Morgunblaðið - 25.06.2009, Qupperneq 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
OTTO Nordhus, norskur stofnandi
einkarekna heilbrigðisfyrirtækisins
Nordhus Medical, er gáttaður á því
að fá ekki að flytja norræna sjúk-
linga til Íslands. Hann hafi leyfi
bæði norskra og sænskra yfirvalda,
sem ætli að niðurgreiða aðgerðirnar
hafi sjúklingarnir verið lengur en 90
daga á biðlista heima fyrir. Íslenski
heilbrigðisráðherrann standi í veg-
inum. Nordhus rekur læknamið-
stöðvar víða um heim.
Nordhus var á landinu í annað
sinn 17.-18. júní á vegum Salt In-
vestments, fjárfestingafélags Ro-
berts Wessman. Hann vill nýta van-
nýttar nýjar skurðstofur á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja (HSS) og
skoðar jafnframt til vara aðstöðuna
á sjúkrahúsinu á varnarliðssvæðinu.
Í símaviðtali frá Svíþjóð segist hann
ekki skilja hvers vegna hugmyndir
þeirra hljóti ekki hljómgrunn hjá
nýja heilbrigðisráðherranum: „Ég
hef meðal annars sett upp þrjú
sjúkrahús í Bretlandi og stofnað
sjúkrahús í Lima í Perú auk þess
sem ég hef samning við norræn
stjórnvöld um að flytja sjúklinga í
aðgerðir á milli landa.“ Þau séu
ánægð með að hann geti veitt sjúk-
lingum hágæða þjónustu á lægra
verði, en nú sendi hann meðal ann-
ars sjúklinga af biðlistum til Banda-
ríkjanna og Thaílands. Sjúklingarnir
sitji löngum stundum í flugvélum og
kjósi því heldur að ferðast styttra.
Ísland sé ákjósanlegt til mjaðma-
liðaskipta-, magaminnkunar- sem og
hjarta- og æðasjúkdómaaðgerða.
Getur fyllt sjúkrahúsið af fólki
Salt Investments hefur áhuga á að
leigja skurðstofurnar á Suðurnesj-
unum og semja við Nordhus að
flytja sjúklinga hingað til lands.
Nordhus nefnir að honum hafi verið
sagt að þær stæðu 90% tímans ónot-
aðar. Á heimasíðu HSS má lesa að
skurðstofurnar eru lokaðar frá 29.
júní til og með 10. ágúst.
„Við gætum fyllt sjúkrahúsið af
sjúklingum en fyrst þurfum við að
byrja og þróa okkur áfram,“ segir
Nordhus: „Við vinnum í teymum og
byrjum daginn klukkan sjö á morgn-
ana og vinnum til fjögur. Þá tekur
annað læknateymi við og vinnur til
miðnættis. Við vinnum einnig um
helgar og því verður nýtingin á
skurðstofunum mun betri en venju-
lega þekkist innan sjúkrastofnana.“
Með leyfið og þarf ekki að bíða
Svíar og Norðmenn endurgreiða
sjúkralegu landsmanna sem hafa
verið á biðlista eftir aðgerðum í 90
daga heima fyrir. Það hófst með
dómi Evrópudómstólsins sem
dæmdi árið 1999 að ef sambærileg
þjónusta byðist ekki heima fyrir
mættu sjúklingar leita til annarra
Evrópusambandsríkja. Síðari dómar
hans hafa þó viðurkennt rétt aðild-
arríkja sambandsins til að takmarka
þessi réttindi sjúklinga til að sækja
heilbrigðisþjónustu milli landanna
og þurfa sjúklingar því leyfi yfir-
valda áður en þeir halda í aðgerðir
utan heimalandsins. Ágreiningur
hefur staðið um málið og er það nú á
borði ráðherraráðsins og Evrópu-
þingsins. Norðmenn og Svíar hafa
þrátt fyrir ágreininginn innan ann-
arra landa Evrópusambandsins nið-
urgreitt aðgerðirnar og Bretar einn-
ig eftir 18 vikna bið heima fyrir.
Samkvæmt áliti sem lögmanns-
stofan BAA Legal ehf. hefur unnið
fyrir Salt Investments má búast við
því að tilskipunin nái inn í laga-
ramma EES-svæðisins eftir tvö til
þrjú ár. Á Alþingi á mánudag vísaði
Ögmundur í þennan ágreining og
sagði málið flókið og óljóst.
Nordhus sem þegar er með samn-
inga við norræn yfirvöld ætlar ekki
að bíða eftir að tilskipunin sé klár.
„Við bíðum ekki svo lengi,“ segir
hann: „Við leitum annað. Við bíðum
ekki eftir furðulegum ákvörðunum.
Íslensk stjórnvöld leituðu til nor-
rænna samherja sinna í leit að lán-
um [eftir bankahrunið]. Þau voru
veitt en þegar þeim býðst að fjölga
störfum segja þau nei!“ Nordhus
bendir á að starfsemi hans myndi
ekki aðeins auka störf innan heil-
brigðisgeirans heldur fylgi sjúkling-
um ættingjar sem ykju hér gjaldeyr-
istekjur og þjónustu: „Ég skil því
ekki hvers vegna heilbrigðisráðherr-
ann getur hafnað boðinu. Ég veit að
hann er kommúnisti en við höfum
einnig kommúnista hér í Svíþjóð og
Noregi og þeir hafa stutt þjón-
ustuna.“
Gáttaður á aðgerðaleysinu
Heilbrigðisráðherra tekur ekki skyndiákvarðanir vegna skurðstofa á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Þjónustan skapi um 300 störf Skurðlæknir vill koma með sjúklinga á kostnað norrænna yfirvalda
Morgunblaðið/Ásdís
Í skurðaðgerð Nýjar skurðstofur eru mestan tímann ónýttar á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja. Stjórnvöld hafa lagst gegn því að þær séu leigðar út.
