Morgunblaðið - 26.04.2009, Page 41
Dagbók 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009
Sudoku
Frumstig
8 7
9 2 4 8
4 7 6
4
1
2 5 6
3 4 6 2
7 6 8
2 5
2 8
5 3
3 4 5 1
9 3 5
4 8 7 1
5 2
4 6
1 5
7 2 9
7 6 5
1 3
8 3 2
2 1 7
3 4 8 9
6
9 3
5 9 1
3 7
1 5 3 7 6 2 4 9 8
2 9 8 4 5 3 1 6 7
6 7 4 1 8 9 2 5 3
7 4 1 5 9 8 6 3 2
8 6 9 2 3 7 5 1 4
3 2 5 6 1 4 8 7 9
5 8 7 3 4 6 9 2 1
9 3 6 8 2 1 7 4 5
4 1 2 9 7 5 3 8 6
1 3 2 5 4 6 9 8 7
8 7 6 9 2 1 4 5 3
9 4 5 7 8 3 2 1 6
2 6 8 3 1 5 7 4 9
7 1 9 4 6 8 5 3 2
3 5 4 2 9 7 8 6 1
4 8 3 1 7 2 6 9 5
6 2 1 8 5 9 3 7 4
5 9 7 6 3 4 1 2 8
3 1 2 6 8 9 5 7 4
7 6 4 5 2 1 3 8 9
8 5 9 3 7 4 1 6 2
5 7 1 9 4 6 2 3 8
2 9 8 7 5 3 4 1 6
6 4 3 2 1 8 9 5 7
1 3 6 8 9 2 7 4 5
9 8 5 4 3 7 6 2 1
4 2 7 1 6 5 8 9 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er sunnudagur 26. apríl, 116. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: Já, gæfa og náð fylgja
mér alla ævidaga mína, og í húsi
Drottins bý ég langa ævi. (Sálm. 23, 6.)
Víkverji fór í verslun á dögunumtil að kaupa sér ruslafötu.
„Hér erum við með eina sem kostar
36.000 krónur,“ sagði afgreiðslukon-
an og dró fram ógurlega fínan hlut
sem minnti fremur á skúlptúr en
ruslafötu. Víkverja setti hljóðan ör-
stutta stund en sagði svo: „Þetta er
heldur dýrt.“ Afgreiðslukonan
horfði á Víkverja umburðarlyndum
augum og sagði: „Já, en þetta er
líka lífstíðareign.“ Víkverji hafði
ekki hugsað sér að hafa ruslafötuna
til sýnis á áberandi stað á heimilinu
heldur hugðist hann fela hana fyrir
fránum augum gesta. Það skipti
hann þess vegna litlu máli hvernig
ruslafatan liti út. Hann gat ekki
hugsað sér að eyða 36.000 krónum í
hlut sem enginn sæi. Hann gekk því
út úr búðinni.
x x x
Næst lá leiðin í versluninaBrynju á Laugaveginum.
„Eigið þið fallega ruslafötu?“ spurði
Víkverji afgreiðslumennina. Það var
eins og Víkverji hefði sagt vel
heppnaðan brandara því af-
greiðslumennirnir hlógu ógurlega
og skelltu sér jafnvel á lær. „Falleg
ruslafata! Falleg ruslafata!“ stundu
þeir upp milli þess sem þeir ráku
upp hláturrokur. Það lá við að Vík-
verji móðgaðist en svo áttaði hann
sig á því að hann var að tala við
praktíska menn sem hafa mjög
jarðbundið viðhorf þegar kemur að
brúkun á hinum göfuga hlut rusla-
fötunni. Víkverji gekk út frá hinum
kátu afgreiðslumönnum með fremur
snotra ruslafötu sem kostaði 3.800
krónur.
x x x
Víkverji fór í kosningapróf ámbl.is., svaraði þar spurn-
ingum um hin ýmsu þjóðfélagsmál
og beið með eftirvæntingu eftir því
að fá skilgreiningu á sjálfum sér.
Víkverji reyndist vera 76 prósent
samfylkingarmaður, 76 prósent
sjálfstæðismaður og 76 prósent
framsóknarmaður. Á kjördag, eftir
þó nokkrar vangaveltur, var það
sannfæring Víkverja í Evrópu-
málum sem réð því að lokum hvar
atkvæðið lenti. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 sigrar, 4 hug-
hreysta, 7 lykkju, 8 dyl-
ur, 9 stjórnarumdæmi,
11 skrifaði, 13 mynni, 14
trylltar, 15 mas, 17
óskert, 20 ambátt, 22
bleyða, 23 ilmur, 24 get-
ur gert, 25 rýja.
