Morgunblaðið - 26.04.2009, Side 19

Morgunblaðið - 26.04.2009, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009 KYNNINGAR- DAGAR 24. apríl - 2. maí 15% AFSLÁTTUR Hverfisgötu 6 • 101 Reykjavík • Sími 562 2862 Stærðir 42-54 andamál land hefur skorið sig úr öðrum Norð- urlöndum þar sem hlutfall atvinnuleysis hefur verið hátt hjá innflytjendum. Hér hafa allir fengið vinnu. Nú verður áhugavert að sjá hvernig málin þróast hjá okkur.“ Edda segir að það hafi komið sér á óvart hversu fáir hafi í raun áhuga á málefnum innflytjenda. „Það hefur ekki verið mikil umræða um innflytj- endur á síðustu mánuðum. Við höfum í mesta lagi fengið öðru hverju upp- lýsingar um stöðuna hvað varðar at- vinnuleysi,“ segir Edda og ítrekar að málefni flóttamanna megi ekki verða útundan. „Ríkið er búið að ákveða að taka árlega á móti hópi flóttamanna. Frá árinu 2005 er búið að taka á móti 90 manna hópi, sem er búsettur hérna á höfuðborgarsvæðinu. Í þessum hópi eru um 60 börn. Athyglisvert er að það hefur enginn fagaðili sett sig sér- staklega inn í hvað það er að vera flóttamannabarn á Íslandi. Börnin koma vissulega hingað í öryggi og verndað umhverfi en það eru ýmis sértæk vandamál sem þessir ein- staklingar þurfa að takast á við,“ seg- ir Edda sem vill að Íslendingar nýti sér þekkingu Norðurlandanna. Þurfum ekki að finna upp hjólið „Við þurfum að ná okkur í þekk- ingu. Þar virðumst við ætla að finna upp hjólið í stað þess að notfæra okk- ur reynslu hinna Norðurlandanna, sem eru búin að taka á móti þús- undum flóttamanna. Mér finnst það vera norrænt samstarf í hnotskurn að deila reynslu og þekkingu,“ segir Edda sem er nýkomin frá Dan- mörku, þar sem hún er í námi sam- hliða vinnu sinni hér. „Þar hitti ég margt fagfólk, sem er að finna með flóttamenn. Danir eru komnir miklu lengra en við, til dæmis hvað varðar heilsu flóttamanna. að halda voru þeir velkomnir en svo þegar veislan er búin heldur fólk að þeir fari bara heim. Margir eru hins- vegar búnir að koma sér fyrir hérna, þeir eru búnir að kaupa íbúð og börn- in þeirra eru í skóla.“ Ísland hefur skorið sig úr Hún segir hættu á því að fordómar magnist í núverandi umhverfi. „Núna er jarðvegurinn viðkvæmur fyrir því að það komi upp fordómar. Við verð- um að gæta okkur á því. Þegar at- vinnan var næg var oft sagt, bíðið bara þangað til það kemur atvinnu- leysi, þá fer eitthvað að gerast. Ís- ‘‘VIÐHORFIÐ HÉR HEFURVERIÐ ÞAÐ AÐ INN-FLYTJENDUR SÉU EIN-HVERS KONAR VARA- VINNUAFL. ÞEGAR VIÐ ÞURFTUM Á ÞEIM AÐ HALDA VORU ÞEIR VEL- KOMNIR EN SVO ÞEGAR VEISLAN ER BÚIN HELD- UR FÓLK AÐ ÞEIR FARI BARA HEIM. Þetta er þáttur sem á eftir að fá meira vægi í framtíðinni,“ segir hún og bendir á að eitt námskeið í nýja innflytjendanáminu tengist einmitt þessum heilsuþætti. Edda segir að allt fagfólk sem fæst við málefni innflytjenda þurfi að hugsa um þetta samband sitt við fólk frá öðru menningarsvæði. „Hvað gerist í þessu sambandi? Þetta eru áhugaverðar áskoranir sem við þurf- um að takast á við, ekki vandamál.“ Völundarhús Margir vinna að innflytjendamálum, en á einangruðu sviði. Yfirsýn eða tengingu við heildina hefur vantað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.