Morgunblaðið - 26.04.2009, Síða 26
26 Landið okkar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009
Auðna og þróttur, oft má sjá,
eru fljótt á þrotum.
Gakktu hljótt um garða hjá
gömlum tóttarbrotum.
Svo segir hún m.a.:
Inni í þröngu klettakró
Króká söng í næði,
leiddist öngum, er hér bjó,
öll þau löngu kvæði.
Myndir hreinar hjúpast frið,
hugans leynum orna.
Hér var einatt hinkrað við
hestasteininn forna.
Þau myndljóð sem Raxi yrkir í þessari opnu
og orna okkar hugans leynum, sýna auðvitað að-
eins brotabrot af þeim fjársjóði sem felst í
kynjamyndum landsins okkar. Hvernig væri að
nema staðar um stund og beina augum okkar að
þeim? Þær eru alls staðar ef að er gáð. Við eig-
um heilt land af margbrotnum myndum og í
senn svo miklu meira ef við gerumst ekki
græðgismenn á gæði þess.
freysteinn@mbl.is
Þegar landið vaknar af vetrarblundi,lýkst almáttugt auga þess upp ognáttúran losnar úr læðingi, leikur viðhvern sinn fingur og framkallar alls
kyns furðumyndir í landið. Það er fátt
skemmtilegra en að rýna í þessar myndir, gefa
ímyndunaraflinu lausan tauminn og eignast
hlutdeild í þeirri kynjaveröld sem landið okkar
er.
Á stærstu ljósmyndinni, þeirri fyrir ofan
auga landsins, flæmist drekinn mikli fram
Suðurland í allri sinni makt, sem okkur mönn-
unum fer bezt á að virða, þegar við virðum
drekann fyrir okkur.
Efst til hægri teiknar Tungnaá ekki bara
tvær kynjamyndir í landið, heldur eru þær
fleiri og ekki allar eins. Þar fyrir neðan hlykkj-
ast Miðgarðsormur hjá Borg á Mýrum. Næst
teiknar á sig í vatn fram og neðst til hægri gef-
ur að líta kjarvalskt andlit í landinu.
Í ljóðinu Krókárgerði lýsir Ólína Jón-
asdóttir frá Silfrastöðum í Skagafirði þeim
hugmyndum sem hún sér í landinu. Hún byrj-
ar á því að minna okkur á að lesa landið með
virðingu:
Kynjamyndir landsins