Morgunblaðið - 25.06.2009, Side 16
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009
STANGVEIÐI
Eftir Kjartan Þorbjörnsson
golli@mbl.is
FJÖR er að færast í laxagöngur.
Straumur fer stækkandi og veiði-
menn gera sér vonir um að smálax-
inn helli sér í árnar á næsta stór-
streymi.
Gunnar Örlygsson lenti í
skemmtilegu ævintýri á Munaðar-
nessvæðinu í Norðurá í fyrradag.
„Við keyptum okkur bara eina
stöng í einn dag, ég og Arthur Gal-
vez, veiðifélagi minn. Við byrjuðum
klukkan sjö og vorum búnir að fara
yfir alla veiðistaði á svæðinu, nema
einn, tuttugu mínútur fyrir tólf og
ég var orðinn hálf úrkula vonar.“
Átta laxar á áttatíu mínútum
„Þá komum við að Austurkvísl og
þar byrjuðu lætin. Við settum í átta
laxa á áttatíu mínútum og lönduðum
sex þeirra,“ sagði Gunnar og tók
fram að þar af hafi verið tveir stór-
laxar sem báðir hafi fengið líf. „Eft-
ir hádegi settum við síðan í tvo og
náðum öðrum þeirra. Allar að-
stæður voru eins og best verður á
kosið. Vatnshitastig 9-10 gráður,
lofthiti 12-13 gráður, áin bólgin og
blá. Smá veðrabreytingar yfir dag-
inn.“ Gunnar sagði þá félaga hafa
fengið helming aflans á litlar gáru-
túbur en hinn á venjulegar laxa-
flugur. „Þetta var alveg geggjað.
Tundurskeyti og margir laxar á eft-
ir flugunni í einu. Rosalega gaman!“
Gunnar sagðist líka hafa séð lax í
Raflínustreng en ekki á öðrum stöð-
um þrátt fyrir mikla yfirferð.
Fyrsti lax ársins úr Hítará kom á
land á laugardaginn. Í kjölfarið
náðu veiðimenn í næsta holli fjórum
löxum, þar af þremur tveggja ára
fiskum. Samkvæmt svfr.is hafa
veiðimenn orðið óvenju mikið varir
við lax á svæðinu en Hítará hefur
ekki verið þekkt sem snemmsum-
arsá.
Lax strax í Hítará II
Mikla athygli vakti að fyrsti lax-
inn í Hítará II veiddist þegar síðast-
liðinn sunnudag. Þar var á ferðinni
níu punda hrygna sem fékkst í
Skógargljúfri í Tálma. Athyglisvert
er að eingöngu má veiða á flugu á
aðalsvæðinu í Hítará og veiðimönn-
um skylt að sleppa stórlaxi á meðan
veiðimenn í Hítará II mega nota
maðk og hirða sína laxa.
„Alveg geggjað“
Lentu á göngu í Munaðarnesi Tundurskeyti og margir
laxar á eftir flugunni Lax kominn ofarlega í Hítará
Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 28. júní.
Landsamband stangveiðifélaga stendur fyrir deginum og stendur lands-
mönnum til boða að veiða frítt í 28 vötnum hér og þar um landið. Kynning-
arbæklingur hefur verið prentaður þar sem nálgast má upplýsingar um
þau vatnasvæði sem um ræðir. Bæklinginn má nálgast í veiðibúðum.
Þau vötn sem í boði eru: Þingvallavatn fyrir landi þjóðgarðsins, Kleif-
arvatn, Elliðavatn, Meðalfellsvatn, Geitabergs-, Þórisstaða-, og Eyrarvötn í
Svínadal, Vífilsstaðavatn, Langavatn á Mýrum, Hítarvatn, Ljárskógarvötn,
Hraunsfjarðarvatn, Baulárvallavatn, Haukadalsvatn, Syðridalsvatn, Vatns-
dalsvatn í Vatnsfirði, Hópið, Höfðavatn, Hraunhafnar-, Æðar-, og Arn-
arvötn á Melrakkasléttu, Vestmannsvatn, Botnsvatn, Ljósavatn, Sléttuhlíð-
arvatn, Kringluvatn, Urriðavatn, Langavatn, Haugatjarnir, Þveit,
Víkurflóð og Höfðabrekkutjarnir.
