Morgunblaðið - 26.04.2009, Side 12

Morgunblaðið - 26.04.2009, Side 12
12 Stjórnmál MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009 VERKEFNI RÍKIS Uppgjör við lánardrottna gömlu bankanna vegna nýju bankanna Dregist hefur að ganga frá skilum milli gömlu og nýju bankanna. Í síðustu viku barst mat á eignum sem fluttar voru yfir í nýju bankana úr þeim gömlu og stóðu að því erlendar endurskoðunarskrif- stofur og alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækið Oliver Wyman. Leynd hvílir yfir þeim niðurstöðum, þrátt fyrir að kallað hafi verið eftir þeim á Alþingi, en þær verða grundvöllur samninga um skilin við erlendu bankana. Víst er að þrefað verður um matið og togast á um það, en stefnt er að því að ljúka viðræðunum með undirskrift í maí. Svo kann að fara að lánardrottnar gömlu bankanna taki yfir þá nýju. Ef af slíkri sameiningu verður er líklegast að það gerist í nýja og gamla Kaupþingi, þar sem lánardrottnar hafa tapað minnstum verðmætum og hafa mest að verja. Einnig getur orðið af sameiningu hjá Íslandsbanka, en ólíklegt er að það gerist í Landsbankanum, þar sem lítið er til skiptanna vegna Icesave-skuldbindinga og málaferli líkleg út af neyðarlögunum. Nást samningar um Icesave? Ekkert hefur þokast í samningaviðræðum Íslendinga og Breta um Icesave- skuldbindingarnar. Þegar samþykkt var af þinginu að hefja samninga- viðræður við Breta var lagt til grundvallar að ekki yrði „fallið frá þeim laga- rökum sem Ísland hefur sett fram“ og jafnframt var forsenda samkomulags þar að lútandi við ESB að tekið yrði tillit til sérstakra aðstæðna á Íslandi vegna bankahrunsins. Á bak við það lágu ákveðin atriði, talað var um langan lánstíma, tímabil þar sem ekki væri greitt af höfuðstólnum, að vextir yrðu skikkanlegir og endurskoðunarákvæði ef aðstæður breyttust. En fregnir hafa borist af því að viðræðurnar séu komnar í hnút, meðal annars vegna kröfu Breta um 6,7% vexti á lán til Íslands vegna Icesave, en það myndi kalla á tuga milljarða greiðslur í vaxtakostnað á ári. Samið um krónubréfin? Það á eftir að ganga frá samningi við eigendur krónubréfanna, sem hefur áhrif til veikingar á gengi krónunnar. Á meðan hundruð milljarða í krónu- bréfum bíða þess að fara úr landi, þá verða menn tregir að aflétta gjaldeyrishöftum og það hindrar að milliríkjaviðskipti gangi eðlilega fyrir sig. Seðla- bankinn var með áætlanir um hvernig semja mætti um jöklabréfin síðastliðið haust og var Citigroup til ráðgjafar, en málið stöðvaðist hjá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum. Nýverið kom fram hjá viðskiptaráðherra að óformlegar þreifingar hefðu farið fram við fulltrúa eigenda krónubréfanna, sem eru fyrst og fremst þýskir bankar, en enginn botn hefur fengist í það. Skortur á trúverðugri peningastefnu Talað hefur verið um það mánuðum saman að endurskoða þurfi peningastefnu Seðlabankans. Ráðist var í breytingar á yfirstjórn Seðlabankans af nýrri ríkisstjórn, en ekki hefur verið hróflað við peningastefnunni. Það hefur verið gagnrýnt að krónan hafi farið lækkandi í kjölfarið í andstöðu við efnahagsspár fyrr í vetur. Seðlabankinn virðist hafa dregið sig í meira mæli út af gjaldeyris- markaðnum og það líða dagar þar sem nánast engin viðskipti eru með krónuna. Umsókn um aðild að ESB? Samfylkingin gerði það að forgangs- atriði að strax eftir kosningar yrði sótt um aðild að Evrópusambandinu, en Vinstri grænir segja í landsfundar- ályktun