Morgunblaðið - 27.03.2009, Side 20

Morgunblaðið - 27.03.2009, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009 Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Mjög er ábrattannað sækja hjá sjálfstæð- ismönnum, sem hófu landsfund sinn í gær. Fylgi Sjálfstæðisflokks- ins í skoðanakönnunum er það slakasta um margra ára skeið, eins og niðurstöður könnunar- innar, sem Morgunblaðið birtir í dag, sýna vel. Þar mælist Sjálf- stæðisflokkurinn með um 24% fylgi, minna en bæði Samfylk- ingin og Vinstrihreyfingin – grænt framboð. Flokkurinn geldur þess að hafa setið í ríkisstjórn í 18 ár og stýrt þeirri frjálsræðisþróun, sem gat af sér hið umsvifamikla fjármálakerfi Íslendinga sem nú er hrunið með skelfilegum afleiðingum. Sjálfstæðismenn eiga ekki annan kost við þessar aðstæður en að ráðast í uppgjör við fortíð- ina, rýna vandlega í stefnu sína og áherzlur, skoða hvar mistök hafi verið gerð – og biðjast af- sökunar á þeim. Það gerði Geir H. Haarde, fráfarandi formaður flokksins, í setningarræðu sinni á lands- fundinum í gær. Hann lagði áherzlu á að flokkurinn gerði hreint fyrir sínum dyrum og nálgaðist verkefnið „af fyllstu auðmýkt“. Geir viðurkenndi að mistök hefðu verið gerð, bæði í aðdrag- anda bankahrunsins og eftir að það átti sér stað. Hann dró fram a.m.k. þrennt sem sjálfstæð- ismenn bæru ábyrgð á. Í fyrsta lagi að fallast á kröfu framsókn- armanna um 90% íbúðalán eftir kosningarnar 2003. Sú ákvörð- un hleypti af stað óheillavæn- legri þróun sem sprengdi upp eignaverð í landinu og leiddi að lokum til gífurlegrar skuldsetn- ingar margra heimila sem þau súpa nú seyðið af. Í öðru lagi sagði hann tímasetningu skatta- lækkana á síðasta kjörtímabili hafa verið gagnrýnisverða. Þriðju og stærstu mistökin sagði Geir að hafa ekki staðið við upphafleg áform um dreifða eignaraðild þegar ríkisbank- arnir voru seldir fyrir rúmum sex árum. Hefðu sjálfstæð- ismenn haldið fast við upp- haflega markmiðið væru líkur á að bankarnir hefðu ekki orðið jafnsókndjarfir og áhættusækn- ir og raunin varð. Á þessu baðst formaður Sjálfstæðisflokksins hreinskilnislega afsökunar. „Við hefðum átt að standa öðru- vísi að málum, vera gagnrýnni í hugsun, standa við okkar sann- færingu,“ sagði hann. Fyrir landsfundi Sjálfstæð- isflokksins liggur skýrsla svo- kallaðrar endurreisnarnefndar flokksins þar sem er að finna harða gagnrýni bæði á for- ystumenn flokksins og ein- stakar ákvarðanir og stefnumál. Geir H. Haarde benti réttilega á að aðrir flokkar hefðu ekki ráð- izt í sambærilegt endurmat. Og ber þó Sjálfstæðisflokkurinn ekki einn ábyrgðina á landstjórninni í aðdraganda og eft- irleik bankahruns- ins. Formaður Sjálf- stæðisflokksins ræddi tillögu Evrópunefndar flokksins sem er sú að haldin verði svokölluð tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að Evrópusamband- inu, þ.e. greidd verði atkvæði um hvort sækja eigi um aðild og verði niðurstaðan sú verði hald- in önnur atkvæðagreiðsla um aðildarsamning. Eins og Morgunblaðið hefur áður bent á felur þessi leið í sér bæði kosti og galla. Fyrir Sjálf- stæðisflokkinn hefur hún þann kost að flokkurinn þarf ekki að taka efnislega afstöðu til ESB- aðildar. Forysta Sjálfstæð- isflokksins virðist ekki treysta sér í það á þessum erfiðu tím- um; óttast klofning flokksins. Og það er að mörgu leyti skilj- anleg afstaða. En um leið afsal- ar flokkurinn sér forystu- hlutverki í einu allra brýnasta hagsmunamáli Íslands. Evrópunefndin komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri búandi við krónuna lengur. Ís- land þarf sárlega á nýjum gjald- miðli að halda. Þetta verður Sjálfstæðisflokkurinn, eins og aðrir flokkar, að horfast í augu við. Eina greiðfæra leiðin að öðrum gjaldmiðli, með stuðn- ingi öflugs seðlabanka, er aðild að ESB og upptaka evrunnar. Innan Sjálfstæðisflokksins eru ýmsir þeirrar skoðunar að reyna eigi einhliða upptöku evru en ekki hefur enn verið sýnt fram á með sannfærandi hætti að sú leið sé pólitískt eða efnahagslega fær. Umræður og ályktanir