Morgunblaðið - 26.04.2009, Page 4

Morgunblaðið - 26.04.2009, Page 4
4 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009 Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is S myglskútan Sirtaki hefði ef til vill læðst óséð um íslensku landhelgina ef ekki hefði komið til árvekni sjómanna sem gerðu lögreglu viðvart. Vaktstöð sigl- inga og Landhelgisgæslan fylgjast með sjóförum við landið en þetta dæmi sýnir að eftirlit með umferð á hafinu er ekki jafn virkt og með flugumferð. Meginmunurinn liggur í öflugu ratsjárkerfi Varnarmálastofnunar sem stöðugt vaktar loftrýmið. Skútur mikið notaðar til smygls Eftir Pólstjörnumálið haustið 2007 taldi Snorri Olsen tollstjóri að efla þyrfti eftirlit með skipum og flugvélum. Hann segir að eftirlit hafi verið hert af hálfu tollgæslunnar en vill ekki tilgreina nánar hvernig. Snorri bendir á að löng og víða strjálbýl strandlengja landsins bjóði ákveðinni hættu heim. Menn leiti allra leiða til að smygla. Sumt sé borið í töskum í gegnum flugstöð, falið í skósólum, bílum, gámum og skipum. „Það verður til þess að lögreglan, tollur og Landhelgisgæslan verða að loka öllum þessum leiðum,“ sagði Snorri. Samvinna við erlend toll- og löggæsluyfirvöld er mjög mikilvæg í baráttunni. „Við erum háð því að fá upplýsingar um grunsamlegar ferðir manna út frá höfnum erlendis. Þar skiptir verulegu máli að vera í góðum samskiptum við lögreglu- og toll- yfirvöld á viðkomandi svæðum,“ sagði Snorri. Skútur og smáflugvélar eru mikið notaðar til líkar þeim sem eru á varðskipunum, til að hafa eftirlit með hafinu næst landi. Þær kosta 10-15 milljónir hver. Halldór sagði að sérstakar eft- irlitsratsjár séu miklu dýrari og áætlaði að þær kostuðu 100-200 milljónir hver. Eins kveðst hann telja að það verði dýrara að breyta ratsjám Varn- armálstofnunar þannig að þær nýtist einnig til eftirlits með hafinu en að kaupa skiparatsjár. „Við getum byrjað á suðurströndinni og þeim heita stað sem Suðausturlandið er. Að vera t.d. með radara á Ingólfshöfða, Stokksnesi og í kring- um Papeyjarsvæðið myndi gjörbreyta eftirlitinu hjá okkur og hafa mikinn fælingarmátt.“ Hugmyndin er að tengja ratsjárupplýsingarnar við upplýsingar úr sjálfvirku tilkynningaskyld- unni hjá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. Ef rat- sjárnar sjá sæfar sem ekki er inni í tilkynninga- skyldunni eða hefur ekki tilkynnt komu sína er hægt að senda varðskip, þyrlu eða flugvél til að kanna málið. Eins að láta hafnaryfirvöld vita ef það nálgast höfn. Skútan Sirtaki lét Vaktstöð siglinga ekki vita af sér. Halldór sagði að öll skip sem koma í lögsög- una eða til landsins eigi að tilkynna sig, þó mis- jafnlega snemma. Skip sem t.d. sigla með hættu- legan farm eiga að tilkynna sig við brottför úr höfn erlendis. Fiskiskip eiga að tilkynna sig 6-12 klukkutímum áður en þau koma í efnahagslögsög- una og skútur sólarhring áður en þær koma inn fyrir 12 mílna landhelgina. Þótt Sirtaki kæmi ekki hér til hafnar átti hún engu að síður að tilkynna um komu sína í landhelgina, að sögn Halldórs. Gjörbreyting verður hjá Landhelgisgæslunni við að fá nýja eftirlitsflugvél sem von er á í gagnið í ágúst nk. Hún verður m.a. búin mjög góðum rat- sjám og innrauðum myndavélum. Þá er von á nýju og fullkomnu varðskipi í mars á næsta ári. Halldór kveðst vona að rekstrarfé fáist til að nýta þessi góðu tæki sómasamlega. smygls víða um heim og sjóleiðin löngum verið ein algengasta smyglleiðin, að sögn Kára Gunn- laugssonar, yfirmanns tolleftirlitsdeildar Toll- stjóra. Hann sagði smyglara notfæra sér að skemmtiskútur séu ekki í reglubundnum sigl- ingum. Ævintýramenn sigli um heimsins höf án þess að það veki sérstakar grunsemdir, enda hafa langflestir ekkert að fela. Kári sagði að tollgæslan skoði og afgreiði öll skip, þ.