Morgunblaðið - 26.04.2009, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009
29. apríl 1979: „Innan verkalýðs-
hreyfingarinnar er mikið verk að
vinna. Kommúnistum hefur með
hjálp krata tekizt að komast til
æðstu áhrifa og notfæra sér að-
stöðuna óspart í flokkspólitíska
þágu einis og þeirra er háttur. Á
meðan svo stendur er ekki við því
að búast, að verkalýðshreyfingin
verði í stakk búin til þess að
tryggja öllum launþegum sóma-
samleg lífskjör, eins og efni
standa til. Á þessum vettvangi
bíður verkalýðsráðs Sjálfstæð-
isflokksins mikið starf, en það
mun, ef að líkum lætur, einbeita
sér að því að auka frelsi innan
verkalýðshreyfingarinnar og að
faglegri baráttu launafólks; jafn-
framt vinna gegn stéttaátökum
undir kjörorðinu: „Stétt með
stétt“.“
. . . . . . . . . .
30. apríl 1989: „Á hátíðisdegi
verkalýðsins að þessu sinni stend-
ur þjóðin frammi fyrir því, að
sjávarútvegurinn er rekinn með
miklum halla og að lægstlaunaða
fólkið býr ekki við mannsæmandi
kjör. Hvernig er hægt að finna
leið út úr þessari sjálfheldu?
Morgunblaðið hefur að und-
anförnu fjallað nokkuð um það, að
matarkostnaður er óheyrilega hár
hér á landi samanborið við mat-
vælaverð í nálægum löndum.
Lækkun á verði matvæla og ým-
iss konar daglegri þjónustu er
bezta kjarabótin fyrir launþega.
Reynslan hefur sýnt okkur, að
með raunverulegri samkeppni er
hægt að lækka vöruverð. Sam-
keppni er hins vegar takmörkuð
hér vegna þess hve markaðurinn
er lítill. Þess vegna er spurningin
sú, hvort hægt er að knýja fram
lægra vöruverð, launþegum og
neytendum til hagsbóta, með því
að opna landið fyrir stóraukinni
samkeppni frá öðrum löndum. Í
því felst þá að auka verður frjáls-
ræði í innflutningi á matvörum
frá því, sem nú er. Samkeppni á
sviði bankaþjónustu, trygg-
ingaþjónustu, flutninga, svo eitt-
hvað sé nefnt, getur leitt til lægra
verðs á matvöru.“
Úr gömlum l e iðurum
Tillögur fram-kvæmda-stjórnar
Evrópusambands-
ins um að hverfa
frá reglunni um
hlutfallslegan
stöðugleika, auka valddreif-
ingu í sjávarútvegi og auð-
velda ákvarðanir komu fram í
svokallaðri grænbók í vikunni
sem leið. Sjávarútvegsstefna
sambandsins er nú í endur-
skoðun og grænbókin sýnir að
í þeim efnum er allt uppi á
borðinu. Í umræðum á Íslandi
hefur allajafna verið talað um
sjávarútvegsstefnu ESB sem
fasta stærð, en vitaskuld er sú
alls ekki raunin eins og þessar
tillögur bera vitni um.
Í tillögunum er brugðist við
gagnrýni um of mikla miðstýr-
ingu og að grundvallarreglur
og atriði, sem lúta að fram-
kvæmd, hafi nánast verið lögð
að jöfnu. Þessu eigi að breyta
þannig að framkvæmdastjórn-
in geri tillögur, sem aðild-
arríkin síðan hafni eða sam-
þykki.
Athygli vekur að í grænbók-
inni er ýmislegt haft til hlið-
sjónar úr íslenska fisk-
veiðikerfinu, sérstaklega hvað
varðar nauðsyn þess að rétt-
urinn til nýtingar og ábyrgð á
góðri umgengni um auðlindina
fari saman. „Notkun markaðs-
tækja eins og framseljanlegra
veiðiréttinda gæti verið hag-
kvæmari og ódýrari leið til að
draga úr offjárfestingu og leið
sem sjávarútvegurinn sjálfur
þyrfti að taka meiri ábyrgð á,“
segir í skýrslunni.
Skýrslan er ekki aðeins
merkilegt innlegg í umræðuna
um Evrópusam-
bandið vegna þess
sem í henni stend-
ur, heldur einnig
þar sem hún sýnir
að sjávarútvegs-
stefna þess er ekki
höggvin í stein. Það er rétt að
almennt myndu Íslendingar
sakir smæðar ekki hafa mik-
inn slagkraft í ákvarðanatöku
innan Evrópusambandsins, en
í krafti hinnar umsvifamiklu
útgerðar á Íslandi yrðu áhrif
landsins óhjákvæmilega mikil
í sjávarútvegsmálum. Í þeim
efnum segir sína sögu að áhrif
Íslands á mótun nýrrar sjáv-
arútvegsstefnu gætu orðið
töluverð þótt Íslendingar
standi utan Evrópusambands-
ins. Því ber hins vegar að
halda til haga að til að tillög-
urnar í grænbókinni nái fram
að ganga þarf samþykki aðild-
arríkjanna og það er alls ekki
gefið.
Endurskoðun sjávarútvegs-
stefnunnar stendur nú yfir og
mun ljúka í upphafi næsta ára-
tugar. Þetta er enn ein stað-
reynd, sem sýnir að það borg-
ar sig að hafa hraðar hendur í
Evrópumálum. Ætli Íslend-
ingar að ganga í Evrópusam-
bandið væri æskilegt að gera
það í tæka tíð til að hafa áhrif á
eitt stærsta hagsmunamál
þjóðarinnar – þann málaflokk,
sem veldur hvað hörðustum
deilum og mestum efasemdum
um ágæti aðildar – innan frá.
Hér gæti í raun verið um að
ræða tækifæri til að eyða þeim
þáttum, sem áhrifamestu and-
stæðingar Evrópusambands-
aðildar líta á sem helstu fyr-
irstöðuna.
Áhrif Íslendinga
yrðu meiri en á
öðrum sviðum}
Endurskoðun sjávar-
útvegsstefnu ESB
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
E
ftir því sem lengra hefur
liðið frá bankahruninu í
haust og atvinnuleysi
farið vaxandi hefur
álag aukist hjá prest-
um þjóðkirkjunnar, einkum á suð-
vesturhorni landsins. Jafnframt hef-
ur messusókn aukist og aðsókn í
barnastarf og svonefnda for-
eldramorgna. Stofnanir kirkjunnar
finna einnig fyrir þessu, eins og
Hjálparstarf kirkjunnar, þar sem
fjöldi beiðna um aðstoð hefur marg-
faldast á milli ára.
Vilborg Oddsdóttir veitir innan-
landsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar
forstöðu. Hún segir aukningu hafa
orðið í hverjum mánuði frá áramót-
um. Áður fyrr hafi stofnunin verið að
taka á móti beiðnum um aðstoð frá
120-130 fjölskyldum í mánuði. Nú er
þessi fjöldi kominn vel yfir 400 á mán-
uði. Aukning er því meiri en 200%.
Mest hefur álagið verið á höfuðborg-
arsvæðinu og Suðurnesjum en að
sögn Vilborgar hefur hjálparbeiðnum
til presta á landsbyggðinni fjölgað að
undanförnu. Nýir hópar fólks hafa
bæst við, segir Vilborg, og ekki síst
yngri fjölskyldur þar sem algengt er
að foreldrar séu 20-39 ára.
„Flestir nýir sem koma eru at-
vinnulausir og þar af leiðandi fáum
við jafnmarga karla og konur, sem er
breyting frá því sem áður var þegar
konur voru um 75% þeirra sem til
okkar leituðu. Við erum einnig að sjá
alltof mikið af krökkum á aldrinum
18-23 ára, sem ekki voru í skóla og
hafa misst sína vinnu. Þau eru bæði
menntunar- og atvinnulaus og hafa
greinilega ekki fjölskyldur til að
styðjast við,“ segir Vilborg.
Hjálparstarf kirkjunnar sinnir
beiðnum um aðstoð af öllu landinu,
gegnum presta og djákna, og vegna
aukins álags hefur orðið að skammta
matargjafirnar. Mikil aukning hefur
einnig verið á aðstoð Hjálparstarfsins
við lyfja- og lækniskostnað. Þá hefur
ráðgjöf aukist við fjölskyldur í vanda,
í samstarfi við prestana.
Sem fyrr segir hefur aðstoð við fólk
á landsbyggðinni verið að aukast og
stór hluti aðstoðar Hjálparstarfs kirkj-
unnar, eða 12%, farið til fólks á Suð-
urnesjum, þar sem atvinnuleysi hefur
verið mikið. Vilborg sér einnig fleiri
útlendinga leita sér aðstoðar, bæði far-
andverkamenn og fjölskyldufólk sem
sest hefur að á Íslandi. Í flestum til-
vikum er þetta fólk sem ekki getur
snúið til síns heimalands.
Velferðarsjóður á Suðurnesjum
Í samstarfi við Hjálparstarf kirkj-
unnar, fyrirtæki og einstaklinga var
stofnaður Velferðarsjóður á Suð-
urnesjum, sem hugsaður var sem við-
bót við þau úrræði sem kirkjan hefur
haft. Að sögn Skúla S. Ólafssonar,
sóknarprests Keflavíkurkirkju, safn-
aðist á sjöundu milljón króna og sjóð-
urinn hefur komið sér einkar vel í
annars konar aðstoð en matargjafir,
s.s. lyfja- og lækniskostnað.
Skúli segir fjölda þeirra sókn-
arbarna sem koma í viðtöl hafa marg-
faldast. Á fyrstu þremur mánuðum
ársins fengu jafnmargir mataraðstoð
á Suðurnesjum og allt síðasta ár.
Skúli vonar að um tímabundna erf-
iðleika sé að ræða en hann bendir á að
Suðurnesin hafi orðið hart úti í at-
vinnumálum á síðustu árum. Fyrst
var það kvótinn sem að stórum hluta
fór af svæðinu, síðan herinn og loks
skall kreppan á í haust.
„Núna þegar harðnar á dalnum
kemur ástandið niður á fólki af fullum
þunga. Mikill samdráttur hefur orðið
á þessu svæði og ekkert varanlegt
komið í staðinn, þó að tímabundnar
lausnir hafi verið uppi,“ segir Skúli.
Hann tekur að endingu fram að þrátt
fyrir alla þessa erfiðleika fólks þá beri
það sig vel. „Fólk er hnarreist og and-
inn hér í samfélaginu er góður, þrátt
fyrir allt sem á hefur dunið.“
Morgunblaðið/hag
Kirkjan Með auknu atvinnuleysi hefur beiðnum um aðstoð til stofnana eins
og kirkjunnar fjölgað verulega. Aðsókn í messur hefur einnig aukist í vetur.
Kirkjan fær margfalt
fleiri hjálparbeiðnir
ÞJÓNUSTA Á
KREPPUTÍMUM
Á vefnum kirkjan.is
er bent á nokkra
þætti í starfi kirkj-
unnar sem fólk getur
nýtt sér á erfiðum
tímum. Fyrir það
fyrsta eru nefndar guðsþjónustur
og bænastundir og m.a. birtur listi
yfir kyrrðar- og bænastundir í
kirkjum á höfuðborgarsvæðinu.
Jafntframt er bent á viðtals- og
símatíma hjá prestum, sem og nám-
skeið og fyrirlestra margs konar.
Kirkjan hefur m.a.
komið að starfi Rauða-
krosshússins í Borg-
artúni 25. Þar er opið
hús alla virka daga frá
kl. 12-17 og öllum heimill aðgang-
ur. Dagskráin er aðgengileg á
www.raudakrosshusid.is.
Að frumkvæði presta í Reykja-
víkurprófastsdæmi vestra, sr.
Pálma Matthíassonar og fleiri, kom
Þjóðkirkjan að undirbúningi
Rauðakrosshússins frá byrjun. Að-
koma kirkjunnar felst einkum í við-
veru presta og djákna fjóra daga
vikunnar, 1-2 klukkutíma í senn, og
einnig hefur starfsfólk Fjöl-
skylduþjónustu kirkjunnar staðið
vaktina. Að sögn sr. Maríu Ágústs-
dóttur héraðsprests hefur aðsóknin
farið vaxandi. Starfsfólk og sjálf-
boðaliðar RKÍ hafi lagt á sig gríð-
arlega vinnu frá því í febrúar til að
gera þessa miðstöð fyrir fólkið í
landinu sem best úr garði.
S
jálfstæðisflokkurinn hefur áratug-
um saman haft sterka ímynd. Sú
ímynd varð skyndilega að engu í
heimskulegri kosningabaráttu
flokks sem missti allt sjálfstraust
sama dag og hann komst í stjórnarandstöðu.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur í augum fjöl-
margra minnt sumpart á vel þjálfaðan her þar
sem allir marsera í takt vegna þess að flokks-
menn vita að ef þeir fara alvarlega út af spor-
inu þá verða þeir ekki lengur hluti af heild.
Þeir sem standa utan Sjálfstæðisflokksins
fylgjast af forvitni og furðu með þessum ríka
flokksaga og gera sjálfkrafa ráð fyrir að þegar
alvarleg vandamál steðji að flokknum sé herr-
áðið kallað saman og semji snjalla aðgerð-
aráætlun sem gangi fullkomlega upp. En í
kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins gekk
ekkert upp.
Þegar styrkjamálið margfræga kom upp steingleymd-
ist að kalla herráðið saman til að samræma framburð
manna. Hinir grunuðu voru því á harðahlaupum og
margsaga í vondu máli sem engin leið var fyrir flokkinn
að þvo sig af, þótt mikið væri reynt að klína skítnum á
einn mann, Guðlaug Þór Þórðarson, af því sú niðurstaða
hefði verið þægilegust fyrir flokkinn.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var eitt af stóru feil-
sporum flokksins. Þar var svo mikið lagt upp úr að halda
ánægðri litlu harðlínuklíkunni sem óttast Evrópusam-
bandið, að Evrópusinnar flokksins þögguðu niður í sjálf-
um sér. Afleiðingin var sú að þeir sátu uppi
með nagandi samviskubit, eins og hendir þá
sem svíkja sjálfan sig, Til að svæfa sam-
viskubitið og ná aftur Evrópusambands-
sinnum, sem flokkurinn hafði hrakið frá sér,
kokkuðu þessir sömu menn upp nýja stefnu
um upptöku evru í samráði við Alþjóða
gjaldeyrissjóðinn. Þar gleymdist að gera ráð
fyrir því að einhver mjög svo þreytandi fjöl-
miðlamaður fengi þá hugdettu að spyrja
menn innan Evrópusambandsins hvort Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði ákvörðunarrétt innan
sambandsins. Svo gerðu fjölmiðlamenn vit-
anlega einmitt þetta og fengu svarið: Nei,
ekki hægt. Forystumenn Sjálfstæðisflokks-
ins fóru í gríðarlega fýlu og fóru mörgum orð-
um um þann dæmigerða hroka embættis-
manna í Evrópusambandinu að taka ekki
mark á Sjálfstæðisflokknum.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skildu heldur ekkert í
því af hverju þjóðin fylltist ekki miklum fögnuði þegar
þeir stóðu fyrir nær endalausu málþófi á Alþingi rétt fyr-
ir kosningar. Þar töluðu þeir tímunum saman en enginn
aðrir en þeir botnuðu í því hverju þeir voru að mótmæla.
Það er leitt að hafa svo mikinn tíma til að tala en gera
það af slíkum vanmætti að engin skilaboð komast áleiðis.
Nú þarf Sjálfstæðisflokkurinn að taka rækilega til
heima hjá sér og hugsa upp á nýtt. Og láta af fýluköst-
unum. Auðmýkt myndi heldur ekki skaða – svo ekki sé
nú talað um einlæga iðrun. kolbrun@mbl.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
Pistill
Löskuð ímynd Sjálfstæðisflokks
Óskar Magnússon.
Ólafur Þ. Stephensen.
Útgefandi:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal.
Útlitsritstjóri:
Árni Jörgensen.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/