Morgunblaðið - 18.06.2009, Page 6

Morgunblaðið - 18.06.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is „KAPPHLAUPIÐ um veiðarnar leiðir til minni verðmæta fyrir þjóð- arbúið,“ segir Sigurgeir B. Krist- geirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vest- mannaeyjum. Verðmæti makríls, sem nú er veiddur í stórum stíl við strendur landsins, er mun minna en ef seinna væri fiskað. Undir þetta tekur Sveinn Svein- björnsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun. Sveinn segir, að svo virðist sem út- gerðirnar leitist með veiðunum við að skapa forsendur fyrir kvótaúthlutun í framtíðinni. Væntingar standi þá til að úthlutanir verði í samræmi við veiði fyrri ára. Í ár var aðeins kveðið á um heildarafla, 112 þúsund tonn. „Útgerðirnar myndu líklega hegða sér öðruvísi ef annað fyrirkomulag væri á og reyna að fá betri fisk. Menn fengju vafalaust betri afla ef þeir veiddu seinna um sumarið,“ segir Sveinn. Makríllinn bestur á haustin Ástæðan er sú að í júní er makríll- inn jafnan smærri og horaðri en þeg- ar líður á sumarið. Í því holdafari hentar makríllinn síður til manneldis, en þannig fæst mun hærra verð en fyrir fisk sem fer í bræðslu. „Makríllinn sem hefur verið að koma hingað til er frekar smár og horaður,“ segir Sigurgeir. „Í fyrra byrjuðu veiðarnar seinna og þá var fiskurinn stærri.“ Reynsla undanfarinna ára sýnir að makríllinn heldur sig í íslenskri lög- sögu í júní, júlí og ágúst en færir sig síðan austur til Noregs og Skotlands um haustið. „Þetta göngumynstur skammtar skipunum veiðitímann. Því væri öðruvísi farið ef Íslendingar væru að- ilar að samkomulagi um makrílveið- ar,“ segir Sveinn. Í september og október er makríll- inn bestur og söluhæfur á verðmæt- asta markaðnum, í Japan. Íslend- ingar hafa sem fyrr segir ekki aðgengi að hinum verðmæta haust- makríl, utan samningaborðsins. Makríllinn er ennfremur verð- mætari í júlí og ágúst en í júní. Hann er t.d. hægt að selja frystan til Rúss- lands, útskýrir Sigurgeir Krist- geirsson. Engu að síður eru makríl- veiðar komnar í fullan gang og hátt í tuttugu skip eru á veiðum úti fyrir suðausturhorninu. Eitt þeirra er Huginn VE sem hef- ur veitt makríl, sem unninn er um borð til manneldis, síðan í byrjun mánaðarins. Gylfi Viðar Guðmunds- son skipstjóri segir makrílinn hafa verið smáan þá, hann sé núna stór og fallegur. Hlutfall makrílsins á móti síldinni er allt frá 30% upp í 80%. Vilja að samningaborðinu Í tilkynningu frá sjávarútvegs- ráðuneytinu frá mars sl. segir að ís- lensk stjórnvöld hafi um árabil mót- mælt veiðistjórnun á makríl í NA-Atlantshafi á þeim grunni að strandríkjaréttur Íslands hafi ekki verið viðurkenndur. Ástæða sé til að ætla að réttur Íslands verði viður- kenndur, m.a. í ljósi aukinna veiða í íslenskri lögsögu. Sigurgeir Þorgeirsson, ráðuneyt- isstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, segir Íslendinga fyrst hafa verið boð- aða til fundar um makrílveiðar nú í lok mánaðarins ásamt Norðmönnum, Færeyingum og fulltrúum Evrópu- sambandsins. Óvíst er þó hver nið- urstaðan verður og þá hvers konar áhrif hún gæti haft hér. „Við gerum okkur grein fyrir að núverandi fyrirkomulag er ekki æskilegt og kyndir undir „ólymp- ískum“ veiðum,“ segir Sigurgeir. Makríll við Ísland veiddur of snemma  Verðmæti tapast með ótímabærum makrílveiðum við Íslandsstrendur  Veiðar í ár taldar leggja grunn að kvótaúthlutunum framtíðarinnar Morgunblaðið/Ómar Garðarson Í Eyjum Makríl, sem fer til bræðslu, er umsvifalaust dælt niður í lestina. Ís- leifur VE landaði þúsund tonnum af síld og makríl í gær. Makríll hefur lagt leið sína um ís- lenska lögsögu nú í nokkur ár. Margir telja veiðarnar nú skapa þrýsting annars vegar til kvóta- úthlutunar, hins vegar til al- þjóðlegra samninga. BJÖRGUNARSVEITIR á Suður- landi fundu í fyrrinótt erlent par, sem leitað hafði verið að frá því í gærkvöldi. Fólkið ætlaði að ganga frá Landmannalaugum