á m. skútur, sem komi frá útlöndum í ís- lenskar hafnir. Hins vegar sé erfitt að fylgjast með siglingum allra skipa um landhelgina, ekki síst þeirra sem ekki tilkynni sig og séu ekki með sjálfvirkan staðsetningarbúnað. Landhelgisgæslan vill ratsjár Halldór B. Nellett, framkvæmdastjóri aðgerða- sviðs Landhelgisgæslunnar og staðgengill for- stjóra, telur mikilvægt að koma upp ratsjáreft- irliti með ströndinni. Fjareftirlitskerfi, öðru nafni sjálfvirk tilkynningarskylda, séu þeim annmarka háð að hægt sé að slökkva á senditækjunum vilji skip dyljast. Ekki er hægt að forðast ratsjár- geisla nema á sérsmíðuðum skipum. Landhelg- isgæslan vinnur að því að setja upp ratsjá á fjall- inu Þorbirni við Grindavík. Hún á að vakta svæðið frá Vestmannaeyjum og inn á Faxaflóa. Ratsjárgeislinn mun ná 40-50 sjómílur á haf út. Með ratsjánni verður m.a. hægt að fylgjast með því að skip haldi sig á réttum siglingaleiðum fyrir Reykjanes. Halldór sagði að ratsjár Varnarmálastofnunar á fjórum hornum landsins dugi ekki til að hafa eftirlit með hafinu því geisla þeirra sé beint til himins. Þær sjái því aðeins loftför. Þannig hafi t.d. skútan Sirtaki, sem kom hlaðin fíkniefnum upp að landinu, ekki sést í ratsjá Varnarmála- stofnunar á Stokksnesi. Landhelgisgæslan hefur athugað með að kaupa venjulegar skiparatsjár, Stoppa þarf í götin  Smyglskútan Sirtaki læddist óséð um landhelgina þar til sjómenn gerðu viðvart  Landhelgisgæslan vill setja upp ratsjár til að hafa eftirlit með hafinu næst landi Sirtaki Algengt er að skútur séu notaðar til smyglferða víða um heim. Yfirleitt þykir ekki grun- samlegt þótt þær dúkki upp fyr- irvaralítið. Morgunblaðið/Árni Sæberg BELGÍSKA skútan Sirtaki flutti hing- að 109 kg af ýmsum fíkniefnum og smyglið því með allra stærstu smygl- málum sem komist hefur upp um. Annað dæmi um stórsmygl sem tengist Belgíu er gríðarlegt áfeng- issmygl með fiskibátnum Ásmundi GK 30 sem upp komst í október 1967. Skipverjar sigldu til Antwerpen og breyttu nafni bátsins. Þar lestuðu þeir um 11.000 lítra af séniver. Þeir sigldu síðan heim og hrepptu mann- skaðaveður á leiðinni. Vínið földu þeir m.a. í skipsflaki við Gelgjutanga. Upp um smyglið komst þegar toll- gæslunni bárust upplýsingar um áfengiskaupin frá Belgíu. Skipverjarnir fimm voru hver um sig dæmdir í 950 þúsund kr. sekt, skipstjórinn í fjögurra mánaða fang- elsi og hinir í þriggja mánaða fang- elsi. Áfengið var gert upptækt til rík- issjóðs og báturinn líka, þótt eigandi hans ætti enga sök á brotinu. Séniver í tonnatali Séniversmyglið vakti mikla athygli. STERKUR grunur leikur á að skútur hafi oftar komið við sögu við fíkni- efnasmygl en í Pólstjörnumálinu sem komst upp í september 2007 og nýlegu Gleðivíkurmáli. Þannig er talið að skútan Ely sem birtist í Höfn á Hornafirði og lá þar við bryggju 2007-8 hafi „ekki komið hingað upp á grín“ eins og viðmælandi orðaði það. Tenging Ely við mann sem hand- tekinn var í Gleðivíkurmálinu ýtir undir grunsemdir um að hún hafi verið notuð til smygls. Eftir að Pólstjörnumálið komst upp rifjaðist upp fyrir Fáskrúðs- firðingum að dularfull skúta, Lucky Day, hafði komið þangað fyr- irvaralaust í september 2005. Ann- ar skipverja á henni var tekinn í Pólstjörnumálinu. Dularfullar skútur Pólstjörnuskútan komin í land. STIKLUR HÆGT er að breyta ratsjárkerfi Varnarmálastofnunar svo það vakti hafið auk loftrýmisins, en það krefst dýrs viðbótarbúnaðar. Dæmi eru um að búnaður eins og stofn- unin ræður yfir sé notaður þannig í öðrum löndum. Ekki lágu fyrir upp- lýsingar um kostnað við viðbót- arbúnaðinn hjá Varnarmálastofnun. Hefðbundnar ratsjár sjá um 40 sjómílur á haf út. Til er sérstakur ratsjárbúnaður til að fylgjast með hafsvæðum. Hann er hafður í landi og sér út fyrir sjóndeildarhringinn. Ratsjárgeislarnir fara með yfirborði jarðar og því truflar hnattlögunin ekki sjónsviðið, sem er rúmlega 200 sjómílur. Slík ratsjá myndi því sjá út fyrir mörk efnahagslögsögunnar. Fyrirtækið Raytheon framleiðir rat- sjárnar og segir að þær séu gerðar til að greina lítil sæför og lágfleygar flugvélar. Í frétt um þessa ratsjá er nefnt að hún henti vel til að fylgjast með smyglurum, sjóræningjum, ólöglegum fiskveiðum og ólögleg- um innflytjendum. Einnig nýtist hún til að fylgjast með hafís og reki ís- jaka, við leit og björgun o.fl. Hjá Varnarmálastofnun er talið að um fimm ratsjár af þessari gerð gætu líklega fylgst með allri íslensku efnahagslögsögunni. Varnarmálastofnun hefur aðgang að upplýsingakerfum Atlantshafs- bandalagsins um skipaumferð og flugumferð. Þar eru upplýsingar um ferðir herskipa, kafbáta, herflugvéla bandamanna o.fl. Þetta samstarf gerði t.d. mögulegt að fá flugvél danska flughersins með skömmum fyrirvara til að leysa flugvél Land- helgisgæslunnar af við eftirfylgd skútunnar Sirtaki. Ratsjár gegn smyglurum á hafi úti 200 mílur Langdræg strandratsjá.Stattu vörð um viðbótarlífeyrissparnaðinn þinn. Kynningarfundur mánudaginn 27. apríl kl 17:15 í fundarsal Maður lifandi, Borgartúni 24. Auður Capital kynnir 585-6500 audur.is Allir velkomnir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.