Morgunblaðið - 25.06.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
UMHVERFIS- og samgöngusvið
Reykjavíkur hefur samþykkt breyt-
ingar á umferð í miðborginni til að
auka öryggi óvarinna vegfarenda.
Merkustu breytingarnar eru þær að
kaflar á þremur elstu götum borg-
arinnar, þ.e. Aðalstræti, Vesturgötu
og Hafnarstræti, verða vistgötur. Í
framhaldinu eru hugmyndir um að
loka hluta Hafnarstrætis, a.m.k. á
góðviðrisdögum og jafnvel alveg í
framtíðinni. Þau áform eru tengd
breytingum, sem ætlunin er að gera
á Ingólfstorgi.
Aðalstræti verður vistgata milli
Fischersunds og Vesturgötu, Hafn-
arstræti verður vistgata milli Aðal-
strætis og Veltusunds og Vestur-
gata milli Aðalstrætis og Grófar-
innar. Þar verður einnig sett upp
rútustæði. Þá verður sett einstefna
á Vesturgötu frá Aðalstræti að
Grófinni. Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu þarf að staðfesta þessar
breytingar og er vonast eftir stað-
festingu hennar fljótlega.
Hugmyndin að létta torgið
Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður
skipulagsráðs, segir að breyting-
arnar á Ingólfstorgi tengist nýju
hóteli sem til stendur að reisa sunn-
an torgsins. Tvö timburhús sem
standa við Vallarstræti verða flutt
inn á torgið.
Við það verður torgið þrengra og
segir Júlíus Vífill að hugmyndin
með því að loka hluta Hafnar-
strætis, þ.e. fyrir framan Fálka-
húsið, sé að létta á torginu.
Tvær lágreistar byggingar á
torginu, þ.e. Hlöllabátar og Ísbúðin,
verða látnar standa á sínum stað en
aðgengi að byggingunum rýmkað á
kostnað bílastæða við Veltusund.
Talsverðar breytingar verða á
bílaumferð við Ingólfstorg. Þannig
verður vinstri beygja af Austur-
stræti inn í Veltusund bönnuð en
hægri beygja verður áfram leyfð.
Tillaga Björns Ólafs arkitekts að
breyttu deiliskipulagi við Ingólfs-
torg vegna fyrirhugaðrar hótel-
byggingar var auglýst fyrir nokkru.
Umsagnir og athugasemdir bárust
frá fjölmörgum aðilum.
Björn Ólafs hefur nú sent inn
nýja og breytta tillögu að deiliskipu-
lagi. Skipulagsráð samþykkti á síð-
asta fundi sínum að auglýsa þessa
nýju tillögu. Jafnframt var sam-
þykkt að fella niður auglýsingu um
eldri tillöguna og tilkynna þeim sem
gerðu athugasemdir um máls-
meðferðina.
Hafnarstrætinu lokað
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Lokað Í sumar verður Hafnarstræti lokað frá Aðalstræti að Vallarstræti, ekki verður hægt að keyra þessa götu.
Hluta af þremur elstu götum Reykjavíkur breytt í vistgötur Breytingar gerð-
ar á Ingólfstorgi í tengslum við nýtt hótel Ný tillaga að deiliskipulagi auglýst
Eftir Gunnlaug Árnason
Stykkishólmi - Haförninn ungi sem
fannst grútarblautur fyrir 12 dög-
um í Hraunsfirði hefur fengið frels-
ið að nýju. Kristinn Haukur Skarp-
héðinsson hjá Náttúrustofnun kom
vestur í gær með haförninn eftir
dvöl í höfuðborginni.
Í Húsdýragarðinum fékk hann
góðan aðbúnað og viðurgjörning.
Þar var hann hreinsaður og látinn
jafna sig eftir að hafa verið ósjálf-
bjarga með grútinn á sér í nokkurn
tíma áður en fannst. Haförninn var
vandlátur á mat til að byrja með, en
var hrifnastur af nautshjörtum.
Örninn er eins árs gamall og kom
úr hreiðri við Breiðafjörð og er vel
á sig kominn. Þegar búrið var opn-
að var hann fljótur að koma sér út í
frelsið og var kominn á flug í sömu
andrá.
Haukur er viss um að fuglinn
mun spjara sig eftir þetta óhapp og
vonar að hann eigi langa framtíð,
en hafernir geta náð fertugsaldr-
inum.
Um 40 arnarpör verptu
Að sögn Kristins Hauks eru talin
vera um 60 arnarpör á landinu. Af
þeim verptu 44 pör í sumar sem er
mjög góður árangur. Haukur á von
á því að 23 – 25 pör komi upp ung-
um að þessu sinni og samkvæmt
venju kemur þriðjungur þeirra upp
tveimur ungum.
Haförn á
heimaslóð
Morgunblaðið/Gunnlaugur
HVALUR 8 hélt úr Reykjavíkurhöfn í gærkvöldi og
stefndi á hvalamiðin. Skipið hefur ekki stundað hval-
veiðar síðan árið 1989, en það ár voru vísindaveiðar leyfð-
ar í síðasta sinn hér við land. Skipstjóri á Hval 8 er Haf-
steinn Örn Þorsteinsson, margreyndur hvalveiðimaður.
