Morgunblaðið - 25.06.2009, Page 19
mér líður svo vel þegar ég hreyfi mig,“ segir
Sveinbjörn.
Farin að fá harðsperrur aftur
Að sögn Sveinbjörns fara æfingarnar
fyrir heimsleikana þannig fram að
þau mæta þrisvar í viku í Boot-
camp og þrisvar á CrossFit
æfingu þar sem farið er í
gegnum tæknina í ákveðnum
æfingum. Svo reyna þau að
hlaupa inn á milli. „Þetta
eru öðruvísi æfingar en mað-
ur er vanur að taka þannig
að maður er allt í einu farinn
að fá harðsperrur aftur,“ seg-
ir Annie. Þegar keppninni lýk-
ur í Kaliforníu verður ekki
slegið slöku við því þau stefna á
að taka þátt í Laugavegs-
maraþoninu sem verður helgina
eftir að þau koma heim. Svo
munu þau að öllum lík-
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
H
eimsleikarnir verða haldnir í
þriðja sinn 10.-12. júlí nk.
Keppendur þurfa að vinna sér
inn þátttökurétt en alls komast
að 75 karlar og 75 konur. Tíu
pláss voru tekin frá fyrir Evrópu, fimm fyrir
hvort kynið, og var sótt um tvö pláss fyrir
hönd Íslands. Í maí fóru fram Íslensku
CrossFit leikarnir þar sem Annie Mist og
Sveinbjörn fóru með sigur af hólmi og hlutu
þar með þátttökurétt á heimsleikunum, fyrst
Íslendinga.
Þurfa að geta tekist á
við hvað sem er
Annie og Sveinbjörn æfa nú daglega, jafn-
vel tvisvar á dag, fyrir keppnina. „Við fáum
ekki að vita keppnisgreinarnar fyrr en á mið-
vikudeginum fyrir keppnina. Þjálfunin núna
er því mjög alhliða, því við búumst við öllu,“
segir Annie. Sveinbjörn bætir við að það sé
eitt einkenna
CrossFit. „Maður
þarf að búa sig
undir hið óþekkta.
Maður á að geta
tekist á við hvað
sem er.“
Annie og Svein-
björn hafa bæði
langan og fjöl-
breyttan feril að
baki í íþróttum.
Annie var í fimleikum í 10 ár en skipti svo
yfir í dans. Þrátt fyrir að æfa dans átta sinn-
um í viku fannst henni hún ekki fá næga út-
rás og því byrjaði hún fyrir þremur árum að
mæta í Bootcamp þrisvar í viku og gerir enn.
Fyrir tveimur árum sagði hún skilið við
dansinn og æfir nú stangarstökk hjá ÍR und-
ir stjórn Þóreyjar Eddu Elísdóttur og getur
státað af einum Íslandsmeistaratitli í grein-
inni.
Sveinbjörn æfði skíði í fimmtán ár og vann
Íslandsmeistaratitil áður en hann lagði skíðin
á hilluna og prufaði Tae Kwon Do þar sem
hann vann Íslandsmeistaratitil í lægri belt-
um. Þar staldraði hann aðeins stutt við því
eftir að hann prufaði Bootcamp varð ekki
aftur snúið. Sveinbjörn og Annie hafa bæði
náð góðum árangri í Þrekmeistaranum, unnið
Lífsstílsmeistarann og
Íslensku CrossFit-
leikana, svo fátt eitt
sé nefnt. Svein-
björn hafnaði að
auki í 12. sæti
Laugavegs-
maraþonsins í
fyrra, á 19. besta
tíma sem Íslend-
ingur hefur náð,
þrátt fyrir að
hafa aldrei hlaup-
ið lengra en 20 km
áður en hann tók
þátt. „Ef ég myndi
ekki hreyfa
mig myndi
ég missa
vitið því
Búa sig undir hið óþekkta
CrossFit hefur náð talsverðum vinsældum hér á landi undan-
farna mánuði. Í júlí fara fram heimsleikarnir í CrossFit í Kali-
forníu þar sem Annie Mist Þórisdóttir og Sveinbjörn Sveinbjörns-
son taka þátt, fyrst Íslendinga.
„Við fáum ekki að
vita keppnisgrein-
arnar fyrr en á
miðvikudeginum
fyrir keppnina.
Þjálfunin núna er
því mjög alhliða,
því við búumst við
öllu.“
Hraust Annie Mist Þóris-
dóttir og Sveinbjörn Svein-
björnsson eiga að baki langan
feril í íþróttum.
indum taka þátt í Ironman-keppninni í ágúst.
Aðspurð segjast þau bæði fá mikinn stuðn-
ing frá vinum, ættingjum og vinnufélögum
sem séu áhugasamir um æfingarnar og
keppnina. Dugnaður þeirra og árangur
hvetji þá jafnvel til dáða. „Ég hef
dregið marga vini og vinnufélaga
í Bootcamp og svo er maður
alltaf að hjálpa fólki með mat-
aræðið. Það er mikið spurt
hvað maður eigi að borða og
hversu mikið og ég reyni eins
og ég get að hjálpa,“ segir
Sveinbjörn. Annie hefur
svipaða sögu að segja. „Ég
kem flestum vinum mínum
til að hreyfa sig og flestir
sem ég hef fengið til að prufa
Bootcamp hafa svo byrjað
í því.“
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
E
gg
er
t
Daglegt líf 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009
CrossFit er krefjandi líkamsrækt fyr-
ir jafnt afreksíþróttafólk sem kyrr-
setumenn. Grunnatriði CrossFit eru
tíu talsins: Súrefnisvinnslugeta lík-
amans, þrek, styrkur, liðleiki, afl,
hraði, samhæfing, nákvæmni,
snerpa og jafnvægi. CrossFit vinnur
með náttúrulegar hreyfingar lík-
amans. Æfingarnar miðast við að
vinna með sem flesta vöðvahópa í
einu og þjálfa þannig fólk til að beita
líkamanum á sem réttastan og öfl-
ugastan hátt, sem bæði fyrirbyggir
meiðsli og stuðlar að hámarks-
afköstum. CrossFit nýtir sér það
besta úr heimi lyftinga, líkams-
æfinga og þolíþrótta.
Æfingunum má skipta gróflega í
þrjá flokka: Lyftingar með hand-
lóðum, stöngum, þungum boltum,
ketilbjöllum o.fl. Æfingar með eigin
líkama svo sem kviðæfingar, arm-
beygjur, upphífur, hnébeygjur o.fl.
Þolæfingar svo sem hlaup, róður,
sipp, hopp, sund og fleira.
Hver CrossFit æfing tekur oftast á
bilinu 50-60 mínútur. Fyrst er hitað
vel upp með sippi og líkams-
æfingum, síðan farið yfir tækniatriði
tengd púli dagsins. Svo er púlað í 15-
30 mínútur og afgangur tímans not-
aður í teygjuæfingar og slökun. Hver
æfing er ólík annarri og engin regla á
hlutunum. Lykilatriði í hugmynda-
fræðinni er að líkaminn bregst hrað-
ar og sterkar við ef þjálfun hans fær
aldrei að komast í rútínu. Þess vegna
veit maður aldrei hverju von er á
þegar mætt er á CrossFit-æfingu.
Hvað er
CrossFit?
Rannsóknaþing 2009
H v a ð e r f r a m u n d a n ?
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Dagskrá
9:00 Setning þingsins
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra
9:20 Iðnaðarráðuneytið
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
9:40 Guðrún Nordal formaður vísindanefndar
Vísinda- og tækniráðs
10:00 Þorsteinn Ingi Sigfússon formaður tækninefndar
Vísinda- og tækniráðs
10:20 Kaffihlé
10:30 Tónlist
Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari og Ástríður
Alda Sigurðardóttir píanóleikari
10:40 Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs
Áslaug Helgadóttir aðstoðarrektor
Landbúnaðarháskóla Íslands gerir grein fyrir starfi
dómnefndar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra afhendir
hvatningarverðlaunin
10:55 Léttar veitingar
Rannsóknaþingið er öllum opið.
Þinggestir eru vinsamlega beðnir að skrá sig með
tölvupósti til rannis@rannis.is
eða í síma 515 5800
IÐNAÐAR
RÁÐUNEYTIÐ
FORSÆTIS
RÁÐUNEYTIÐ
MENNTAMÁLA
RÁÐUNEYTIÐ
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Miðvikudaginn 1. júlí kl. 9:00-11:30 á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, Gullteigi.