Morgunblaðið - 26.04.2009, Síða 10
10 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009
Áætlanir gera ráð fyrir að 75 pró-sent af lánum gömlu bankanna
verði afskrifuð, samkvæmt frétt í
Morgunblaðinu í gær.
Það er gríðarlega hátt hlutfall semhægt er að túlka á tvo vegu.
Annars vegar er ljóst að stjórn-endur bankanna voru nánast
fífldjarfir í lán-
veitingum. Að
hluta til var það
til að bjarga hlut-
um stöðugt fyrir
horn þegar í óefni
var komið
snemma árs 2008.
Að öðru leyti var
það vegna lélegr-
ar áhættustýr-
ingar innan bank-
anna.
Hins vegar er líka hægt að rekjaþessar tölur til stöðu íslenskra
fjárfesta og fyrirtækja í dag. Eign-
arhaldsfélög eru flest ónýt og
rekstrarfélög berjast í bökkum.
Því er rétt sem Sigmundur DavíðGunnlaugsson segir að þessar
upplýsingar gefa mikilvæg skilaboð
um stöðuna í dag. Ef þær liggja fyrir
á að opinbera þær.
Steingrímur J. Sigfússon réttlættileyndina hins vegar með dulkóð-
uðum rökum. Einhvern tíma hefði
hann einfaldlega spurt: Hvað með
hagsmuni almennings?
Samkvæmt upplýsingum frá fjár-málaráðuneytinu stóð til að
birta skýrslu Oliver Wyman um
eignir og skuldir bankanna. Að
minnsta kosti að hluta til. Blaða-
menn Morgunblaðsins höfðu búið sig
undir kynningarfund.
Svo var hætt við. Lok, lok og læs.Og almenningur þarf áfram að
geta sér til um stöðuna á Íslandi.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Innilokaður Oliver Wyman
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra og formaður Samfylking-
arinnar er ekki lýðskrumari, en hún
hefur oft verið einkar „popúlísk“ í
málflutningi; verið einfari í pólitík,
sem staðið hefur á sínu, hvað sem
tautaði, og oft haft sitt fram.
Jóhanna nýtur trausts þjóðarinnar,
langt umfram aðra stjórnmálamenn
þessa lands og langt út fyrir raðir
Samfylkingarinnar. Nú er hún búin
að draga Samfylkingarvagninn, alein,
alveg frá því að ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Samfylkingar hrökklaðist frá völdum í jan-
úarlok og ný minnihlutastjórn Samfylkingar og
Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs var mynd-
uð hinn 1. febrúar sl.
Jóhanna og Samfylkingin eru væntanlega að
fagna þolanlegri útkomu Samfylkingarinnar einmitt
nú, þegar þessi pistill kemur þér fyrir augu, lesandi
góður. Líkast til eru Steingrímur J. og Katrín Jak-
obsdóttir, sem í sameiningu hafa dregið VG-vagninn
undanfarna 84 daga, að gera slíkt hið sama með fé-
lögum sínum í VG og líkast til er hamingjan í þeirra
herbúðum miklu meiri en hjá Samfylkingu, því það
var ekkert sem benti til annars í liðinni viku en að
Vinstri græn ynnu stórsigur í þessum kosningum.
Og þá kemur nú að hinni skemmtilegu hlið kosninga-
niðurstöðunnar.
Ef við gefum okkur að hástökkvari kosninganna
hafi verið VG og flokkurinn hafi unnið stórsigur,
jafnvel tvöfaldað kjörfylgi sitt frá því 2007 og Sam-
fylkingin hafi bara náð að halda í horfinu, eða rúm-
lega það, eins og skoðanakannanir hafa gefið til
kynna undanfarna daga að yrði niðurstaðan, þá væri
nú gaman að vera fluga á vegg hjá oddvitum 84 daga
ríkisstjórnarinnar, þeim Jóhönnu og Steingrími J.,
þegar þau setjast niður og semja um áframhaldandi
stjórnarsamstarf.
Hvers vegna segi ég þetta? Jú, ef vinstri græn
hafa nánast tvöfaldað fylgi sitt á landsvísu, frá því
sem var 2007, og Samfylkingin hefur nánast sama
fylgi og fyrir tveimur árum, þrátt fyrir óumdeilda of-
urstjörnu, Jóhönnu Sigurðardóttur, sem vagnstjóra,
er þá ekki eðlileg krafa, af hálfu VG, að skipt verði
um vagnstjóra? Er ekki eðlilegt að VG líti svo á, að
ótvíræður sigurvegari kosninganna, formaður VG,
Steingrímur J. Sigfússon, eigi að vera í forsæti þeirr-
ar ríkisstjórnar, sem hið trúlofaða par, Steingrímur
J. og Jóhanna, lýsti yfir að flokkarnir hygðust
mynda að afloknum kosningum?
Hafi niðurstöður kosninganna verið í samræmi við
kannanir undanfarinna daga fyndist
mér mjög skiljanlegt að þessi krafa
kæmi fram af hálfu VG, en hvernig
undirtektirnar yrðu við slíkri
kröfu hjá Samfylkingu og Jó-
hönnu er ekki gott að segja til um.
