Morgunblaðið - 25.06.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
NÚ virðist ljóst að lundaveiði verði
lítil sem engin í Vestmannaeyjum í
sumar. Því eru góð ráð dýr til að út-
vega lunda fyrir Þjóðhátíðina því
Eyjamenn segja að hún muni ekki
standa undir nafni nema hægt verði
að bjóða upp á reyktan lunda.
Sama staða var uppi í fyrra og þá
voru það Grímseyingar sem björg-
uðu málunum. Nú liggur fyrir að þeir
muni bjarga málunum á nýjan leik.
„Ég er búinn að tala við Gríms-
eyingana og þeir munu bjarga okkur
aftur. Þeir Grímseyingar sem mæta
á Þjóðhátíðina verða heiðursgestir,“
segir Magnús Bragason í Vest-
mannaeyjum, sem hefur verkað og
reykt lunda fyrir Þjóðhátíð undan-
farin ár. Þegar blaðið sló á þráðinn til
Þórs Vilhjálmssonar lundaveiði-
manns í Grímsey í gær staðfesti
hann að Grímseyingar ætluðu að
bjarga málunum eins og í fyrra. Mik-
il og vaxandi lundabyggð er í Gríms-
ey og hann hefur haft nægt æti, öf-
ugt við lundann í Vestmannaeyjum.
Það er ekkert smáræðis magn sem
Eyjamenn þurfa af lunda fyrir
Þjóðhátíð. Um 14 þúsund gestir
komu á Þjóðhátíð í fyrra og segir
Magnús að gera þurfi ráð fyrir a.m.k.
einum fugli á mann. „Þetta voru
miklar reddingar hjá mér í fyrra,“
segir Magnús.
Hann reiknar með því að Gríms-
eyingar verði að hlaupa undir bagga
næstu árin enda reiknar hann með
því að Eyjamenn fari varlega í lunda-
veiðarnar. Menn hafi verið vongóðir í
fyrrsumar því lundinn virtist vera að
bera síli í pysjurnar í júlí. „En um
mánaðamótin júlí/ágúst var eins og
slökknaði á þessu öllu, hvað sem hef-
ur valdið því,“ segir Magnús.
Gengið um af virðingu
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, sagði í samtali við
mbl.is að ekki hefði verið tekin
ákvörðun um að banna lundaveiði
þar í sumar. Auglýsing um ótíma-
bundið lundaveiðibann, sem birtast
mundi í bæjarblöðum í vikunni, væri
til að koma í veg fyrir að óheftar
lundaveiðar hæfust 1. júlí þegar
hefðbundið veiðitímabil hefst.
Elliði segir, að umhverfis- og
skipulagsráð og bæjarstjórn Vest-
mannaeyja muni eftir sem áður taka
ákvörðun um veiðar á fyrstu dögum
júlímánuðar.
Hann segir, að lundaveiðar í Vest-
mannaeyjum hafi verið takmarkaðar
verulega seinustu ár og séu ekki
svipur hjá sjón enda umgangist
veiðimenn sjálfir náttúruna af virð-
ingu hvað sem öllum boðum og bönn-
um líður.
Grímseyingar
munu leggja
til lundann
Morgunblaðið/Ómar
Lundinn Ómissandi matur á hverri
Þjóðhátíð sem haldin er í Eyjum.
Bjarga á ný Þjóðhátíðinni í Eyjum
KYLFINGAR í Nesklúbbnum eru ýmsu vanir þegar krían ver egg sín og
unga með kjafti og gargi. Með því að lyfta húfu eða kylfu minnka þeir
hættuna á meiðslum, en fara hins vegar oft merktir frá árásinni. Á Nesvell-
inum er borin virðing fyrir kríunni og öðrum fuglum og golfreglur beygð-
ar ef nauðsyn þykir til svo fuglar fái frið til að liggja á hreiðrum sínum.
Morgunblaðið/Ómar
LOFTÁRÁS Á NESINU
LAUN nýs fram-
kvæmdastjóra
Lífeyrissjóðs
verslunarmanna
taka mið af
starfskjörum
ráðherra. Þá er
stjórnandanum
ekki lögð til bif-
reið eins og áður
var og hann er
nú ráðinn til sjö
ára. Þetta segir Ragnar Önund-
arson, formaður stjórnar sjóðsins.
Guðmundur Þ. Þórhallsson, við-
skiptafræðingur, var ráðinn fram-
kvæmdastjóri, en hann hefur starf-
að hjá sjóðnum sem forstöðumaður
eignastýringar undanfarin ár.
Yfir fimmtíu umsóknir bárust
vegna stöðunnar, sem nú heitir
framkvæmdastjóri en ekki for-
stjóri. Capacent gerði forathugun á
umsóknunum, og þeir sem helst
komu til greina voru kallaðir í við-
tal til formanns og varaformanns
stjórnar. halldorath@mbl.is
Tekið mið af
kjörum ráð-
herra, án bíls
Guðmundur Þ.
Þórhallsson
LÖGREGLAN á
höfuðborgar-
svæðinu stöðv-
aði kannabis-
ræktun í
tveimur húsum í
miðborginni í
fyrradag. Á öðr-
um staðnum
fundust munir
sem grunur leikur á að séu þýfi
og var karl á fertugsaldri hand-
tekinn. Á hinum staðnum var
einnig lagt hald á amfetamín og
marijúana en karl á þrítugsaldri
var yfirheyrður vegna málsins.