flokksins um Evr- ópumál verða að taka mið af þessum veruleika ef hægt á að vera að taka þær alvarlega. Sjálfstæðisflokkurinn á erfitt verkefni fyrir höndum. Hans mikilvægasta hlutverk við nú- verandi aðstæður í íslenzku þjóðfélagi felst í því sem Geir H. Haarde vék að undir lok ræðu sinnar: „Við þurfum nú að verja þá einföldu hugmynd sem ég tel að allir sjálfstæðismenn og langflestir Íslendingar eigi sameiginlega; þá hugmynd að sköpun nýrra verðmæta, úr- vinnsla nýrra hugmynda og öfl- un nýrra tækifæra muni ekki eiga sér stað á kontórum ráðu- neytanna, í bakherbergjum stjórnmálaflokkanna eða í nefndum þingmanna. Þessi sköpun á sér stað meðal Íslend- inga sjálfra ef þeir hafa til þess svigrúm.“ Hættulegustu hugmyndirnar á Íslandi í dag eru þær sem ganga út á að ríkisforsjá geti bjargað okkur út úr kreppunni. Það var einkaframtakið sem gerði Íslendinga að vel stæðri þjóð og án þess að virkja það munum við ekki ná okkur upp úr þeim erfiðleikum sem þjóðin á nú við að stríða. Geir H. Haarde viðurkenndi mistök og baðst afsökunar} Uppgjörsfundur É g var staddur á South by South- west-tónlistarhátíðinni um síð- ustu helgi. Hátíðin, sem haldin er í Austin Texas, er ein sú stærsta sinnar tegundar í heim- inum. Það er erfitt að lýsa stærð hennar með orðum. Opinberar tölur gefa til kynna að um 1.500 hljómsveitir eða tónlistaratriði hafi kom- ið fram á hátíðinni en í raun er framboðið mun meira en það. Þessa einu helgi ársins er Aust- in, sem er ekkert sérlega stór borg á amer- ískan mælikvarða, algerlega úttroðin af tón- list. Fjölmargir tónlistarmenn, sem koma ekki fram á hátíðinni sjálfri, nota tækifærið og spila á börum bæjarins eða úti á götu. Hátíð- arhöldin eru að mestu bundin við miðbæinn. Flestir dagskrárliðir fara fram á svæði sem er lítið stærra en miðborg Reykjavíkur frá Klapparstíg niður á Ingólfstorg. Stemningin er vægast sagt yfirþyrmandi. Úti á götu heyrist ekki mannsins mál því sterkan og ramman rafmagnsgítarnið leggur yfir allt. Fólkið streymir í þúsundavís. Allir eru æstir því markmiðið er að vekja athygli á sér. Tónlistarmenn vilja plötusamn- inga. Plötufyrirtæki vilja tónlistarmenn. Flestir vilja þó bara minna á hversu svalir þeir eru. Ekkert kemur manni á óvart. Á gangstéttinni eru menn á stultum klæddir í geimbúninga að spila á kassagítara. Við enda götunnar sést dauðarokkssveit frá Japan fá sér húðflúr á augnlokin. Niðurstaðan er býsna þrúgandi. Þetta er eins og ef allur íslenski fiskiskipaflotinn sigldi á útopnu á Reykjavíkurtjörn. Á South by Southwest eru samankomnir svokallaðir „hipsterar“. Það eru manngerðir sem klæða sig á yfirvegaðan hátt og telja áunninn og djúpan smekk á tónlist og listum til sinna einkenna. Eitt helsta einkenni hip- steranna er þó að þeir vilja ekki telja sig hip- stera. Hipsterinn er sjálfmiðuð týpa sem tel- ur sig ávallt einstaka. Samt eru þeir allir meira og minna eins, og á South by South- west er það nánast pínlega augljóst. Þeir spássera um, allir í þröngum fimleikafötum eða tweed-drifnum dandy-klæðnaði með kol- svört Wayfarer-sólgleraugu undir ýktri milli- stríðsáraherraklippingu. Ein helsta iðjan á hátíðinni er að skoða aðra hipstera og reyna að toppa þá með enn ýktara útliti. Útlitsrembingurinn nær svo há- marki á tónlistarsviðum hátíðarinnar. Það er ekki nóg að vera í flottum fötum og með góða hárgreiðslu. Góð tónlist er svo jafnvel enn meira aukaatriði. Aðalmálið er að stilla upp flottum og svölum tækjabúnaði. Sviðsframkoman hefst áður en fyrstu tónarnir eru slegnir þegar hljóm- sveitirnar bera inn á sviðið risastór gítareffektabretti og flókin trommusett. Miklar og háar bassa- og gítarmagn- arastæður vöktu einnig hrifningu mína. South by South- west-hátíðin er því bæði fyrir eyru og augu og ég verð lengi að melta allan þann bræðing sem ég innbyrti þar. bergur.ebbi.benediktsson@gmail.com Bergur Ebbi Pistill Suður af suðvestri Meira en þreföld verð- mæti með fullvinnslu FRÉTTASKÝRING Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is S taðan er einfaldlega þann- ig að á sama tíma og okk- ur er ekki hleypt að samningaborði um stjórnun makrílveiða verður réttur okkar traustari,“ segir Adolf Guðmundsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna. Hann vísar til þess að árið 2007 veiddu íslensk skip um 35 þús- und tonn af makríl, en í fyrra varð aflinn 112 þúsund tonn. Spurður hvort Íslendingar væru óbilgjarnir í kröfum sínum, sagði Adolf að Íslendingar hefðu alltaf staðið fast á rétti sínum og svo væri í þessu máli. „Það er alveg klárt sam- kvæmt hafréttarsáttmálanum að ef um flökkustofn er að ræða ber að semja um hann. Makríllinn gengur inn í íslenska lögsögu, þar með öðl- umst við veiðirétt og ef Evrópusam- bandið og Noregur hefðu hleypt okk- ur að samningaborðinu fyrir tveimur árum hefði staða okkar verið mun veikari en hún er í dag,“ sagði Adolf. Tillit tekið til veiða til manneldis Sjávarútvegsráðherra gaf fyrr í þessum mánuði út reglugerð um makrílveiðar og er þar miðað við sama afla og í fyrra, eða 112 þúsund tonn. Í tilkynningunni segir m.a.: „Fyrir liggur að mikil verðmæti liggja í nýtingu markrílstofnsins og þá ekki síst til manneldis. Á síðasta ári fóru liðlega 5% af heildarmakríl- afla íslenskra skipa í vinnslu til manneldis sem skilar umtalsvert meiri verðmætum en fari aflinn í bræðslu og er auk þess meira í anda sjálfbærrar þróunar. Er því sérstaklega hvatt til þess af sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra að útgerðir leitist við að vinna sem mest af makrílafla sínum til manneldis. Þá er það skoðun ráð- herra að þegar og ef til úthlutunar aflahlutdeildar kemur, þurfi að eiga sér stað málefnaleg umræða, hvort taka eigi tillit til þess að hvaða marki veiðiskip hafi eða geti veitt makríl- afla til manneldis og þá hvort þau njóti þess sérstaklega við úthlutun.“ Ekki hefur verið gefinn út kvóti á einstök skip heldur eru veiðar frjáls- ar innan heildarkvótans. Við fyrri kvótasetningar hefur aflareynsla verið notuð til að ákveða aflamark. Adolf sagði að það gæfi augaleið að þegar kvóti á skip hefði verið ákveð- inn legðu menn meiri áherslu á að hámarka verðmæti. Til að svo mætti verða þyrfti einnig að breyta skipum og auka búnað til fullvinnslu um borð. Hann sagði að erfitt væri að eiga við makrílinn á þeim tíma þegar hann væri í íslenskri lögsögu. Fisk- urinn væri bráðfeitur og laus í sér og þyldi illa hnjask sem fylgdi veiðum og dælingu. Ef Íslendingar fengju hins vegar ákveðinn kvóta væri hægt að haga sókn og veiðitíma svo verð- mæti yrðu mun meiri en nú er. Sex milljarðar í þjóðarbúið Spurður hvort það væri réttlæt- anlegt að setja stærstan hluta makr- ílsins í bræðslu í ljósi þess að verð- mæti meira en þrefölduðust í manneldisvinnslu benti Adolf á að makríllinn færði þjóðarbúinu um sex milljarða króna í fyrra „og það eru mikil verðmæti“. Stofninn er talinn í góðu ástandi og hefur vaxið á síðustu árum. Reiknað er með að makríll gangi inn í íslenska lögsögu í sumar eins og síð- ustu ár. Ljósmynd/Birgir Þórbjarnarson Makríll ESB og Norðmenn hafa ekki hleypt Íslendingum að stjórn veiðanna, en göngur makríls inn í íslenska lögsögu hafa aukist mjög og afli sömuleiðis. Makríll hefur undanfarin sumur gengið á grunnslóð út af Suðaust- urlandi og smábátar frá Hornafirði veiddu makríl til manneldis í fyrra- sumar. Notaður var langur slóði með 80 krókum og þegar torfur fundust tók makríllinn litríka krók- ana grimmt. Norðmenn veiða tals- vert af makríl á handfæri, gæðin eru mikil og afurðin mjög verðmæt. Miklir markaðir eru fyrir makríl í Asíu, Evrópu og Norður-Ameríku. Tilraunir voru gerðar með verk- un makrílsins á Höfn og var hann m.a. reyktur og þótti herramanns- matur. Fitumagn í fiskinum virtist ekki vandamál. Ísfélag Vestmannaeyja og Hug- inn taka þátt í verkefni á vegum Matís og er m.a. unnið að könnun á því hvernig flokka má makríl frá öðrum fiski og hvernig vinnslu skuli háttað í frystiskipum. Einnig verða markaðir kannaðir. MAKRÍLL Á FÆRI ››

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.