Morgunblaðið - 27.03.2009, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 27.03.2009, Qupperneq 23
Umræðan 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009 GREIN þessi var skrifuð í september síðastliðnum en fékkst ekki birt fyrir hrun og ríkisvæðingu Glitnis örlagadaginn 29. sept- ember. Hér eru tekin fyrir fjögur atriði með ákveðin innbyrðis tengsl þótt þau verði ekki krufin til mergjar á þessu stigi. Legg áherslu á það sem tengist myntinni og eft- irlitsstofnunum, eins og andvaraleysi síðasta ár leiddi í ljós. ESB og myntin Ísland er eitt minnsta hagkerfi veraldar með sjálfstæða mynt. Í al- þjóðlegu umhverfi hefur verið sífellt erfiðara að halda krónunni úti. Helsta aðdráttarafl hennar hafa ver- ið ofurvextir sem löðuðu að erlenda fjárfesta vegna vaxtamunar sem hægt var að græða á. Lækkandi vextir, órói og óöryggi fældu að sama skapi fjármagnið frá Íslandi með fallandi gengi. Þetta hækkaði svo verð innfluttra vara og jók verðbólgu og því hefur verið um ákveðinn víta- hring að ræða. Yfir 70% skulda ís- lenskra fyrirtækja eru í erlendri mynt. Það virðist óumflýjanlegt að áður en langt um líður verði teknar upp aðildarviðræður við ESB og þá væntanlega tekin upp evra ef þjóðin samþykkir að ganga inn. Um það hafa fjölmargir og æ fleiri aðilar ályktað, meðal annars meirihluta að- ildarfélaga innan Samtak atvinnu- lífsins, fjármálastofnanir, kaup- menn, iðnrekendur, neytendur og ótal fleiri. Reynsla síðustu mánaða sýnir að krónan sem framtíðargjald- miðill í opnu hagkerfi er dauð. Eftirlitsstofnanir Það hefði þurft að stórefla miklu fyrr eftirlitsstofnanir svo sem Fjár- málaeftirlitið, Samkeppniseftirlitið, Neytendastofu, Neytendasamtökin og Skattrannsóknastjóra, þannig að þær geti brugðist hratt og markvisst við athugasemdum og kærum og kannað grunsamleg atvik í markaðs- og fjármálum. Þetta er tvímælalaust hagur almennings. Mál dagar oft uppi í kerfinu og svör koma seint um síðir. Leikreglur á markaði eru oft ekki nógu skýrar og gráa svæðið ákaflega vítt og aga- og ábyrgð- arleysi mikið. Þetta er ákaflega brýnt í dag að þessar stofnanir verða sterkar og til þeirra ráðist hæft fólk. Það er skýlaus krafa í hinu „Nýju Ís- landi“ að mannskapur og mannauður sé til staðar hjá þessum stofnunum að þær séu í stakk búnar til að sinna fljótt, vel og skilvirkt eðlilegu reglu- verki í þjóðfélaginu og óháðar póli- tískum afskiptum. Menntun og framleiðni Sem ráðgjafi fyrirtækja og ein- staklinga hef ég því miður séð fjöl- mörg dæmi þess að fólk hefur verið mjög auðveld „bráð“ bankanna, fjár- mögnunarfyrirtækja og annarra þegar kemur að óskynsamlegum lán- tökum. Bankarnir hafa nær einkum hugsað um arð eigenda sinna burt- séð frá því hvort skyn- semi felist í lántökunni. Gott og skylt dæmi um það eru 90% lánin sem var eitt helsta slagorð Framsóknarflokksins í síðustu kosningum og sök þeirra því mikil! Í flestum tilfellum hefur bankinn tryggt sig fyrir áhættu í gagn- vart lánum til ein- staklinga. Auglýsingar banka hafa oft verið vill- andi og misvísandi, dæmi um það eru margar auglýs- ingar varðandi erlend lán á árunum 2007 og 2008. Ég fullyrði að það væri þjóðhagslega mjög hagkvæmt að bæta námskeiði inn í námskrá grunnskóla og menntaskóla, þó ekki væri nema einni önn sem væri grunnur í hagfræði og fjármálum. Því miður þekkja margir til dæmis ekki mun á nafnvöxtum og raunvöxt- um eða mismunandi vísitölum, jafn- vel þótt um sé að ræða fólk sem lokið hafi háskólanámi. Þetta hef ég að meira að segja rekið mig á hjá þjón- ustufulltrúum í bönkum, sem í mörg- um tilfellum hafa ekki haft tilskilda þekkingu til að ráðleggja fólki. Þetta er ein af stórum orsökum þeirra gíf- urlegu skuldabyrði sem margt fólk býr við í dag. Kennitöluskipti Fyrirtæki okkar lendir í því árlega að einn eða tveir viðskiptavinir eða samkeppnisaðilar fara í þrot eða ár- angurslaust fjárnám. Þetta getur að sjálfsögðu komið fyrir grandvart og heiðarlegt fólk. Því miður sýnir reynslan að margir koma sér undan skuldunum með að stofna nýtt félag um reksturinn, en skuldirnar falla á kröfuhafa, oft lífeyrissjóði og op- inbera aðila. Oft eru það sömu að- ilarnir sem þetta stunda oftar en einu sinni enda siðferðisþröskuld- urinn lágur hvað þetta varðar hjá sumum. Flestar Evrópuþjóðir takmarka svigrúm stjórnenda sem lenda í gjaldþroti til þess að stofna og stýra nýjum fyrirtækjum með það að augnamiði að koma í veg fyrir svik og kennitöluskipti. Íslendingar eru mjög miklir eftirbátar annarra í þessum efnum. Þó þetta hafi eitt- hvað batnað með árunum er í raun fáránlegt hve auðvelt er að skipta um rekstrarfélög og losna við hluta skulda. Meiri menntun í fjármálum og hagfræði og áætlanagerð myndi hér hjálpa mikið til. Í Iðnskólanum og Hótel- og veitingaskólanum ætti til dæmis að leggja mikla áherslu á kennslu í þessum fögum þar sem nemendur þessara skóla fara oft út í rekstur. Í ferðaþjónustu, þar með talinn veitingarekstur, eru gjaldþrot því miður of tíð. Meiri kunnátta í fjármálum og áætlanagerð kæmi að miklu gagni. Eftirlitsstofnanir og fleira Hákon Þór Sindra- son skrifar um gildi þess að hafa kunnáttu í fjár- málum og hagfræði Hákon Þór Sindrason »Meiri menntun í fjár- málum og hagfræði og áætlanagerð myndi hér hjálpa mikið til. Höfundur er rekstrarhagfræðingur, hakon@netid.is mbl.isókeypis smáauglýsingar Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is G ra fí k a 2 0 0 9 GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA TEPPI FYRIR HEIMILIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.