Morgunblaðið - 25.06.2009, Page 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009
VEGAGERÐIN segir ummæli
Mörtu Guðjónsdóttur, formanns
hverfisráðs Kjalarness, um að allt
skipulag varðandi vegarstæðið
fyrir tvöföldun Vesturlandsvegar
sé tilbúið af hálfu borgarinnar,
einnig staðsetning fyrir und-
irgöng og göngustíga að undir-
göngunum, vera röng.
G. Pétur Matthíasson, upplýs-
ingafulltrúi Vegagerðarinnar,
segir þó grófa staðsetningu und-
irganga að finna á aðalskipulagi.
Hann bendir á að ekki sé gert
ráð fyrir mislægum gatnamótum
á núgildandi aðalskipulagi og því
þurfi að breyta skipulaginu áður
en tvöföldun geti hafist. Ekki
liggi fyrir deiliskipulag þar sem
fram komi hvernig tengja ætti
fyrirhuguð undirgöng gang-
stígum.
„Vegagerðin hefur ekki viljað
og má ekki gera undirgöng eða
tvöfalda vegi án þess að fyrir
liggi deiliskipulag. Reykjavík-
urborg á enn eftir að ganga frá
öllum skipulagsatriðum sem snúa
að breikkun Vesturlandsvegar,
þar á meðal breytingum á að-
alskipulagi og deiliskipulagi
vegna undirganganna,“ segir G.
Pétur.
Marta kveðst hafa fengið það
staðfest hjá samgöngustjóra
borgarinnar að stofnbrautin sé í
fullri breidd á aðalskipulagi.
Jafnframt að það sé ekki fyr-
irstaða að breikka veginn þótt
deiliskipulag liggi ekki fyrir.
„Það er alls ekki alltaf farið í
að gera deiliskipulag þegar
breikka á vegi og það eru for-
dæmi fyrir slíku,“ segir hún.
ingibjorg@mbl.is
Ósammála um þörf
á deiliskipulagi
Á LAUGARDAG nk. kl. 13 fer fram
fræðslufundur í Sesseljuhúsi í Sól-
heimum. Þar mun Jón E. Gunn-
laugsson áhugamaður um jurtir
kynna íslenskar lækningarjurtir.
Fyrst fer kynningin fram innan-
dyra en síðan verður haldið út í
náttúruna til að skoða helstu jurtir
sem við eigum í túnfætinum.
Allir eru velkomnir og er að-
gangur ókeypis.
Lækningajurtir
Á LAUGARDAG
og sunnudag nk.
stendur Hunda-
ræktarfélag Ís-
lands fyrir
hundasýningu í
Reiðhöllinni í
Víðidal. 645
hreinræktaðir
hundar af 82
hundakynjum mæta þar í dóm.
Fimm dómarar frá fjórum löndum
munu dæma í fimm sýningar-
hringjum samtímis. Dómar hefjast
kl. 9:00 árdegis báða dagana og
standa fram eftir degi. Úrslit á
sunnudegi hefjast milli kl. 13:30 og
14 og kemur þá í ljós hvaða hundar
bera af að mati dómara.
Hundasýning
um næstu helgi
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Á UNDANFÖRNUM tveimur til
þremur árum hafa verkefni embætt-
is ríkissaksóknara meira en tvöfald-
ast á sama tíma og fjöldi starfs-
manna hefur staðið í stað. Embættið
fékk ekki auknar fjárveitingar á
meðan á góðærinu stóð og nú þegar
kreppir að þarf að skera frekar nið-
ur.
Árið 2007 ritaði þáverandi ríkis-
ur yfirvinna til að mæta honum. Að
mati Valtýs verður ekki lengur við
svo búið eigi embættið að standa
undir nafni.
Valtýr segir að staða embættisins
sé gjörólík því sem er á hinum Norð-
urlöndunum enda fái embætti þar
nauðsynlegt fjármagn til að sinna
verkefnum sínum. Hann fundaði
með Jóhönnu Sigurðardóttur eftir
ritun bréfsins og segir þann fund
hafa verið góðan. Þó horfi ekki til
betri vegar fyrir embættið.
saksóknari, Bogi Nilsson, dóms-
málaráðherra bréf. Þar kom fram að
þó svo að ýtrasta aðhalds hafi verið
gætt við rekstur embættisins hafi
fjárhagur þess verið afar slæmur og
stöðugt barist í bökkum.
Í síðasta mánuði ritaði svo núver-
andi ríkissaksóknari, Valtýr Sig-
urðsson, forsætisráðherra bréf þar
sem fram kemur m.a. að flatur nið-
urskurður á rekstraráætlun fyrir ár-
ið 2009 komi illa niður á embættinu
enda engin óunnin yfirvinna eða önn-
Tvöföldun verkefna hjá ríkissaksóknara
Embættið fékk ekki auknar fjárveitingar meðan á góðærinu
stóð og flatur niðurskurður fyrir árið 2009 kemur illa við það "
"
) ! ) ) $#,
,8$
#,$
#1.
8$ 8; 8$ .
1- 8; 1
;,