Sumarið 2006 voru sjö langreyðar veiddar og það var
Hvalur 9 sem veiddi öll þau dýr. Hvalur 9 hélt til veiða
fyrir nokkrum dögum og hafði í gær veitt 8 langreyðar á
vertíðinni. Hátt í 100 manns munu vinna við veiðar og
vinnslu hvals hjá Hval hf. í sumar. sisi@mbl.is
Til veiða eftir 20 ára hlé
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
GEIR H. Haarde, þáverandi for-
sætisráðherra, bað ríkislögmann í
nóvember sl. um að láta vinna álits-
gerð um hugsanlega úrskurðaraðila
í deilu Íslendinga annars vegar og
Breta/Hollendinga hins vegar vegna
Icesave-málsins. Voru það háskóla-
kennararnir Björg Thorarensen,
Stefán Már Stefánsson og Viðar
Már Matthíasson sem unnu álits-
gerðina.
Þar segir m.a. að í bókun 34 með
EES-samningnum sé fjallað um að
dómstólar EFTA-ríkjanna geti farið
fram á það við dómstól Evrópusam-
bandsins að hann skeri úr um túlk-
un á EES-reglum sem samsvara
reglum sambandsins. Ákvæðið eigi
aðeins við þegar vafi leiki á um túlk-
un í máli fyrir dómstóli í EFTA-ríki.
Á ekki við um ágreining við
Breta og Hollendinga
„Ákvæði þetta á alls ekki við um
þann ágreining sem nú er uppi milli
Íslands annars vegar og Bretlands/
Hollands hins vegar, enda er ekkert
mál rekið milli þessara aðila fyrir ís-
lenskum dómstólum. Þar fyrir utan
verður að draga í efa að heimilt sé
samkvæmt íslenskri stjórnarskrá að
nota umrætt ákvæði.“
Dómstóll ESB er sagður geta
starfað sem gerðardómur í nokkr-
um tilvikum, það sé nefnt í Róm-
arsamningnum. Dómstóllinn geti
tekið fyrir deilur milli aðildarríkja
ESB um mál sem Rómarsamning-
urinn tekur til en geti „að öllum lík-
indum ekki verið notaður sem gerð-
ardómur milli aðildarríkis annars
vegar og þriðja ríkis hins vegar“.
Hugsanlega gæti Eftirlitsstofnun
EFTA höfðað mál gegn Íslandi
vegna brota á EES-samningnum
fyrir dómstóli EFTA. Dómur í slíku
máli myndi aðeins slá því föstu
hvort viðkomandi
ríki hafi brotið
skuldbindingar
sínar gagnvart
EES-samning-
num (þ.e. kveða
upp viðurkenn-
ingardóm) en
hvorki kveða á
um skaðabóta-
skyldu né fjár-
hæð hugsanlegra
bóta. Hvorki Bretar né Hollend-
ingar væru bundnir af niðurstöð-
unni. „Verður því að efast um að
slík meðferð komi að nokkru gagni
við lausn þess vandamáls sem hér
er til meðferðar,“ segir í álitsgerð-
inni.
Gerðardómur ef allir
samþykkja þá leið
Hugsanlegt sé að skipa sérstakan
gerðardóm til lausnar deilunni en
„slíkt grundvallast á gagnkvæmu
samkomulagi deiluaðila ... Einnig
kemur til greina að nota fasta al-
þjóðlega dómstóla eins og Alþjóða-
dómstólinn í Haag. Grundvöllur
þess er einnig samkomulag viðkom-
andi aðila.“
Björg
Thorarensen
Viðar Már
Matthíasson
Stefán Már
Stefánsson
Þrír prófessorar skiluðu ríkislögmanni áliti í nóvember
Kannað var hver gæti
úrskurðað um Icesave
Verði hluta Hafnarstrætis lokað fyrir
bílaumferð eins og áformað er,
verða tímamót í miðborginni.
Í bók Páls Líndal, Reykjavík, sögu-
staður við Sund, segir að Hafnar-
stræti hafi öldum saman verið að-
alleiðin að höfuðbólinu Reykjavík,
Örfirisey og fram á Nes. Við strætið,
sem einnig var nefnt Strandgata,
risu verslunarhús og vörugeymslur í
lok átjándu aldar og byrjun þeirrar
nítjándu. Gatan var um allangt skeið
helsta verslunargata Reykjavíkur.
Þegar kom fram yfir 1920 tók vegur
Hafnarstrætis að dvína en Austur-
stræti varð aðalverslunargatan.
Útsala Áfengisverslunar ríkisins
var lengi í Hafnarstræti og þar voru
reknar veitingastofur og drykkju-
krár. Þá komst inn í mál Reykvíkinga
hugtakið að sá sem lent hafði í úti-
gangi vegna drykkjuskapar „væri
kominn í Hafnarstrætið“ eða bara
„kominn í strætið“. Hefur þetta fest
rætur í íslensku máli. Eins orðið
Hafnarstrætisróni eða bara róni.
Rónarnir voru kenndir við Hafnarstræti
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
42
04
0
04
.2
00
8