Í HNOTSKURN
»Nordhus medical varstofnað árið 1988.
»Nordhus hefur starfað áKarolinska sjúkrahúsinu í
Svíþjóð en auk þess í Þýska-
landi, Bandaríkjunum, Dan-
mörku, Noregi og Suður-
Ameríku.
»Hann hefur frá 1999 fluttsjúklinga milli landa, með
samningi við breska, norska
og danska heilbrigðisráðu-
neytið og sænsk yfirvöld.
ENGIN viðbrögð heilbrigðisráðherra eftir tvo óform-
lega fundi, formlegt erindi og ítrekun vekur ugg innan
Salt Health, deildarinnar innan Salt Investments sem
einblínir á heilbrigðismál, um að missa trúverðugleika
sinn gagnvart erlendum samstarfsaðilum.
„Í vetur áttum við í viðræðum við erlenda aðila þar
sem við stefndum á að hefja samstarfið í september–
október,“ segir María Bragadóttir, framkvæmdastjóri
Salt Health. Takist ekki samningar við Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja þurfi Salt að byggja nýjar skurð-
stofur: „Það tekur að minnsta kosti ár.“ Hún rekur það
að þegar Ögmundur Jónasson tók við heilbrigðisráðuneytinu hafi verið bú-
ið að ganga frá öllum endum svo hægt væri að hefja starfsemina. Einungis
hafi átt eftir að útvega aðstöðu til skurðaðgerða og semja við Landspítala
um þjónustu í neyðartilvikum.
„Við höfðum náð samningum í gegnum Otto Nordhus, við vorum tilbúin í
samstarf við aðila í Bandaríkjunum og víðar, höfðum náð sambandi við frá-
bæra sérfræðinga – lækna til að framkvæma aðgerðirnar – og komin í
samstarf við Heilsufélag Reykjaness. Við höfðum fengið vilyrði fyrir hús-
næði hjá Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar, fyrir endurhæfingarhús-
næði. Allir faglegu ferlarnir voru klárir og við tilbúin að hefja starfsemi
fyrir veturinn. En þá hefst nýtt ferli þar sem við eigum vissulega viðræður
við nýjan heilbrigðisráðherra, og ekki hægt að kvarta yfir því, en við fáum
einfaldlega engin svör: hvorki já né nei.“
Salt Health standi því frammi fyrir því að ákveða hvort byggja eigi nýjar
skurðstofur á sama tíma og önnur skurðstofan á Heilbrigðisstofnuninni
standi ónotuð: „Sárast er að rekstur heilbrigðisþjónustu byggist mikið á
stærðarhagkvæmni. Það þýðir að því meiri þjónustu sem hægt er að veita á
einum stað því hagstæðara. Okkur fannst því langeðlilegast að leita til
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.“ Það sé til hagsbóta fyrir alla. Stofnunin
gæti, auk þess að leigja skurðstofurnar, leigt út þjónustu á legudeild og
haft af því tekjur sem hún notaði til að veita landsmönnum þá þjónustu sem
starfsmenn hennar vilji síður sjá á eftir í niðurskurði.
Engin viðbrögð ráðherrans
María Bragadóttir
SEGI heilbrigðisráðherra nei við því að leyfa leigu á
ónýttum skurðstofum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
er mjög líklegt að verkefnið færist til einkaaðila í
Reykjavík. Þetta segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar og stjórnarformaður Heilsufélags
Reykjaness, sem fjögur sveitarfélög á Suðurnesjum,
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Keilir og Bláa lónið,
standa að: „Því er ástæða til að minna á að hér eru nær
1.800 manns atvinnulausir.“
Árni segir Heilsufélagið eiga í viðræðum við Salt In-
vestments og hafi sóst eftir leigunni á skurðstofunum
hjá Heilbrigðisstofnuninni sem milliliður. „Forsvarsmenn Heilbrigðisstofn-
unarinnar hafa tekið vel í hugmyndina, enda sjá þeir tækifæri fyrir sitt
starfsfólk og möguleika á auknum sértekjum og betri nýtingu á skurðstof-
unum, sem nú eru nýttar um 10% tímans.“ Samningurinn við Salt gæti þýtt
helmingsnýtingu á skurðstofunum. Heilbrigðisstofnunin hafi hins vegar
fengið þau svör hjá heilbrigðisráðuneytingu að leigan sé ekki æskileg.
„Af þeim sökum hef ég átt viðræður við heilbrigðisráðherra sem beinast
að því að útskýra málið og fá jáyrði þannig að lokuninni á þennan mögu-
leika verði aflétt.“ Honum hafi verið lofað svörum í þessari viku.
Árni segir málið nú hafa tafist í fjóra mánuði sem þýði að ekki verði
hægt að byrja verkefnið nú á haustmánuðum eins og stefnt var að.
„Ég er vongóður um jákvætt svar, því mér finnst málið augljóst.“
Óttast að missa af tækifærinu
Árni Sigfússon
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
8
4
0
7