Fjölskylduveiði um næstu helgi
Ljósmynd/Arthur Galvez
Nýgenginn Gunnar Örlygsson hampar fallegum laxi sem hann tók í Austurkvísl á Munaðarnessvæðinu í Norðurá.
Gunnar og veiðifélagi hans, Arthur Galvez, lentu í ævintýri þegar þeir hittu á laxagöngu á þriðjudaginn.
LOTTA María
Ellingsen útskrif-
aðist með dokt-
orspróf í raf-
magns- og
tölvuverkfræði
frá Johns Hopk-
ins háskólanum í
Baltimore. Dokt-
orsritgerð sína,
,,Hybrid Deformable Image Reg-
istration – with Application to Brains,
Pelvises, and Statistical Atlas-
es“,vann hún undir handleiðslu Dr.
Jerry L. Prince. Ólínuleg mynd-
mátun (e. deformable image reg-
istration) er aðferð til að finna sam-
svörun milli tveggja mynda þannig að
hægt sé að varpa annarri myndinni
yfir í hina. Þannig má skrá breyti-
leika milli mynda, t.d. líffærabreyti-
leika, sem hefur átt sér stað sökum
öldrunar, sjúkdóma eða sjúkdóms-
meðferðar. Í rannsóknum sínum þró-
aði Lotta María nýja aðferð til ólínu-
legrar myndmátunar, sem nota má
m.a. á segulómmyndir af heila og
tölvusneiðmyndir af mjaðmagrind.
Lotta María lauk stúdentsprófi frá
eðlisfræðideild MR vorið 1998. Hún
lauk B.Sc. prófi í rafmagns- og tölvu-
verkfræði frá HÍ vorið 2001 og MSE
prófi í rafmagns-og tölvuverkfræði
frá Johns Hopkins háskólanum í
Baltimore vorið 2004. Hún hlaut Ful-
bright styrk, Thor Thors styrk,
ásamt styrk úr Minningarsjóði Helgu
og Sigurliða til að stunda nám sitt.
Foreldrar Lottu Maríu eru Anna
Birna Jóhannesdóttir og Stein-
grímur Ellingsen. Hún er búsett í
Baltimore ásamt eigimanni sínum dr.
Hans Tómasi Björnssyni lækni og
syni þeirra Ólafi Birni.
Doktor í rafmagns-
og tölvuverkfræði
ÞRÍR aðalstyrkir voru veittir úr
Menningar- og minningarsjóði
kvenna á kvennafrídeginum 19.
júní sl. Sjóðurinn var stofnaður árið
1941 með dánargjöf Bríetar Bjarn-
héðinsdóttur og er hann hennar
hugarfóstur og óskabarn. Hann er í
vörslu Kvenréttindafélags Íslands.
Fram til ársins 1975 veitti sjóð-
urinn marga styrki en upp úr því
fór heldur að halla undan fæti. Nú á
nýrri öld hefur sjóðurinn gengið í
endurnýjun lífdaga vegna rausn-
arlegrar gjafar frá fyrrum styrk-
þega sjóðsins, Vigdísi R. Hansen og
hefur verið úthlutað árlega úr
sjóðnum frá árinu 2007.
Aðalstyrkina að upphæð 350 þús-
und krónur hlutu Caroline P.
Simm, Akureyri, Kristín Mary
Williamsdóttir, Reykjavík og Sól-
veig Harpa Helgadóttir, Njarðvík.
Auk þeirra voru veittir fjórir auka-
styrkir til kvenna sem stunda nám í
Kvennasmiðju Námsflokka Reykja-
víkur.
Styrkir úr sjóði Bríetar
Bjarnhéðinsdóttur
db k ð l l ð k f l
31 vatnasvæði vítt og breitt um
landið fyrir aðeins 6000 krónur
Þú
ákveður
svo hva
r og
hvenær
þú
veiðir
veidikortid.is
Hver seg
ir að
það sé d
ýrt
að veiða
?
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
www.svfr.is – Sími 568 6050
Úrval veiðileyfa…
laxveiði
silungsveiði
…fyrir alla