Lóðrétt | 1 kroppur, 2
farsæld, 3 blóma, 4 fjöt-
ur, 5 málms, 6 nytjalönd,
10 móðir, 12 verkfæri,
13 gruna, 15 ríki dauðra,
16 bylgjan, 18 ládeyðu,
19 áma, 20 skordýr, 21
tarfur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sveimhugi, 8 lítil, 9 megna, 10 uml, 11 tírur,
13 apaði, 15 skegg, 18 sláni, 21 Rán, 22 ruggu, 23 aflar,
24 handlanga.
Lóðrétt: 2 vitur, 3 illur, 4 hamla, 5 gagna, 6 flot, 7 hali,
12 ugg, 14 pól, 15 særa, 16 eigra, 17 grund, 18 snaga, 19
áflog, 20 iðra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5
Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Rf3 c5
8. Hb1 0-0 9. Be2 b6 10. 0-0 Bb7 11. d5
Bxc3 12. Bc4 Bg7 13. Bb2 Dc8 14. Bxg7
Kxg7 15. Dd2 Ba6 16. Hfc1 Hd8 17.
Hb3 Rd7 18. e5 Rf8 19. Bxa6 Dxa6 20.
Rg5 Da4 21. Hf3 f6 22. Hf4 Dd7 23.
Dc3 Dxd5 24. exf6+ exf6 25. Dxf6+
Kg8 26. h4 Hd6 27. Re4 Hc6 28. De7
De6 29. Db7 Hac8 30. Rg5 Dxa2 31.
Hf7 Re6 32. Hxh7 Hf8
Staðan kom upp á alþjóðlega
Reykjavíkurskákmótinu sem lauk fyrir
nokkru í Listasafni Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu. Bandaríski stórmeist-
arinn Yuri Shulman (2.639) hafði hvítt
gegn enska kollega sínum Stuart Con-
quest (2.531). 33. Hh8+! og svartur
gafst upp enda mát eftir 33. …Kxh8 34.
Dh7#.
Hvítur á leik og mátar í tveim.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Andartak!
Norður
♠D1095
♥42
♦Á10942
♣K5
Vestur Austur
♠K742 ♠ÁG6
♥975 ♥K1086
♦6 ♦G873
♣DG1097 ♣83
Suður
♠83
♥ÁDG3
♦KD5
♣Á642
Suður spilar 3G.
Sagnir eru hversdagslegar: gran-
dopnun í suður, Stayman 2♣ á móti,
hjartasvar og stökk í 3G. Laufdrottning
út.
Spilið er skothelt ef tígullinn skilar
sér upp á fimm slagi og ekki vonlaust
þótt austur sé með gosann fjórða. En
það er nauðsynlegt að nýta samganginn
vel. Fyrsti slagurinn er tekinn heima og
tígullinn kannaður með kóng og drottn-
ingu. Þegar vestur hendir spaða í ♦D
verður að slá hratt á puttana á makker
áður en hann dregur til sín tígulhund úr
borði. „Andartak, makker minn – ég
þarf að hugsa málið.“ En ekki lengi: ♦D
er yfirdrepin með ás, innkoman notuð til
að svína í hjarta og austri síðan gefinn
slagur á ♦G. Innkoma blinds á ♣K nýt-
ist loks til að taka tvo slagi tígul og svína
aftur í hjarta. Níu slagir: þrír á hjarta,
fjórir á tígul og ♣Á-K.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Hrúturinn hefur margt til þess að
gleðjast yfir. Leitaðu að fegurðinni í lífinu
því fagurt umhverfi er raunveruleg heilsu-
bót.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert dularfull persóna sem dregst
að hinu óvenjulega. Samskiptahæfileikar
þínir eru með besta móti og fólki finnst þú
hafa góðan húmor.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú lætur þig dreyma glæsta fram-
tíðardrauma. Upp á síðkastið hafa tvíburar
notið sömu leiðsagnar aftur og aftur.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú þarft að leggja þig allan fram til
þess að ná þeim upplýsingum sem þarf svo
þú getir ótrauður haldið áfram starfi þínu.
Nú er tími til að gera það sem þig hefur
lengi langað til.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Hafnaðu ekki heimboði nema þú hafir
til þess góðar og gildar ástæður. Gefðu þér
tíma til að bæta úr áður en lengra er hald-
ið.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Vinir þínir og maki eru þér mik-
ilvægari í dag en alla jafna. Viðkomandi
persóna virðist of góð til að vera sönn í þín-
um huga.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hugsanlegt er að þú sjáir nýjar leiðir
til þess að fá leyfi, aðstöðu, stuðning, fé eða
tæki til þess að sinna vinnunni þinni. Láttu
ekki mótbyrinn fara í taugarnar á þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Nú verður þú að bretta upp
ermarnar og ganga í þau verk, sem þú hef-
ur látið sitja á hakanum. Láttu einskis
ófreistað til þess að halda þínum hlut.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það orð liggur á þér að þú ryðj-
ist áfram af lítilli fyrirhyggju. Ef þú hugsar
eins og sigurvegari berð þú sigur úr být-
um.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Margir taka fjölskyldum sínum
sem sjálfgefnum hlut. Mundu að mann-
gæskan er öllu æðri. Hleyptu engum að
þér fyrr en þú veist að þeir séu traustsins
verðir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er ákaflega leiðinlegt þegar
gamall vinur er í sífellu að segja þér hvern-
ig þú eigir að haga lífi þínu. Snertu þó ekki
sparifé þitt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þér finnst þú þurfa að gera eitthvað
en getur ekki nákvæmlega fest fingur á því
hvað það er. Treystu lærdómsferlinu.
