Morgunblaðið - 25.06.2009, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 25.06.2009, Qupperneq 21
Er Ísland „rusl“ í augum Breta og Hollendinga? Á MBL.IS 19. júní er eftirfar- andi haft eftir Paul Rawkins, hjá lánshæfismatsfyrirtækinu Fitch: „Ástæða þess að fyrirtækið [Fitch] hefur ekki afskrifað lánshæfi Ís- lands er að landið hefur enn ekki vanrækt erlendar skuldbindingar sínar (e. default).“ Fitch metur lánshæfi ríkissjóðs BBB – með nei- kvæðum horfum. Á fjármálamörk- uðum eru einkunnir matsfyr- irtækja á skuldabréfum greindar í tvo meginflokka: fjárfestingarflokk og spákaupmennskuflokk. Einkunnin BBB – með neikvæðum horfum er síðasta stigið í fjár- festingarflokki, næsta stig er BB og flokkast sem spákaupmennska „junk bonds“ eða rusl. Fullyrt hefur verið að í ýmsum lánasamningum sem íslenska ríkið eða fyrirtæki hér á landi eru aðilar að, séu skilyrði um að lánshæfismatið megi ekki fara niður í „junk“ því þá verði lánin tafarlaust gjaldfelld. Enginn virðist treysta sér til að segja nákvæmlega til um, hverjar skuldir ríkissjóðs Íslands eru. Talan 1.500 milljarðar hefur verið nefnd, en sú upphæð er um 102% af vergri landsframleiðslu. Þessi upphæð fær varla staðist þar sem upplýst hefur verið að Icesave-skuldbindingarnar ásamt vöxtum slag- ar í 1.000 milljarða. Algjör óvissa ríkir um hvað fæst upp í þær, því komið hefur í ljós að íslenska ríkið á ekki forgangskröfu, fremur en aðrir lánardrottnar, í eignir Landsbankans er- lendis. Þegar stjórnvöld í Argentínu lýstu því yfir að þau myndu afskrifa allar erlendar skuldir árið 2001 voru þær um 54% af vergri landsframleiðslu landsins. Haft er eftir Jóni Daníelssyni hagfræðingi í fréttum 7. júní, að ef íslenska ríkið lýsti því yfir á alþjóðavettvangi að það hygðist ekki standa við erlendar skuld- bindingar þá myndu erlendir aðilar strax gera kröfu til þess, að allar eignir íslenska ríkisins erlendis yrðu teknar upp í skuldirnar. Ætti þetta við flugfélög, skipafélög, banka og aðra starfsemi. Riftunarheimildir Icesave-samning- anna í 11 liðum eru mjög íþyngj- andi fyrir íslenska ríkið. Tafarlaus gjaldfelling samningsins verður ef Alþingi breytir lögum, s.s. með því að setja ákvæði um að binda eignarrétt auðlinda Íslands í stjórnarskrá. Sama á við ef ríkið vanefnir lánagreiðslur til annarra lán- ardrottna að upphæð £ 10.000.000 eða jafngildi þeirrar upphæðar í öðrum gjaldmiðlum. Ríkisábyrgð í erlendri mynt er í raun veðsetning gjaldeyrisvara- forðans. Hvað er þá eftir þegar hann er uppurinn? Jú, Ísland sjálft og auðlind- ir þess. Staðsetning Íslands á landakorti heimsins er okkar stærsta auðlind, fólkið, fiski- miðin, fallvötnin, þekkingin, landbúnaðurinn, kalda vatnið, heita vatnið, hreinleiki, los- unarheimildirnar, hugsanleg olía á Drekasvæð- inu, endalaust er hægt að telja upp. Ríkisstjórnin er að setja þessar dýrmætu auðlindir að veði fyrir skuldir fjárglæframanna sem íslensk þjóð ber enga ábyrgð á. Annar hluti Icesave-samninganna er ákvæðið um frið- helgisréttindi Íslands í lögsögu annarra ríkja. Friðhelgisréttinum er rutt burt sem þýðir á mannamáli að standi íslenska ríkið ekki við samninginn þá yfirtaka Bretar og Hollendingar allar eigur íslenska ríkisins erlendis. Með þessu er átt við að hægt sé að kyrrsetja flug- vélar og skip í eigu íslenska ríkisins hvar sem er í heiminum, hægt er að yfirtaka banka og allar eigur þeirra sem íslenska ríkið á hvar sem er í heiminum og tel ég að undir þetta ákvæði falli einnig allar eigur íslenskra auð- manna erlendis, þ.e.a.s. hafi íslenska ríkið get- að sannað eignarrétt sinn á þeim með yfirtöku bankanna. Við eigum hvergi griðland, rík- isstjórn Íslands, Bretar og Hollendingar hafa tekið allsherjarveð í eigum Íslendinga í lofti, legi og á láði. Þá er komið að orðum Jóns Daníelssonar á ný er hann telur að erlendir lánardrottnar kyrrsetji allar okkar eigur erlendis, neitum við að borga erlendar skuldir. Þetta ákvæði er í Icesave-samningunum því erlendir lán- ardrottnar vita að við stöndum ekki undir þessum skuldbindingum og lántökum í fram- haldinu. Erlendir lánardrottnar hafa í dag ekki allsherjarveð í eigum okkar og þurfa því að af- skrifa allar okkar skuldir neitum við að borga enda tóku þeir áhættuna af því að lána íslensk- um fjárglæframönnum út í hið óendanlega. Samþykki Alþingi að íslenska þjóðin taki ábyrgð á Icesave-samningunum þá hefur það opnað á stórfellda eignaupptöku íslenska rík- isins og þjóðarinnar, innan lands sem utan. Þetta vita Hollendingar og