Síðdegis handtók lögreglan lið-
lega fimmtugan mann í austur-
borginni sem var með fíkniefni í
fórum sínum.
Ræktun í tveimur
húsum í miðbænum
Í FYRSTA skipti
á fjölmörgum
ferðalögum sín-
um hefur franski
ævintýramaður-
inn Thierry
Posty lent í því
að enginn hefur
boðist til að
leigja eða lána
honum hest.
Hann segir að venjulega hringi á
milli 40-60 manns á fyrsta degi þeg-
ar hann óskar eftir hesti, það hafi
ekki verið raunin á Íslandi. Hann
segir áhugaleysið koma sér á óvart
enda sé um hestaþjóð að ræða.
Komi enginn fram sem vilji leigja
honum hest að fyrra bragði verður
að hann því að leita eftir honum
sjálfur. Hafi einhver hest fyrir
Posty er símanúmer hans 867-4475.
Enginn vill leigja
ævintýramanni hest
Thierry Posty
Það þótti tíðindum sæta í fyrra þeg-
ar Grímseyjarlundinn var á borðum í
Herjólfsdal. Kastljós Sjónvarpsins
komst í málið og talaði meðal ann-
ars við Eyjamann sem hélt því fram
að lundinn úr Grímsey væri hálfgert
óæti enda væri allt best í Eyjum.
„Þetta var nú allt sett á svið í
gríni,“ segir Magnús Bragason. „Ég
fékk það hlutverk að hæla Grímseyj-
arlundanum en Sigurjón Ingvarsson
fékk það hlutverk að vera vondi kall-
inn og segja að hann væri ekki sam-
bærilegur við Eyjalundann.“ Kast-
ljósþátturinn var sýndur á
föstudagskvöldinu á Þjóðhátíð og
segir Magnús að margir Eyjamenn
hafi verið bálreiðir Sigurjóni fyrir
ummælin og fyrir að hafa móðgað
Grímseyinga. Það hafi ekki allir átt-
að sig á því að þetta væri grín.
Magnús segir að bragðið sé ná-
kvæmlega eins af báðum teg-
undum. Hins vegar sé Grímseyj-
arlundinn aðeins stærri. Menn sjái
það ekki glöggt en hann hafi tekið
eftir því þegar hann var að pakka
lundanum í öskjur.
Bragðið er nákvæmlega það sama
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
ÞRÁTT fyrir að sátt virðist í sjónmáli í við-
ræðum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins
um stöðugleikasáttamála og líklegt að skrifað
verði undir sáttmála í dag, þá hafa viðræðurnar
verið „hvassar“ undanfarna daga, eins og heim-
ildarmaður Morgunblaðsins komst að orði.
Tekist hefur verið á um stefnu í ríkisfjár-
málum árin 2011 til 2013 síðustu daga og þá
helst hvort taka eigi á miklum halla ríkissjóðs
með því að hækka skatta eða skera niður út-
gjöld.
Eftir fund með Jóhönnu Sigurðardóttur for-
sætisráðherra í stjórnarráðinu í gær komst
hreyfing á málið og voru allir þeir sem tóku
þátt í viðræðunum sammála um að flýta nið-
urstöðu sem allra mest.
Eiríkur Jónsson, formaður Kennarsam-
bands Íslands, sagði Gylfa Arnbjörnsson, for-
seta ASÍ, og Vilhjálm Egilsson, framkvæmda-
stjóra SA, hafa slitið viðræðunum í beinni
útsendingu fyrir hönd opinberra starfsmanna.
„Forseti ASÍ og framkvæmdastjóri SA slitu
viðræðunum fyrir okkar hönd í beinni útsend-
ingu sem hlýtur að vera einsdæmi í sögunni,“
sagði Eiríkur Jónsson formaður Kennarasam-
bands Íslands í samtali við mbl.is í gærkvöldi.
„Vegna þess að við vorum ekki sammála þeim
um eitt atriði þá ákváðu þeir að við værum bún-
ir að slíta. Ég hélt alltaf að við stæðum í samn-
ingaviðræðum við ríkisstjórnina og sveitar-
félögin fyrst og fremst en ekki Alþýðusam-
bandið,“ sagði Eiríkur og var ósáttur við hvern-
ig málin voru kynnt út á við á viðkvæmum
tímapunkti í viðræðunum.
Kennarasamband Íslands mun funda fyrir
hádegi í dag, líkt og miðstjórn BHM og fram-
varðarsveit BSRB. Samþykki aðildarfélögin
sáttatilboð stjórnvalda, verður sáttmálinn
undirritaður klukkan eitt.
„Hvassar“ viðræður undanfarna daga
Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins hafa tekist harkalega á um ríkisfjármál Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra lagði fram sáttatilboð í gær sem stöðugleikasáttmálinn mun byggjast á
Morgunblaðið/Ómar
Stjórnarráðið Hefur verið vettvangur
hvassra skoðanaskipta undanfarna daga.
Kúlu- og rúllulegur Hjólalegusett
Viftu- og tímareimar Hemlahlutir
Hjöru- og öxulliðir Stýrisendar og spindilkúlur
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.3
0
1
Bílavarahlutir
Kúplingar- og höggdeyfar
TRAUSTAR
VÖRUR...
...sem þola álagið!
www.falkinn.is- Það borgar sig að nota það besta