að Hrafn- tinnuskeri en skilaði sér ekki á til- settum tíma í gær og var þá hafin leit. Björgunarsveitir á Hellu, Hvols- velli og í Landeyjum voru kallaðar út til leitarinnar. Fólkið fannst skammt frá skálanum í Hrafntinnu- skeri og var vel á sig komið. Ferðafólk fannst við skála LIÐLEGA 40 grömm af efni sem talið er amfetamín fundust í bifreið sem lögreglan á Snæfellsnesi stöðv- aði á Snæfellsnesvegi í fyrrinótt. Talið er að efnin hafi verið ætluð til dreifingar og sölu. Tveir voru í bílnum. Voru þeir handteknir og gistu fangageymslur lögreglunnar í Ólafsvík við þriðja mann. Málið er í rannsókn. Fundu 40 grömm af amfetamíni í bifreið LÖGREGLAN á Húsavík vekur at- hygli ferðamanna á mjög slæmu ástandi syðri hluta Hólssandsvegar (Dettifossvegar eystri nr. 864), austan Jökulsár á Fjöllum, frá Dettifossi að Grímsstöðum á Fjöll- um. Merkingar gefi ekki til kynna hve ástand vegarins er slæmt. Lögregla segir að þvottabretti á þessum hluta vegarins séu með versta móti. Um síðustu helgi hafi orðið bílvelta sem rekja megi til ástands vegarins. Þá hefur tjón orð- ið á aftanívögnum sem þola illa svo grófan veg. Töluvert er um að veg- farendur reyni að aka utan veg- arins, þar sem hægt er, til þess að hlífa ökutækjum. Nyrðri hluti vegarins, frá Detti- fossi norður í Öxarfjörð er hins vegar í ágætu ástandi. Þvottabretti að Dettifossi FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar ís- lensku fálkaorðu við athöfn á Bessastöðum í gær, þjóðhátíðardaginn. Þau fengu fálkaorðuna: Árný J. Guðjohnsen ritari, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að félags- og mannúðarmálum; Björn Jónsson, fyrrverandi skólastjóri, Seltjarnarnesi, ridd- arakross fyrir framlag til uppeldismála, menn- ingar og skógræktar; Böðvar Guðmundsson rithöfundur, Danmörku, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar menningar og bók- mennta; Guðrún Jónsdóttir bóndi, Arnbjarg- arlæk, riddarakross fyrir störf á vettvangi fé- lags- og velferðarmála; Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrverandi formaður UMFÍ, Sel- fossi, riddarakross fyrir framlag til félags- og íþróttamála; Helga Jónsdóttir bæjarstýra, Fjarðabyggð, riddarakross fyrir framlag til opinberrar stjórnsýslu; Hólmfríður Árnadótt- ir, fyrrverandi prófessor, Reykjavík, ridd- arakross fyrir framlag til listgreinakennslu í íslensku skólakerfi; Ólafur Eggertsson bóndi, Þorvaldseyri, riddarakross fyrir nýjungar í landbúnaði; Pálína Ása Ásgeirsdóttir hjúkr- unarfræðingur, Sviss, riddarakross fyrir framlag til alþjóðlegs hjálparstarfs, og Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir á veðurfari og sögu þess. Tíu sæmdir fálkaorðu á Bessastöðum xxxxxxx Á Bessastöðum Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, ásamt þeim tíu, sem sæmdir voru heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Hvað verður um makrílinn? Í fyrra fór megnið af þeim makríl sem Íslendingar veiddu í bræðslu, m.a. til fiskifóðurs. Hann þykir þó prýðilegur fiskur til manneldis. Sjávarútvegsráðuneytið hefur sér- staklega hvatt til þess að útgerðir vinni sem mest af makrílafla sínum til manneldis, því það skilar umtalsvert meiri verðmætum. Hver áhrif hafa aflareglur á veið- arnar í ár? Í ár var ákveðið að heildarveiði við Ís- land færi ekki yfir 112 þúsund tonn. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um nánari úthlutun makrílkvóta. Ætla má að hún fari eftir veiðum síðustu ára. Því gæti borgað sig að ná vænum afla sem fyrst í sumar, jafnvel þótt fisk- urinn verði verðmætari þegar líður á. Hvar standa makrílveiðar í alþjóðlegu samhengi? Stjórnvöld ætla að réttur Íslands til makrílveiða verði loks viðurkenndur í ljósi aukinna veiða í íslenskri lögsögu. Á haustin, þegar makríllinn er verð- mætastur, er hann farinn úr íslenskri lögsögu og því mikilvægt að ganga til samninga ef halda á veiðunum áfram. S&S

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.