sinni að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusam- bandsins „og er aðild að Evrópusam- bandinu því hafnað“. Nær ómögulegt virðist að samræma þessi tvö sjónarmið í ríkisstjórnar- samstarfi. Og jafnvel þótt farið yrði í aðildarviðræður er afar tvísýnt um að þjóðin samþykki aðildarsamning ef í því felst að hún afsali sér forræði yfir fiskimiðunum. Hver sem niðurstaðan verður, þá blasir við það erfiða verkefni að móta stefnu til framtíðar í gjaldmiðilsmálum, hvort stuðst verði áfram við íslenska krónu eða skipt yfir í annan gjaldmiðil. Breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu? Ef farin verður fyrningarleið í sjávarútvegi, þar sem stjórnvöld leysa til sín aflaheimildir, má búast við að það verði eitt af stóru átaka- málunum á komandi kjörtímabili. Víst er að það grefur undan skuldsettum útgerðum í landinu, smáum sem stórum. Ný stjórnarskrá? Ef Alþingi samþykkir stjórnarskrárbreytingar eftir kosningarnar, þá þarf að boða til nýrra kosninga eftir gömlu aðferðinni og síðan þarf nýtt Alþingi að samþykkja breytingarnar eftir þær kosningar. Það verður því að teljast hæpið, að nýr þing- meirihluti ráðist í breytingar á stjórnarskránni, fyrr en hillir undir lok kjörtímabilsins. Ljóst er að ekki verður efnt til stjórnlagaþings með lög- gjafarvald, án þess að blása aftur til kosninga. En ef vilji er til, þá gefst svigrúm til þess að efna til ráðgefandi stjórnlagaþings. Álver í Helguvík og á Bakka? Álversframkvæmdir í Helguvík fóru í gegn á síðustu dögum þingsins. Enn getur þó reynt á úrskurði í umhverfismálum áður en sú framkvæmd og nauðsynlegar virkjanaframkvæmdir ganga endan- lega í gegn. Ólíklegt er að álver verði reist á Bakka ef ríkisstjórnin situr áfram, enda voru þingmenn Vinstri grænna andvígir álveri í Helguvík, og auk þess hefur iðnaðarráðherra lýst því yfir að nóg sé komið af áli í landinu og hann vilji nýta orkuna til annarra hluta. Uppfylla skilyrði fyrir næsta hluta af láninu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum? Það hefur dregist að fá viðbótarlán frá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum. Skýringin felst meðal annars í þeirri óvissu sem ríkt hefur í stjórnmálunum. Einnig hafa vaknað spurningar um það, hvort ríkisstjórnin standi við þær áætlanir í ríkisfjármálum sem kynntar hafa verið Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Öðru Evrópu- ríki, Lettlandi, hefur verið neitað um viðbótarlán og þar hefur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gert kröfu um að staðið verði við 40% niðurskurð í ríkisfjármálum. Lækkun stýrivaxta? Ef til vill er ekkert eins brýnt fyrir atvinnulífið í landinu og vaxtalækkun. Lítið hefur orðið úr lækkun stýrivaxta Seðlabankans vegna óvissunnar sem fylgdi stjórnarskiptunum og kosningunum sem fram fóru í gær. Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn ræður ferðinni í þeim efnum og hefur viljað lækka vextina í litlum skrefum til þess að skekkja ekki markaðinn. Flest bendir því til að lækkunarferlið hafi nú þegar lengst verulega. Afnám gjaldeyrishafta? Aflétta þarf gjaldeyrishöftum til þess að milliríkjaviðskipti geti farið fram með eðlilegum hætti og jafnframt til að greiða fyrir erlendri fjárfestingu hér á landi og tryggja lífsgæði almennings. Bankamál, skattar, atvinna landsmanna, afkoma ríkissjóðs, niðurskurður og uppbygging. Allt þetta og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.