Bretar, þetta veit Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, þetta veit hið auð- lindasnauða Evrópusamband, þetta vita Íslend- ingar, þetta veit ríkisstjórn Íslands. En leikritið skal keyrt áfram, með blekking- arleik og lygavef í þágu auðhringja heimsins undir forystu Samfylkingarinnar. Við erum „rusl“ sem þýðir að lánshæfisfyrirtæki eru einu þrepi frá að afskrifa Ísland. Eina sem þarf er að viðurkenna opinberlega að við get- um ekki staðið undir erlendum skuldbind- ingum. Verðum við ekki að meta blákalt þessar staðreyndir og skoða í fullri alvöru, hvort við viðurkennum, að svo fámenn þjóð sé ekki fær um að taka á sig þessar stjarnfræðilegu skuld- ir? Ég skora á þingmenn að hafna Icesave- samningunum í atkvæðagreiðslu á Alþingi, að öðrum kosti nær auðvaldskrumlan að hafa okk- ur undir. Eftir Vigdísi Hauksdóttur »Ríkisábyrgð í erlendri mynt er í raun veðsetning gjald- eyrisvaraforðans. Hvað er þá eft- ir þegar hann er uppurinn? Jú, Ísland sjálft og auðlindir þess. Vigdís Hauksdóttir Höfundur er lögfræðingur og þingmaður Framsókn- arflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009 Skál! Þeir sem tóku þátt í Jónsmessugöngunni á Seltjarnarnesi í gærkvöldi, hresstu sig með hákarli og brennivíni þar sem áð var við hákarlaskúrinn. Ómar Jónas Egilsson | 24. júní Ný ógn fyrir hvali! Hvalir, undan ströndum Argentínu, hafa eignast nýjan skæðan óvin - máva sem eru farnir í auknum mæli að gæða sér á hval. Virðast máv- arnir þar fylgja fordæmi kollega sinna sér og eru komnir í sam- keppni við mennina um át á hvölum. Árásir máva á hvali hafa þekkst í mörg ár, en talið er að árásir þeirra hafi aukist úr um 1% tilfella árið 1974 í um 74% nú. Mávar setjast á hvalina þegar þeir koma upp til öndunar, plokka sæ- gróður utan af þeim og komast síðan í bert hold hvalanna þar undir. Eftir verða nokkurra sentimetra löng og nokkuð djúp sár sem sýking kemst í og eru dæmi um nokkur þúsund sár á ein- stökum hval. Þessi næringaraðferð mávanna er hvölunum til mikillar skap- raunar og verja þeir nokkrum tíma til að losna við mávana með því að kafa og nærast því ekki á meðan. Bitnar þetta sérstaklega á kúm með kálfa sem einbeita sér að því að verja kálfana sína í stað þess að næra þá. Meira: jonasegils.blog.is Ólína Þorvarðardóttir | 23. júní Jónsmessunótt Nú fer Jónsmessunóttin í hönd - sú dulmagnaða nótt sem þjóðtrúin telur öðrum nóttum máttugri í mörgum skilningi. Þá nótt glitra óskasteinar í tjörn- um, jarðargróður er þrunginn vaxt- armagni og lækningarmætti, döggin hreinsunarmætti. Því velta menn sér naktir í Jónsmessudögg enn þann dag í dag. Grasa- og galdrakonur fara á kreik og tína jurtir sínar sem aldrei eru mátt- ugri en þessa nótt. Álfar sjást á ferli og kynjaverur sveima á heiðum og í holtum. Meira: olinathorv.blog.is Sigurjón Sveinsson | 24. júní Svona er að eiga góða vini: Klíkuskapur … Kemst svo Samfylk- ingin ekki í stjórn og byrjar strax að raða inn „vinum og vandamönn- um“ í feitar stöður. ISG raðar vinkonum sínum í Flugstöðina og svo í sendiherrastöður. VG gelta áfram enda í andstöðu. Kemst svo VG ekki til valda í kringumstæðum sem þau eflaust hefðu viljað komast hjá. En hvað um það, breytir ekki því að um leið byrjar innvinklun „vina og vandamanna“ og „pólitískt hliðhollra“ í feitar stöður. Eru Svavar Gests og Indriði skattmann bestu kandídatar til að semja um Ice- save meðan reynsluboltar í alþjóða- samningum á borð við Aðalsteinn Leifs- son sitja heima og gera ekkert? Ætlar einhver að segja mér það? VG núna raðar inn hliðhollum í stöður, nefndir, embætti og þar fram eftir götunum. Nákvæmlega það sama og þau bölvuðu í sand og ösku þar til fyrir tæplega einu ári. Ragnar Reykás anyone? Meira: sigurjons.blog.is BLOG.IS Ragna Jóhanna Magnúsdóttir | 24. júní Að gefnu tilefni... … vill Vertinn í Víkinni geta þess að Einarshús er veitingastaður sem býður upp á heimabak- að bakkelsi í stórum stíl sem bakað er af einni bestu húsfreyju stað- arins sem jafnframt er vinnukona í Einarshúsi og ættuð úr Þjóðólfstungu. Einnig eru í boði dýrindisréttir á mat- seðli sem unnir eru að miklu leyti úr hráefni sem verkað er í heimabyggð og bragðast guðdómlega. Allskyns kaffi og súkkulaði býðst á kosta- kjörum og hægt er að bragða á heimabökuðu konfekti með. Staðurinn er afar kósý og aðlaðandi og tilvalinn stoppistaður fyrir gesti og gangandi og upplagt að koma einn og sér og í hópum til að njóta … Meira: vertinn.blog.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.