Morgunblaðið - 18.06.2009, Page 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2009
✝ Sigurður Haf-steinn Benjamíns-
son fæddist á Vest-
urgötu 16b í
Reykjavík 8. febrúar
1942. Hann lést á
gjörgæsludeild LSH
við Hringbraut 9. júní
2009. Foreldrar Sig-
urðar voru hjónin
Benjamín Sigurðsson
sjómaður, f. í Reykja-
vík 1. febrúar 1920, d.
28. ágúst 1977 og
Þóra Sigurðardóttir,
f. í Neskaupstað 23.
október 1918, d. 19. nóvember
1942. Hálfsystur Sigurðar, sam-
feðra, eru Hjörfríður M. L. Hinriks-
dóttir, f. 1944, Elín K. Guðjóns-
dóttir, f. 1945, Kolbrún Ingibjörg
Benjamínsdóttir, f. 1952 og Mar-
grét Benjamínsdóttir, f. 1954. Eftir
sviplegt andlát móður Sigurðar var
hann tekinn í fóstur af föðurömmu
sinni, Sigurrós Benjamínsdóttur, og
var hjá henni í tvö ár. Eftir það ólst
hann upp í Neskaupstað hjá ömmu
sinni og afa í móðurætt, Hallberu
Daníelsdóttur og Sigurði Frið-
bjarnarsyni.
Sigurður kvæntist 8. október
1966 Erlu Jónu Sigurðardóttur, f. á
hann kennslu við Víghólaskóla í
Kópavogi til 1977 en réð sig þá sem
skrifstofu- og sölumann hjá Berki
hf. í Hafnarfirði. Þar starfaði hann
til 1988 en þá var hann ráðinn
skóla- og menningarfulltrúi Kópa-
vogsbæjar til 1996. Það ár varð
hann rekstrarstjóri grunnskóla
bæjarins og starfaði sem slíkur til
dauðadags. Sigurður var mikill
áhugamaður um stangveiði með
flugu og fluguhnýtingar auk þess
sem hann stundaði rjúpnaveiðar.
Hann var formaður stangveiði-
félagsins Ármanna 1986-1990 og
tók alla tíð virkan þátt í störfum fé-
lagsins. Sumarbústaður þeirra
hjóna í landi Valbjarnarvalla á Mýr-
um í Borgarfirði átti hug hans og
hjarta og var honum mikill sælu-
reitur. Um árabil var hann einn
leigutaka Urriðaár á Mýrum í
Borgarfirði og var sá staður honum
einnig mjög hjartfólginn. Barna-
börnin voru Sigurði afar kær og
var það brýnt forgangsmál hans að
vera sem mest með þeim í lífi og
leik. Sigurður og eiginkona hans,
Erla Jóna, fengu á síðari árum mik-
inn áhuga á ferðalögum erlendis.
Tóku þau ástfóstri við Prag, féllu
fyrir stórbrotinni fegurð og menn-
ingu borgarinnar og fóru þangað
ótal sinnum. Aðrar menningar-
borgir voru honum einnig ofarlega
í huga og þá sérstaklega Dresden
og Berlín.
Útför Sigurðar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 18. júní,
og hefst athöfnin kl. 15.
Kópaskeri 7. janúar
1943. Synir þeirra
eru: 1) Árni Þór mat-
reiðslumeistari, f. 13.
ágúst 1970, kvæntur
Freygerði Önnu
Ólafsdóttur nema, f.
25. maí 1974. Börn
þeirra eru Eva Rún, f.
21. febrúar 1998, Sig-
þór Óli, f. 12. desem-
ber 2000 og Arnar
Freyr, f. 23. maí 2003.
2) Guðmundur org-
anisti, f. 12. apríl
1972, kvæntur Pálínu
Margréti Hafsteinsdóttur hagfræð-
ingi, f. 28. janúar 1976, sonur
þeirra, óskírður, f. 15. júní 2009.
Sigurður lauk landsprófi á Eið-
um 1958 og að því loknu vann hann
í eitt ár, bæði á sjó við síldveiðar og
hjá Kaupfélaginu Fram í Neskaup-
stað. Sigurður lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akureyri
1963 og vann fyrir sér við síldveið-
ar á sumrin á Hafrúnu NK 80 frá
Neskaupstað. Að loknu stúdents-
prófi lá leiðin til eins árs dvalar við
þýskunám í Tübingen í Þýskalandi.
Því næst hóf hann nám við Háskóla
Íslands og lauk BA-prófi í þýsku og
íslensku 1969. Eftir það stundaði
Þar sem gleðin ríkir er sorgin ekki
langt undan.
Og þegar sorgin hefur yfirhöndina er
gleðin innan seilingar.
Þessi orð um samspil tilfinning-
anna tveggja, gleði og sorgar, standa
skrifuð á snjáðum miða sem ég hef
geymt frá unga aldri í hirslum mín-
um. Orðin tvö eru okkur hjónum of-
arlega í huga þessa júnídaga. Hann
Sigurður tengdafaðir minn var hlýr
og raunsær maður sem einstaklega
gott var að hafa nálægt sér. Því er
einkar sárt að njóta ekki lengur nær-
veru hans nú þegar Guðmundur
minn er sjálfur að verða pabbi í
fyrsta sinn. Hringrás lífsins minnir
okkur á sig á þessu sumri og það má
með sanni segja að litla barnið okkar
Guðmundar sem kúrir í maganum sé
ríkt af góðum og hlýjum vernd-
arenglum.
Með þakklæti hugsa ég til þeirra
góðu stunda sem ég átti með Sigurði.
Veri hann Guði falinn.
Pálína Margrét Hafsteinsdóttir.
Elsku afi Siggi. Okkur var öllum
mjög brugðið þegar þú hafðir horfið
til betri staðar. Þú varst hreint
dásamlegur og ég elskaði þig meira
en orð geta sagt. Þú barðist í 20 ár
gegn hjartveiki og greindist síðan
með krabbamein í beinmerg. Ég dá-
ist enn þann dag í dag að því hvað þú
varst sterkur og hugrakkur. Þú
varst oft búinn að fara upp á spítala
og alltaf tókst þér að hrista veikindin
af þér. Við héldum að þér myndi líka
takast það í þetta skiptið. Það er ekki
á hverjum degi sem maður kynnist
svona góðri manneskju eins og þér.
Þú varst alltaf að gera grín, jafnvel
alveg fram á síðustu stundu. Þú
varst líka svo hrifinn af dýrum og
þau af þér. Ég man vel eftir fugl-
unum á Gullteigi og sérstaklega Dídí
forystufuglinum sem bankaði á
rúðuna ef þú varst of seinn með
haframjölið út. Mér þótti svo gaman
að fara upp í sumarbústað með þér
og öðrum í fjölskyldunni. Setja niður
kartöflur, gróðursetja tré frá Sædísi
og heimsækja Ingu og Sigurjón á
Valbjarnarvöllum. Það var líka svo
gaman þegar þú last og spilaðir við
okkur systkinin eða kenndir okkur
nýtilega hluti eins og nöfnin á fugl-
unum. Þú kenndir mér líka á áttavita
og margt fleira. Ég gæti skrifað
endalaust um þig en nú held ég að
það sé komið nóg.
Eva Rún Árnadóttir.
Kær vinur er horfinn á braut langt
fyrir aldur fram. Við Siggi kynnt-
umst þegar börnin okkar fóru að
draga sig saman. Strax tókst góð
vinátta með okkur og Sigga og Erlu.
Sú vinátta varða síðan meiri tvö síð-
astliðin ár þegar Árni og Freyja
fluttu til okkar með börnin sín þrjú.
Þá komu Siggi og Erla oftar í heim-
sókn í Birkihlíðina en gengur og ger-
ist meðal tengdaforeldra. Heimsókn-
ir þeirra voru alltaf kærkomnar.
Börnunum fannst líka alltaf gaman
að fá þau til sín. Siggi og Óli náðu
mjög vel saman og gátu spjallað út í
það óendanlega. Siggi var mjög fróð-
ur og alltaf tilbúinn að deila þekk-
ingu sinni með öðrum. Við vorum
fljót að sjá að drengirnir þeirra voru
vel upp aldir. Þeir kunna að sýna
hlýju, nærgætni og eru þægilegir í
samskiptum. Siggi hafði greinilega
kennt þeim að umgangast og virða
náttúruna og það brýndi hann líka
fyrir barnabörnunum. Hann kenndi
þeim um hringrás lífsins. Maður
veiðir sér til matar en gengur aldrei
of nærri stofninum. Þau fengu líka
að fara með honum í Urriðaá og það
var ævintýri. Þegar Eva Rún var
eins árs byrjaði hann að senda henni
póstkort með mynd af fugli. Þessu
hélt hann áfram og þegar krakkinn
var þriggja ára áttu ömmurnar fullt í
fangi með að verða ekki uppvísar að
fávisku í fuglaheitum og hljóðum
þeirra gagnvart barninu. Siggi var
mikill málamaður og var honum ís-
lensk tunga mjög kær enda talaði
hann rétt og kjarnyrt mál. Að fara í
sumarbústaðinn með afa og ömmu
var alltaf eftirsóknarvert. Sveitin
var Sigga mjög kær og gat hann far-
ið þangað einn að vetrarlagi til að
hlusta á náttúruna og þögnina og
vera einn með sjálfum sér og bók-
unum sínum. Við eigum eftir að
sakna Sigga, hnyttnu svaranna hans
og létta húmorsins.
Elsku Erla, Árni Þór, Freyja.
Guðmundur, Pálína, Eva Rún, Sig-
þór Óli og Arnar Freyr, góður Guð
styrki ykkur og leiði í ykkar miklu
sorg og söknuði. Far þú í friði, elsku
vinur, friður Guðs þig blessi, hafðu
þökk fyrir allt og allt.
Margrét og Ólafur Þór.
Með örfáum orðum langar mig að
kveðja góðan dreng og vin minn Sig-
urð Hafstein Benjamínsson, sem
kvatt hefur okkur allt of snemma.
Leiðir okkar Sigga Ben., eins og
mér og mínum var svo gjarnt að
kalla hann, lágu víða saman gegnum
árin.
Fyrst var það haustið 1959, þegar
við hófum nám við Menntaskólann á
Akureyri.
Samskiptin voru e.t.v. ekki mjög
mikil fyrst í stað, en jukust jafnt og
þétt eftir því sem námsárunum fjölg-
aði, fyrst í MA og síðan í Háskóla Ís-
lands. Þegar þau síðan rugluðu sam-
an reytum sínum, hann og Erla Jóna
frænka mín og leikfélagi frá æskuár-
unum, urðu samskipti fjölskyldna
okkar meiri og nánari. Heimsóknir,
barnaafmæli og ferðalög voru þá
gjarnan á dagskránni og margra
ánægjustunda frá þessum árum að
minnast.
Við störfuðum síðan saman í á
annan áratug hjá Berki hf. í Hafn-
arfirði.
Þar komu hinir góðu eiginleikar
hans glöggt í ljós, dugnaður, hjálp-
semi, samviskusemi og heiðarleiki.
Siggi Ben. var mikill áhugamaður
um veiðar, bæði stangveiðar og skot-
veiðar.
Þarna lágu áhugasvið okkar full-
komlega saman og óteljandi eru þær
veiðiferðir sem við fórum saman í.
Margar þeirra eru mér ógleyman-
legar og betri veiðifélaga en hann er
vart hægt að hugsa sér.
Lítið dæmi um veiðiáhugann og
kraftinn er, að þegar við störfuðum
saman í Hafnarfirði, þá kom það fyr-
ir að skroppið var til rjúpna í mat-
artímanum á nálægar veiðislóðir, t.d.
Undirhlíðar og Sveifluháls.
Með þakklæti fyrir allar ánægju-
legu samverustundirnar kveð ég þig,
kæri vinur. Við Hanna sendum Erlu
Jónu, Árna Þór, Guðmundi og fjöl-
skyldum þeirra okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Sigga Ben.
Björn Ragnar.
Við skyndilegt og ótímabært and-
lát vinar míns, Sigurðar H. Benja-
mínssonar, leiftra í huga mér minn-
ingabrot frá liðnum áratugum.
„Hvern skollann ert þú eiginlega
að gera hérna, drengur?“ glumdi í
stigaganginum á Hraunbæ 120 þeg-
ar við Ingi mættum Sigga fyrir fram-
an íbúð sína á 2. hæð er við vorum
nýflutt í húsið. Þarna urðu miklir
fagnaðarfundir tveggja vaskra
Norðfirðinga og upphaf vinskapar
þessara tveggja fjölskyldna sem nú
hefur staðið í meira en 30 ár. Það er
bjart yfir þessum minningum, mann-
skapurinn hlæjandi út í eitt, oft að
einhverju gullkorni sem hefur hrotið
af munni Sigga.
Það var ekki amalegt að eiga hann
Sigga að á þessum frumbýlingsárum
í Hraunbænum. Hann var kallaður
til ef það þurfti að koma upp gard-
ínustöng sem lét illa að stjórn eða að
laga skápinn í litla herberginu eða
bara hvað sem var því að allt lék í
höndum hans. Þeir Ingi deildu með
sér ódrepandi veiðidellu og hafa veitt
saman óslitið í öll þessi ár. Það var
gaman að koma til þeirra í veiðihúsið
við Urriðaá og líta veiðina sem alltaf
var einhver þótt lítið væri í ánni og
gárungarnir sögðu iðulega að það
mætti ganga yfir hana þurrum fót-
um. En Siggi hafði einstakt veiðinef
og veiddi laxa þótt aðrir yrðu ekki
varir.
Þar kom að fjölskyldurnar fluttu
úr Hraunbænum en ekki skildi þó
leiðir alveg því að báðar fjölskyld-
urnar byggðu sér sumarbústaði ná-
lægt hvor annarri uppi í Borgarfirði.
Í Borgarfirðinum undi Siggi sér vel
og vildi helst hvergi annars staðar
vera.
Hann byggði sjálfur bústaðinn og
hvílik völundarsmíð! Já þær voru
margar samverustundirnar og ekki
má gleyma að nefna þann eðla fé-
lagsskap „Laxlausa félagið“ sem
eins og nafnið gefur til kynna er
veiðikompaní þar sem þeir veiddu
saman vinirnir Siggi, Ingi, Björn
Ragnar og Sigurjón. Titillinn er
sannkallað öfugmæli því þeir félagar
eru allir slyngir veiðimenn.
Þeir kumpánar hafa ásamt konum
sínum blásið til þorrablóts árlega og
verður nú skarð fyrir skildi þegar
aðalmanninn vantar. Við Siggi deild-
um áhuga á klassískri tónlist en
henni hafði hann kynnst á námsár-
unum í Þýskalandi. Í skötuboðunum
á Þorláksmessu kom hann alltaf fær-
andi hendi a.m.k. með 1 geisladisk ef
ekki fleiri og færði mér, því alls stað-
ar leyndust perlur sem hann vildi
alls ekki að ég missti af. Þá er ótalin
sameiginleg ást okkar á íslensku
máli. Þótti ýmsum skoðanir okkar
æði gamaldags og þvergirðingslegar
en við höfðum yfirleitt sama skiln-
inginn á tungunni okkar og hlógum
og fussuðum að alls konar ambögum
sem ýmsir málsmetandi menn settu
fram sem góðar og gildar. Það verð-
ur undarlegt lífið án Sigga Ben. Ég á
eftir að sakna hárbeitts húmorsins,
skilningsins á eðli hlutanna, vits-
munanna allra og síðast en ekki síst
besta vinar sem nokkur getur átt.
Elsku Erla, Árni Þór, Guðmundur
og fjölskyldur. Megi guð leggja ykk-
ur líkn með þraut.
Blessuð sé minning Sigurðar H.
Benjamínssonar.
Valgerður J. Gunnarsdóttir.
Kveðja frá samstarfsfólki
Margs er að minnast þegar litið er
yfir þann tíma sem við höfum unnið
með Sigurði H. Benjamínssyni hjá
Kópavogsbæ. Hann var bæði ljúfur
og hrjúfur, nákvæmur í vinnubrögð-
um, góður vinnufélagi og hafði allt á
hreinu hvað hans verkefni varðaði.
Reglusemin var æðri öllu. Sigurður
var orðheppinn og hafði næmt skop-
skyn. Það sem samstarfsfólki líkaði
best við í fari Sigurðar var að hann
sagði meiningu sína skilyrðislaust, á
sinn sérstaka hrjúfa hátt þegar hon-
um mislíkaði vinnubrögð en sparaði
ekki hrósyrðin þegar hann var sátt-
ur. Sigurður hafði starfað í 21 ár hjá
Kópavogsbæ, aðallega að fræðslu-
málum og síðustu ár sem rekstrar-
stjóri fræðsluskrifstofu. Á þeim tíma
hefur orðið víðtæk þróun í tæknimál-
um og hafði Sigurður oft orð á því að
þrátt fyrir alla þessa tækni og ný
verkferli, þyrfti að virða og meta
eldri gildi. Hann hélt vel utan um
rekstur skrifstofunnar og var fljótur
til ef eitthvað vantaði „sem nauðsyn-
legt var að kaupa“ því bruðl var hon-
um ekki að skapi. Fráfall Sigurðar
hefur haft djúp áhrif á okkur öll. Það
er leitun að slíkum persónuleika sem
hann var. Við vottum eiginkonu
hans, fjölskyldu og vinum okkar
dýpstu samúð. Blessuð sé minning
hans.
F.h. samstarfsfólks
Jón Júlíusson.
„Sæll vinur, ég færi þér ekki góðar
fréttir af sjálfum mér, því ég er
hundveikur og kominn með bullandi
krabbamein. Læknirinn sagði, að ég
hefði ekkert val og yrði því að fara í
meðferð eins og skot og alls væri
óvíst hvort sú meðferð myndi skila
nokkrum árangri.“ Þannig hófst mitt
síðasta samtal við Sigga Ben, en inn-
an viku var hann allur. Þetta lýsir af-
ar vel því hvernig hann var. Sagði
hlutina umbúðalaust og á mjög
kjarnyrtu máli. Þetta var hans stíll
og ég kunni vel að meta hve hrein-
skilinn hann var í öllum málum. Það
var ekki hans háttur að vefja hlutina
inn í einhverjar umbúðir heldur voru
þeir sagðir alveg beint út og án
nokkurra vafninga. Þetta er að mínu
mati mikill kostur, en vissulega eru
ekki allir á þeirri skoðun, en það
verður þá bara að hafa það. Að þessu
leyti vorum við Siggi líkir og kannski
skýrir að einhverju leyti hve vel við
náðum saman alla okkar tíð.
Við Siggi höfum þekkst alla okkar
ævi, því báðir eyddum við okkar
bernskuárum austur í Neskaupstað
og síðan fórum við í MA og þess utan
unnum við saman mörg sumur á síld-
veiðum og þá alltaf á Hafrúnu NK
með Kidda Marteins skipstjóra,
miklum sóma- og aflamanni. Mér er
alltaf minnisstætt hve vel þeir Siggi
og Gvendur frændi hans tóku á móti
mér fyrsta sumarið á Hafrúnu, en
Siggi hafði byrjað árinu áður á sjón-
um og var því miklu lífsreyndari
heldur en ég í sjómennskunni. Þetta
voru skemmtileg sumur og við rifj-
uðum þennan tíma oft upp þegar við
hittumst. Eftir að við fluttum suður
lágu leiðir okkar Sigga saman því
báðir kenndum við í Víghólaskóla um
nokkurra ára skeið, en pabbi var þar
skólastjóri. Mér fannst það dálítið
merkilegt hvað pabbi sótti í að ráða
Norðfirðinga að skólanum og um
tíma vorum við a.m.k. 5 sem kennd-
um þar samtímis. Siggi var mikill ís-
lenskumaður og var ófeiminn við að
leiðrétta þá sem ekki voru með beyg-
ingafræðina á hreinu og sagðist ekki
þola neina nauðgun á okkar ylhýra
máli. Eftir nokkur ár í kennslunni
hvarf Siggi til annarra starfa en kom
síðan að fræðslumálum í Kópavogi á
nýjan leik og þá sem skólafulltrúi.
Þar lágu leiðir okkar saman á ný og
fannst mér hann vera mjög góður yf-
irmaður, bæði réttsýnn og umfram
allt sanngjarn. Í rúm 40 ár vorum við
saman í hjónaklúbbi ásamt félögum
okkar og vinum. Þannig héldum við
alla tíð sambandi og þessar stundir
sem við áttum með vinum okkar í
hjónaklúbbnum voru okkur mjög
dýrmætar og munu alltaf verða okk-
ur ljúf minning. Nú á einu ári hefur
verið höggvið stórt skarð í þennan
vinahóp því á þessum tíma hafa þrír
fallið frá. Siggi var einstaklega orð-
heppinn og eru mörg skemmtileg
dæmi þar um, sem ástæða væri til að
nefna en læt ég eitt fylgja. Einhverju
sinni þegar við kenndum í Víghól
kom Siggi og leit yfir kennarastof-
una og sá þar einn samkennara okk-
ar liggja í sófanum, en sá var nokkuð
feitur og mikill um sig. Siggi horfir
yfir salinn og segir stundarhátt: „Er
þetta virkilega einn maður sem ligg-
ur þarna?“
Erla mín, Árni Þór og Guðmund-
ur, við Sóley sendum ykkur ásamt
fjölskyldum ykkar okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Megi minning um
góðan dreng lifa með okkur.
Guðmundur Oddsson
Kynni okkar Sigga hófust vorið
1983 eða 1984 en ekki á þann hátt
sem ég hefði kosið, ég var þá 14 eða
15 ára. Siggi var á þessum tíma einn
af forvígismönnum Ármanna sem
höfðu verið með Reynisvatn á leigu.
Þannig var mál með vexti að við vor-
um þrír félagarnir sem ákváðum að
fara í útilegu nálægt vatninu þar sem
við höfðum heyrt af því að þar væri
veiði. Ekki vildi betur til en svo að
Siggi og félagar hirtu upp letingja-
stangir okkar úr vatninu og komust
að því hverjir voru þarna á ferð. Rétt
eftir að ég var kominn heim þá var
hringt og ég beðinn um að koma
heim til Sigga í Hraunbæinn og vin-
samlega hafa með þá fiska sem ég
hafði veitt. Ég sagði að því miður
hefðu þeir verið í matinn þá um
kvöldið og var ég þá beðinn um að
koma með afganginn af hreistrinu.
Það voru frekar þung skrefin heim
til Sigga, með hreistur í poka, þar
sem fram fór smá yfirheyrsla yfir
drengnum en að lokum leysti Siggi
mig út með fluguboxi og sagði að ég
skyldi prufa að veiða á flugu fljót-
lega. Upp frá þessu hef ég haft mikil
samskipti við fjölskylduna og ég og
Árni, eldri sonur Sigga og Erlu, ver-
ið miklir vinir. Jafnframt hef ég ver-
ið það heppinn í gegnum tíðina að fá
að fara með þeim feðgum í nokkur
skipti í Hlíðarvatn í Selvogi og í bú-
staðinn Borgarfirðinum. Það hefur
alltaf verið gaman og einstaklega
Sigurður Hafsteinn
Benjamínsson