Gættu þess þó að þú gangir ekki of nærri
sjálfum þér í þeim efnum.
Stjörnuspá
26. apríl 1839
Kvæðið Íslands minni (Þið
þekkið fold …) eftir Jónas
Hallgrímsson var frumflutt í
samsæti til heiðurs Þorgeiri
Guðmundssyni í Kaupmanna-
höfn.
26. apríl 1906
Tvö skip, Anna Sophia frá Ísa-
firði og Kristján frá Stykkis-
hólmi, fórust í óveðri og með
þeim tuttugu menn.
26. apríl 1944
Gamall öskuhaugur kom í ljós
þegar verið var að grafa fyrir
húsi við Tjarnargötu í Reykja-
vík. Þar fundust bein úr svín-
um, geirfugli og fleiri dýrum.
Jafnvel var talið að þetta hafi
verið öskuhaugur Ingólfs Arn-
arsonar.
26. apríl 1966
Akraborg kom í síðasta sinn til
Borgarness. Þá hafði áætlunar-
ferðum með skipum milli
Reykjavíkur og Borgarness
verið haldið uppi í hálfan átt-
unda áratug.
26. apríl 1979
Ríkisstjórnin samþykkti að
heimila umtalsverðar hækk-
anir á opinberri þjónustu.
Áburður hækkaði um 52%, raf-
magn um 30%, heitt vatn um
20-30%, fargjöld strætisvagna
um 25% og sement um 23%.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Áttræður er í
dag Ögmundur
Pétursson frá
Malarrifi. Í til-
efni dagsins
verða Ögmundur
og Kristín kona
hans með kaffi á
könnunni á heim-
ili sínu í
Hraunbæ 166 í Reykjavík.
80 ára
„Ég tek þessu rólega og fer út úr bænum með eig-
inkonu minni, börnum og barnabörnum og hef það
náðugt í sumarhúsi,“ segir Jón Gröndal kennari,
sem fagnar sextugsafmæli sínu í dag. Ekki ætti að
væsa um hann í sveitinni, en þau hjónin eiga þrjú
börn og fimm barnabörn. Hann býst frekar við því
að tilstandið verði meira á næsta ári, þegar Dórót-
hea Emilsdóttir konan hans á sitt stórafmæli. Jón
segir líka ástæðulaust að reyna að toppa fimm-
tugsafmælið, þegar haldin var heljarmikil veisla í
Grindavík, þar sem hann bjó í rúm þrjátíu ár.
Jón byrjaði fyrst að kenna fyrir um fjörutíu ár-
um. Hann segir margt breytt í skólastarfinu frá þeim tíma. „Þá voru
skólar tvísetnir og ekki þótti tiltökumál að kenna 46 kennslustundir á
viku. Það voru mikil viðbrigði þegar farið var að einsetja skólana.
Núna er ég með nítján tíma kennsluskyldu á viku!“ Hann sinnir nú
sérkennslu í Ölduselsskóla. Jón sat í átta ár í bæjarstjórn Grindavíkur
fyrir Alþýðuflokkinn og var um tíma með vinsælan útvarpsþátt á Rás
2, Tónlistarkrossgátuna. Þá er hann Lions-maður og fyrrverandi fjöl-
umdæmisstjóri Lions á Íslandi. „Það hefur farið ómældur tími í að
sinna því verkefni,“ segir Jón. onundur@mbl.is
Jón Gröndal kennari er sextugur í dag
Í bústað með fjölskyldunni
Nýirborgarar
Reykjavík Rögnvaldur
Már fæddist 28. febrúar
kl. 11.07. Hann vó 3.865 g
og var 51 cm langur. For-
eldrar hans eru Gunn-
hildur Rögnvaldsdóttir og
Logi Már Sveinarsson.
Reykjavík Elvar Snær
fæddist 8. apríl kl. 22.48.
Hann vó 3.910 g og var 54
cm langur. Foreldrar
hans eru Bryndís Óðins-
dóttir og Arnar Bjarki
Kristinsson.
Reykjavík Svanborgu
Þórisdóttur Valen og Stef-
áni Páli Jónssyni fæddist
sonur 20. mars kl. 0.14.
Hann vó 2.960 g og var 51
cm langur.