Jóhanna hefur sótt í sig veðrið í
kosningabaráttunni. Hún hefur
sjóast verulega og komið fram af
ákveðni og eindrægni, talað tæpi-
tungulaust, án þess þó að segja
mikið og ekki lofað miklu upp í
ermina á sér.
Steingrímur J. hefur ekki sagt neitt meira en
Jóhanna og verið óskýr og loðinn í svörum, þeg-
ar við frétta- og blaðamenn höfum þjarmað að
honum hvar á skera niður, hversu mikið,
hvernig og hvaða skatta á að leggja á og
hversu háa og á hverja.
Allur þessi glaðningur til handa þjóðinni bíður
læstur ofan í skúffum í fjármála- og forsætisráðu-
neytinu, því hvorugur oddviti flokkanna hefur talið
það vera vænlegt til atkvæða að matreiða sannleik-
ann ofan í vonlitla og dapra þjóð sína. Er það ekki
langlíklegasta skýringin á því að okkur hefur ekk-
ert gengið að fá fram raunverulegar upplýsingar
um hvað þessi verðandi stjórnvöld okkar hyggjast
gera í kjölfar kosninga?
Svo verður fróðlegt að fylgjast með því hver
verður niðurstaða flokksformannanna í Evrópu-
sambandsmálum. Hvort mun Jóhanna eða
Steingrímur J. gefa eftir? Útspil Björg-
vins G. Sigurðssonar í borgaraþætt-
inum í liðinni viku var eitthvert
það allra vitlausasta sem heyrst
hefur í langan tíma. Hann setti
VG afarkosti í beinni útsend-
ingu, sem greinilega hefur
kostað Samfylkinguna einhver
prósentustig í stuðningi. Í
þokkabót lýsti hann því yfir að
hann myndi sækjast eftir ráð-
herraembætti! Vitanlega verð-
ur fyrrverandi banka-
málaráðherra ekki gerður að
ráðherra á ný. Um það hljóta þau
Jóhanna og Steingrímur J. að
vera sammála og skiptir þá
litlu þótt Össur Skarphéð-
insson vilji veg Björgvins sem
mestan.
agnes@mbl.is
Agnes segir …
Björgvin G. Sigurðsson
Hvort þeirra fær stólinn?
Traust Jóhanna nýtur
trausts þjóðarinnar,
langt umfram aðra
stjórnmálamenn
þessa lands og langt
út fyrir raðir Sam-
fylkingarinnar.
! "
#$%
& ' ( )*+,,# )*#-,#
!" # $ %
&'
" ' . ' /
( )
* + ,-
(+% "
-+ &*
.
,
000 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 9.00 í gærmorgun að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík -1 léttskýjað Lúxemborg 8 heiðskírt Algarve 12 heiðskírt
Bolungarvík -1 skýjað Brussel 9 heiðskírt Madríd 7 heiðskírt
Akureyri 1 skýjað Dublin 8 skýjað Barcelona 13 léttskýjað
Egilsstaðir 3 súld Glasgow 7 þoka Mallorca 14 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 4 heiðskírt London 11 heiðskírt Róm 9 heiðskírt
Nuuk 1 snjókoma París 9 heiðskírt Aþena 15 heiðskírt
Þórshöfn 8 léttskýjað Amsterdam 12 heiðskírt Winnipeg -3 heiðskírt
Ósló 3 heiðskírt Hamborg 10 heiðskírt Montreal 17 skýjað
Kaupmannahöfn 9 heiðskírt Berlín 10 heiðskírt New York 15 heiðskírt
Stokkhólmur 11 heiðskírt Vín 11 heiðskírt Chicago 21 skúrir
Helsinki 9 heiðskírt Moskva -1 léttskýjað Orlando 19 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
STAKSTEINAR
VEÐUR
26. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 0.53 0,2 6.54 3,8 13.05 0,1 19.14 4,2 5:16 21:36
ÍSAFJÖRÐUR 3.02 0,1 8.52 2,0 15.15 -0,0 21.13 2,2 5:07 21:54
SIGLUFJÖRÐUR 5.04 -0,0 11.29 1,2 17.20 0,1 23.34 1,3 4:50 21:38
DJÚPIVOGUR 4.07 2,0 10.11 0,3 16.27 2,3 22.46 0,3 4:42 21:09
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á mánudag
Austlæg átt, yfirleitt á bilinu
3-8 m/s. Víða dálítil úrkoma og
hiti 0 til 7 stig, hlýjast syðst.
Á þriðjudag og miðvikudag
Suðaustan strekkingur eða all-
hvass vindur og rigning eða
súld með köflum. Yfirleitt hæg-
ari og þurrt norðaustanlands.
Hiti 3 til 10 stig.
Á fimmtudag og föstudag
Austlæg átt með vætu um
sunnanvert landið, annars úr-
komulítið. Heldur kólanandi.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Austlæg átt, 5-10 metrar á sek-
úndu og dálítil væta í flestum
landshlutum. Hiti 0 til 9 stig,
hlýjast sunnanlands.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn