarni og Svanfríður fóru að þróasápugerðina fyrir þremur til fjórum árum og selja nú þæfðar sápur í túr- istabúðum um allt land. » Í Gallerý prjónles má kaupa allskonar prjónavörur sem fluttar eru beint inn frá Indlandi og Kína. »Húsnæði verslunarinnar nýta þaueinnig sem vinnustofu. Eftir Gunnhildi Steinarsdóttur nema í fjölmiðlun Í ÖÐRU herberginu var róleg tón- list, litríkar hjartalaga smákökur, ilmkerti og hugguleg stemning. Í hinu var fólki skipað að standa kyrrt, skammað þegar það hreyfði sig og sussað á það ef það mótmælti. Þennan gjörning, sem er jafn- framt lokaverkefni, fluttu út- skriftanemar í Prisma-námi. „Við erum að leika okkur með fjölmenningu í þessu verki,“ sagði Hrafnhildur Magnúsdóttir útskrift- arnemi. „Hjartalaga kökurnar er mismunandi á litinn og á bragðið og sýnir það fjölbreytileika mannsins. Sumar eru fallegar en vondar á bragðið, aðrar ljótar en bragðast vel. Þetta er einnig leikur með löng- un fólks. Hópur fólks fékk að koma inn í góða herbergið en öðrum var skipað að bíða fyrir utan. Það tákn- ar hvernig við flokkum fólk inn í landið okkar.“ Settir voru merki- miðar á enni fólks þar sem stóð t.d. dræsa, krútt, alki og lesbía en með því var vísað í þá stimpla sem við setjum hvert á annað.“ Anna Margrét Sigurðardóttir tók þátt í verkefni þar sem unnið var með tjáningarfrelsi. Það var unnið út frá dómi sem er nýfallinn í máli Bjarkar Eiðsdóttur, blaðamanns Vikunnar. „Við gerðum stutt mynd- band í ljósi þessa dóms og þess sem er að gerast í þjóðfélaginu. Áhersl- an var á andrými og frelsi ein- staklingsins,“ sagði Anna Margrét. Hrafnhildur og Anna Margrét eru báðar ánægðar með námið og segja það hafa opnað ýmsar dyr. Hreiður gegn því neikvæða Prisma er nýtt diplómanám og samstarfsverkefni Listaháskóla Ís- lands, Háskólans á Bifröst og Reykjavíkurakademíunnar. Hrund Gunnsteinsdóttir, forstöðumaður Prisma-námsins, segir þetta ný- sköpun í námi þar sem nemendur eru sjálft námsefnið, þeir eru mik- ilvægasta miðja námsins. „Við höf- um búið okkur til hreiður sem hlífir okkur við þeirri neikvæðu umfjöllun sem hefur verið í samfélaginu síð- ustu mánuði. Við ræðum um sam- félagsmálin en látum þau ekki taka yfir hjá okkur. Við hugsum út fyrir þetta allt,“ segir Hrund. Hún segir námið raunverulega vera viðbragð við ástandinu og að margar góðar hugmyndir hafi kviknað hjá nem- endum, svo sem sprotafyrirtæki og hugsmiðjur. Vinna með fjölmenningu Morgunblaðið/Heiddi Gjörningur Lokaverkefnin sem nemar í Prisma-námi kynntu í gær voru af ýmsu tagi. Nemendur eru hér með hjartalaga kökur með ólíku bragði. Útskriftarnemar í Prisma-námi trúa á hugsjónir og sjálfa sig VORHÁTÍÐ KFUM og KFUKverður haldin á morgun, bæði á Ak- ureyri og í Reykjavík, og verður hún sérstaklega stór og vegleg í ár þar sem samtökin eiga 110 ára afmæli. Hátíðin markar jafnframt upphaf skráningar í sumarbúðir og á leikja- námskeið KFUM og KFUK en ákveðið var að sameina skráninguna og hátíðina svo foreldrar gætu mætt, tekið númer og skemmt sér með börnunum í hoppiköstulum, í veit- ingasölunni og horft á skemmti- dagskrá meðan þeir biðu eftir að verða kallaðir upp til að ganga frá skráningu. Sumarbúðirnar alltaf vinsælar Að sögn Helgu Rutar Guðmunds- dóttur, stjórnarformanns Vind- áshlíðar, er búist við góðri skráningu í ár þrátt fyrir að fólk reyni að spara meira nú en nokkru sinni áður. „Það hefur verið mjög góð aðsókn und- anfarið. Við erum með nokkurn veg- inn 100% nýtingu í stóru sumarbúð- unum eins og Vindáshlíð og Vatnaskógi,“ segir hún. Sumarbúð- irnar voru stofnaðar 1899, 24 árum síðar hófst sumarstarf í Vatnaskógi en sumarstarf í Vindáshlíð hófst ekki fyrr en 1947. Ljóst er því að fjöldi Íslendinga hefur einhvern tím- ann dvalið þar og í tilfelli Helgu Rut- ar hafa fjórar kynslóðir kvenna eytt hluta úr sumri í Vindáshlíð. „Elsta dóttir mín er búin að fara í Vind- áshlíð frá því hún var lítil. Ég var í Vindáshlíð, mamma mín sem stelpa og amma en hún var þar sem sjálf- boðaliði. Þá var ekki búið að reisa húsið heldur gistu stelpurnar í tjöld- um.“ Síðan sumarbúðirnar í Vindáshlíð voru stofnaðar hafa þær notið mik- illa vinsælda. „Það eru einhverjir töfrar í Vindáshlíð, það er alveg ljóst,“ segir Helga Rut. „Það er eitt- hvað heilagt við þennan stað og mað- ur finnur það þegar maður er þar.“ ylfa@mbl.is „Það eru einhverjir töfrar í Vindáshlíð“ Morgunblaðið/Golli Vorhátíð Krökkunum stendur til boða að fá andlitsmálningu. Skráning í sumarbúðir hefst á morgun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.